Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1990, Síða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1990, Síða 42
50 LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1990. !>;■!-■! i i•-■ »/■! Afmæli Hulda Elyý Helgadóttir Hulda Elvý Helgadóttir, Fannarfelli 4, Reykjavík, er fimmtug í dag. Hulda Elvý var gift Ragnari Kristni Hjaltasyni, f. 28.3.1939 á Brúarlandi í Skagafirði. Hann er sonur Hjalta Pálssonar, f. 9.9.1914, b. á niugastööum í Laxárdal ytri, og Klöru Konráðsdóttur, f. 27.1.1924. Börn Huldu og Ragnars: Ásta Björk, f. 2.10.1960, gift Guð- mundi Guðnasyni, f. 5.1.1961, syni Guðna Þórarinssonar, bílstjóra í Reykjavík, og Margrétar Þóru Vil-. bergsdóttur frá Siglufirði, og eru böm þeirra ívar Þór, f. 29.5.1984, Elvý Ósk, f. 10.7.1987, og Axel Öm, f.28.5.1989. Ragnar Helgi, f. 22.12.1961, sjó- maður. Víðir Þór, f. 4.1.1965, fórst með m/b Þernu þann 20.3.1981. Systkini Huldu eru: Guðbjörg Jóna Olsen, f. 8.4.1932, búsett í Danmörku, gift Svend A. Olsen, f. 30.6.1920. Hafdís Helga, f. 12.11.1933, búsett í Reykjavík. Kristín, f. 5.8.1935, gift Einari Torfasyni frá Vestmannáeyjum, f. 23.4.1923. Ómar Þór, f. 11.7.1941, búsettur í Reykjavík. Kristján Hafþór, f. 12.1.1945, fórst með flugvél sinni þann 27.10.1982, kaupfélagsstjóri Saurbæinga og síð- ar ísfirðinga, var kvæntur Guðnýju Kristjánsdóttur, f. 7.3.1945. Helgi, f. 7.10.1946, bóndi ogbíl- stjóri í Landeyjum, kvæntur Rós Óskarsdóttur, f. 6.2.1949. Foreldrar Huldu Elvýjar: Helgi Jóhannsson Hafliöason, f. 18.8.1908, d. 30.1.1965, bifvélavirki og kopar- smiður í Reykjavík, og Sigurbjörg Jónsdóttir, f. 22.3.1905, húsfreyja í Reykjavík. Systur Helga: Mínerva, f. 20.6. 1903, og Karlotta Jónbjörg, f. 1904, dóung. Bræður Sigurbjargar: Kristján, f. 1.9.1902, dó um tvítugt, og Guöjón Benjamín, f. 30.8.1906, bílstjóri í Reykjavík. Auk þess á Sigurbjörg einn hálfbróður, Guðbjörn Ingvar, f. 15.10.1922. Helgi var sonur Hafliða Jóhanns, skipstjóra á Búðum í Eyrarsveit, Jóhannssonar, b. í Köldukinn í Holt- um, Þorsteinssonar, hreppstjóra í Köldukinn, Runólfssonar, prests á Skúmsstöðum, Jónssonar. Móðir Hafliða var Guðbjörg Filippusdóttir, hreppstjóra í Bjólu, Þorsteinssonar, vefara í Bjólu, Vig- fússonar. Guðbjörg var dótturdóttir Ámunda Jónssonar, snikkara í Syðra-Langholti, og konu hans, Sig- ríðar Halldórsdóttur, Torfasonar. Móöir Helga var Helga Jónsdóttir, b. á Fáskrúðsbakka í Miklaholts- hreppi, Gíslasonar og Sigurlaugar Þórarinsdóttur. Sigurbjörg, móðir Huldu Levýjar, er dóttir Jóns, b. í Smádalakoti og síðast í Framnesií Holtum, Hall- dórssonar, b. á Ósabakka á Skeiö- um, Vigfússonar, b. í Lambhúskoti, Vigfússonar. Móöir Halldórs á Ósabakka var IngibjörgHalldórsdóttir. Móðir Jóns var Þorbjörg Jónsdóttir, b. í Unnarholti, Guðbrandssonar og Guðfinnu Jónsdóttur. Móðir Sigurbjargar var Guðbjörg Hulda Elvý Helgadóttir. Jónsdóttir, formanns í Einkofa