Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1989, Síða 16
16
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989.
íþróttir
Frétta-
stúfar
Landsbankamót 5.
flokks í knattspyrnu
fer fram á Akranesi
dagana 28.-30. júlí. Þá
munu Skagamenn einnig halda
mót fyrir 6. flokk sem nefnist
Fanta-mótið. Þetta mót hét
reyndar HlC-mótið í fyrra en
hefur nú breytt um nafn.
Fanta-mótið fer fram 18.-20.
ágúst. Þátttökutilkynningar
þurfa að berast Akurnesingum
fyrir 21. júlí nk.
Öldungamót í
Rangárvallasýslu
““ A sunnudag fer fram
öldungamót á
Strandavelli í Rang-
árvallasýslu, fyrir
karla 65 ára og eldri og konur
55 ára. Golfklúbburinn á Hellu
sér um mótið. í karlaflokki
verður keppt um Hauks og
Hermanns bikarinn til heiðurs
þeim Hauki Baldvinssyni og
Hermanni Magnússyni sem
báöir eru heiöursfélagar
klúbbsins á Hellu. í kvenna-
flokki verður keppt um Gyðu-
bikarinn sem ber nafn eigin-
konu Hermanns. Leiknar
verða 18 holur í báðum flokk-
um með forgjöf af rauðum teig-
um. Ýmis aukaverðlaun verða
og í boði. Mótið hefst klukkan
8 á sunnudag en skráning er í
síma 98-78208 milli klukkan 13
og 20 á laugardag.
Öldungarnir líka á
ferð á Hólmsvellinum
Kylfmgar í öldunga-
flokki verða einnig í
sviðsijósinu á Hóims-
velli í Leiru um helg-
ina. Þá fer fram Leirumótiö,
árlegt mót öldunga og verður
keppt í tveimur flokkum, 50-55
ára og 55 ára og eldri. Leiknar
verða 18 holur og verður bytjaö
aö ræsa keppendur út klukkan
níu á laugardagsmorgun.
Byrjar íslandsmótið
fyrr en nokkru sinnf
íslandsmótiö í golfi
veröur viðameira en
nokkru sinni fyrr í
ár en mótiö fer aö
þessu sinni fram á Hólmsvelli
í Leiru síðustu dagana í þessum
mánuðL Til skamms tíma hófst
mótið jafhan á miðvikudögum
en stanslaus aukning á þátttak-
endafjölda hefur gert það aö
verkum aö undanfarin ár hefur
mótið hafist á þriöjudegi. í ár
mun mótið hins vegar hefjast á
mánudegi og ljúka á laugardeg-
inum á eftir.
Hvertfóru Austur-
Þjóðverjarnir þrír?
""** Ekkert er vitaö um
afdrif þriggja aust-
ur-þýskra knatt-
spyrnumanna sem
hurfu í Svíþjóð á dögunum.
Austur-þýska liðið Wistmut
Aue kom til Svíþjóöar á mánu-
daginn og hefur æft þar í landi
síðan. Fyrirhugaður var æf-
ingaleikur viö sænska liðiö
Örgryte i gær. Þegar forráða-
menn sænska liðsins ætluðu
að sækja leikmenn austur-
þýska liðsins vantaði skyndi-
lega þrjá leikmenn. Lögreglan
hefur ekkert heyrt firá mönn-
unum en talið er líklegt að þeir
hafi farið til Vestur-Þýskalands
frá Svíþjóð og hyggist setjast
þar að. Wistmut Aue lék gegn
Val í Evrópukeppninni árið
1987 og í liðinu eru þrír lands-
liösmenn.
„Vonandi komnir
á beina braut“
- KA sigraði Keflavík, 2-1
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyn:
„Þetta var ekki búiö fyrr en dómar-
inn flautaði leikinn af. Viö erum von-
andi komnir á beinu brautina, það
sást a.m.k. í fyrri hálfleik hjá okkur
að við getum spilað, en botninn datt
úr þessu í síðari hálfleik,“ sagði
Haukur Bragason, markvöröur KA,
eftir að Akureyrarliðið hafði unnið
ÍBK 2:1 á Akureyri í gærkvöldi. KA
er því áfram í humátt á eftir efstu
liðunum, en ÍBK í ströggli neðan til
í deildinni.
