Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Page 35
LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1989.
4t -
Lífsstm
sinnar tegundar á landinu og var í
upphafi stærsta bókasafn á Islandi.
Fyiir nokkrum árum var hafist
handa viö aö gera hana upp og er því
verki nú lokið.
Gömlu húsin í þorpinu hafa vel
flest verið gerð upp og skarta nú sínu
fegursta og bera fortíðinni fagran
vitnisburð.
Veitingastofan
í þorpinu er rekin veitingastofan
Vogur í rúmlega aldargömlu húsi
sem nýbúiö er að gera upp. Veitinga-
stofan er afar hlýleg og úr gluggum
hennar má sjá yfir Silfurgarðinn svo-
nefnda sem byggöur var í Grýluvogi.
Silfurgarðurinn þótti mikið mann-
virki á sínum tíma en nafn sitt hlaut
hann af því að verkamönnunum,
, sem byggðu garðinn, voru goldin
verklaunin í silfri.
Hún flýgur skjótt stimdin í Flatey
og áður en varir er kominn tími til
að halda af stað. í bakaleiðinni er
siglt meðfram þorpinu og þá er hægt
að virða það fyrir sér frá sjónum.
Að þvl loknu er svo haldið rakleitt
til Stykkishólms.
Suðureyjasigling
Það er hægt að halda áfram að sigla
um Breiðafiörðinn og fara í svo-
nefnda Suðureyjasiglingu sem er
Silfurgarðurinn er mikið mannvirki frá árinu 1830.
Helga Harðardóttir bendir á 900 ára gamalt Maríulíkneski sem er að finna
i Flateyjarkirkju.
heilt ævintýri út af fyrir sig. Á leið-
inni gefst ómetanlegt tækifæri til að
skoða sérstætt fuglalíf Breiðafiarðar-
ins. Það er svo makalaust að fuglam-
ir virðast ekki kippa sér upp við bát-
inn eða hávaðann í honum. Þeir
halda áfram að una glaðir við sitt í
klettunum. Á leiðinni er svo upplagt
aö rifia upp þjóðsögur og munnmæli
en af þeim er nóg á þessum slóðum.
Það er gott í sjóinn á þessari sigling-
arleið og báturinn haggast varla, það
er þvi hægt að standa í stafni og virða
fyrir sér dásemdir lands og sjávar.
Þórishólmi
Fyrsti áningarstaðurinn á leiðinni
er Þórishólmi en þar er mikið fugla-
líf. Þar má sjá fýl, lunda, veiðibjöliur
og fleiri tegundir en hólmurinn vek-
ur kannski fyrst og fremst athygli
fyrir sérstæðar stuðlabergsmyndan-
ir. Hólmurinn er 22 metra hár og er
vel þekktur úr þjóðsögunum því að
sagan segir að þar hafi maður nokk-
ur dregið upp gjafvaxta mey á öngul
sem krækst hafði undir belti hennar.
Hún kvaðst heita Þóra og vera sæ-
kona og vildi aftur í sjóinn. Maöur-
inn leit stúlkuna hins vegar ástar-
augum og lauk viðskiptum þeirra svo
að hún ákvað að dvelja hjá honum
þrjá vetur ef hann lofaði að sleppa
henni aftur í sjóinn. Bæði efndu þau
heit sitt en meðan sækonan dvaldi
með bóndanum eignuðust þau eina
dóttur. Hét hún Þórunn og þótti æöi
Ferðir
hjákátleg, sat gjaman í bjarghillum
og spann band sitt í sjóinn.
Hæstueyjar
Næstu eyjar, sem siglt er til, eru
Dímonarklakkar en þær eru hæstu
eyjar á Breiðafirði. Eyjamar em vel
þekktar úr Eiríks sögu rauða og Eyr-
byggju. Sagt er að Eyjólfur Æsuson
hafi leynt skipi Eiríks í Dímonar-
vogi. En á þeim tíma er sagt aö skóg-
ur hafi vaxið þar svo mikill aö hægt
hafi verið að leyna skipinu undir lim-
inu. Það er hins vegar álitið fremur
Það er hægt að komast ótrúlega nálægt fuglunum í eyjunum.