á Eyrarbakka, Jónssonar, b. á Vind- heimum í Ölfusi, Jónssonar. Móðir Jóns í Einkofa var Guðrún Jónsdóttir. Móðir Guðbjargar var Kristín Ólafsdóttir, b. í Eystra- Geldingaholti og Baugsstöðum í Flóa, Nikulássonar og Sólveigar Gottsveinsdóttur frá Steinsholti í Eystrihreppi. f sak Jóhann Ólafsson ísak Jóhann Ólafsson bæjarstjóri, Fossvegi 23, Siglufiröi, verður fer- tugur á morgun, 18. febrúar. Isak er fæddur í Reykjavík og ólst hann upp þar og á Akureyri og í Svíþjóö. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1973 og las þjóðhagfræði við háskólann i Kaupmannahöfn en lauk ekki námi. Eftir það starfaöi hann í Lands- banka íslands, sem innkaupastjóri hjá Ofnasmiðjunni hf. og á árunum 1979-’86 var hann skrifstofustjóri Vélsfjórafélags íslands. En frá 1986 hefur hann gegnt stöðu bæjarstjóra á Siglufiröi. ísak starfaöi mikið að félagsmálum í menntaskóla og einn- ig hefur hann spilað mikið bridge, m.a. í juniorlandsliöi íslands 1974 á Evrópumóti í Kaupmannahöfn. ísak kvæntist þann 24.4.1980 Jónu Ragnarsdóttur Scheving húsmóður, f. 28.11.1956, dóttur Ragnars Schev- ing og Þórunnar Jónsdóttur. Bam ísaks og Jónu er: Sigrún, f. 5.4.1981. Synir ísaks eru: Ólafur Rúnar, f. 23.1.1973; Brypjúlfur, f. 6.3.1973, og Gunnar.f. 24.11.1976. Systkini ísaks eru: Nanna, f. 26.6. 1952, hjúkrunarfræðingur; Ragna, f. 20.9.1953, húsmóðir; Kristín, f. 22.8.1956, lífeölisfræðingur; Helga, f. 7.1.1961, hárgreiðslumeistari, og Óskar, f. 3.8.1964, rafvirkjanenú. Foreldrar ísaks voru Ólafur Ólafs- sonlæknir, f. 13.1.1924, d. 5.2.1966, og Sigrún ísaksdóttir húsmóðir, f. 3.10.1932, d. 6.6.1978, Ólafur var sonur Ólafs læknis Gunnarssonar, b. í Lóni í Viðvíkur- sveit, Ólafssonar, alþingismanns að Ási í Hegranesi, Sigurössonar. Móðir Gunnars var Sigurlaug Gunnarsdóttir, b. á Skíöastöðum, Gunnarssonar. Móðir Ólafs Gunn- arssonar var Guðný Jónsdóttir, prófasts í Reykholti, Þorvarössonar og Guðríðar Skaftadóttur, dannebrogsmanns og smáskammta- læknis í Stöðlakoti í Reykjavík, Skaftasonar. Móðir Ólafs Ólafssonar var Ragna Gunnarsdóttir, dóttir Gunnars Gunnarssonar, kaupmanns í Reykjavík, og Júlíönu ísafoldar ísak Jóhann Ólafsson. Jónsdóttur. Sigrún, móðir ísaks, var dóttir Helgu Runólfsdóttur úr Reykjavík og ísaks Kjartans, bifreiðarstjóra og b. á Bjargi á Seltjamamesi, Vil- hjálmssonar, sjómanns í Knobsborg n á Seltjamamesi, Guömundsson- ar, b. í Traðarholti í Flóa. Móðir ís- aks Kjartans var Björg ísaksdótir, pósts í Móakoti í Flóa. Guðmundur G. Jónsson Guömundur G. Jónsson bifreiða- stjóri, Stórholti 25, Reykjavík, verð- ur áttatíu og fimm ára á morgun. Guðmundur fæddist á Kolþernu- mýri í Vesturhópi í Vestur-Húna- vatnssýslu og ólst þar upp aö mestu. Hann kynntist þar öllum almennum sveitastörfum á unglingsárunum en flutti til Reykjavikur 1927. Guð- mundur tók bifreiðapróf1929 og hóf þá vörubílaakstur. Hann keyröi á Nýju vömbílastöðinni en