Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1989, Síða 10
10
MÁNUDAGUR 24. APRÍL 1989.
Útlönd
Námsmenn í setuverkf all
Námsmenn hrópa slagorð fyrir utan Alþýðuhöllina í Peking á laugardag á meðan leiðtogar landsins héldu minningarathöfn um Hu Yaobang, fyrr-
um leiðtoga flokksins, innandyra. Simamynd Reuter
Háskólastúdentar í Peking hófu
í morgun setuverkfaU til aö leggja
áherslu á kröfur sínar um lýðræð-
islegar umbætur eftir viku mikilla
umbrota í háskólum um allt Kína.
Um tvö þúsund stúdentar við
háskólann í Peking, virtasta há-
skóla landsins, sniðgengu tíma til
að hlusta á ræður og lesa vegg-
spjöld um lýðræði á háskólasvæð-
inu.
Hópar stúdenta frá öðrum há-
skólum streymdu að skólasvæðinu
til að vera viðstaddir fjöldafund
eftir hádegi í dag.
Fulltrúar stúdenta sögðu að aö
minnsta kosti þrír aðrir háskólar í
Peking tækju þátt í verkfallinu.
Þeir vissu ekki hve margir háskól-
ar um allt landið tækju þátt í verk-
fallinu.
„Verkfall er okkar síðasta úr-
ræði. Við verðum að taka þátt í
verkfallinu af öllu hjarta. Ef við
fáum ekki frelsi og lýðræði munum
við ekki hætta verkfallinu,“ stóð á
veggspjaldi í háskóla alþýðunnar.
Námsmenn í Peking sögðust
myndu sniðganga kennslustundir
um óákveðinn tíma.
í síðustu viku tóku um eitt
hundrað þúsund námsmenn þátt í
mótmælum í miðborg Peking.
Kveikjan að þessum mótmælum
var dauði Hu Yaobang, fyrrum
leiðtoga Kommúnistaflokksins,
sem var hrakinn frá völdum árið
1987. Hu hafði verið mikill talsmað-
ur umbóta.
Opinberir fjölmiðlar brugðust við
mótmælunum og óeirðum í tveim-
ur borgum með því að lofa meira
lýðræði en með þeim hraöa sem
flokkurinn myndi ákveða.
Dagblað alþýðunnar, málgagn
Kommúnistaflokksins, varaði
einnig við því að öngþveiti gæti
orðið dýrkeypt fyrir þá þróun í átt
til nútímans sem nú ætti sér stað
í landinu.
Zhao Ziyang, leiðtogi flokksins,
lét óróaim ekki aftra sér frá því að
fara í gær í opinbera heimsókn til
Norður-Kóreu.
Zhao, sem er valdamikill innan
umbótaarms flokksins, virðist hafa
sloppiö við árásir stúdenta, sem
aðrir háttsettir flokksmenn hafa
orðið ótæpilega fyrir barðinu á nú
síðustu daga.
Dagblað alþýðunnar segir í for-
síðuleiðara í dag að það sé ófrávíkj-
anlegt markmið flokksins og ríkis-
stjórnarinnar að koma á „sósíal-
ísku lýðræði" (félagshyggjulýð-
ræði).
„En lýðræði þarf tíma til að verða
til og slípast og því er ekki hægt
aö ná í einu skrefi," segir í blaðinu.
„Félagslegt rót og óregla verða til
þess eins að gefa litlum hópi fólks
færi á því að koma á óreglu og
hindra þróun í átt til nútímans,“
sagði ennfremur í blaðinu.
Til að leggja áherslu á skilaboðin
birti Dagblað alþýðunnar mynd á
forsíðu af verslun sem hafði verið
rænd íóeirðum á laugardagskvöld.
Óeirðir urðu í tveimur borgum á
laugardagskvöld en engan sakaði í
þeim. Nokkrir voru handteknir.
Reuter
Hermenn draga á brott mótmælanda á Pushkintorginu i Moskvu í gær.
Þúsundir manna söfnuðust þar saman til að minnast þeirra sem féllu i
átökum við hermenn í Tíflis í Georgíu fyrir tveimur vikum.
Símamynd Reuter
Mótmæli
í Moskvu
í Tíflis í Georgíu var í gær minnst
þeirra tuttugu sem myrtir voru af
hermönnum í óeirðunum þar fyrir
tveimur vikum. Og í Moskvu var efnt
til mótmæla vegna morðanna.
