Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1989, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1989, Qupperneq 15
tm 33/J/ !I flUD/.(I3/-.0UA.I LAUGARDAGUR 11. MARS 1989. M 15 Viðhorf manna til þess hvað sé eðlilegt og sjálfsagt mótast gjarnan af því umhverfi sem þeir búa við. íslendingar lifa og starfa í þjóð- félagi þar sem frelsi til að hafa skoðanir og láta þær í ljósi er orð- inn hversdagslegur veriúeiki. Þess vegna frnnst okkur jafnsjálfsagt og að draga andann að sérhver ein- staklingur geti tjáð hug sinn um nánast hvað sem hann lystir opin- berlega. Jafnframt fordæmum við ótæpilega þá stjómarhætti í öðmm löndum þar sem slík mannréttindi era fótum troðin. „Ég er andvígur því sem þú segir en ég mun veija upp á líf og dauða rétt þinn til að halda þvi fram,“ sagði Voltaire. Mikilvægi skoðana- frelsisins hefur sjaldan verið und- irstrikað betur en með þessum orð- um hins franska heimspekings sem fékk sjálfur að kynnast því hversu iila valdsmenn þola yfirleitt að sjá andstöðu við sig á prenti. Voltaire gerði sér grein fyrir því að mannlegt frelsi er forsenda hamingjuríks lífs. En honum var einnig ljóst að slíkt frjálsræöi heyrði til undantekninga á þeim tímum sem hann lifði. Reyndar blöskraði honum svo ásigkomulag mannlífsins í þá tíð að honum varð eitt sinn að orði að hann óttaðist það allra mest að jörðin væri geð- veikraspítali alheimsins. veldi ráðskuðust með þjóðir íslams eins og geldneyti. Við slíkt mótlæti er gjarnan leitað huggunar í trúnni. Enda fór það svo að barátta þjóða múshma fyrir sjálfstæði og sjálfsvirðingu varð nátengd endur- reisn trúarinnar. Af þeim sökum þykir valdhöfum ríkja eins og írans líka vel henta að bera fyrir sig merki íslams til þess að sameina þjóð sem á ekkert sameiginlegt nema fátækt, hörm- ungar - og trúna. Guðlast hér og þar Hitt er svo annað mál að of- stæki í trúarlegum efnum er ekkert séreinkenni íslams. Flest trúar- brögð eiga sér ofstækisfiúla dýrk- endur sem þola hvorki gagnrýni né frávik frá hinum, að þeirra mati, eina rétta boðskap. Ýmsir kristnir menn, sem telja BibUuna hafa að geyma heUög orð guðs engu síður en músUmar Kór- aninn, era jafhviðkvæmir fyrir því sem kaUast guðlast. Þessa má enn sjá merki í íslensku hegningarlöggjöfinni. Þar segir: „Hver sem opinberlega dregur dár að eða smánar trúarkenningar eða guðsdýrkun löglegs trúarbragðafé- lags, sem er hér á landi, skal sæta sektum eða varðhaldi." Þetta er ekki dauður lagahókstaf- í fjötmm ofstækisins Frelsi er forréttindi Þótt leiðin sé löng frá átjándu öld Loðvíks fimmtánda tfi tuttug- ustu aldar íslamska klerksins Kó- meinýs á þessi granur Voltaires enn frekar rétt á sér nú en þá. Það frelsi, sem við teljum jafnnauðsyn- legt hveijum manni og Voltaire gerði, telst enn tU forréttinda. Mestur hluti heimsbyggðarinnar býr við ófrelsi og kúgun, ýmist póU- tiska eða trúarlega, nema hvort tveggja sé. Flest lönd Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku era þannig eins og vin í eyðimörk ófrelsisins. En jafnvel þar er mannréttindum stundum vikið til hUðar af hand- höfum valdsins og skósveinum þeirra. Hversu skammt er ekki síð- an herfjötur ofstækisins drap sum svoköUuð menningarsamfélög Vesturlanda í dróma villimennsk- unnar? Það er vart mannsaldur síðan sumar þær þjóðir, sem hvað helst stæra sig nú af frelsi og lýð- ræði og virðingu fyrir rétti mann- eskjunnar, steyptu mannkyninu út í óhugnanlegustu ógæfu sögunnar. Þessi reynsla ætti að minna okk- ur á að frelsið er sem viðkvæmt, fágætt blóm sem auðveldara er að rífa upp en rækta. Það á ekki síst við um frelsið tíl að mynda sér skoðanir og láta þær í ljósi á opin- berum vettvangi. Ofstæki íslams Á okkar dögum eru bækur enn bannaðar og brenndar. Fylgjendur ísiams brenna Satansversin. Stjómvöld í löndum þar sem íslam hefur sterk ítök banna útgáfu bók- arinnar. En sum einkafyrirtæki í lýðræðislöndum kippa einnig að sér höndum: hætta ýmist við að selja bókina eða að gefa hana út. Það er ekki nýtt að ofstækismenn banni eða brenni bækur sem þeim er í nöp við. Þótt sumir vilji kenna slíkt háttalag við miðaldir tíðkast bókabrennur og bókabönn enn í dag, jafnvel í svokallaðri háborg lýðréttindanna, Bandaríkjunum. Að ekki sé minnst á