var síöan einn af stofnendum vömbílástöðv- arinnar Þróttar 1934 þar sem hann keyrði til 1955. Guðmundur hóf leigubílaakstur á Borgarbilastöð- inni 1966 og ók þor tií 1964 er hann hóf störf hjá Bæjarleiðum, þar sem hann starfaði síöan lengst af eða þar til hann hætti akstri 1980. Hann er nú heiðursfélagi Bæjarleiða. Guðmundur kvæntist 1945 Þor- björgu Magnúsdóttur húsmóður, f. 14.5.1903, d. 1978, dóttur Magnúsar Ámasonar, verkamanns í Reykja- vík, og konu hans, Vagnbjargar Magnúsdóttur. Foreldrar Guðmundar voru Helga Árnadóttir húsfreyja, f. 5.2.1877, d. 10.7.1938, og Jón Bjamason, b. í Vesturhópi, f. 1856, d. 1918. Helga var dóttir Árna, b. á Kol- þernumýrí Bergþórssonar og Guð- ríðar Jónsdóttúr. Guðhiundur tekúr á móti gestum á afmælisdaginn milli kíukkan Í6 og 19 hjá syni sínum, Hauki V. Guð- mundssyni, og tengdadóttur, Emu Guðmundur G. Jónsson Sampsted, að Stórholti 25, Reykja- vík. Jóhann Aðalbert Pétursson Jóhann Aöalbert Pétursson, Sól- völlum 4, Breiðdalsvík, er sjötíu og fimmáraídag. Jóhann er fæddur að Ásunnar- stöðum i Breiðdal og ahnn þar upp. Hann var tvo vetur í Eiðaskóla 1937-38 Og 1938-39. Árið 1940 tók hann við búi fööur sins og bjó þar ásamt konu sinni allt til ársins 1982 en þá var hann orðinn frekar heilsu- veill. Jóhann bjó með kindur og kýr til heimilis og einnig nokkrar hæn- ur. Alltaf hefur hann haft gaman af sauðskepnum og kunni helst ekki við sig nema einhvers staðar uppi á fjöllum, eltandi sauðfé með hundinn sinn með sér. Jóhann hafði og hefur mjög gaman af öllum söng og var í kirkjukór Heydalakirkju í 40 ár. Jóhann fluttist til Breiðdalsvíkur árið 1982. Eiginkona Jóhanns er Hólmfríður Reimarsdóttir húsmóðir, f. 21.1. 1933, dóttir Reimars Magnússonar, sem nú er látinn fyrir nokkram árum og Stefaníu Jónsdóttur, sem búsett er í Lögbergi á Djúpavogi. Böm Jóhanns og Hólmfríðar eru: Borgþór, f. 18.9.1950, verkamaöur á Seyöisfirði, kvæntur Ingibjörgu Svavarsdóttur, og eiga þau þrjá stráka. Stefanía, f. 17.1.1952, húsfreyja að Melshomi í Berufiröi, gift Einari Gunnlaugssyni og á hún þijú böm. Fjóla, f. 10.4.1953, húsmóöir í Fellabæ á Egilsstöðum, gift Hall- grími Gíslasyni og á hún fjögur böm. Lilja, f. 9.3.1955, húsmóðir á Stöðv- arfirði, gift Sigþór Steindórssyni og áhúntvöböm. Dóra, f. 21.1.1958, húsmóöir á Fá- skrúðsfirði, gift Lúðvík Daníelssyni og á hún tvær dætur. Hilmar, f. 29.1.1961, d. 21.1.1989 og eignaðist hann tvo syni. Sóley, f. 10.9.1966, húsmóðir á Egilsstöðum, gift Níelsi Hermanns- syni og á hún eitt bam. Guðlaugur, f. 24.3.1970. Bræður Jóhanns: Ásgeir og Sigm- ar, d. 1988. Hálfbróöir Jóhanns var HerbjörnGuðmundsson, d. 1954. Foreldrar Jóhanns voru Halldór Pétur Jónsson, d. 1966, og Herborg Marteinsdóttir, d. 1946. Til hamingju með afmæliö 17. febrúar 90 ára 50 ára Jakob JónRfion, Eiðsvallagötu 1, Akureyrí. Felix Antonsson, Ljósalandi, Lýtingsstaðahreppi. Flóra Bóslaug Antonsdóttir, Hríngbraut 92C, Ketlavík. 