Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1990, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1990.
5
r_____________________________________________Fréttir
Tveir danskir piltar segja dönsku blaði frá „hvltri þrælasölu“ í Eyjafirði:
Þetta er allt haugalygi
- segir Daníel Pálmason á Gnúpfelli sem hafði annan piltanna
Job-eventyr pá
Mand kostede
dyrt for to unge
Smidt ud fra arbejdsplads efter tre dage uden begrundelse
Af POUL MIDDELBOE
- Pas pá, fer I tager
arbejde i udlandet. Lad
være med at brænde
alle broer bag jer. Og
sorg for at fá en skrift-
ligKontrakt pá, bVðr
meget I fár i lon, og
garanti for andet arbej-
de, hvis det fprste sted
ikke er i orden.
Sádan lyder opfordringen fra
to unge, John Henriksen og
Lars Kjær, Hillerpd. De tog
fprst i januar til Island for at
arbejde med landbrug efter en
annonce, som var i Fredenks-
borg Amts Avis fpr juL Her
annoncerede en privat arbejds-
formidler efter unge, der var
interesserede i at tilbringe op til
Annoncen som fik de to unge til at tage til Island
et halvt árs tid i Island. job i stedet.
John og Lars vil geme advare Det kortvarige islandske
andre ud fra egne dyre erfarin- eventyr kostede dem op mod
ger. De blev smidt ud fra deres 10.000 kr. Og John stár nu uden
arbejde uden begrundelse efter tag over hovedet, fordi han op-
bare tre dage og fik ikke opfyldt sagde sit værelse, for han tog af
et mundtligt Ipíte om at fá nyt sted.
- Jeg f0ler, vi har været ude
for^hvjd slavehandel. For pá
forh5nd“blév"vT garanlCTet, at vi
kunne fá et andet job, hvis vi
selv eller vores arbejdsgiver var
utilfreds. Mcn alt gik skævt fra
starten, og det mundtlige lpfte
om'ahdet job blev ikke opfyldt
Selvfólgeíjg skulle vi have sik-
ret os en sKnltlip, aftale om báde
det og lonnen, sorib'der ogsá
hele tiden blev lavet om pá,
siger John.
- Ligeira starten f0lte iee cn
ugaestfrihed uden grænser~l
stárten troede j’eg.'jeg var para-
noid. Men efterhánden som jeg
forstod mere islandsk, kunne
jeg hore, de talte om os bag
ryggen pá os. Det endte sá tred-
jedagen med, at de mente, det
var bedst, jeg tog j\jem, fortæl-
ler Lars.
NORDSJÆLLAND side 3
Frétt danska blaösins, Frederiksborg Amts Avis, þar sem piltanir segja
sögu sína.
„Þetta er allt saman haugalygi.
Þessir strákar komu frá Kaup-
mannahöfn og vissu greinilega ekk-
ert út í hvaö þeir voru aö fara. Sták-
urinn hjá okkur fitjaði upp á neíið
þegar hann kom í fjósið. Hann sagði
að þetta væri ekkert fyrir sig. Strax
á öðrum degi vildi hann fá bílinn
okkar lánaðan. Við neituðum þeirri
beiðni vegna snjóþunga og þar sem
um ókunnugan mann var að ræða.
Hann hefur greinilega tekið neitun
okkar illa. Pilturinn hafði greinilega
engan áhuga á að vinna og ákvað
sjálfur að fara. Honum var alls ekki
hent héðan út heldur keyrður inn til
Akureyrar svo hann kæmist í flug-
vél,“ sagði Daníel Pálmason á Gnúp-
felli í Eyjafirði í samtali við DV.
„Þriggja daga vinna kostaði okkur
tíu þúsund krónur," segir í fyrirsögn
fréttar í danska blaðinu Frederiks-
borg Amts Avis frá 22. janúar. í frétt
blaðsins, sem einnig birtist á forsíðu
undir fyrirsögninni „Vinnuævintýri
á íslandi varð tveimur ungum piitum
dýrkeypt" segir frá tveimur dönsk-
um piltum, John og Lars, sem komu
til íslands í janúar til að aðstoða á
bóndabæjum norður í Eyjafirði. Þeir
segja farir sínar ekki sléttar af við-
skiptum við fólkið á bæjunum og
konu þá er hafði millgöngu um komu
þeirra til landsins. Segja þeir ferðina
til íslands hafa kostað sig rúmlega
90 þúsund íslenskar krónur. Þeir
piltar svöruðu auglýsingu í sama
blaði sem hljóðaði þannig:
„Viltu fara til íslands? „Au-pair“
stúlka eða drengur óskast eins fljótt
og hægt er til bóndabæjar á Norður-
íslandi þar sem unnið er við land-
búnað með kúm, kindum og hestum.
