Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Page 8
8
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1989.
Hann þekkir leyndarmálið
á bak við vinsældimar
- Geir Guðnason býr til Fanta, Fresca og Minute Maid
Geir Guðnason, framkvæmdastjóri rannsóknarstofu Coca Cola í Atlanta í Bandaríkjunum, spókar sig í Reykjavík
er hann kom hér síöast árið 1987. Myndina tók bróðir Geirs, Sigurður Fannar.
Þegar ég kom heim frá Kenýa var
Coca Cola Food, sem er deild innan
Coca Cola, að íhuga að hef]a jógúrt-
framleiðslu. Þeir höfðu áhuga á að
framleiða jógúrt en ekki fyrr en búið
væri að gera allar rannsóknir á því.
Á næstu fjórum til fimm árum fór
ég þrisvar til Búlgaríu í jógúrtferða-
lög, einnig tíi Pakistan og annarra
landa. Talsverð vöruskipti fara á
milli landa austantjalds og Coca
Cola. T.d. kaupir Coca Cola vín frá
Búlgaríu og fær í staðinn vörur
þeirra.“
Vannvið
sykurhreinsun
Geir hefur fengið að kynnast fleiri
störfum innan Coca Cola fyrirtækis-
ins því um tíma starfaði hann við
Geir Guðnason ásamt syni sínum, Gary. Geir hefur ekki hug á að flytja
aftur til íslands enda hefur hann verið í Bandarikjunum nánast stöðugt frá
árinu 1953.
Það er alltaf skemmtilegt að heyra
af íslendingum sem gengur vel að
hasla sér völl á erlendri grundu.
Geir Valberg Guðnason, dr. í mat-
vælaefnafræði, er einn þeirra en
hann starfar sem framkvæmdastjóri
við rannsóknarstofur í aðalstöðvum
Coca Cola fyrirtækisins í Atlanta.
Geir hefur starfað hjá fyrirtækinu í
tuttugu og fimm ár og var heiöraður
fyrir stuttu vegna þessa langa starfs-
aldurs. Geir er eini íslendingurinn
sem starfað hefur hjá þessu stórfyrir-
tæki í Bandaríkjunum og sannarlega
tekist að halda heiðri landans uppi í
fyrirtækinu.
Reyndar segir Geir að íslendingar
séu í hávegum hafðir í fyrirtækinu
því geysimikii sala er hér á landi í
kók og ísland því númer eitt og tvö
hvað það varðar. „ísland er mikið
kókland,“ segir Geir en hann er þó
ekki einn þeirra fáu útvalda sem
kann formúluna að þeim töfradrykk.
Hins vegar er Geir yfirmaður rann-
sóknardeilda sem býr til Fanta,
Sprite, Minute Maid appelsínugos-
drykk og fleiri drykki. Formúlur
þeirra eru hans leyndarmál. En
hvemig stendur á því að Geir ákvað
að setjast að í Bandaríkjunum og búa
til gosdrykki?
Saknaði
Bandaríkjanna
,,Ég fór fyrst út til Bandaríkjanna
í janúar 1953. Ég útskrifaðist úr
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1951 og fór þá að starfa á Keflavíkur-
flugvelli í eitt ár. í byijun ársins 1953
hélt ég til Bandaríkjanna og ætlaöi
mér í nám í tvö til þijú ár. Ég stund-
aði mitt nám í Comell University og
hætti ekki fyrr en ég var kominn
með doktorsgráðu. Þá fór ég heim -
árið 1961. Ég hafði verið ráðinn hjá
atvinnudeild Háskóla íslands og
starfið beið mín. Þar starfaöi ég í sex
mánuði en fór þá til Svíþjóðar í svo-
kallað „Postdoctoral“ á Karolinska í
eitt ár. Kom aftur heim til íslands en
að ári, í júní ’63, ákvað ég að snúa
aftur til Bandaríkjanna. Ástæðan var
aðallega sú að mig langaði alltaf aftur
hingað. Mér líkaði mjög vel hér með-
an á námi mínu stóð. Auk þess er
erfitt að koma sér í gang eftir nám
heima á íslandi. Hér úti var mun
meira um að vera og betri tæki-
færi,“ segir Geir.
Tvögóð
atvinnutilboð
Hann segist hafa haldið utan án
þess að hafa nokkuð, eins og hann
orðar það. En þegar á staðinn var
komið var hann með tvö gimileg at-
vinnutilboð í höndunum, annað frá
Philips Morris tóbaksframleiðand-
anum og hitt frá aðalstöðvum Coca
Cola. „Eg tók starfinu hjá Philips
Morris en líkaði síðan ekki að vinna
fyrir sígarettufyrirtæki. Eftir nokkra
mánuði hringdi ég í Coca Cola og
sagði að þaö væri hægt að fá mig í
vinnu. í júní 1964 réð ég mig þangaö
og hef verið hér síðan,“ segir Geir.
„Hér er öryggi og mönnum er ekki
hent út í gaddinn.“
En hann byijaði ekki að vinna í
gosinu strax. Þegar Geir réð sig til
Coca Cola vom þeir um það bil að
fara af stað með teframleiðslu. „Sér-
fræðingar fyrirtækisins töldu rétt að
fara út í teframleiðslu þar sem te er
drykkur númer eitt víöast hvar í
heiminum á eftir vatni. Ég vann viö
te frá byrjun og til ársins 1977. Ég
hafði ekki unnið í fyrirtækinu nema
í tvo mánuði þegar ég var sendur í
frumskóga Perú. Þangað fór ég með
margvíslegar græjur, flöskur og dót
og vann við rannsóknir í verksmiðju
sem bjó til te. Ég starfaði í Perú í
fimm mánuði og það merkilega er
að ég og fjölskylda mín höldum sam-
bandi ennþá við flest það fólk sem
viö kynntumst þar á þeim mánuðum
og það hefur heimsótt okkur,“ segir
Geir.
Bjó í Kenýa
Næst lá leið hans og fjölskyldunn-
ar, en Geir er kvæntur Ásbjörgu
Húnfjörð, til New York. Böm þeirra
eru tvö, Gary 21 árs og Linda 19 ára.
í New York er tefyrirtæki í eigu Coca
Cola þar sem Geir starfaði um
tveggja mánaða skeið en var þá send-
ur og lánaður til Brookebond teverk-
smiðjunnar í London. Þar starfaði
Geir í eitt og hálft ár við terannsókn-
ir en fór síðan aftur til New York.
„Við bjuggum í New York í tvö ár
en 1968 fluttum við til Atianta þar
sem við höfum búið síðan," segir
Geir.
„Fyrstu árin hér hjá aðalstöðvum
Coca Cola hélt ég áfram að vinna við
te og á þessum áram sendu þeir mig
til Kenýa. Ég fór þangað á hveiju
ári, 1971, '72 og ’73, tvo mánuði í senn.
Árið 1976 sendu þeir mig ásamt konu
og bömum í tíu mánuði til Kenýa en
þar bjuggum viö rétt hjá Lake Vikt-
oria. Þá var verið að setja upp „in-
stant“ teverksmiðju sem Coca Cola
átti helminginn í og Brookebond
hinn helminginn. Það var mikið
ferðalag. Auk þess hafa þeir sent mig
til Indónesíu og Hong Kong í ráð-
gjafaferðir.
Innanhúss á vinnustað Geirs er glæsilegt umhverfi. Þarna hefur Geir starf-
að í tuttugu og fimm ár og var heiðraður vegna þess fyrir stuttu.