að fyrir aðeins um fimmtíu árum vora bækur ýmissa höfuðsnillinga heimsbók- menntanna hrenndar á báli í sum- um stórborgum Evrópu við mikinn fógnuð þátttakenda og áhorfenda. Það er nefnilega viða grunnt á of- stækinu. En Kómeiný hefur gengið skrefi framar. Hann hefur hvatt sanntrú- aðra múslíma til þess að taka höf- und bókarinnar Satansversin af lífi fyrir guðlast. Kristnir Vestur- landabúar, einnig þjóðir sem fyrir skömmu, sögulega séð, kyntu elda helfararinnar miklu, undrast eðli- lega slíka viliimennsku. Og það allt út af einhverri skáldsögu, jafnvel þótt hún fjalli um Múhameð og Abraham og hina heilögu bók ís- lams, Kóraninn. Trú og stjómmál Trúarþörfin hefur fylgt mann- inum frá myrkum árdögum. Trú- arbrögðin era svar við þeirri innri þörf mannsins. Hún er gjarnan mikilvægur þáttur daglegs um- hverfis einstaklingsins allt frá fæð- ingu. í flestum þjóðfélögum gengur Laugardags- pistill Elías Snæland Jónsson aðstoðarritstjóri trúin í arf frá einni kynslóð til ann- arrar. í hinum fijálsari ríkjum er trúin öðra fremur persónulegt mál hvers og eins. En viða er trúin einnig pólitískt afl. Það á við um kristna trú fyrr á öldum og reyndar enn í mörgum kaþólskum löndum. Og það á við um íslam. Stjómmálamenn hafa gjaman beitt trúnni fyrir sig til að ná póli- tískum markmiðum. Fyrr á öldum mátti vart greina á miÚi hins and- lega og veraldlega valds í Evrópu- ríkjum. Trúin þjónaði þá ríkjandi valdastétt. Lúterska siðbótin var ekki síður stjómmálaleg en trúar- leg og leiddi til heiftarlegra póli- tískra átaka og umbyltinga. Og enn í dag beisla ýmsir stjómmálamenn á Vesturlöndum þá orku sem felst í trúarhita kristinna manna til að knýja vagn sinn til póhtískra áhrifa. Endurreisn íslams í ljósi sögunnar þarf enginn að undrast þá samtvinnun trúar og stjómmála sem birst hefur svo ljós- lega í andstöðu múslíma við Sat- ansversin - né heldur hversu stór- yrt og tilfinningaþrungin mótmæl- in era. Múhameð var hæði andlegur og veraldlegur höfðingi. Múslímar trúa því bókstaflega að hann hafi fært .þeim orð guðs í Kóraninum. Sú eingyðistrú, sem Múhameð boð- aði, ýtti eldri trúarbrögðum til hlið- ar. Kóraninn varð ekki aðeins trú- arleg forskrift að daglegu lífi múslíma heldur einnig pólitískt sameiningartákn. Undir merki ís- lams reis á sögulega séð örskömm- um tíma eitt af voldugustu og merkilegustu stórveldum sögunn- ar. Það teygði arma sína frá Ind- landi í austri til Spánar í vestri, stóð langtum ffamar kristnum evr- ópskum samfélögum í menningar- legu tilliti og átti merkan þátt í að varðveita fyrir heimsbyggðina foman hellenskan menningararf. Þegar stórveldi múslíma hrundi fylgdi í kjölfarið lángt tímabil hnignunar og sundrungar sem full- komnaðist í niðurlægingu ný- lendutímans þegar evrópsk stór- ur. Þvert á móti var þessum lagaá- kvæðum beitt fyrir fáeinum árum. Þá var eigandi Spegilsins dæmdur í sekt fyrir að hafa birt guðlast í blaðinu. Sá dómur var staðfestur af Hæstarétti. Á síðustu árum hafa orðið jafnvel heiftarlegar deilur um meint guð- last í skáldverkum hér á landi. Hver man ekki eftir fárviðrinu sem geisaði um Félaga Jesú hér um árið og náði alla leið inn í sali Al- þingis? Og skemmst er að minnast þess að saksóknara þótti ástæða til að láta fulltrúa sinn skoða sérstak- lega kvikmyndina „Síðustu freist- ingu Krists“ áður en hún var sýnd hér á landi til þess að ganga úr skugga um að þar væri ekki á ferð- inni guðlast í skilningi íslenskra laga. Með þetta í huga hlýtur sú spum- ing að vakna hver yrðu viðbrögð valdhafa hér á landi ef íslenskur höfundur tæki sig til og skrifaði um Jesú Krist og Biblíuna með hliðstæðum hætti og gert er um Múhameð og Kóraninn í Satans- versunum. Auðvitað yrði höfund- urinn óhultur með líf og limi, enda um þijár aldir síðan hætt var að dæma menn til dauða á íslandi fyr- ir guðlast. En það kæmi vissulega á óvart ef mál yrði ekki höfðað gegn höfundinum samkvæmt ákvæðum hegningarlaganna um guðlast. Við hljótum að sjálfsögðu að styðja einarðlega rétt Salmans Rushdies til að segja skoðun sína á prenti og mótmælum afdráttar- laust hótunum múslíma í hans garð. En um leið er okkur hollt að líta í eigin barm. Elías Snæland Jónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.