75 ára Brekkustíg 27, Njarðvík. Hulda Þorsteinsdóttir, Hallfríður Guðmundsdóttir, Kollaleiru, Reyðarfirði. Æsufelli 6, Reykjavík. Steinn Þór Jónsson, Greniteigi 21, Keflavík. 70 ára 40 ara Gísli Kristjánsson, Þortlnnsgötu 8, Reykjavík, Arndis Oskarsdóttir, Hjallavegi 6, Reykjavík. Guörún Jónmundsdóttir, Bylgjubyggð 4, Ólafsfiröi. Guðrún Lárusdóttir, fifl ára Gylh Sigurðsson, Uv O* CI Lækjarhvammi 11, Hafriarfirði. Einþór Jóhannsson, Heiðarvegi 8, Reyðarfirði. Guðmundur Bjarnason, Stafholti 5, Akureyri. Guðriður Ingimundardóttir, Álfheimum 36, Reykjavík. Helgi Veturliðason, Goðhelmum 2, Reykjavík. lngibjorg E. Logadóttir, Sævangi xo, Hafharfiröi. Ingimundur Friðriksson, Skaftahlíð 36, Reykjavik. Jón H. Gunnarsson, Víkurflöt 1, Stykkishólmi. Bagnbeiður Gústafsdóttir, Mosgerði 13, Reykjavik. Sigmar Sigurðsson Sigmar Sigurðsson, fyrrv. bóndi á Gljúfri í Ölfusi og nú starfsmaður Ölfusborga, Lyngheiði 27, Hvera- gerði, veröur sjötugur á morgun, 18. febrúar. Sigmar er fæddur á Gljúfri í Ölf- usi og þar ólst hann upp. Hann út- skrifaöist sem búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1944 en 1955 tók hann við búi foreldra sinna ásamt Einari bróður sínum og bjuggu þeir þar ásamt fjölskyld- um sínum til ársins 1983 er þeir seldu jörðina. Hefur Sigmar búið í Hveragerði síðan. Sigmar kvæntist þann 21.8.1970 Gyðu Grímsdóttur, húsmóður qg starfstúlku á dvalarheimilinu Ás- byrgi í Hveragerði, f. 31.12.1935. Foreldrar hennar voru Gríniur Grímsson, kjötkaupmaður í Norð- dals-íshúsi, og Guðrún Guðbjarts- dóttir. Stjúpsonur Sigmars, sonur Gyðu, er Óttar Egilsson, f. 27.12.1961, sjó- maður, búsettur í Vestmannaeyj- um. Böm Sigmars og Gyðu eru: Davíð, f. 4.2.1972, og Guðrún Rut, f. 17.1. 1974. Systkini Sigmars: Karen, f. 11.11.1909, fyrrv. sauma- kona, búsett í Kópavogi, ekkja Ólafs Ólafssonar, eignuðust þau fimm börn. Björg, f. 7.4.1911, d. 5.5.1978, hús- móðir, var gift Óskari Jónssyni, sem einnig er látinn, og eignuðust þau þijúbörn. Margrét, f. 29.3.1913, húsmóðir, búsett í Reykjavík, gift Karli Strand lækni, f. 24.11.1911, og eiga þau tvö Sigmar Sigurðsson. böm. Halla, f. 21.1.1915, húsmóðir, bú- sett í Reykjavík, gift Páli Ögmunds- syni bílstjóra, f. 29.7.1914, og eiga þau tvö börn, en Halla á þrjú börn frá fyrra hjónabandi. Álfheiður, f. 6.11.1921, húsmóðir, búsett í Vestmannaeyjum, gift Ingv- ari Siguijónssyni, f. 7.6.1926, tré- smiöi, og eiga þau fiögur böm. Einar, f. 3.5.1928, fyrrv. bóndi, búsettur í Reykjavík, kvæntur Freyju Fanndal Sigurðardóttur, f. 10.11.1936, matreiðslukonu, og eiga þaufimmbörn. Foreldrar Sigmars voru Sigurður Benediktsson, f. 19.4.1878, d. 25.4. 1961, b. á Gljúfri í Ölfusi, og Guðný Einarsdóttir, f. 9.12.1888, d. 3.8.1971, húsmóðir. Sigmar tekur á móti gestum í Ölf- usborgum á afmælisdaginn eftir kl. 15.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.