Flateyjarferð með Eyjaferðum
kostar 1.300 krónur fyrir manninn,
Suðureyjasighngin kostar 1.800
krónur, en ef keypt er á einu bretti
Flateyjarferðin og Suðureyjaferöin
kosta þær 2.900 krónur. BÖm, eldri
en 12 ára, borga fullt gjald, böm á
aldrinum 6-12 ára borga háilft gjald
en böm yngri en 6 ára fá fdtt Auk
áðuraefndra ferða era ferðir að
óskum hvers og eins og því kjörið
fyrir hópa að skipuleggia eyjasigl-
ingar í samvinnu við fyrirtækið.
10-24 manna hópar fá 5 prósent upp á klukkustundarsiglingu um
afslátt en séu fieiri í hópnum er eyjarnarmeðútsýnisbátfráFlatey.
veittur 10 prósent afsláttur. Það Meðal eyja sem skoöaðar era er
sama gildir um ellilífeyrisþega. Hergilsey.
Flóabáturinn Baldur er á sumrin Flatéyjarferð með útsýnissigl-
i daglegum áætlunarferöum milli ingu kostar 2000 krónur en 1200
Stykkishólms og Btjánslækjar, krónur að sigia til Flateyjar.
raeð viökomu í Flatey. Farþegar Fyrir þá sem vUja dvefia lengur
sem vfija dveljast 1 Flatey meðan í Flatey skal á það bent að þar era
báturinn fer til Bijánslækjar geta tjaldsvæði meö aðstöðu fyrir feröa-
veriö þar í fióra tftna. Leiðsögn er menn og í Vogi eru svefnpokapláss
um Flatey. og kostar hver nótt 600 krónur fyr-
Baldur býöur farþegum sínum irmanninn. -J.Mar
ósennilegt í dag að svo gróskumikill
skógur hafi þrifist á þessum slóðum.
Þá er haldið til Purkeyjar. Byggð
var í eyjunni allt fram á þennan ára-
tug. Eyjan er fræg fyrir mikla álfa-
byggö sem þar átti að vera. Maöur
að nafni Ólafur Sveinsson, sem uppi
var á fyrrihluta nítjándu aldar, ritaði
merkilegt rit um álfa þá er bjuggu í
eyjunni og studdist Jón Ámason
þjóðsagnaritari við rit þetta í þjóð-
sögum sínum.
Áskel
Á meðan á Suðureyjasiglingunni
stendur er dregið fyrir skelfisk á firð-
inum. Það vekur óneitanlega mikla
athygh þeirra sem era um borö.
Gildran er látin síga og svo er að bíöa
og sjá hvaö upp kemur. Dregið er
smástund og þá er híft, og viti menn,
gildran er full af alls kyns kuðung-
um, öðuskel, ígulkerum, krossfisk-
um, bláskel og fleim. Það er gaman
að sjá hversu margar tegundir geta
komið upp í einu hah. Ferðamenn-
imir kasta sér yfir aflann, því ekki
að smakka aðeins á honum. Skelfisk-
ur bragðast aldrei eins vel og þegaF
hann er nýveidduf. Sannarlega htið
ævintýri sem kryddar sjóferðina.
Hvítabjamarey
Svo er haldið áfram og eyjamar
hða hjá, ein af annarri, Brokey,
stærsta eyjan í Breiðafirði og sú síö-
asta sem var í byggð í Suðureyjum.
En búskapur lagðist þar ekki af fyrr
en 1981.
Hvítabjamarey er ein af frægari
eyjum á firðiiium, hún er 28 metra
há. í henni miðri er gjá með stórun*"'
steini og er hann úr aht öðru jarðefni
en eyjan sjálf en úr sama efni og er
suður í Kerlingarfialh viö þjóðvegjnn
við Kerlingarskarð.
Munnmæh segja að kerlingin í
fiallinu hafi ætlað að grýta þessu
bjargi í bát á Hrappseyjarsundi en
geigað sem þessu nam.
Þá er aftur haldiö til Stykkishólms.
Manni getur óneitanlega orðið dáhtið
kalt í eyjasiglingum, það er því ekki
úr vegi að klæða sig vel áður en hald-
ið er í hann og það sakar ekkert að
hafa vatnsheldan fatnað í farteskinu.
-J.Mar
Ferðamennirnir köstuöu sér yflr aflann þegar hann var kominn um borð. ■