Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Síða 19
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1989.
Veiðivon
Bjarga stórlaxamir
og 2 og 3 punda
eldislaxar sumrinu?
eða er þetta allt að koma
Eitthvert einkennilegasta veiöi-
sumar í manna minnum líður áfram
og núna er liðinn meira en mánuður
af því. Margir veiðimenn hafa ekki
fengið neitt, sumir nokkra og ennþá
færri marga. Veiðimenn hafa mátt
þakka fyrir að fá eitthvað í mörg
góðum veiðiám. i eina, tvær vikur
hafa nokkrir laxar náðst á land þó
veiðitíminn sé mjög góður. Veiði-
menn hafa borgað veiðileyfi fyrir
miUjónir og htið fengið.
„Eg held að veiðin sé að byrja fyrir
alvöru, laxinn er að mæta í Langá.
Þetta er bara tveimur vikum á eftir,
ámar hafa verið kaldar og fiskurinn
tekið iUa, sá sem hefur komið
snemma," sagði Ingvi Hrafn Jónsson
við Langá í vikunni.
„Ég held að það verði stórlaxinn
sem bjargi sumrinu og 2 og 3 punda
eldUaxar, sem veiðimenn munu ekki
Veiðiskapurinn getur oft verið fjör-
legur og veiðin þokkaleg, hér hafa
þeir Hermann Jónsson og Walter
Lenz haft betur í viðureiginni við
laxinn í Laxá í Leirársveit.
Eyjólfur Ágústsson með fallega
veiði úr Miðfjaröará.
bölva, betra en ekki neitt,“ sagði
veiðimaðurinn í vikunni, sem ekki
hefur fengið neitt, ennþá.
Þó veiðin hafi verið einkennUeg
hafa veiðimenn sýnt ótrúlega mikla
ró, fisklausir. Það þarf nú stundum
töluvert tU að halda rónni.
Af einum veiðimanni fréttum við
sem veiddi í Norðurá fyrir skömmu
og fékk ekki neitt, hann sat í marga
tíma á sama steininum og dorgaði,
'hann ætlaði að fá lax. Tíminn leið
og enginn beit fiskurinn á en áfram
sat vinurinn. AUt einu sér veiðimað-
urinn veiðibjöUu koma upp Norður-
árdalinn með smálax í kaftinum og
rís vinurinn upp á steininum og nær
að pota stönginni í fiskinn. FeUur
laxinn oní vatnið rétt hjá og náði
veiðimaðurinn honum skömmu
seinna, aUsæU með fenginn. En veiði-
bjallan var ekki eins hress, laxlaus.
Þótti veiðimönnum í hollinu þetta
hið mesta afrek að ná laxi þarna á
steininum. Veiðimaðurinn var með
þeim aflahærri í hoUinu, segir það
ekki aUt.
Eitt það nýjasta sem hefur skotið upp
kollinum er leiðsögumannastarf fyr-
ir útlendinga, sem nokkir íslending-
ar hafa tekið að sér þó þeir séu ekki
miklir veiðimenn. Af einum fréttum
við sem átti að leiðbeina útlendingi
í viku en þegar útlendingur kom tU
landsins var Ult í efni, það hafði
gleymst að panta veiðUeyfi fyrir
veiðimanninn í tvo daga. Það var
sama hvað leiðsögumaðurinn reyndi
að bjarga veiðUeyfi fyrir útlending-
inn, ekkert gekk. Varð leiðsögumað-
urinn því að fara með útlenda veiði-
manninn í bæjarlæk einn rétt fyrir
utan bæinn og láta hann renna þar
í tvo daga. Enginn fékkst fiskurinn
og útlendingurinn ætlar víst ekki að
koma að ári til að renna í íslenska
bæjarlæki. Máltækið, gengur bara
betur næst, virkaði aUs ekki á út-
iendinginn. -G.Bender
Veiðimenn hafa víða kíkt eftir löxum eins og þeir Snæbjörn Kristjánsson
og Þórarinn Sigþórsson gera við Laxá í Kjós.
Læðst að lónbúanum í Leirvogsá og skömmu seinna hafði Lúðvík Th. Haildórsson landað laxi.
DV-myndir G.Bender
HUSBYGG JENDUR ★ VERKTAKAR ★ HONNUÐIR
NÝJUNG Á ÍSLENSKUM BYGGINGAMARKAÐI
SEMKÍS S100 VATNSFÆLIN STEYPUHÚÐ
SEMKÍS P100 ALKALÍÞOLIN PLASTÞEYTA
SEMKIS S100
SEMKÍS S100
SEMKÍS S100
Er ætlað til húðunar á steypufleti til verndunar, holufyllingar og jöfnunar
á áferð.
Er ákjósanleg á undirstöður húsa (sökkla), einkum þar sem hætta er á
að steypan sé nokkuð vatnsdræg. Efnið er auðvelt að hræra út og með
réttu magni af vökva gefur það veiling, sem er þjáll að bera á. Efnið fest-
ist vel við hreinan steypuflöt og gefur sterkt og þétt yfirborð.
Er árangur langs þróunarstarfs
Er þrófað af opinberum rannsóknastofnunum
Er framleitt undir ströngu gæðaeftirliti
Er merk íslensk nýjung, þróuð og framleidd fyrir íslenskar aðstæður
GERIÐ VERÐ- OG GÆÐASAMANBURÐ
HEILDSÖLUDREYFING:
Sementsverksmiðja ríkisins
Afgreiðsla Sævarhöfða S 91-83400
Afgreiðsla Akranesi S 93-11555
Fæst í öllum helstu
byggingavöruverslunum
ÍSLENSKA JÁRNBLENDIFÉLAGIÐ HF. I
SEMENTSVERKSMIÐJA RIKISINS
|| 0.f.
KALMANSVELLIR 3 AKRANESI
0 93-13355
Prentvírt Akran»*s N