Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1989, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1989, Blaðsíða 38
54 LAUGARDAGUR 11. MARS 1989. LífsstOI Páskaferðir innanlands: Farið tii Akureyrar, Þórsmerkur, Snæfellsness og ísafjarðardjúps Ýmsir hugsa sér til hreyfings um páskana. Ferðamöguleikar innan- iands eru í sjálfu sér óþrjótandi þó þeir geti verið háðir færð á vegum að einhverju leyti þar sem páskarnir eru snemma í ár. Heimsóknir til ætt- ingja og vina, feröir í sumarbústaði, skíðaferðir, vélsleða- og jeppaferðir upp um fjöll og firnindi og svo mætti iengi telja af því sem hægt er að taka sér fyrir hendur. Þeir sem vilja fara í skipulagðar páskaferðir innanlands annaðhvort á vegum Flugleiða, Útivistar eða Ferðafélagsins geta valið um margs konar ferðir. Arnarflug er ekki með neinar skipulagöar helgarferðir en mun fljúga til allra áfangastaða félagsins um páska eins og venja er og fjölga ferðum ef þörf er á. Flugfélagið tekur að sér að bóka hótel fyrir fólk á áfangastöðum sínum ef óskað er. --— Skíðaferð til Akureyrar er einn ferðamöguleikinn innanlands um páskana. Fimm daga ferð, innifalið flug, gisting í fjórar nætur og aðgangur að skíðaiyftum, kostar tæpar 30.000 þúsundir fyrir tvo. t Fermingargjöfin í ár: Enskunám í Englandi Það hefur færst mjög í vöxt á síö- ustu árum að fermingarbörnum hef- ur verið gefið tungumálanámskeið í Bretlandi í fermingargjöf. Á sama tíma hefur fólki, á öllum aldri, fjölgað sem heldur til Bretlands til að bæta við tungumálakunnáttu sína. Málaskólar í Bretlandi eru mýmargir og flestar ferðaskrifstofur hafa umboð fyrir einhverja slíka. Það er einnig hægt að fara á eigin vegum, til dæmis er hægt að fá í breska sendiráðinu upplýsingar um mála- skóla í Englandi og hringja svo sjálf- ur í skólana. Með því móti er hægt að spara þá þóknun sem ferðaskrif- stofumar taka fyrir viðvikið. Fermingamar hefjast um næstu helgi og því ákváð DV að skoða að- eins hvað enskunámskeiðin kosta. Lágmark tvær vikur Lengd námskeiðanna er mjög Á kortinu má sjá hvað fjögurra vikna dvöl í tungumálaskóla í Englandi kostar fyrir fermingarbarn. Innifalið í verði er: fiug, gisting á einkaheimili, fullt fæði, 15-25 tíma kennsla á viku og akstur til og frá flugvelli. Skíðaferðir til Akur- eyrar og ísafjarðar Flugleiðir verða með skíðaferðir til Akureyrar og ísafjarðar um pá- skana eins og venja er. Flug, gisting í tvær nætur og lyftugjald kostar í Akureyrarpakkanum 9.897 krónur fyrir manninn sé gist í tveggja manna herbergi, aukanóttin er á 2000 krónur fyrir manninn. Sams konar pakki til Isafjarðar kostar 9.269 krón- ur og aukanóttin kostar það sama og á Akureyri. Leikhúsferð til Akureyrar kostar 10.897 krónur fyrir manninn, inni- falið er flug og tveggja nátta gisting í tveggja manna herbergi. Feröir Helgarpakki til Egilsstaða og Homafjaröar er á 9.019 krónur og aukanóttin er á 1.380 krónur. Helgarferð frá Akureyri, Egilsstöð- um, ísafiröi til Reykjavíkur kostar í kringum 9000 þúsund krónur sé mið- að við sömu forsendur og hér fyrir ofan en hver aukanótt er á 1700 krón- ur. Það skal tekið fram að enn er nóg af lausum sætum í öllum þessum ferðum. Ferðafélag íslands Ferðafélagið