Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1989, Síða 31
LAUGARDAGUR ll. MARS 1989.
47
Skák
Þrumuleikur. Ef 19. - exd5, þá 20.
Rf5 og hótar máti á g7 og biskupn-
um, með vinningsstöðu.
19. - Rxd5
Eða 19. - Bxd5 20. exd5 og nú er
ekki hægt að valda e6 með góðu
móti.
20. Rxe6! g6 21. Rxd8 Dxd8 22. exd5
Hxc2 23. Habl
Zsofla hefur unnið hrók fyrir
riddara og á sigurvænlega stöðu.
Hún heldur áfram að tefla vel og
von bráðar vinnur hún annan
skiptamun!
23. - Bh4 24. Dh3 Bc8 25. Bg4 Bxg4
26. Dxg4 Rxb3 27. g3 Be7 28. f5! a5
29. fxg6 hxg6 30. Dh3! Hxb2 31. Hxb2
a4 32. Hf2 Rc5 33. Hdfl f5 34. g4 Re4
35. Hg2
0,g Tsjernín gafst upp.
Skák
Jón L. Árnason
Karpov í Linares
Anatoly Karpov tókst ekki að
komast upp að hlið Vassily Ivant-
sjúks á stórmótinu í Linares, sem
lauk um síðustu helgi. Karpov varð
að láta sér vel líka jafntefli við Jan
Timman í lokaumferðinni í 43 leikj-
um. Ivantsjúk gerði jafntefli við
Portisch í aðeins 15 leikjum og stóð
einn uppi sem sigurvegari, með 7,5
v. úr 10 skákum. Karpov hreppti
2. sætið með 7 v. Jóhanni Hjartar-
syni gekk afleitlega í seinni hluta
mótsins, tapaði sex síðustu skák-
unum og hafnaði í neðsta sæti.
Sigur Ivantsjúks kom mjög á
óvart, enda er hann aðeins 19 ára
gamall. Það er heldur ekki á hveij-
um degi sem einhver nær að skáka
Karpov, sem á að baki fleiri móta-
sigra en nokkur annar skákmeist-
ari.
Sl. laugardag sáum við vinnins-
skák Karpovs gegn Jusupov, þar
sem Karpov fléttaði laglega í mið-
taflinu og tryggði sér unnið enda-
tafl. Svo líflega tefldi Karpov þó
ekki jafnan í mótinu. Flesta vinn-
inga sína halaði hann inn í hróks-
endatöflum, sem hann tefldi óað-
flnnanlega.
Lítum á hvernig hann lék
Ljubojevic. Eftir staðlaða byrjun -
uppskiptaaíbrigði drottningar-
bragðs - verða stórfelld mr.nna-
kaup. Karpov stýrir taílinu beint
yfir í hróksendatafl, þar sem hann
á greinilega betri stöðu vegna heil-
brigðari peðastöðu. Framvindan
verður skemmtileg, þegar
Ljubojevic hyggst arka með kóng
sinn yfir á drottningarvænginn,
þar sem hann lendir skyndilega í
háska.
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Ljubomir Ljubojevic
Drottningarbragð
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 d5 4. cxd5
exd5 5. Bg5 c6 6. e3 Rbd7 7. Bd3 Be7
8. Dc2 0-0 9. Rf3 He8 10. 0-0 Rf8 11.
Habl Re4 12. Bxe7 Dxe7 13. b4 a6 14.
a4 Bf5 15. Re5 Had8 16. Hfcl Rg6 17.
Bxe4 Bxe4 18. Rxe4 dxe4 19. Rxg6
hxg6 20. b5 cxb5 21. axb5 Hd6 22.
bxa6 bxa6 23. Da4 Dd7 24. Dxd7 Hxd7
Það er aðdáunarvert að fylgjast
með því hvemig Karpov vinnur úr
þessari stöðu. Péðastaða hans er
afar traust og hann getur sótt að
veikum peðum svarts. Fyrst bindur
hann svörtu hrókana við að valda
a-peðið og síðan fer kóngurinn í átt
að e-peðinu.
25. Hc5 Ha7 26. Ha5 Kf8 27. Hb6 Hea8
28. h4 Ke7 29. Kh2 Kd7 30. Kg3 Kc7
31. Hb2 Hb7 32. Hc5+ Kb8 33. Ha2
He7 34. Kf4 Kb7 35. Hb2+ Ka7 36.
Hc6!
Kóngur svarts hefur farið erind-
isleysu yfir á drottningarvænginn
og nú er hann á flæðiskeri staddur.
