Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1989, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1989, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 24. APRÍL 1989. Viðskipti____________________________________________________________________________ðv Hagnaður bankakerfisins yfir 3 milljarðar: Eigið fé fyrirtækjanna sogast yfir til bankanna Steingrímur Hermannsson forsæt- isráöherra segir að það fái ekki stað- ist til lengdar að eigið fé fyrirtækja sé sogað úr fyrirtækjunum yíir til bankanna. En rekstrarafgangur banka, sparisjóða og fjárfestingar- sjóða var um 3 milljarðar á síðasta ári. Á sama tíma rýmaði eigið fé fisk- vinnslunnar um á annan milljarð króna. „Hagnaður banka og helstu fjár- festingarsjóða eftir skatta var um 1,4 milljarðar króna á síðasta ári. Skatt- ar eru um 800 milljónir þannig að beinn hagnaður fyrir skatta er um - segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra 2,2 milljarðar. Greiddir refsivextir til Seðlabanka svo og það sem lagt var í varasjóði og afskriftareikninga var um 800 milljónir þannig að hinn raunverulegi rekstrarafgangur síð- asta árs er um og yfir 3 milijarðar króna,“ segir Steingrímur. Hann segir ennfremur að banka- kerfið hafi haft um 10 prósent arð af eigin fé á meðan annar atvinnu- rekstur hafi búið við 0 til 3 prósent arð af eigin fé. „Mér finnst þetta of mikill hagnað- ur. Það er enginn aö segja að banka- kerfiö eigi að vera rekið með tapi en Steingrimur Hermannsson forsætisráðherra segir að rekstrarafgangur bankakerfisins hafi verið um 3 milljarðar á síðasta ári. ÁTVR gerir meiri kröfur til annarra en sjálfrar sín Vodkastríðið heldur áfram: - segir Orri Vigfusson, framleiðandi Icy „Ég fæ ekki betur séð en að Hösk- uldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, virðist ekki átta sig á að það eru almennir viðskiptahættir í heimin- um að framleiða vörur undir sama vörumerki í mismunandi löndum, úr mismunandi hráefni og oft meö mismunandi útliti umbúða. Mý- mörg dæmi eru um þetta í mat- vælaiðnaðinum. Má nefna gos- drykkinn Kók og bjórinn Tuborg sem dæmi,“ segir Orri Vigfússon, annar eigenda Sprota hf., framleið- anda Icy-vodkans, um orð Hö- skulds Jónssonar, forstjóra ÁTVR, í síöustu viku um að það samrýmd- ist ekki góðum verslunarháttum að selja tvær tegundir af Icy undir sama merki. DV greindi þá frá því að íslenskt vodkastríö væri í uppsighngu þar sem Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, neitaði að selja báðar teg- undir Icy-vodkans, Icy framleitt fyrir Sprota í Skotlandi og Icy- framleiðslu Sprota í Borgarnesi, þar sem um tvær mismunandi teg- undir væri að pæða með sama merki. Þetta er greinilega að verða mikiö hitamál. „Höskuldur segir í DV að notaður séu mismunandi tegundir af vín- anda, spíra, í Icy eftir því hvort framleiðslan er í Skotlandi eða Borgarnesi. Um þetta hefur for- stjóri ÁTVR enga vitneskju," segir Orri. „Báðar tegundir Icy-vodkans uppfylla öll innflutningsskilyrði til Bandaríkjanna en þar eru reglur strangari en í öðrum löndum um innflutning á vörum gagnvart neytendum." Orri segir að ÁTVR kaupi vín- Orri Vigfússon, framleiðandi lcy- vodkans. „Báðar tegundir lcy upp- fylla öll skilyröi til að vera seldar í Bandaríkjunum en þar eru reglur strangari en í öðrum löndum gagnvart neytendum." anda, spíra, í framleiðslu sína með því að vera með útboö og fyrirtæk- ið kaupi svo þann vínanda sem býðst á lægsta verði. Sproti fari hins vegar þá leiðina að finna þann vínanda sem á að vera í framleiðsl- unni og síðan sé samið um verð. „Ég veit ekki að þess hafi verið getið hjá ÁTVR þótt breytt hafi verið um vínanda. Það er því ljóst að ÁTVR gerir meiri kröfur til ann- arra en sjálfrar sín.“ Loks segir Orri að sem dæmi um tvær tegundir vörumerkja á sömu vöru nægi að nefna tvö þekktustu vörumerkin í heiminum, Kók og Ford. „Þessi fyrirtæki fara þessa leið ef henta þykir af markaðsá- stæðum og það hefur ekki verið talið rugla neytendur í ríminu.