Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1989, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1989, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 11. MARS 1989. 13 Uppáhaldsmatur Tóm ást - úr eldhúsi Kolbrúnar Halldórsdóttur „Þaö verður alltaf uppi fótur og fit á mínu heimili þegar ég er beðin að gefa uppskrift. Ég kann nefnilega ekki að elda en Gústi er listakokkur og eldhúsiö er hans deild í heimil- ishaldinu,“ sagði Kolbrún Halldórs- dóttir, framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra leikara og fyrrum útvarps- og sjónvarpsmaður, er DV bað um uppáhaldsuppskrift hennar. Gústi er sambýhsriiaður Kolbrúnar og það var hann sem gaf henni uppskrift - í þetta sinn handa lesendum DV. Fyrirsögnin Tóm ást er fengin úr samnefndu leikriti sem Herranótt frumsýndi sl. þriðjudag. Tóm ást er eftir Sjón en það var Kolbrún sem leikstýrði verkinu og tók það hana átta vikur að gera klárt fyrir frum- sýningu. „Á þeim tíma var nú lítið um að maður gæfi sér tíma til að nærast á venjulegan máta, með því að inn- byrða fæðu, heldur var það skapandi og skemmtileg vinna sem hélt í mér lífinu," sagði KoUa. „Nú er komið að því að bæta Ukamanum upp það sem hann fór á mis við þennan tíma og í gær gaf Gústi mér þessa dýrindis pasta-rúUu, sem mér fyndist aö gæti nú bara alveg heitið Tóm ást - það er að minnsta kosti exotiskara en ít- ölsk pastarúfia fyllt með spínati...“ Kolbrún gaf síðan eftirfarandi skýringar á réttingum: „Pastarúlla er sérstök tegund af ítölskum pasta- rétti og hún er venjulega fyUt með spínati og ricotta osti (hann fæst ekki á íslandi svo við notum bara kota- sælu í staðinn). Til að gera rúlluna, sem ítaUr kalla „rotolo", þarf að fletja út pastadeigið í stóran ferning (ca 50x50 sm) og síðan er fyllingunni smurt á feminginn í þunnu lagi og herlegheitunum svo rúllað þétt upp. Loka þarf vel fyrir endana svo fyU- ingin gubbist ekki út við suðu, síðan er rúUunni pakkað í grisju (t.d. blei- ugas) og bundið um á nokkrum stöð- um með seglgami. Þetta þarf að sjóða í hæfilegu magni af söltu vatni í um það bU fjörutíu mínútur. Þá er rúllan tekin upp úr, grisjan tekin utan af og rúUan skorin í eins sm þykkar sneiðar og borin fram strax með bræddu smjöri og ítölskum parmes- anosti stráð yfir.“ Hráefni í deigið 200 gr hvítt hveiti 2 egg og salt Fyllingin 1 kg ferskt spínat eða 'A kg frosið 30 gr smjör 225 gr kotasæla 30 gr rifinn parmesanostur salt og pipar Sósan 75 gr smjör fáein basilikumlauf eða salvía Og yfir allt 60 gr parmesanostur. Aðferðin Fyrst er rétt að búa til fyUinguna. Þvoið og sjóðið spínatið. Pressið svo úr því allan safa, saxið frekar fínt og blandið saman við brætt smjörið. Kælið svolítið og blandið kotasæl- unni saman við ásamt parmesan osti, salti og pipar. Þá er það deigið. Fyrst setur maður hveitið í haug á borðinu, býr til holu í það og í holuna fara eggin og saltið, örhtið vatn (kannski 10 dropar af ólífuoUu). Þá er bleytan í holunni unnin upp í hveitið smám saman og mjög varlega með fingurgómunum. Þegar allur vökvinn er blandaður hveitinu er deigið hnoðað. Berið hveiti á hendurnar meðan það er gert. Þegar búið er að hnoða þetta vel saman er búin til kúla, hún sett í skál, stráð yfir hana örlitlu hveiti og síðan settur rakur klútur yfir og látið standa þannig í fimmtán mínút- ur. Þá er hægt að fletja út deigið. Það er gert með kökukefh og reynt að hafa ferninginn sem þynnstan (ca 1,5 mm) og um leið eins jafnan og hægt er. Síðan er fyUingin sett á deigfern- inginn eins og ég lýsti hér að framan og rúUan soðin. Þetta má ekkert bíða á borðinu, verður að bera strax fram eins og alla pastarétti og smjörið verður Uka að vera sjóðheitt, þannig verður þetta einstaklega lystug og hæfilega létt máltíð. Verði ykkur að góðu!“ -ELA jr SKRUFUDAGUR Kynningardagur Vélskólans verður haldinn laugardaginn 11. mars í Sjó- mannaskólanum við Háteigsveg. Allir velkomnir. Vélskóli íslands. íbúð/hús Óskum eftir að taka á leigu íbúð/hús, 3ja herb. eða stærri/á tímabilinu 20.3 til 1.4 '89 til að nota við upptökur á kvikmynd. Við ábyrgjumst 100% um- gengni. Lysthafendur sendi inn tilboð til DV, merkt ,,B-14", í síðasta lagi fyrir miðvikudag. Lopi - Lopi 3ja þráða plötulopi, 10 sauðarlitir, einnig bláir, rauð- ir og grænir litir. Ullarband, ódýrt. Sendum í póst- kröfu um landið. Lopi, ullarvinnsla, Súðarvogi 4, Rvík. Sími 30581. Kolbrún HallHnrsdóttir býður upp á Tóma ást úr eldhúsinu. DV-mynd Brynjar Gauti HÖFUM OPNAÐ Stórverslun í FAXAFEN114 ^ ^ brautir & ^ff^gluggatjöld hff 83070,82340. J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.