hyggur á fjögurra daga ferð á Snæfellsnes um páskana. Lagt verður af stað á skírdag og þann sama dag veröur ekið að Görðum í Staðarsveit og gist þar. Öðrum degin- um verður varið í göngu á Snæfells- jökul. Þriðja deginum verður eytt í skoðunarferð með ströndinni og vestur fyrir Jökul og síðasta daginn er svo haldið til Reykjavíkur. Þessi ferð kostar 6.050 krónur. Ferðafélagið skipuleggur tvær ferðir í Þórsmörk og Langadal um bænadaga og páska. Brottfor í fyrri ferðina er á skírdag en í þá seinni á laugardaginn fyrir páska. Haldið verður tfl Reykjavíkur á annan í páskum í báðum ferðunum. Fimm daga ferðin kostar 4.750 en þriggja daga ferðin kostar 4.050 krónur. Skíðagönguferð í Landmannalaugar Brottfór er á skírdag en þá verður ekið með farþega upp í Sigöldu en þaðan ganga þeir 25 kílómetra leið á skíðum yfir í Landmannalaugar og á annan í páskum verður gengið til baka sömu leið. Dvalið verður þrjá daga í Land- mannalaugum og verða skipulagðar skiðagönguferðir um nágrennið alla dagana. Þessi ferð kemur tfl með að kosta 7.650 krónur. Útivist Útivist efnir tfl nokkurra ferða um páskana. Brottför í lengri ferðir félagsins er á skírdagsmorgun en í þær styttri á laugardagsmorguninn. Farið verður i þriggja og fm#m daga ferð um Snæfellsnes og kdStar sú styttri 4.700 og sú lengri 7.8$) krón- ur. Hápunktur beggja ferðanna er gönguferð á Snæfellsjökul, en einnig verður boðið upp á styttri og lengri skoðunarferðir um strendur og íjöll Snæfellsnessins. I Þórsmörk verður einnig farið í þriggja og fimm daga ferðir. Og kosta þær 5.700 krónur sú lengri en sú styttri 4.450 krónur. Skipulagðar verða gönguferðir um Mörkina alla dagana. Það er ágætis kostur aó sameina tungumálanám og sumartrí. mismunandi þó er yfirleitt ekki gert ráð fyrir að dvalið sé skemur en tvær vikur en síðan er hægt aö vera eins lengi og hver vill en verðið ræðst að sjálfsögðu af þessum tveimur þátt- um. Yfirleitt dvelja þeir sem fara í mála- skóla á einkaheimilum og eru þar ýmist í hálfu eöa fullu fæði. Þó eru nokkrar ferðaskrifstofur sem bjóða upp á dvöl á heimavistar- skólum, má þar til dæmis nefna ferðaskrifstofuna Sögu sem býður upp á dvöl í Buckswood skólanum ásamt ferðskrifstofunni Úrval en þeir bjóða upp á Beaumont sumar- búðirnar sem staðsettar eru víðs veg- ar um England. Inni í skólagjaldinu eru yfirleitt innifahn námsgögn. Mikið er lagt upp úr hálfs- og heflsdags skoðunar- ferðum um næsta nágrenni skólanna en þær eru jafnframt innifaldar í verðinu. Sem dæmi má taka að þeir sem dvelja í Englandi eiga flestir kost á dagsferð tfl London. Nemendur úr öllum heimshornum Kennslustundir á viku eru yfir- leitt 15-25, breytilegt eftir skólum, auk þeirra er boðið upp á alls konar fyrirlestra um breskt þjóðlíf ásamt alls kyns íþrótta- og tómstundaiðju. Ef óskað er koma fulltrúar frá skól- unum og ná í nemendurna út á flug- völl og sjá um að koma þeim á fyrir- hugaðan áningarstað. Hins vegar þarf að greiða fyrir þessa þjónustu aukalega. Námsdvöl á erlendri grund getur verið ævintýri líkust. I skólunum kynnast nemendurnir jafnöldrum sínum frá öllum heimshornum og eignast þannig vini úti um allan heim.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.