Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Qupperneq 12
12 Breiðsíðan Derricks? Þvi er ekki að neita að þaö er þó nokkur svipur með þeim Höskuldi Ólafssyni og lögregluforingjanum Derrick eða öllu heldur leikaranum Horst Tappert. Eða hvað finnst ykkur? DV-mynd GVA „Hvaö, er Derrick 1 fréttunum?" spurði stelpa móöur sína eitt kvöldið þegar fréttimar voru flutt- Þú ert 2000 krónum ríkari! Þessi ungmenni stóöu og veifuðu fána er Spánarkonungur kom að Hótel Sögu sl. miðvikudag. Kóngurinn heilsaði upp á börnin, þeim til mikillar ánægju eins og sjá má á myndinni. Við verölaunum eitt barniö aö þessu sinni með tvö þúsund krónum. Sá er hefur hring um höfuð sér má vitja peninganna á ritstjórn DV, Þverholti 11. -ELA /DV-mynd GVA ar á annarri hvorri sjónvarpsstöð- inni fyrir skömmu. „Nei, varla. Eða hvað? Nei, hann talar nú ekki íslensku. Hver skyldi þetta vera?“ spurði móðirin. Við nánari athugun kom í ljós að maöurinn var Höskuldur Ól- afsson, bankastjóri Verslunar- bankans. Þar sem hann birtist á skjánum og svaraði spumingum fréttamanna vom áhorfendur að bera hann saman við lögreglu- foringjann geðþekka, Derrick. Derrick þarfnast vart kynningar, enda hefur hann verið góður vin- ur landans í fleiri ár. En æth Höskuldi hafi áðtu- verið líkt við þýska lögregluforingjann? Höskuldur rak upp mikinn hlát- ur þegar spumingin vai' lögð fyrir hann. „Þetta er ekkert sem pirrar mig, jú, jú, kunningjamir hafa verið að stríða mér á þessu undanfarin ár en ég held að þetta sé mesti misskilningur. Það myndi enginn sem sæi mig mgla okkur saman. En þetta er bara hlutur sem ég hef þurft að lifa við og kippi mér ekk- ert upp við það,“ sagði Höskuldur. Ekki var annað að heyra en að honum væri dáhtið skemmt yfir umræðuefninu, svona nærri því eins og hann væri undrandi. Aðspurður sagðist Höskuldur aldrei hafa hitt Derrick en kvaðst hafa ipjög gaman af honum og fylgjast grannt með er hann leysti úrflækjunum. - Langar þig til að hitta lögreglu- foringjann? „Ég hef nú aldrei hugsað út í það,“ sagði Höskuldur, „en ég sá viðtal við leikarann í sjónvarpi og var ipjög ánægður með það. Mað- urinn var afskaplega geðfehdur." -RóG íslenskur tvífari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.