Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1989.
17
Nýjarplötur
Paul McCartney - Flowers In The Dirt
Glæsilegur
blómvöndur
hans, The Melody Makers, sór
lítið fyrir og hirti þrenn verð-
laun. Marley þessiersonur
árabil héráárumáður...
"SþS-
Eftir nokkur mögur ár í tónlistinni
kemur Paul McCartney aftm- fram á
sjónarsviðið stálsleginn og fílefldur
með betri plötu í farteskinu en um
margra ára skeið. Vissulega er tæp-
ast hægt að kalla Paul McCartney
ferskan tónlistarmann; hann er bú-
inn að vera að svo lengi sem elstu
menn í poppinu mima en þó kveður
við ferskan tón á þessari nýju plötu.
Þar er um að ræða samvinnu
McCartneys við Elvis nokkum Co-
stello eða Declan McManus eins og
hann heitir í raun og veru. Ekki verð-
ur annað heyrt en að þetta samstarf
þeirra tveggja lukkist vel í hvívetna
og gefur tónlist McCartneys meiri
vídd en áður.
En það er ekki bara þetta sem lyft-
ir þessari plötu upp, McCartney er
líka í betra formi en oft áður í laga-
smíðúnum og á plötunni er riánast
hvergi veikur punktur.
Hér eru lög af ýmsum toga, í hröð-
um tákti og rólegum. Og eins og
kannski er við að búast eru rólegu
lögin það sem hæst rís, þau hafa enda
verið aðalsmerki Pauls McCartney
aUatíð.
-SþS-
Þetta sögðu
þau...
Þegar fréttamaðurinn spurði tenn-
isleikarann Pat Cash hvers vegna
honum hefði ekki gengið betur í opna
ástralska tennismótinu en raun bar
vitni sagði hann:
„Þér kemur það ekki við. Ég vil
ekki tala um það en ég hafði tíðir.“
Fatahönnuðurinn Fiorucci var
einu sinni spurður hvers vegna hann
hannaði einungis fót fyrir smágerðar
konur svaraði hann:
„Því ég er mannlegur. Stórgerðar
konur eru ljótar og þær eiga ekki að
ganga í fallegum fótum sem vekja á
þeim athygli."
Leikkonan Tracy Uflman sagði eitt
sinn:
„Mér finnast aðrar konur ekki
skemmtflegar og virði þær lítt. Fé-
lagsskapur karlmanna er mér miklu
meira virði og umgengst því mest það
kynið. Þeir eru ekki að þessu slúðri
og kjaftagangi eins og allar konur.
Þess vegna vel ég mér karlmenn sem
vini og félaga.“
Rithöfundurinn Sidney Sheldon
hefur sína skoðun á kvenþjóðinni:
„Ég er orðin hundleið á þeirri
klisju að ef kona sé fáfleg og haldi
sér vel til þá sé hún væntanlega
heimsk. Ég þekki ógrynni kvenna
sem eru kvenlegar, faflegar, gáfaðar
og klárar. Þessar konur standa sig
síst síður en karlmenn í atvinnu
sinni. Það er fáránlegt að halda hinu
fram. Enda hef ég unun af því að
skrifa um þessar konur sem leyfa sér
að undirstrika kyn sitt þótt þær séu
metnaðargjamar og vilji ná langt í
' sínu starfi."
Leikkonan Betty White hefur sagt
eftirfarandi um það að eldast:
„Það hefur tekið mig langan tíma
að fá allar þessar hrukkur og hnur
í andlitið. Ég hef unnið mikið að því.
Vinkonur mínar, sem hafa farið í
andlitslyftingu, hta allar eins út; all-
ar eins og þær hafi ekki gert neitt
um ævina.“
Fyrrverandi forsetafrú Nancy
Reagan lét eitt sinn eftirfarandi frá
sér og talaði til giftra kynsystra
sinna:
„Verið ekki hræddar við að hafa
ykkar eigin skoðanir. Þótt þið séuð
giftar þurfið þið ekki að vera skoð-
analausar og fara alltaf eftir öllum
hugmyndum eiginmannsins."
Um helgina höldum við sýningu á sérstaklega fallegu og vönduðu TGF sumarhúsi við Reiðhöllina í
Víðidal. Einnig verðaþarglæsileghúsgögnfráLÍNUNNIog kynningáþjófa—ogeldvörnumfrá VARA.
Við lofum engu um veðrið, en það verður heitt á könnunni og eitthvað óvænt fyrir börnin.
Komiðog fáiðteikningabækling, eðahringið í síma42255/93-86995 og viðsendum bækling um hæl
Verið veikomin, ókeypis aðgangur.
TFG SUMARHÚSASÝNING Reiðhöllinni í Víðidal laugardag og sunnudag kl. 14.00 - 18.00.
TRÉSMIÐJA
GUÐMUNDAR FRIÐRIKSSONAR
Orvggispjónusta
STOTNSCTT 1M9