Góöir útreiðarmöguleikar. Fæði,
húsnæði og vasapeningar. Snúið
ykkur til Marenar Árnadóttur, Ás-
láksstöðum, 601 Akureyri.“
Takmarkalaus ógestrisni
„Mér fmnst að við höfum orðið fyr-
ir barðinu á hvitri þrælasölu. Áður
en við fórum vorum við fullvissaðir
um möguleika á öðru starfi ef viö
sjálfir eða vinnuveitandinn yrði óán-
ægður. Það gekk allt á afturfótunum
frá byrjun og munnlegt loforð um
annað starf stóðst ekki. Auðvitað
hefðum við átt að tryggja okkur
skriflegan samning um bæði það og
launin sem alltaf var verið að
breyta," segir John sem var á Gnúp-
felli.
„Allt frá byrjun fann ég fyrir tak-
markalausri ógestrisni. Fyrst hélt ég
að ég væri haldinn ofsóknaræði en
því meiri íslensku sem ég skildi gerði
ég mér grein fyrir að þau töluðu illa
um okkur. Á þriðja degi fór þannig
að þau töldu best að ég færi heim,“
sagði Lars sem var á Hofsá í Svarfað-
ardal.
Þeir piltar segjast hafa verið reknir
ástæðulaust eftir þrjá daga og staðið
skyndilega uppi allslausir og aura-
lausir. Hafi þeir þurft að leita til
danskrar forstöðukonu á Farfugla-
heimihnu á Akureyri um hjálp.
Alltaf mætt ánægðu fólki
„Ég vísa þessu öllu á bug. Þessir
piltar voru varla farnir að hreyfa
legg né liö. Þeir lágu í símanum og
ákváðu að fara til Danmerkur eftir
þrjá daga. Þeir vildu greinilega allt
annað en vinna og sýndu skemmt-
analífi mun meiri áhuga. Ég bauðst
til að útvega þeim vist á öðrum bæj-
um og eins vinnu í niðursuðurverk-
smiðju á Akureyri en það vildu þeir
ekki. Ég vísa tali um kostnaðinn al-
gerlega á bug. Peningarnir hafa farið
í annað en að koma sér hingað. Ég
hef útvegað mörgum útlendingum
vinnu hér og ekki mætt öðru en
ánægðu fólki. Til vitnis um það hafa
tveir útlendingar sem hér eru sent
þessu danska blaöi bréf vegna skrif-
anna þar sem þau lýsa ánægju sinni
með vistina og furða sig á þessum
ummælum piltanna,“ sagði Maren
Árnadóttir, sem hefur haft milli-
göngu um komu fjölda ungmenna til
landsins, við DV. Hún hefur sent
danska blaðinu svarbréf þar sem hún
meðal annars furðar sig á tungu-
málagáfu annars piltanna sem skildi
íslensku eftir tvo daga.
Frekar leika sér
Húsfreyjan á Hofsá tók undir orð
Marenar og Daníels. Hún sagði að
strákarnir hefðu frekar viljað leika
sér og þeir hafi ekkert verið byrjaðir
að vinna. Lagði hún áherslu á að hún
og fleiri hefðu fengið mikið af úrvals-
fólki í vinnu, líka Dani, fyrir milli-
göngu Marenar á Ásláksstöðum.
„Faðir þess sem var hér hefur nú
skrifað bréf og heimtað 11 þúsund
danskar krónur innan viss tíma. Með
því að vísa á einvheijar reglugerðir
þykist hann geta fengið hálfsárs laun
frá okkur greiðum við ekki þetta fé.
Þetta er tóm vitleysa. Þessi drengur
var beðinn um að fara í fjósiö til aö
sópa og strjúka af mjaltavélunum
annað kvöldið sitt. Sagðist hann
liggja í rúminu daginn eftir ef hann
gerði það. Það segir nú allt um vinnu-
þrekið og viljann,“ sagði Daníel.
