Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Side 45
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1989.
Andlát
Gunnar Leó Þorsteinsson málara-
meistari, Jörfabakka 8, lést í Landa-
kotsspítala 6. júlí.
Guðmundur Jónsson frá Tröðum lést
í Sjúkrahúsi Akraness 6. júlí.
Gísli Kristjánsson, fyrrverandi út-
gerðarmaður frá Mjóafirði, er látinn.
Gyðriður Pálsdóttir, Borgarholts-
braut 32, lést í Landspítalanum
fimmtudaginn 6. júní.
Tilkynningar
Nessöfnuður
Sumarferð á vegum Nessóknar verður
farin laugardaginn 15. júli að Nesjavöll-
um, Gullfossi, Geysi og víðar. Lagt verður
af stað kl. 10 frá kirkjunni. Fargjald kr.
800, matur innifalinn. Þátttaka tilkynnist
í s. 16783 milli kl. 16 og 18 daglega.
Stuðmenn leika í
Sjallanum
Hljómsveitin Stuðmenn leikur í Sjallan-
um á Akureyri á sunnudagskvöldið kl. 21.
Skeiðará
Hinn 15. júlí, nákvæmlega 15 árum eftir
að vega- og brúargerð lauk á Skeiðarár-
sandi, ætla þeir sem unnu á „Sandin-
um“ að hittast á fomum slóðum við
Skeiðarárbrú kl. 17. Brúar- og vegagerð-
armenn mæta með fjölskyldur sínar, rifja
upp gamlan kunningsskap og slá á létta
strengi. Tjaldað verður að Hofi í Öræfum
og matur seldur í samkomuhúsinu, sem
er síðan opið fyrir uppákomur og dans.
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, á morg-
un, sunnudag. Kl. 14, fijálst spil og tafl,
kl. 20, dansað. Ath: Farin verður 8 daga
ferð um Vestfirði 16. og 21. júlí. Upplýs-
ingar á skrifstofu félagsins.
Helgarkynning á úti-
vistar- og sportvörum
Ferðamarkaðurinn, Bíldshöfða 12, verð-
ur með sýningu á öjlum vörum fyrirtæk-
isins um helgina. í sambandi við kynn-
inguna veröa ýmsar óvæntar uppákomur
og grillað á staðnum. í dag, laugardag,
verður opið frá kl. 10-18 og á sunnudag
frá kl. 13-18.
Sýning - vettvangsferðir
Sýningu nemenda í Grunnskólanum í
Sandgerði lýkur á sunnudag, 9. júlí. Sýn-
ingin í Grunnskólanum, sem verður opin
frá kl. 13.30-16, er verkefhi sem nemend-
ur unnu í vor. Viðfangsefhi hennar er
að bregða upp mynd af náttúrufari, sögu,
sögnum og mannlífi í sveitarfélaginu. I
tilefiú þess að sýningunni lýkur á morg-
un verður boðið upp á tvær stuttar
gönguferðir (vettvangsferðir) undir leið-
sögn fróðra heimamanna. Gengið verður
um svæði sem sérstaklega er fiallað um
á sýningunni. í fyrri ferðina fer fólk frá
Grunnskólanum í bílum sínum kl. 16.15
suður að Hvalsneskirkju. Verður geng-
inn lítill hringur um Hvalsneshverfi. í
seirrni ferðina verður ekið frá Grunnskól-
anum kl. 17.30 inn að Kirkjubóli og um
Kirkjubólshverfið. Heimamenn og ferða-
menn eru hvattir til að kynna sér sýning-
una og koma í gönguferðimar. Ekkert
þátttökugjald.
Námskeid
Leikja-og íþróttanámskeið
á vegum íþróttafélags fatlaðra í Reykja-
vik hófst mánudaginn 3. júlí og stendur
yfir í hálfan mánuð. Mæting er í Félags-
heimilinu, Hátúni 12, kl. 17 alla virka
daga. Námskeiðið er milli kl. 17 og 19 og
er öllum opið.
Ferðalög
Útivist
Viljiröu virkilega kynnast landinu ætt-
irðu að koma með í þessar ferðir:
a) 13.-16. júlí (4 dagar), Kjölur-Sprengi-
sandur - Drangey.