Hvitur hótar 37. Hhb6 a5 38. Hb5
o.s.frv. og ná a-peðinu. Ekki geng-
ur 36. - Hb7, vegna 37. Hxa6+ Kxa6
38. Ha2+ og síðan falla peðin á
kóngsvæng.
36. - Hh8 37. Ha2 a5
Ekki 37. - Hxh4+ 38. Kg3 Hh5
vegna laglegs samspils hvítu hrók-
anna: 39. Hcxa6+ Kb8 40. Ha8 +
Kc7 41. H2a7+ Kd6 42. Hd8+ Ke6
43. Ha6+ KÍ5 44. Hd5+ He5 45.
Hxe5 mát!
38. Hxa5+ Kb7 39. Hca6 Hxh4+ 40.
Kg3 Hh5 41. Ha7+ Kc6
Eina varnartilraunin. Hann ætl-
ar að svara 42. H5a6+ með 42. -
Hxa5. ,
42. H5a6+ Kb5 43. Hxe7 Hg5+ 44.
Kh2 Kxa6 45. Hxf7
Og Ljubojevic gafst upp. Peðin
falla eitt af öðru.
-JLÁ
Bridge
5. Flugleiðir 105
6. Eiríkur Hjaltason 104
7. Modern Iceland 103
Spilamennska fellur niður mið-
vikudaginn 8. mars vegna undan-
keppni íslandsmótsins í sveita-
keppni, en spilað verður 15. mars.
Bridgefélag Breiðfirðinga
Að loknum 42 umferðum af 55 hafa
Anton R. Gunnarsson og Hjördís
Eyþórsdóttir náð forystunni, en Hall-
grímur Hallgrímsson og Sveinn Sig-
urgeirsson eru ekki langt undan.
Staða efstu para er þannig:
1. Hjördís Eyþórsd-
Anton Gunnarsson 713
Hallgrímur Hallgrímss.-
Sveinn Sigurgeirss. Halldór Jóhannesson- 689
Ólafur Jónsson Gestur Jónsson- 483
Friðjón Þórhallsson Daði Björnsson- 474
Guðjón Bragason Pétur Jónsson- 404
Sigurður Njálsson Þorsteinn Kristjánsson- 386
Guðjón Kristjánsson Ingibjörg Halldórsd- 372
Sigvaldi Þorsteinss. 371
Fimmtudagskvöldið 9. mars fellur
spilamennska niður hjá félaginu
vegna undankeppni íslandsmótsins í
sveitakeppni, en áfram verður haldið
þann 16. mars.
Bridgefélag Reyðarfjarðar og Eski-
fjarðar:
Lokið er aðalsveitakeppni félagsins
og úrslit urðu þessi:
1. Trésíld 140
2. Kristján Björnsson 136
3. Aðalsteinn Jónsson 133
4. Eskfirðingur 119
5. Gísli Stefánsson 94
Næstu tvo þriðjudaga verður spiluö
firmakeppni hjá félaginu.
Bridgeféiag ísafjarðar
Áætluð spilakvöld hjá BÍ1989
9.3. Tvímenningur
16.3. Tvímenningur, aðalfundur
23.3. Tvímenningur, páskaegg
30.3. Einmenningur
6.4. Einmenningur
13.4. Einmenningur
20.4. Sveitakeppni
21.4. Sveitakeppni
22.4. Sveitakeppni
23.4. Sveitakeppni
27.4. Tvímenningur
4.5. Tvímenningur
11.5. Tvímenningur
18.5. Hraðsveitakeppni
25.5. Hraösveitakeppni
26.5. Vestfjarðamót, sveitakeppni
27.5. Vestíjarðamót, sveitakeppni
28.5. Vestfjarðamót, sveitakeppni
IþróttapistLll
Ekki út í
biáinn að
krefjast afreka
áhorfendur létu sig sjaldnast vanta
í hallirnar. Fjölmenntu meira að
segja í húsin í Reykjavík þar sem
þeir hafa nú hins vegar ílestir snú-
ið sér að öðrum hugðarefnum.
Á blómaskeiðinu léku hér útlend-
ingar sem kunnu margir hveijir
ýmislegt fyrir sér í íþróttinni þótt
sumir hafi sjálfsagt verið fremri í
annarri iðju en þeirri sem markast
við kappvöllinn.
í fyrra lauk íslandsmótinu meö
eftirminnilegri reisn og réð þar
miklu ótrúlega spennandi einvígi
milli Hauka og Njarðvíkinga. Fram
að þeim leikjum höfðu þær raddir
gerst háværar að nú væri svo kom-
ið að hingað þyrfti útlendinga að
nýju til að auka veg körfuboltans.
