Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1989, Side 41
MÁNUDAGUR 24. APRÍL 1989.
41
Joggingskór
RHODOS
joggingskór
St. 6-12
»huminel^
»humnel^P
LífsstOI
whummél^
- vörulisti fyrir sölutuma
Þær vörur, sem selja má í sölu- ökumenn svo sem sjukrakassa, sól-
tumum sem opnir eru eftir kl. gleraugu og þess háttar. Að lokum
22.00, era: ávextir, blöð, timarit, er sérstaklega tekiö fram aö selja
kort, frímerki og kiljur. Þar má megi ýmsa smávöru á borö við
selja brauðvörur, drykkjarvörur kerti og spii.
og mjólkurvörur, þ.e. G-vörur. Þar Ekki eru allir sammáia um hvaöa
má seija filmur, rafhlöður, Ijósa- vörur fá inni á þessum lista og
perur og heita og kalda smárétti, hveijar ekki í framkvæmd er ekk-
þar með tahnn harðfisk. ert eftirlit með því aö farið sé eftir
Heimilt er að selja hreinlætisvör- þessum reglum. Um það getur hver
ur, verjur, ís og ísvörur, niöur- sem er sannfærst með þvi að bera
soöna matvöru, ritföng, snakkvör- listann saman við vöruúrvalið í
ur, sokka og sokkabuxur, sælgæti, næstu sjoppu.
tóbaksvörur og eldspýtur að -Pá
ógleymdum öryggisbúnaði fyrir
Afgreiðslutími verslana:
Verð 2.580.-
Kveldúlfur:
Reglur um afgreiðslutíma sölu-
búða voru rýmkaðar verulega í
Reykjavík árið 1987. Þá var leyft að
hafa matvöruverslanir opnar til kl.
22.00. Mun rýmri reglur höfðu fram
að því gilt í nágrannasveitarfélögum
Reykjavíkur og kannast víst flestir
við að hafa notað sunnudagsbíltúr-
inn öðrum þræði til þess að kaupa
mjólk.
Enn er mikill munur milli sveitar-
félaga hvað þetta varðar því verslan-
ir í Reykjavík hafa ekki nýtt sér frels-
ið í þeim mæli sem búast hefði mátt
við. Ákvæði reglugerðarinnar ann-
ars vegar og kjarasamninga verslun-
armanna í Reykjavík hins vegar
stangast á.
Almennt eru matvöruverslanir
opnar til 18.00 á virkum dögum, sum-
ar til 18.30 og flestar eru opnar til
16.00 á laugardögum á vetuma. Örfá-
ar undantekningar eru frá þessu og
er í flestum tilfellum um að ræða litl-
ar verslanir. Má nefna Kjalfell,
Gnoðarvogi. Kjötval, Iðufelli, Kveld-
úlf, Freyjugötu og Teigakjör.
í umræddri reglugerð frá 1987 seg-
ir: Afgreiðslutími smásöluverslana í
Reykjavík skal vera frjáls að upp-
fylltum skilyrðum 3. og 4. greinar.
í 3. grein samþykktarinnar segir:
Daglegur afgreiðslutími verslana er
frá kl. 7.00-22.00, þó til 23.00 á Þor-
láksmessu.
Borgarráð getur að fenginni um-
sögn lögreglustjóra heimilað að
verslanir verði opnar á tímabilinu
frá kl. 22.00-7.00 þegar um er að ræða
söluturna eða sambærilega starf-
semi.
Um lokun sölustaða á einstökum
helgidögum og hátíðisdögum gilda
eftirfarandi reglur: Föstudaginn
Hefurbjargað okkur
„Það hefur bjargað okkur algjör-
lega að hafa þennan afgreiðslutíma,
við gætum alveg eins lokað búðinni
ef það væri ekki,“ sagði Rebekka
Guðmundsdóttir í samtali við DV.
Rebekka hefur ásamt Evu Snorra-
dóttur og Gylfa Yngvasyni rekið
verslunina Kveldúlf á Freyjugötu 15
síðan í júní 1988. Kveldúlfur er opinn
frá kl. tíu á morgana til tíu á kvöldin
alla daga nema sunnudaga og þar eru
seldar allar algengar mat- og mjólk-
urvörur.
„Við fáum talsverða traffík út á
þetta,“ sagði Rebekka, „en einnig
vegna þess að þetta er ein af örfáum
verslunum í Reykjavík sem selur
grískan Fetaost sem Osta- og smjör-
salan flytur inn. Við vitum um fólk
sem kemur langt að til þess aö kaupa
þennan ost.“
Kveldúlfur hefur kvöldsöluleyfi en
þeir sem reka búðina eru ekki með-
limir í Kaupmannasamtökunum.
