Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1989, Side 17
MÁNUDAGUR 24. APRÍL 1989.
17
Öryggið mest í Landsbankanum
Skorri skrifar:
Einhver sómakær kona skrifar les-
endabréf í DV hinn 12. þ.m. og hefur
þungar áhyggjur af sparifé sínu og
annarra í Landsbankanum. Þar sem
ég er og hef verið, eins og þessi bless-
aða áhyggjufulla kona, sparifjáreig-
andi og viðskiptamaður Landsbank-
ans alla tíð og þakka því að hluta
hvað ég á orðið mikla peninga, hlýt
ég því að stinga niður penna til að
reyna að hugga þessa konu sem hef-
ur orðið rík eins og ég á viðskiptum
sínum við bánkann.
í fyrsta lagi get ég bent konunni á
að innstæður okkar í Landsbankan-
um eru hvergi tryggari, allar eigur
íslenska ríkisins standa þar á bak við
sem er ekki raunin hjá neinum hinna
svokölluðu einkabanka eða fjármál-
fyrirtækja sem mest hafa ginið fram-
an í fólk. - Ekki má gleyma fyrirtæk-
inu Ávöxtun sem bauð sparifláreig-
endum gull og græna skóga, en þeir
tapa nú stórum fjárhæðum sem
gleyptu agnið.
í öðru lagi hefur Landsbankinn
greitt hæstu raunvexti af innstæðum
á sínum sérkjarareikningum, hærri
en nokkur annar banki í landinu, og
því hefur enginn sérkjarareikningur
hinna bankanna staðið, t.d. Kjörbók-
inni á sporði. Þess vegna vona ég
sannarlega að blessuð konan hafi
haft aurana sína inni á Kjörbók
Landsbankans eins og ég hefi alltaf
gert.
í þriðja lagi get ég upplýst og hugg-
að þessa sómakonu með því að full-
yrða að bankastjórar Landsbankans
hafa engin bankalög brotið varðandi
SÍS. Bankinn stendur fóstum fótum
hvað varðar öll útlán til þeirra aðila.
Við megum ekki gleyma því að SÍS
er stærsta fyrirtækið í landinu, á
mestar eignir og skuldar mest! -
Þetta verðum við að vita, heiðurs-
konan og ég.
Svo að endingu, vegna þess að
blessuð konan er að skora á okkur
sparifjáreigendur sem eigum sum
okkar mikla peninga að flytja þá eitt-
hvað annað, vii ég sérstaklega vara
við slíku. Landsbankinn er og hefur
alla tíð verið banki allra landsmann-
á, og við erum hvergi öruggari með
okkar innstæður en einmitt þar. Og
að auki ávaxta þær sig alltaf best í
Landsbankanum.
Farðu svo strax í fyrramálið þegar
þú vaknar, elskan mín, niður í
Landsbanka og fáðu uppgefin ávöxt-
unarkjör bankans á sérkjarareikn-
ingum, eins og t.d. Kjörbókinni, og
ávaxtaðu aurana þína þar. - Þá getur
þú sofið örugg og áhyggjulaus, jafn-
vel þótt þú sért ein í rúminu.
■'JfM ■ m ■ ■
Kottur, svartur
og hrakinn
Kona hringdi:
Það er köttur sem hefur verið á
flækingi hér í nágrenninu, sem er
nánar tiltekið á svæðinu við KR-
heimilið og þar í kring og allt aö
Vegamótum. Þetta er svartur kött-
ur með hvíta höku og hvítar tær.
Hann hefur verið nokkur styggur
og er áreíðanlega fyrrum heimil-
isköttur - en hann er orðinn nokk-
uð hrakinn og illa til reika.
Ég hef verið að gefa honum og
hann er því að venjast fólki á ný
hann
Ég vil
en auðvitað væri best að
kæmist til síns eiganda.
éinnig geta þess að það er eins og
sjáist í far eftir hálsband á þeim
svarta þannig að einhvern tíma
hefur hann haft fast heimili.
Ég vil nú auglýsa eftir eiganda
sem hægt væri að benda á viðveru-
slóðir þessa hrakta, svarta kattar.
Hringja má í síma 21805 og fá frek-
ari upplýsingar.
Skrifstofur Sambands íslenskra samvinnufélaga í Reykjavík hafa nú verið
fluttar af Sölvhólsgötu 4 í nýja Sambandshúsið á Kirkjusandi.
Deildirnar sem um er að ræða eru: Búvörudeild 3. næð
Fjárhagsdeild 4. hæð
Sjávarafurðadeild 4. hæð
Forstjóraskrifstofa 5. hæð
í næsta mánuði flytur Skipadeild frá Undargötu 9a
og verður á 1. og 2. hæð Sambandshússins.
Verslunardeild er áfram í Holtagörðumog Búnaðardeild í Ármúla 3.
Símanúmer skiptiborðs Sambandsins er69 8f 00.
Sérstakt símanúmer Sjávarafurðadeildar er69 82 00.
SAMBAND ISLENSKRA SAMVINNUFELAGA
SAMBANDSHÚSINU KIRKJUSANDI 105 REYKJAVÍK
ÞVOTTAVELAR
Lesendur
Staða lögreglumanns
Laus er til umsóknar staða lögreglumanns við emb-
ætti undirritaðs, með aðsetri á Raufarhöfn.
Umsóknarfrestur er til 10. maí nk. Staðan veitist frá
1. júní 1989.
Allar upplýsingar gefa Þröstur Brynjólfsson yfirlög-
regluþjónn og Daníel Guðjónsson varðstjóri í síma
96-41630.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu
bæjarfógeti Húsavíkur.
Halldór Kristinsson.
Blindhæð framundan. Við vitum ekki hvað
leynist handan við hana. Ökum eins langt
til hægri og kostur er og drögum úr hraða.
Tökum aldrei áhættu! méumferðar
Vráð
VERÐ KR. 7.225
V
PR. MANN
(miðað við 4ra manna fjölskyldu)
eða alls kr. 28.900,- stgr.
AFSLÁTTUR KR. 1.000,-
fyrir hvert barn undir 1 árs
5 KG • HEITT OG KALT VATN • 14 PRÓGRÖMM •
TVÖ SPARNAÐARKERFI • ÍSLENSKUR LEIÐARVÍSIR
SENDUM í PÓSTKRÖFU
Skipholti 7, símar 20080 og 26800.