Ekið norður Kjöl með viðkomu á Hvera-
völlum. Gist tvær nætur aö Fagranesi í
Skagafirði. Siglt með Jóni Eirikssyni
„Drangeyjarjarli" út í Drangey. Skoðaðir
merkisstaðir í Skagafirði o.fl. Ekið um
Sprengisand heim ef færð leyfir. Gist í
svefnpokaplássi.
b) 22.-29. júlí (8 dagar) Nýr hálendis-
hringur. Ekið með suðurströndinni aust-
ur i Lónssveit, síðan um firðina á Hall-
ormsstað. Gist 2 nætur við Snæfell og 2
í Kverkfiöllum. Þaðan er haldið um
Hvannalindir og Herðubreiðarlindir til
Mývatns. Heim suður Sprengisand. Gist
í góðu svefnpokaplássi ailar nætumar.
Uppl. og farm á skrifstofunni, Grófinni
1, símar 14606 og 23732. Pantið strax.
Sjáumst!
Sunnudagsferðir 9. júli
1) kl. 10.30 Orrustuhóll - Hengill. Þetta
er fiórða ferðin í ferðasyrpunni „Fjalla-
hringurinn." Gengið á Skeggja, hæsta
tind Hengils. Verö. 1000 kr.
2) kl. 13.00 Nesjavallavegur-Skeggja-
dalur - Marardalur. Ekinn verður
Grafningsvegur á Nesjavelii og þaðan inn
á Nesjavallaveginn að Dyrum. Þaðan er
gengið um fallega hamradali vestan
Hengils niður á gamla Suðurlandsveginn
hjá Draugafiöm. Verð 1000 kr.
3) ki. 8.00. Dagsferð í Þórsmörk. Einnig
ferð fyrir sumardvalargesti. Verð 1.500
kr. í dagsferðina. Stansað 3-4 klst. í Mörk-
inni. Brottfor í ferðimar frá BSÍ, bensín-
sölu. Frítt f. böm m. fullorðnum.
Miðvikudagur 12. júli kl. 8 er dagsferð
í Þórsmörk og ferð fyrir sumardvalar-
gesti. Kl. 20 er kvöldferð með siglingu að
Lundey.
Hekluganga er laugardaginn 15. júlí kl.
8. Sjáumst.
Ferðist innanlands í sumar:
Ódýrar sumarleyfisferðir.
1) 12.-21. júlí, Hornstrandir III: Horn-
vík - Reykjafjörður.
Tilitölulega auðvel Homstrandabak-
pokaferð. Gengið á 4 dögum til Reykja-
fiarðar. Fararstjóri: Sigurður Sigurðar-
son.
2. ) 14.-21. júlí, Hornstrandir IV: Strand-
ir - Reykjafjörður.
Dvöl í Reykjafirði er sannkölluð sælu-
vist. Ejölbreyttar gönguleiðir. Farastj.
Fríða Hjálmars.
3) 15.-22. júlí, Lónsöræfi Lón. Rúta,
flug eða á eigin vegum austur. Tjaldað 5
nætur við Illakamb og 2 nætur að Stafa-
felli.
4) 13.-17. júlí, Landmannalaugar -
Þórsmörk. Gist í húsum. Örfá sæti laus.
Fararstj. Egill Pétursson.
5. ) 21. - 26. júlí, Eldgjá - Þórsmörk. Til-
valin ferð fyrir þá sem gengið hafa
„Laugaveginn" og vilja kynnast annarri
gönguleið til Þórsmerkur. Göngutjöld.
fararsfi. Rannveig Ólafsdóttir.
6. ) 18.-27. ágúst, Noregsferð. Framleng-
Verðlaunasamkeppni
Mixbræðra
Sanitas hefur nú sent frá sér MIX í hálfs
lítra umbúðum. Þessar umbúðir em
skreyttar með körlum sem ganga undir
nafninu Mixbræður. Hér er um að ræða
appelsínu og ananas þar sem Mix-drykk-
urinn er blandaður úr þessum bragð-
tegundum. Ekki hefur tekist að finna
nöfn á þessa kátu karla og er því leitað
nú til neytenda og efnt til verðlaunasam-
keppni um nöfn á þessa heiðursmenn.
Vegleg verðlaun em í boði. Fyrstu verð-
laun em 20.000 kr. vömúttekt hjá Sanit-
as, önnur verðlaun em 10.000 kr. vömút-
tekt og þriðju verðlaun em 5.000 kr.
vömútekt. Einnig vérður dregið úr inns-
endum lausnum í beinni útsendingu á
Bylgjunni. Vinningar em helgardvöl eftir
eigin vali á einhveiju af 16 Eddu-hótelum
víös vegar um landið. Skilafrestur fyrir
tillögur er til 23. júlí. Tillögur sendist til
Sanitas, Köllunarklettsvegi 4, Box 721
Reykjavík. Einnig verður sögusam-
keppni í ABC bamablaðinu um þessa
karla í ágúst. Þeir sem hafa áhuga á að
eignast plakat með Mix-bræðrum geta
nálgast það hjá Sanitas hf.
ið sumarið með „lúxus" gönguferð um
stórkostlegt fiaUasvæði í Noregi, Jötun-
heima. Upplýsingablað á skrifstofunni.