Fyrstu erlendu fréttamennimir,
sem fengið hafa að koma til Tíflis
eftir að hermenn notuðu barefli og
eiturgas til að brjóta á bak aftur
mótmælaaðgerðimar þar, segja aö
svæðið þar sem mótmælendur féllu
sé þakið blómsveigum. Átta hundmð
manns, þar af margir ættingjar
hinna látnu, stóðu með kyndla innan
um blóm og myndir af fómarlömb-
unum á tröppum stjómarbyggingar-
innar þar sem herinn hafði bundið
enda á friðsamlega næturvöku átta
þúsund manns. Vakan hófst síðast-
hðinn mánudag, daginn eftir að viku-
löngu útgöngubanni var aflétt í borg-
inni.
Nokkur þúsund manns söfnuðust
saman í Moskvu í gær til að mót-
mæla morðunum í Tíflis. Hermenn
réðust til atlögu gegn mannfjöldan-
um og yfirvöld tilkynntu aö fjörutíu
og sjö hefðu verið handteknir.
Reuter
Pólland:
Walesa hvetur
til stillingar
Fulltrúar Samstöðu og pólsku
stjómarandstöðunnar hittust í gær
til að velja frambjóðendur sína fyr-
ir fyrstu hálf-fijálsu kosningamar
í Póllandi síðan 1947.
Borgaranefndin, sem í eiga sæti
um eitt hundrað og fimmtíu full-
trúar frá Samstöðu og stjómarand-
stöðunni, hittist í háskólanum í
Varsjá til að setja saman lista með
allt að tvö hundmð sextíu og einum
frambjóðanda fyrir kosningarnar í
júní, þar sem kosnir verða fjögur
hundruð og sextíu þingmenn í
neðri deild og eitt hundrað öld-
ungadeildarþingmenn.
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu,
hvatti frambjóðendur til að sýna
stilhngu og tryggja friðsamleg um-
skipti yfir í lýðræði í landinu.
„Núna er tími fyrir rólega, skipu-
lagða vinnu, ekki skæruliðahern-
að,“ sagði Walesa.
Reuter
V/MIKLATORG
SÍMI 621055
Cherokee Laredo turbo, dísil, 1986, ekinn
37.000 mílur, m/öllu. Verð 1.400.000.
M. Benz 200 1986, ekinn 58.000 km, sjólf-
skiptur, sóllúga, álfelgur. Verö 1.650.000.
Einnig M. Benz 260 E (verö 2.800.000)
Subaru st. 4x4 1986, ekinn 63.000 km,
l-blár. Verö 690.000.
Ford Sierra 1600, ekinn 32.000 km, stein-
grár. Verö 550.000.
M. Benz 1922, 1985, ekinn 250.000 km.
Verö 2.900.000.
Viö seljum vörubilana
BÍLASALA GUÐFINNS
SÍMI 621055
Austumki:
Fjöldamorðingi
Snorri Valsscn, DV, Vín:
Sleitulaust hefur verið unnið aö
rannsókn moröanna á Lainz-
sjúkrahúsinu og hefur þar margt
athyghsvert komið í ljós. Meöal
annars mun ein kvennanna, Wal-
traud Wagner, hafa starfað sem
vændiskona í mörg ár, baiði við
símavændi og á næturklúbb. Var
Waltraud afskaplega vinsæl þar
meðal gesta. Lögreglan leitar nú
að minnisbók hennar með nöfnum
og heimilisfóngum fastra við-
skiptavina hennar.
Þá hefur aðalvitnið í máhnu,
Dorah Ferrara Avendano, sagt frá
því aö á næturvöktum hafi oft ver-
ið haldinn gleöskapur. Hún giskar
á að meðaltali þrisvar f mánuöi síð-
ustu árin. Hafi vin veriö haft um
hönd og læknar, hjúkrunarkonur
og sjúkraliöar hafi öll tekið þátt í
þessu,
Einnig er lögreglan að rannsaka
grunsamleg dauðsfóll á öörum
deildura sjúkrahússins. Er þar um
að ræöa konu á elliheimili sjúkra-
hússins sem sannað er aö dó af of
stórum lyfjaskamrati og sjötíu og
fjögurra gamlan mann sem dó á
enn einni deild sjúkrahússins. í
báöum tilfellum kæröu aöstand-
endur sjúkhnganna fáum dögum
eftir dauða þeirra.