-Pá
„Það hefur verið friður um þessi
mál að undanfórnu," sagði Magnús
Finnsson, framkvæmdastjóri Kaup-
mannasamtaka íslands, í samtali við
DV. „Reglugerðin, sem í gildi er, er
mjög skýr hvað varðar ákvæði um
lokunartíma og sárafá dæmi um að
ekki sé farið eftir henni. Lögreglan á
að sjá um að reglum sé framfylgt.
Kaupmannasamtökin óskuðu á
sínum tíma eftir því að frelsi yrði
gefið hvað þetta varðaði fyrst ekki
tókst að samræma þessar afgreiðslu-
reglur á höfuðborgarsvæðinu öllu.
Borgarstjórn tók þá afstöðu að gera
aðeins breytingu á reglugerðinni.
Síðan hafa skapast ákveðnar vinnu-
reglur um afgreiðslutíma og flestir
fara eftir þeim.“
Almennt munu matvöruverslanir í
Reykjavík ekki vera opnar nema til
18.30 á virkum dögum og nokkrir
stórmarkaðir til 16.00 á laugardög-
um.
Mun frjálslegri reglur eru í gildi
bæði í Kópavogi, Mosfellsbæ og á
Seltjarnarnesi. Algengt er í Kópavogi
að verslanir séu opnar til 20.00 á virk-
um dögum og flestar eru eitthvað
opnar á laugardögum.
-Pá
BLUE HANDBALL
rúskinnsskór
st. 3-13 waw
Verð 2.390.- W
Sendum í póstkrötu
»hum§nél é
SPORTBÚÐIN
Ármúla 40, Rvík, sími 83555
Eiðistorgi 11,2. hæð Seltj. sími 611055
Kveldúlfur á Freyjugötu er dæmigerður fyrir þær versianir sem eru opnar
til 22.00 á kvöldin. Lítil hverfisverslun með fátt starfsfólk. DV-mynd GVA
Kaupmannasam-
tökin vildu frelsi
Verð 3.590.-
Samkvæmt ákvæðum í kjarasamningum verslunarmanna mega matvöruverslanir í Reykjavík ekki vera opnar leng
ur en til 18.30 mánudaga til fimmtudaga og til 21.00 á föstudögum. Reglugerð borgarstjórnar frá 1987 heimilar að
hafa verslanir opnar til 22.00.
langa, páskadag, hvítasunnudag,
jóladag og nýársdag skulu allir sölu-
staðir vera lokaðir allan daginn. Frá
þessari grein er ekki hægt að fá und-
anþágu.
Ennfremur segir að alla sunnu-
daga, skírdag, annan í páskum, ann-
an hvítasunnudag, sumardaginn
fyrsta, 1. maí, uppstigningardag, 17.
júní, fyrsta mánudag í ágúst og ann-
an jóladag skuli sölustaðir vera lok-
aðir allan daginn. Frá þessari grein
geta söluturnar og sambærilegir
staðir fengið undanþágu. Samþykkt-
in skyldar allar verslanir til þess að
auglýsa fasta afgreiðslutíma í versl-
uninni sjálfri.
Af þessu má ljóst vera að talsvert
frelsi ríkir í þessum efnum innan
borgarmarka Reykjavíkur. Hitt er
svo aftur annað mál hvemig kaup-
menn notfæra sér þetta frelsi.
Deilt um vinnutíma
„Það er kveðið á um afgreiðslutíma
verslana í kjarasamningum," sagði
Magnús L. Sveinsson, formaður
Verslunarmannafélags Reykjavíkur,
í samtali við DV. Þessi ákvæði leyfa
verslunum að hafa opið til kl. 18.30
mánudaga til fimmtudaga, til 21.00 á
fóstudögum og kl. 16.00 á laugardög-
um.
„Þetta ákvæði er fyrst og fremst til
þess að koma í veg fyrir óhóflegan
vinnutíma verslunarfólks og meðan
kaupmenn ekki koma á vaktavinnu-
kerfi þykir ekki óhætt að sleppa
hendinni af þessu ákvæði. Þegar þau
mál verða komin í lag mega kaup-
menn hafa opið allan sólarhringinn
fyrir mér. í meginatriðum eru þessi
ákvæði haldin en það eru örfá frá-
vik,“ sagði Magnús. -Pá
DENMARK
leðurskór
st. 3'/2-12
Verð 1.900.-
SINGAPORE
Nælonskór
st. 30—47
Verð 2.090.-
RUNNING THON
Jogging- og maraþonskór
st. 6-12
Verð 5.290.-
TAHARA
st. 28-35
Verð 2.370.-
st. 3'/2-12
Neytendur
Reglugerðin segir eitt,
kjarasamningar annað