Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1989, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1989, Síða 56
F R ÉTT/VS KOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 LAUGARDAGUR 11. MARS 1989. Fyrsta verk- fallið hefur - verið boðað Fyrsta verkfallið í þeirri hrinu kjarasamninga sem nú fer í hönd hefur verið boðað. Það er Félag ís- lenskra fræða sem reið á vaðið og boðar verkfall frá og með 6. apríl hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. í Félagi íslenskra fræða eru 36 fé- lagar. Þeir tóku alhr þátt í atkvæða- greiðslu um boðun verkfall sem fram fór dagana 6. til 8. mars. Af þessum 36 sögðust 28, eða 77,8 prósent, vilja fara í verkfall, en 7, eða 19,4 prósent, voru andvígir því. Einn seðill var auður. Hjá mörgum félögum innan BHMR stendur nú yfir eða er um það bil að ljúka sams konar atkvæðagreiðslu og því gætu hugsanlega fleiri félög farið að boða verkfall frá og með 6. apríl. -S.dór Fáir „stútar“ við stýri Gylfi Knstjánsson, DV, Akureyii; Það sem af er marsmánuði hafa * fáirökumennveriðteknirölvaðirvið akstur á Akureyri, jafnvel færri en vetfjulega er þrátt fyrir mjög hert eftirlit. * Þó hendir það einn og einn öku- mann að lenda drukkinn í klóm lög- reglu og í því lenti ökumaður vél- sleða í fyrrinótt. Sá ók mikinn eftir Hlíðarbraut og lögreglan náði hon- um. Er afar fátítt áð ökumenn vél- sleða séu teknir í þessu ástandi. Hótel Örk: Enn kært til Hæstaréttar Helgi Þór Jónsson hefur kært þá ákvörðun uppboðshaldarans í Ar- nessýslu að fela Framkvæmdasjóði íslands yfirráð yfir Hótel Örk. Kæran barst Hæstarétti á fimmtudag. Úr- skurður Hæstaréttar ætti að vera væntanlegur eftir fáa daga. Með kærunni reynir Helgi Þór að ná yfirráðum yfir Hótel Örk á ný. -sme Liftiyggingar ih ALÞJÓÐA "LÍ FTR Y GGINGAJRFELAGIÐ HF. I.Á(;MÚU 5 - KLYKJAVlK Simi Í.K1M4 LOKI Það er betra að vera ekki tapsár í þessum félagsskap! - flórðungur af eigin fé hreyfingarinnar gufaður upp Að sögn Guðjóns B. Ólafssonar, að landbúnaðarlögin frá 1985 komu Guðjón sagöi að sjálfur rekstur bandsins um 2,8 milljarðar. Guðjón forstjóra Sambandsins, benda þær til framkvæmda. Smásöluverslun- Sambandsins hefði skilað halla í B. Ólafsson sagði Jjóst að þetta eig- upplýsingar, sem nú liggja fyrir, til in úti á landi hefur verið rekin meö fyrra eins og árið á undan. Með ið fé mundi rýma um nokkur að hallarekstur Sambandsins og halla mörg undanfarin ár. Mörg öðrum orðum hefur Sambandið því hundruö milljónir. Rýmunin yrði kaupfélaganna hafi verið um 2 kaupfélöghafaeinnigfiskvinnsluá ekki staöið undir sjálfu sér á þess- þóaldreijafnmikilogtapiðþar.sem milljarðar á síöasta ári. sínum snærum og ég veit ekki um um árum jafnvel þó fyrirtækiö eignir hækkuðu í verði 1 takt viö „Astæðan fyrir þessum mikla hallarekstri er alktrnn. Bæði ég og aðrir höfum bent á hana undanfar- in tvö ár,“ sagöi Guðjón B. Ólafs- son. „Þar á ég við hinn gífurlega fjár- magnskostnaö, stefhu í gengismál- um, verðbólgu og samdrátt á ýms- um sviðum.“ - Þetta eru allt almenn skilyrði atvinnulífsins. En má ekki rekja hluta afþessum mikla halla til sér- mála samvinnuhreyfingarinnar? „Þau vandamál, sem standa upp úr, eru að þau kaupfélög, sem eru með landbúnaöarstöðvar, hafa tap- að nokkur hundruö milljónum eftir mörg fiskvinnslufyrirtæki sem ekki voru með um 30 til 100 milijón króna halla á síðasta ári. Þessi mikli halli á því ekki að koma nein- um á óvart.“ Ekki liggur enn fyrir uppgjör fyr- ir allt siðasta ár lijá Sambandinu. Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri fyrir fyrstu ellefu mánuði ársins var hallarekstur Sambandsins þá orðinn rúmar 700 miHjónir króna. Guöjón B. Ólafsson sagöi að endan- legar tölur ársins yrðu aldrei lægri en það. Þaö er því ljóst að forstjór- inn ætlar Sambandinu hátt í helm- inginn af tveggja milljarða halla- rekstri siöasta árs. hefði enga vexti þurft að greiöa af lánum sínum. Bókfært tap Sambandins og kaupfélaganna á árinu 1987 var rúmar 400 miUjónir eða um 510 milljónir á verölagi síðasta árs. í fyrra hefur þvf hallinn hartnær fjórfaldast frá fyrra ári. Hér er ekki tekið tillit til eigna- sölu. Með henni tókst Sambandinu aö lækka bókfært tap sitt á árinu 1987 úr 220 milljónum króna í 49 milljónir. Tap samvinnuhreyfing- arinnar árið 1987 hefur því i raun verið um 700 tíl 800 milljónir á verö- lagi ársins 1988. I lok ársins 1987 var eigið fé Sam- verðbólguna. Eigið fé kaupfélaganna var í árs- lok 1987 um 4,4 milljarðar. Ef kaup- félögin hafa tapaö á annan milljarö króna 1 fyrra er Jjóst að eigið fé þeirra hefur einnig rýrnað um nokkur hundruö milljónir. Lauslega áætlað má segja að sam- vinnuhreyfingin hafi í fyrra tapað um 20 til 25 prósent af eigin fé sínu. Hún hefur því tapað fjórðungnum af afli sínu. Þetta tap í fýrra bætist við tap ársins 1987 en þá nam það um 8 til 9 prósent af eigin fé hreyf- ingarinnar. -gse Söngvar Satans renna út Söngvar satans eða Kviður kölska, hin umdeilda bók Salmans Rushdie, hefur runnið út úr bóka- verslun Sigfúsar Eymundssonar eins og heitar lummur. Fyrsta sending, sem var tilraimasending, seldist upp á augabragði og næsta sending fór öll í pantanir. Þriðja sending er væntanleg eftir helgina, á þriðjudag, ef allt gengur að ósk- um. Þessi bók er ein sú umdeild- asta sem út hefur komið seinni ár- in. Eins og fram hefur komið í frétt- um fer höfundur hennar huldu höfði vegna morðhótanastrangtrú- aðra múhameðstrúarmanna. Bók- in hefur víðs vegar verið tekin af lista forlaga og úr hillum bóka- verslana vegna hótana. DV-mynd GVA Veðrið á sunnudag og mánudag: Kaldi og él Suöaustangola verður um norð- anvert landiö og að mestu úrkomu- laust. Suðvestankaldi og smáél verða sunnan- og suðvestanlands. Á mánudag verður sunnankaldi, él vestanlands en hægviðri og úr- komulaust í öðrum landshlutum. Niöurstöður rannsókna: Sjórinn á miðunum mjög kaldur í ár Niðurstöður úr sjórannsóknaleið- angri Hafrannsóknastofnunar sýna að sjórinn á miðunum hér við land er mjög kaldur um þessar mundir. Þetta er annað árið í röð sem sjórinn mælist svona kaldur. Þetta eru að sjálfsögöu mjög alvarleg tiðindi vegna þess að þegar sjórinn er svona kaldur er mun meiri hætta á að öll nýhðun fiskistofnanna hér við land takist verr en ella, auk þess sem dregur úr vaxtarhraða smáfisks í köldum sjó sökum átuskorts. Leiðangur Hafrannsóknastofnun- ar var farinn dagana 2. til 21. febrúar síðastliðinn undir stjóm Svend-Aage Malmberg og Jóns Olafssonar. Slikir leiðangrar hafa verið famir á svipuð- um tíma árs allt síðan 1970. Að þessu sinni vom athuganastaöir færri en venjulega vegna langvarandi óveð- urs. Hinn svokallaði hlýi sjór fyrir Vesturlandi var í meðallagi, eða 4 til 6 gráða heitur, en áhrifa hans gætti ekki fyrir Norðurlandi. Þar er nú kaldur vetrarsjór, aðeins eins til tveggja gráða heitur. Fyrir Austur- landi er einnig kaldur sjór eða sama hitastig og fyrir Norðurlandi. Skilin við Suðurland vom við Lónsbug og hitastig grunnt út af Suðurlandi var lágt, eða undir 6 gráðum. Innst á Selvogsbanka var hitastigjð aðeins 4 til 5 gráður. S.dór Stykkishólmur: Dráttarvél fyrir bíl Árekstur varð við áhaldahús Stykkishólmsbæjar í gær. Dráttar- vél, sem verið var að bakka út á Nesveg, var bakkað í veg fyrir fólks- bíl sem kom akandi eftir götunni. Ekki urðu slys á fólki en ökutækin skemmdust bæði. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.