ÍBK verður þar áfram með leik eins
og í gærkvöldi. Það vantar ekki að
það er reynt að berjast , en viljinn er
oftast meiri en getan. Áberandi galli
á liðinu er „miðjan“ sem er svo gott
sem dauð og þaö þurfa Suðurnesja-
menn að laga ef þeir ætla að verða í
1. deild að ári.
KA þurfti ekki toppleik til að hirða
stigin sem voru í boði í gær. Liðið lék
• Þorvaldur Örlygsson skoraði
bæði mörk KA gegn Keflavik.
Þó snarpan leik framan af fyrri hálf-
leik, og uppskeran var tvö mörk.
Það fyrra skoraði Þorvaldur Ör-
lygsson á 24. mínútu. Jón Grétar
Jónsson var þá felldur inni í vítateig
og Þorvaldur var öryggið uppmálað
er hann tók vítaspyrnuna sem Guð-
mundur Haraldsson dæmdi.
Þorvaldur var svo aftur á ferðinni
á 34. mínútu. Þá renndi hann sér upp
kantinn, kom boltanum vel fyrir
markið og þar var Ormarr bróðir
hans mættur og skoraði. Ormar sem-
sagt „kominn á blað“ hjá KA.
KA-menn bökkuðu í síðari hálfleik,
án þess þó að „pakka“ í vömina.
Miðjuspihð hjá Keflvíkingum var
hins vegar svo dapurt að þeir náðu
ekki að nýta sér stöðuna og segja
má að engin hætta hafi skapast við
mark KA. ÍBK skoraði þó, Kjartan
Einarsson á 66. mínútu með snyrti-
legu skoti frá vítatéig „upp úr engu“.
Eftir það mark var engu líkara en
að einungis væri formsatriði að ljúka
leiknum.
Yfirburðamaður í þessum leik var
Erlingur Kristjánsson í vörninni hjá
KA. Þorvaldur Örlygsson var sterk-
ur framan af, sömuleiðis Bjarni
Jónsson, og KA-liðið getur gert stóra
hluti ef það kemur rétt innstillt í leiki
sína.
Keflvíkingarnir voru í ströggli, og
verða það áfram ef þeir ná ekki að
binda Uð sitt saman. Varla er hægt
að nefna einn öðrum fremri eftir
þennan leik, en ástandið á eflaust
eftir að batna hjá ÍBK, t.d. ef skap
leikmanna lagast og Uðið leikur heil-
steyptari fótbolta.
Dómari var Guðmundur Haralds-
son. Honum hefur oft tekist betur
upp en að þessu sinni, en fær þó tvær
stjömur af þremur sem í boði voru.
Baráttusigur
hjá Þórsurum
- er þeir unnu Skagamenn, 1-2
Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi:
Þórsarar fögnuöu gífurlega í leiks-
lok er þeir höfðu lagt lið ÍA á útiveUi
í gær, 1-2. Þórsarar voru greinilega
komnir til að berjast til sigurs og
höfðu að þessu sinni erindi sem erf-
iöi. Lið ÍA hefur gengið afleitlega aö
hala inn stig á heimavelh en hins
vegar betur úti. Það er þó ekki hægt
að segja að sigur Þórs hafi verið
sanngjarn. Jafntefli heföi gefið rétt-
ari mynd.
Júgóslavinn Bojan Tanevski skor-
aöi mark strax i 6. mínútu er hann
fékk knöttinn óvænt á vítateig.
Þramaöi hann knettinum út við
stöng og í netið. Næsta hálftímann
voru Þórsarar aðgangsharðari en
heimamenn og á 24. mínútu skoraðu
þeir sitt annaö mark.
Af marki þessu var töluverð rang-
stöðulykt því að línuvörður, Guð-
mundur Maríusson, haföi meiri hug
á að skipta sér af hvatningarorðum
Þórsara á varamannabekk en að
sinna leiknum. Þetta nýtti Kristján
Kristjánsson sér faglega og komst
einn að vítateig og gaf á Hlyn Birgis-
son sem skoraði, 0-2.