Hvað olh því að þessar hugmynd-
ir urðu undir á sjálfu ársþingi
körfuknattleiksmanna er mörgum
ráðgáta.
Ófáa grunar hins vegar að ein-
hver vorgalsi hafi hlaupið í mann-
skapinn yfir þessum viðureignum
Hauka og Njarðvíkinga og margir .
hafi því séð vöxt íþróttarinnar í
hillingum.
Að mínum dómi er nú timabært
að reyna aftur og kanna hvort
koma útlendinga hleypi ekki þörf-
um ferskleika i íþróttina. Körfu-
boltinn hefur að mínum dómi verið
í of miklum öldudal hin síðustu ár
þótt hann búi við reisn í sumum
byggðarlögum.
Má nefna Suðurnesin og Sauðár-
krók í því sambandi en þar er áhugi
á iþróttinni gríðarlegur. Það er
vonandi að áhugi á þessum stöðum
endurspegh hug ahralandsmanna
til körfuknattleiksins er fram líða
stundir. En til að svo megi fara
þarf breytingar.
Jón Örn Guðbjartsson '1
Um helgina eru tvær þýðingar-
miklar viðureignir í íslenskum
handknattleik. Þá eigast við FH og
SKIF Krasnodar annars vegar og
Valur og Magdeburg hins vegar.
Leikir þessir eru hður í Evrópu-
mótunum í handknattleik en þar
skipum við íslendingar gjarnan
veglegan sess ár hvert þótt langt
sé nú um hðið síðan viö lékum til
úrshta. Það gerði mulningsvélin
hér um árið með eftirminnilegum
hætti.
Nú er sú „maskína" óðum að
færast í sitt fyrra form ef marka
má afrek í neðri deildum. B-lið
Vals, sem grundvallast á mulnings-
vélinni gömlu, vann sinn riðil i
þriðju deildinni fyrir nokkru og
fær fyrir bragðið sæti í 2. deild á
næsta leikári.
En það er nú önnur saga.
Valsmenn
sterkir
Ekki er að efa að áhorfendur
ílykkjast á pallana um helgina hl
að fylgjast meö þessum tveimur
Evrópuleikjum. Þjóðin er enda al-
sæl meö árangur sinna manna í
Frakklandi og hana þyrstir sjálf-
sagt í frekari frægðarverk á al-
þjóðlegum vettvangi.
Að mínu viti er ekki út í bláinn
að kreíjast afreka af íslandsmeist-
urum Vals í leikjunum tveimur
gegn Austur-Þjóðveijunum. Lið
Hhðarendapilta er grundvallaö á
mörgum þeim frábæru leikmönn-
um sem spiluðu til úrshta gegn
Pólverjum nú nýverið í Frakk-
landi.
Varla er þvi veikan hlekk að
finna í Valshðinu gangi landslið-
skappinn Sigurður Sveinsson heill
til skógar á sunnudag.
Meira að segja markvörðurinn,
Páll Guðnason, virðist ætla aö
leysa Einar Þorvarðarson af hólmi
nær hnökralaust þótt ef th vill sé
of snemmt að spá fyrir um fram-
göngu hans í erfiðum leikjum þegar
reynslan getur ráðið úrslitum.
Þungurróður
Gera má ráð fyrir að róður FH-
inga verði þungur gegn sovéska
mótherjanum Krasnodar en Sovét-
menn eiga nú bestu handknatt-
leiksmenn heims.
Hins vegar ber að líta á að fá lið
spila jafnáhrifaríkan sóknarleik og
Hafnfirðingar þegar sá gálhnn er.á
þeim.
Vörnina verður hins vegar að
bæta.
Liðið fékk á sig 27 mörk gegn
vængbrotnum Víkingum nú í vik-
unni og í tveimur leikjum gegn
Baia Mare í Evrópukeppninni fyrr
í vetur fékk hið unga lið á sig 58
mörk, þar af 39 í fyrri viðureign-
inni.
Ekki er að efa að Viggó Sigurðs-
son, þjálfari FH-inga, hefur ráö
undir rifi hverju og kann hann að
finna réttu leiðina tii að leggja
björninn að velli, jafnvel svo ræki-
lega að lið Hafnfirðinga vinni sér
áframhaldandi þátttökurétt í
keppninni.
Aukum litrófið
Fyrir fáeinum árum stóð körfu-
knattleikur í blóma hér á landi og
Jón Kristjánsson mun hafa í mörg horn að líta um helgina en þá leikur lið hans, Valur, við Magdeburg frá
Austur-Þýskalandi. FH-ingar spila við SKIF Krasnodar frá Sovétríkjunum.
DV-mynd BG