Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Side 30
42
LAUGARDÁGUR 8. JÚLÍ 1989.
Sviðsljós
Karólína Mónakóprinsessa:
Tíður strandgestur
Karólína prinsessa í Mónakó og lína og Steffanó eiga þrjú böm, sundsprett á baki móöur sinnar á
eigimnaður hennar, Steffanó, eyða Andrea, Charlotte og Pierre. Fjöl- meðan tvö hin yngri byggja kastala
venjulega miklum tíma á ströndinni skyldan sést oft á ströndinni og fær á ströndinni.
og taka þá oft bömin með sér. Karó- þá elsta bamið, Andrea, oft að taka
Janni
hrædd
við bama-
ræningja
Janni Spies-Kjær eignaðist dóttur
fyrir skömmu en heldur hefur verið
lítið um myndir af þeirri litlu í blöð-
um. Ennfremur hafa foreldramir
forðast öll blaðaviðtöl. Ástæðan er
sögð sú að Janni er mjög hrædd við
bamaræningja. Hún vill helst ekki
að myndir birtist af dótturinni í blöð-
um og alls ekki fyrir utan Skandinav-
íu. Ekki hefur enn verið ákveðið
nafn á þá stuttu en ljóst er að hún
mun ekki bera Spies nafnið. Barn
getur ekki borið nafn fyrrverandi
eiginmanns móður sinnar í Dan-
Janni Spies meö litlu dótturina sem ennþá hefur ekki fengið nafn. mörku.
linda heim-
sækir danskt
bamaheimili
Þessi mynd birtist af heimsfegurð-
ardrottningunni Lindu Pétursdóttur
í dönsku blaði fyrir stuttu. í textan-
um, sem fylgdi myndinni, var sagt
að Linda væri mjög hrifin af bömum
og hefði því óskað að fá að skoða
danskt bamaheimili eftir að hún
hafði kynnt íslenskan fisk á sýningu
skömmu áður. Bömin vom hálfhissa
þegar þessi ókunna unga kona kom
í heimsókn og vom ekki alveg klár
á hver hún væri. Hefðu foreldramir
vitað af heimsókninni hefðu þeir
sennilega flölmennt með bömum
sínum þennan dag, segir danska
blaðið.
Linda Pétursdóttir, ungfrú heimur, heimsótti börn á barnaheimili í Dan-
mörku.
Anton Marx, átján ára, er 180 sm
á hæð en tvíburasystir hans,
Hettie, einungis 108 sm. Anton veg-
ur 61 kíló en Hettie aðeins 22. Hettie
er svo Jitil að hún nær Antoni upp
aö mjöðm.
„Fólk trúir því ekki að við séum
tvíburar,'‘ segir Hettie. „En við er-
um bæði fædd 28. apríl 1971 og ég
er einni minútu eldri en Anton,"
segir hún. „Hettie gleymir þvi aldr-
ei,“ bætir Anton við og segir að
systir hans segi honum talsvert
fyrir verkum með þeim orðum að
hún sé eldri og því ráði hún.
Tvíburamir búa hjá foreldrum
sinum nálægt Brandfort í Suður-
Afríku. í ætt þeirra er alvarlegur
en sjaidgæfur sjúkdómur sem kem-
ur fram í beinabyggingunni. Hettie
eríöi sjúkdóminn en ekki Anton.
Yngri systir þeirra, Nellie, sem er
fimmtán ára, hefur einnig vaxið
eðlilega.
Þegar Hettie og Anton fæddust
vom þau bæði rúm tvö kíló. Þau
sýndust bæði sterk og heilbrígð.
Ekki leið þó á löngu áður en Anton
fór að vaxa mun hraðar en systir
hans, „Til að byrja með vissum við
ekki hvaö var að Hettie," segir
móðir tvíburana, Ria Marx. „En
þegar hún var fimra mánaöa höfðu
læknar fundið út hvaða sjúkdómi
hún væri haldin. Þaö var erfitt fýr-
ir okkur að fá þá staðfestíngu en
við gerðum allt $em við gátum fýr-
ir Hettie og leituðum tii allra bestu
sérfræðinga sem viö fUndura.
Að lokum urðum við að viður-
kenna aö þaö var enga lækningu
að fá fyrir hana.“ Hettie segist oft
spyxja sig hvers vegna hún sé svo
lítil en Anton þetta stór. Ég er þó
heppin að hafa hann þvi Anton
hefur alltaf komið mér til hjálpar
þegar ég hef þurft á að halda."
„Við höfum verið óaðskiijanleg
allt okkar iíf," segir Anton og bætir
við að hann hafl dregið Hettie með
sér á diskótek þegar hún hafi veriö
langt niðri. Við látum ekki á okkur
fá þótt fólk stari á okkur."
Tvíburamir lærðu snemma að
spila á píanó saman. Hettie er mjög
mikill námsmaður og hefur hugsað
sér að fara í langskólanám. Þó hef-
ur hún ekki enn gert upp við sig
hvaða grein hún vill læra. Hettie
vonast til að geta einhvem tíma
giíst og eignast bam.
„Eg veit að margir teija mig ekki
geta gengið með bam vegna þess
hversu lítil ég er og með ættgengan
sjúkdóm. Læknamir geta komist
að raun mn á meðgöngutímanum
hvort bamiö er haldið sjúkdómn-
um og ég get ekki séð að hæðin
skipti máii í sambandi við með-
göngu," segir Hettie.
Anton hefur einnig hug á að
kvænast en hann á eftir að gegna
tveggja ára herþjónustu. Tvíbur-
arnir em vanir því aö fólk líti á
Hettie sem litiu systur Antons.
„Það getur verið pirrandi til lengd-
ar,“ segir Hettie en segir að verst
sé þegar lítil börn halda að hún sé
jafngömul þeim og biðja hana að
koma út að leika.
Hettie langar að eignast bíl sem
hægt er aö stjóma með höndunum
einum. Nú hjálpar hún bróður sin-
um oft að keyra, Hann stiórnar
kúpiingu, bremsura og bensíni en
hún stýrir.