Heimamenn tóku nú við sér og fóru
að sækja stíft og mark þeirra kom á
40. mínútu þegar Arnar Gunnlaugs-
son gaf góða sendingu á Alexander
Högnason sem skoraði með góðu
skoti.
Sóttu Skagamenn stíft til leikhlés
en án árangurs.
í síðari hálfleik sóttu Skagamenn
nær látlaust og fór leikurinn að
mestu fram á vallarhelmingi Þórs.
Þar var hins vegar fyrir Júgóslavinn
Luca Kostic í banastuði og stjórnaði
sínum mönnum af röggsemi. Þá
varði Baldvin einnig mjög vel.
Inni á milli áttu Þórsarar nokkrar
vænlegar skyndisóknir sem gáfu þó
ekki mark.
Bestu leikmenn ÍA voru Guðbjöm
Tryggvason og Haraldur Ingólfsson.
Bestur Þórsara var Luca Kostic
ásamt Hlyn Birgissyni og Kristjáni
Kristjánssyni.
Maður leiksins: Luca Kostic, Þór.
Dómari: Sveinn Sveinsson &
Luca Kostic var góður að vanda.
t l.deild
f staðan J
W' ',,MWW',W,Wx£U i ;',a,',íÍ,xW,WW"^■,, ■:
Staðan í 1. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu eftir leikina í gær-
kvöldi er þannig:
Víkingur-Fram..........0-2
KA-Keflavík............2-1
Akranes-Þór............1-2
Valur........8 5 1 2 9-3 16
Fram.........9 5 1 3 12-8 16
FH...........9 4 3 2 13-9 15
KA...........9 4 3 2 13-9 15
KR...........8 4 2 2 14-11 14
Akranes......9 4 1 4 11-12 13
Þór..........9 2 3 4 9-13 9
Keflavík.....9 2 3 4 9-14 9
Víkingur....9 2 2 5 13-13 8
Fylkir......9 2 1 6 7-18 7
Markahæstir:
Pétur Pétursson, KR..........6
Hörður Magnússon, FH.........6
Guðmundur Steinsson, Fram....6
Bjöm Rafnsson, KR............5
Ántony Karl Gregory, KA......4
Goran Micic, Víkingi.........4
Kjartan Einarsson, ÍBK.......4
• Næsti leikur er í kvöld en þá
mætast toppliðin KR og Valur á
KR-vellinum klukkan 20. Þar með
lýkur 9. umferð og mótið er hálfn-
að.
• Það gekk oft mikið á í leik Víkings og
Víkings sækir hér hart að Viðari Þorkelss
skipti Víkinga í síðari hluta íslandsmótsir
- sigraði ^
Eftir sigur Fram gegn Víking:
toppbaráttan verður hlutskipt
en fallbaráttan Víkinga. Frar
Víkinga í Fossvoginum og eru
Valsmanna í toppsæti 1. deildar en Va]
Víkingar eru hins vegar í fallsæti sem
Leikur hðanna hófst með miklum
hamagangi og eftir 20 mínútur höfðu
Framarar skorað tvivegis og voru
óheppnir að skora ekki þrívegis. Ómar
Torfason átti gott skot í þverslá og á 10.
mínútu skoraði Pétiu Ormslev fyrra
mark Fram með föstu skoti í bláhom
Víkingsmarksins. Tíu mínútum síðar
skoraði Guðmundur Steinsson annað
mark Fram er hann tók knöttinn við-
stöðulaust á lofti eftir aukaspyrnu Péturs
Ormslev.
Eftir þetta áhlaup Framara í byriun
tóku Víkingar við sér og Andri Marteins-
Komast KR-ingar í
______ - Stórleikur á KR-vellinum er KR m;
I I I kvöld verður stórleikur deildar en nokkur tími er síðan þeir
I jT* 1 í 1. deild íslandsmótsins í voru þar siðast.
1 knattspyrnuerKRmætir Með leik KR og Vals lýkur 9.
Val á heimavelli sínum í umferð íslandsmótsins og er mótið
vesturbænum. Með sigri 1 kvöld þar með hálfiiað. Gera má ráð fyrir
geta KR-ingar skotist í toppsæti 1. hörkuleik á KR-vellinum í kvöld en