-hlh
Eyjamenn uggandi vegna kvótaskeröingar:
Afli gæti minnkað um
15% frá síðasta ári
Ómar Garöaisson, DV, Vestmannaeyjum:
Ný fiskveiðistefna er nú rædd á Al-
þingi. Þar er lagt til að sóknarmarkiö
verði lagt niður og aflamark sett á
allan fiskveiöiflotann frá og með
næstu áramótum. Nú eru sóknar-
marksskip á landinu 222 en 436 skip
eru á aflamarki. Alls eru þetta 658
bátar og togarar á landinu öllu. Hlut-
fóllin eru þvi tæplega eitt sóknar-
marksskip á móti tveimur afla-
marksskipum.
í Vestmannaeyjum eru hlutfóllin á
hinn veginn eða sem næst tvö sókn-
armarksskip á móti einu aflamarks-
skipi. Útgeröarmenn í Eyjum óttast
þvi að þegar skip hætta að vera á
sóknarmarki skeröist kvóti þeirra
meira en annars staðar á landinu.
Geti þetta þýtt að allt að 8-9.000 tonn-
um minni afli bærist á land í Eyjum
á þessu ári en á því síðasta.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur ný-
lega sent frá sér útreikninga þar sem
öll skip og bátar frá Vestmannaeyj-
um eru sett á aflamark. Er þar miðað
við árið í ár. Á síðasta ári var landað
hér 53.129 tonnum af þorski, grálúðu,
ufsa, ýsu og karfa samkvæmt bráða-
birgðatölum frá Fiskifélaginu.
Útreikningar ráðuneýtisins segja
hins vegar að Eyjaflotinn fengi 44.569
tonn og er mismunurinn því 8.560
tonnum minni bolfiskafli fyrir Eyja-
skipin. Þó skal þess getið að í tölum
frá síðasta ári er afli aðkomuskipa
sem gæti verið nokkur hundruð
tonn. Engu að síður leiðir þetta til
15% samdráttar í afla.
Útgerðarmenn sóknarmarksskip-
anna vilja halda því fram að ef það
verði tekið af þá sé grundvellinum
kippt undan útgerð þeirra. Sérstak-
lega eru það útgerðarmenn sem hafa
fjárfest í nýjum skipum eða farið út
í dýrar breytingar á eldri skipum.
Þegar þeim er bent á að þeir hafi
offiárfest segjast þeir hafa lagt sókn-
armarkið til grundvallar í umsókn-
um sínum til opinberra sjóða sem
hafi lagt blessun sína yfir rekstrará-
ætlanir þeirra.
Alþýöubandalagiö í Kópavogi:
Búið að raða á listann
Valþór Hlöðversson, blaðamaður
og bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins
í Kópavogi, mun skipa efsta sæti hsta
flokksins við komandi bæjarstjóm-
arkosningar. Uppstillingarnefnd
valdi fólk á framboðslistann. Heimir
Pálsson og Heiðrún Sverrisdóttir,
sem voru í tveimur efstu sætum við
síöustu kosningar, skipa nú 12. og 22.
sæti á listanum.
í öðru sæti í komandi kosningum
verður Elsa Þorkelsdóttir, frám-
kvæmdastjóri Jafnréttisráðs, Ólafur
Hjálmarsson verkfræðingur er í
þriðja sæti, Bima Bjarnadóttir hús-
móðir í fjórða sæti, Þórunn Björns-
dóttir tónmenntakennari í fimmta
sæti, Ásgeir Matthíasson verkfræð-
ingur í sjötta sæti og Unnur Bjöms-
dóttir framkvæmdastjóri verður í
sjöunda sæti.
-sme
ÁRATUGA REYNSLA í HURÐASMÍÐI
BÍLSKÚRSHURSIR
Við smíðum allar gerðir af bílskúrshurðum,
þ. á m. hinar hentugu felli-
hurðir. Þær henta sér-
staklega vel þar sem nota
á sjálfvirkan opnara og
hætt er við að snjór setjist
að hurðum.
Sýningarhurð á staðnum.
cn
£
TRÉSMIDJA
rflT 1 I ÓLAFSSONAR hf.
v/reykjanesbraut, hafnarfirði.
■■■■■■ SlMAR: 54444, 54495
Islenskt glugga-
CX5 HURÐAEFTIRLIT
rrTPn
lk lxJ