Ódýrt. Frestur til að staðfesta er til 15.
júlí.
Uppl. og farm. á skrifstofunni, Grófinni
I, símar 14606 og 23732. Sjáumst.
Dagsferðir Ferðaféíagsins:
Sunnudagur 9. júli kl. 13.00, Armanns-
fell (766 m) Ekið að Skógarhólum og
gengið þaðan. Verð kr. 1.000 kr.
Kl. 13.00, Eyðibýlin á Þingvöllum. Ekið
inn að Sleðaási og gengið þaðan um
Hrauntún, Skógarkot aö Vatnskoti. Létt
gönguferð við allra hæfi. Verð kr. 1.000.
Kl. 08.00 Þórsmörk - dagsferð. Kynnið
ykkur tilboðsverð Ferðafélagsins á dval-
arkostnaði í Skagafiörðsskála í Langadal.
Brottfór frá Umferðarmiöstöðinni, aust-
anmegin. Farmiðar við bil. Fritt fyrir
böm að 15 ára aldri.
Ferðafélag íslands
Helgarferðir Ferðaféíagsins
14.-16. júlí:
1) Snæfellsnes - Elliðaham-
ar - Berserkjahraun.
Gengið þvert yfir Snæfellsnesið, skammt
vestan við veginn um Kerlingarskarð.
Þama er fiallgarðurinn mun lægri en
viðast annars staðar. Lagt verður af stað
í gönguna frá Syðra-Lágafelli. Gist í
svefnpokaplássi.
2) Þórsmörk. Gist í Skagfiörðsskála í
Langadal. Gönguferðir um Mörkina við
allra hæfi með kunnugum fararstj órum.
3) Landmannalaugar. Gist í sæluhúsi
FÍ í Laugum. Gönguferðir um nágrennið.
Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu
FI Ferðafélag íslands
Sumarleyfisferðir Ferðafé-
lagsins:
6.-14. júlí (9 dagar): Hornvík. Ferðin
hefst 6. júlí í Reylgavík frá Umferðarmið-
stöðinni og 7. júlí frá ísafirði. Gist í tjöld-
um í Homvík og famar gönguferðir frá
tjaldstað. Fararstjóri Gísli Hjartarson.
II. -16. júli (6 dagar): Hvítámes - Þver-
brekknamúli - Þjófadalir - Hveraveilir.
Gönguferð milli sæluhúsa í stórbrotnu
landslagi austan Langjökuls. Fararstjóri:
Hilmar Þór Sigurðsson.
12.-16. júlí (5 dagar): Landmannalaug-
ar - Þórsmörk. Brottför kl. 08.00 mið-
vikudag - komið á laugardag til Þórs-
merkur. Fararstjóri Páll Ólafsson.
12.-16. júlí (5 dagar): Snæfellsnes - Dal-
ir - Húnavatnssýsla - Kjalvegur. Leiðin
liggur um Ólafsvik, norðanvert Snæfells-
nes, Dali, um Laxárdalsheiði í Hrúta-
fiörð, um Vatnsnes að Húnavöllum. Til
Reykjavíkur verður ekið um Kjöl. Gist í
svefnpokaplássi. Fararsfióri Baldur
Sveinsson.
Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu
FI, Öldugötu 3. Ferðafélag íslands
Safnaðarferð Fríkirkjusafnað-
arins
Safnaðarferð Fríkirkjusafnaðarins í
Reykjavík verður að þessu sinni farin á
Snæfellsnes helgina 15 - 16. júlí. Farið
verður frá Fríkirkjunni kl. 9 að morgni
laugardags og ekið að Búðum með viö-
komu í Borgamesi. Farið veröur fyrir
Jökul og höfð viðdvöl á Amarstapa og í
Dritvik. Síðan verður ekið um Snæfells-
nes norðanvert inn í Stykkishólm. Þar
verður gist í Egilshúsi, glæsilegu, gömlu
húsi, sem gert hefur verið sem nýtt, og í
félagsheimili Lionsmanna, sem upphaf-
lega var símstöð og pósthús bæjarins. Á
sunnudaginn verður guðsþjónusta í
Stykkishólmskirkju og mun þar þjóna
prestur Fríkirkjusafnaðarins, séra Cecil
Haraldsson. Að guðsþjónustu lokinni
verður farið í útsýnisferð um suðureyjar
Breiðafiarðar. Komið verður aftur til
Reykjavikur á sunnudagskvöld. Kostn-
aðm' vegna fargjalda og gistingar er kr.
