Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Blaðsíða 24
24
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1989.
Kennarastaða
Kennara vantar í alit að hálfa stöðu við grunnskólann
á Borðeyri, Hrútafirði. Aðalkennslugreinar: Hand-
mennt og heimilisfræði.
Umsóknarfrestur til 15. júlí.
Upplýsingar veitir skóiastjóri í síma 95-11126.
Útboð
Vesturlandsvegur, Miklagil - Brú
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan-
greint verk. Lengd vegarkafla 4,6 km, fyllingar
90.000 m3 og skeringar 20.000 m3.
Verkinu skal lokið 1. ágúst 1990.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
i Borgarnesi og Reykjavík (aðalgjaldkera) frá
og með 11. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu
stöðum fyrir kl. 14.00 þann 24. júlí 1989.
Vegamálastjóri
________________________________________________________________J
ALÞJÓÐLEG UNGMENNASKIPTI
Isabella frá Frakklandi, Victor frá Sierra Leone,
Sandra frá Costa Rica og 17 aðrir skiptinemar
víðs vegar að koma til landsins í lok þessa mánað-
ar til ársdvalar. Á meðan þau eru að kynnast og
læra fyrstu orðin í íslensku dvelja þau í Reykja-
vík. Um miðjan ágúst fara þau öll í sveitina.
AUS óska eftir fjölskyldum eða sambýlum á höfuð-
borgarsvæðinu sem vilja opna heimili sín fyrir
skiptnemunum í þær 3 vikur sem þeir velja í
Reykjavík.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstof-
unni, Hverfisgötu 50, eða í síma 24617 frá kl.
13.00-17.00.
9.00 - 22.00
Laugardaga, 9.00 - 14.00
Sunnudaga, 18.00 - 22.00
fk
ER SMÁAUGLÝSINGA
BLADID ^
SÍMINN ER áW í \J £**&*
Tískuhönnuðurinn Ralph Lauren hefur allt sem innifalið er í ameríska draumnum. Hann er frægur og auðugur.
Ralph Lauren - einn virtasti hönnuður í heimi:
fíann er skapari
kúrekatískunnar
Flestir íslendingar þekkja fót
merkt Ralph Lauren enda hefur
hönnuður sá lengi veriö leiðandi á
sviði gallabuxna, jakka, kúrekastíg-
véla svo ekki sé minnst á póló-
bolina. Ralph Lauren fyrirtækið er
stórveldi í Bandaríkjunum. Lauren
er einn af þeim sem hafa imnið sig
upp í miUjónaveldi. í dag getur Ralph
Lauren nánast selt þér alit frá hatti
og upp í skápinn sem þú geymir hann
í.
Ralph Lauren hefur í raun búið til
kúrekalífsstílinn. Hann hefur náð
slíkum vinsældum að jafnvel íhúar
Hvíta hússins leita ráða hjá honum.
Það eru víst ekki allir sem geta náð
ameríska draumnum en það hefur
Ralph Lauren sannarlega gert.
Gott auga hönnuðarins og ekki síð-
ur vandaður fatnaður hans hefur
gert það að verkum að hann selur
vörur fyrir tvo miUjarða dollara á
ári. „Af öllu sem ég geri hef ég gam-
an ef ég sé að þörfm er fyrir hendi,“
segir Ralph Lauren. Og sannarlega
hefur maðurinn hagnast vel. Ralph
Lauren á stóran búgarð í Colorado,
hús á Flórída, land í Bredford, hús á
Jamaica og íbúð í miðri New York.
Hann á jafnframt einkaþotu. Ralph
Lauren á 125 verslanir í Bandaríkj-
unum en auk þess selur hann vörur
sínar um allan heim.
Ralph Lauren hóf feril sinn á því
að selja bindi sem hann bjó til sjálfur
árið 1967, ári síðar var hann farinn
Ralph Lauren ásamt eiginkonu
sinni, Ricky. Þau eiga eignir í mörg-
um löndum, bæði verslanir og íbúð-
arhús, jafnvel heilu búgarðana.
að selja herrafatnað. Dömufatnaður
kom 1971, ilmvötn og drengjafót
komu á markaðinn 1978, þegar sonur
hans var lítill, stúlkufótin komu síð-
an á markaðinn 1981 en þá var dóttir
hans sjö ára, sama ár hófst fram-
leiðsla á töskum. Skómir komu á
markað 1982 og húsgögn árið 1983.
Ralph Lauren gerði því fyrirtæki sitt
að stórveldi á fáum árum.
Ralph er kvæntur Ricky, sem er 44
ára, en sjálfur verður hann fimmtug-
ur á þessu ári. Þau eiga þrjú börn,
dóttur, 14 ára, og syni, 17 og 19 ára.
Þegar dóttirin, Dylan, var ungham
bjó faðir hennar til rauð kúrekastíg-
vél handa henni sem vöktu mikla
athygli. Ralph er mikið fyrir fiöl-
skyldu sína og segist ekki hafa spillt
börnum sínum. Reyndar segir hann
að höm séu langskemmtilegust sem
smábörn. „Nú er sonur minn orðinn
stærri en ég,“ segir hann. „Það er
allt í lagi en ég vildi samt óska að
þau væru ennþá lítil.“
Fyrir tveimur árum fékk Ralph
Lauren heilahimnubólgu og var þá
skammt á milli lífs og dauða hjá hon-
um. Hann gekkst undir uppskurð og
segir að þá daga sem hann var á
sjúkrahúsinu hafi hann mikið velt
fyrir sér hve lífið getur verið mikil-
vægt. „Maður á aldrei að bíða með
að segja sínum nánustu hversu vænt
manni þyki um þá,“ segir hann. Fólk,
sem þekkir Ralph Lauren, segir að
hann hafi breyst mikið eftir veikind-
in og sé nú tilfinninganæmari gagn-
vart öðru fólki. Auk þess hefur hann
látið málefni annarra til sín taka. Til
dæmis hefur hann gefið stórar pen-
ingagjafir til rannsókna á brjósta-
krabbameini.
í daglega lífinu er Ralph Lauren
mjög vinnusamur og hefur ávallt
mikiö að gera. Á húgarði hans er
þjónustufólk í öllum störfum. Bú-
garður hans minnir á kúrekamynd
og Ralph Lauren lætur sitt ekki eftir
liggja í því að líta út eins og kúreki.
Hann hefur skapað sér ákveðna
ímynd og allt umhverfi hans endur-
speglar hana.