“ -JGH Tölva spari- sjóðanna talar Sex sparisjóðir reka frá og með deginum í dag svonefiidan síma- . banka. Þessi banki felst í því aö viðskiptavinir sparisjóðanna geta hringt hvar og hvenær sólar- hrings sem er og fengið upplýs- ingar um stöðuna á ávísana- reikningnum og síðustu færslur á honum. Jafiiframt geta þeir millifært inn á reikninginn eða skiliö eftir skilaboð til starfs- mannanna. Auk þess geta þeir fengiö margs konar aðrar upplýs- ingar eins og um innlánsvexti. Mannsrödd gefúr viöskiptavin- unum, sem hringja, allar upplýs- ingar í símann. Ekki er þó starfs- maöur bankans á línunni sem situr kófsveittur við að leita upp- lýsinganna heldur sækir tölvan þær upplýsingar sem beðið er um og þýðir þær yfir á mannamál. Þeir sem hringja og ætla aö komast í samband við símabank- ann verða að hafa til þess sér- stakanaðgangslykil. -JGH Forstjóri Skýrsluvéla ríkisins: Jón Þór Þórhallsson, forstjóri Skýrr. „Við erum með strang- ar öryggisreglur vegna tölvuvirusa." Jón Þór Þórhallsson, forstjóri Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurborgar, segir að stofnunin hafi ekki fyrir barðinu á tölvuvírusum. „Ég banka í borðið núna og segi sjö, níu, þrettán því við erum mjög á verði vegna útbreiðslu tölvuvírusa og lítum mjög alvarlegum augum á máliö.“ Að sögn Jóns eru tölvuvírusar langalgengastir í einmenningstölvum hérlendis og svonefndum nær- netum en það eru lítil tölvunet, gjarnan innan sömu fyrirtækja. „Við erum með svokallaö stjörnunet þar sem ein stór móðurtölva er allt í öllu og er með útstöðvar víða. Reynslan erlendis sýnir að tölvuvírusa hefur lítið orðið vart í slíkum netum." Jón segir aö Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkur- borgar séu með öfiugt öryggiskerfi sem mjög ólíklegt sé að tölvuvírusar fari í gegnum. „Ég get ekki úthst- að það frekar þar sem um öryggismál er að ræða. Jafnframt eru mjög strangar innanhússreglur um utanaðkomandi diska en reynslan sýnir að þar er um algenga smitleiö að ræöa. Viö tökum aðeins á móti viðurkenndum diskum hingað." -JGH Erum mjög vakandi yfir útbreiðslu tölvuvírusa ég tel að kökunni sé skipt ójafnt þeg- ar svo mikill hagnaöur er í bönkum á meðan framleiðslugreinarnar eiga í vök að verjast." - Nú segja bankamenn að bankamir séu reknir með tapi og hafi verið svo um hríð. Er þá ekki kakan að skipt- ast jafnar? „Forráðamenn bankanna töluðu líka um það fyrstu mánuðina í fyrra að bankamir væm reknir með tapi,“ segir Steingrímur Hermannsson. -JGH Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 13-15 Vb.Ab,- Lb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 11-17 Vb 6 mán. uppsögn 11-19 Vb 12mán. uppsögn 11-14,5 Ab 18mán. uppsögn 26 Ib Tékkareikningar, alm. 2-8 Vb Sértékkareikningar 3-17 Vb Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1-2 Vb 6mán. uppsögn 2-3,5 Sp.Ab,- Vb.Bb Innlán meðsérkjörum 24 Bb.Vb,- Ab Innlángengistryggð Bandaríkjadalir 8.5-9 Ib.Vb Sterlingspund 11,5-12 Sb.Ab Vestur-þýskmörk 4,75-5,5 Sb.Ab Danskarkrónur 6.75-7,25 Bb.Sp,- Ib ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 24.5-27 Úb Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 24-29,5 Lb Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 27-31 Úb Utlán verðtryggð Skuldabréf 7,25-8,5 Bb Útlán til framleiðslu Isl. krónur 20-29,5 Úb SDR 10 Allir Bandaríkjadalir 11,75 Allir Sterlingspund 14,5 Allir Vestur-þýskmörk 7,75-8 Úb Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 33,6 MEÐALVEXTIR Óverðtr. apríl 89 20,9 Verðtr. apríl 89 8.1 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala apríl 2394 stig Byggingavísitala mars 435stig Byggingavisitala mars 136,1 stig Húsaleiguvísitala 1,25% hækkun 1. apríl VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa veróbréfasjóða Einingabréf 1 3,738 Einingabréf 2 2,086 Einingabréf 3 2,444 Skammtímabréf 1,292 Lífeyrisbréf 1,880 Gengisbréf 1,667 Kjarabréf 3,722 Markbréf 1,976 Tekjubréf 1,644 Skyndibréf 1,134 Fjölþjóðabréf 1,268 Sjóðsbréf 1 1,796 Sjóösbréf 2 1.473 Sjóðsbréf 3 1,271 Sjóðsbréf 4 1,044 Vaxtasjóðsbréf 1.2484 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 138 kr. Eimskip 400 kr. Flugleiðir 292 kr. Hampiðjan 157 kr. Hlutabréfasjóður 153 kr. Iðnaðarbankinn 179 kr. . Skagstrendingur hf. 226 kr. Útvegsbankinn hf. 137 kr. Verslunarbankinn 152 kr. Tollvörugeymslan hf. 132 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaupa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, lb=lðnaðar- bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp= Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast í DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.