3.000 á mann. Ferðalangar era hvattir til
að taka með sér nesti en einnig gefst
möguleiki á að kaupa máltíðir á gististöð-
um auk þess sem boðið veröur upp á
hressingu á leiðinni. Farseðlar em seldir
í versluninni Brynju, Laugavegi 29, en
einnig má panta far hjá Bertu Kristins-
dóttrn- að degi til í síma 29188, hjá Eygló
Viktorsdóttur í síma 32564 á kvöldin og
í síma Fríkirkjusafnaðarins, 14579, þar
sem símsvari tekur við skilaboðum aUan
sólarhringinn.
Fréttir
Iðntæknistofiiun:
Við afhjúpun skúlptúrsins Hörpu eftir Hallstein Sigurðsson á Keldnaholti.
F.v. Þorsteinn Tómasson, forstjóri Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, og
dr. Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs ríkisins. í
baksýn er Iðntæknistofnun íslands.
Harpa aflýúpuð
Á dögunum var afhjúpað nýtt lista-
verk á Keldnaholti að viðstöddum
starfsmönnum þeirra þriggja rann-
sóknastofnana sem eru á holtinu. Dr.
Vilhjálmur Lúðvíksson, fram-
kvæmdastjóri Rannsóknaráðs ríkis-
ins, aíhjúpaði verkið og rakti aðdrag-
anda að gerð þess. Verkið vann Hall-
steinn Sigurðsson úr áli og hlaut það
nafnið Harpa. Tildrögin að gerð
verksins voru þau að á 50 ára af-
mæli rannsóknastofnana atvinnu-
veganna árið 1987 ákvað samrekstur
hinna þriggja rannsóknastofnana og
Rannsóknaráð ríkisins að gera
skúlptúr og fékk síðar aöstoð list-
skreytingasjóðs.
-JJ
Norðurland vestra:
Dauður sjór í Húna-
flóa og Skagafirði
ÞórhaHur Asmimdæon, DV, Nor&irL vestra:
Veiði hefur verið með afbrigðum
treg bæði á Skagafirði og Húnaflóa í
vor. Háifur mánuður er síðan Hofs-
ósbátar gáfust upp á þessari ládeyðu
og fóru fimm þeirra austur á Þórs-
höfii. Þangað er einnig farin Sand-
víkin frá Sauðárkróki og Steindór
Árna á Hörpu Sjöfn rær frá Bakka-
firði.
Króksbátamir eru enn á hand-
færum, utan Týr sem er á dragnót,
en eigendur Týs fengu framlengingu
á haffærisskírteininu þangað til í
haust að þeir fá afhentan nýjan bát
sem verið er að smíða í Póllandi.
Veiði handfærabátanna hefur verið
þetta 50-100 kíló í róðri.
Þrír bátar eru á snurvoð á Skaga-
firði og hefur afli verið mjög tregur.
Það eru Faxavík frá Hofsósi, Auð-
björg frá Skagaströnd og Káraborgin
frá Hvammstanga. Smábátaeigendur
hafa lengi verið á móti veiðum með
snurvoð og dragnót inn á fjörðum.
Einar Jóhannsson, hafnarvörður á
Hofsósi, segir bátana oft koma ansi
nálægt landi en erfitt sé að meta ná-
kvæmlega línuna sem þeir mega
veiða að. Þó hafi hann í fyrra orðið
að biðja skipverja á einum bátnum
aö vara sig á hafnargarðinum.
„Það er ekki þaö aö ég sé hræddur
um að þeir skemmi botninn heldur
þurrka þeir algjörlega upp þessi
hefðbundnu mið hér. Það þýðir ekk-
ert fyrir trillumar að veiða héma,
því ef þær finna eitthvað em svo og
svo margir aðkomubátar komnir
með snurvoö eða dragnót," sagði
Einar á Hofsósi.
Leiðrétting
Þau mistök uröu í DV á þriðjudag aöi Bryndís Jónsdóttir. Hlutaðeig-
aö grein um ökuleikni á Blönduósi andi em beðnir velvirðingar á mis-
var sögð vera eftir Baidur Daníels- tökunum.
son. Hiö rétta er að greinina skrif-
ULTRA
GLOSS
Ekkert venjulegt
bón, heldur glerhörð
brynja sem endist langt
umfram hefðbundnar
bóntegundir.
Útsölustaölr
ESSO
stöðvarnar.