Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1990, Side 11
FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1990.
11
Sviðsljós
Breska poppstjarnan Elton John
hefur ákveðið að gefa sundbol
Marilyn heitinnar Monroe á upp-
boð sem haldið verður til styrktar
víetnömsku flóttafólki, sérstaklega
börnum.
Monroe, sem stytti sér aldur 1962,
klæddist téðum smrdbol, sem er
svartur með pallíettum, í kvik-
myndinni There’s No Business
Like Show Business. Sundbolurinn
hefur verið í eigu Eltons í nokkur
ár en hann safnar minjagripum
sem tengjast kvikmyndastjörnum.
Fyrirsætan Jerry Hall mun halda
á hamrinum þegai’ bolurinn verður
boðinn upp.
Fyrir tveimur árum var annar
sundbolur, sem Marilyn klæddist í
kvikmyndinni Some Like It Hot,
seldur á uppboði fyrir 2.2 milljónir
íslenskra króna.
Sundbolur Marilyn Monroe verður seldur
til styrktar víetnömsku flóttafólki.
Hef fengið
nóg af felu-
leiknum
Leikarinn góðkunni Richard Chamberlain, sem íslenskir
sjónvarpsáhorfendur muna kannski eftir sem hjartaknúsar-
anum Kildare lækni, hefur lýst því yfir að hann sé orðinn
þreyttur á feluleiknum í kringum einkalíf sitt og hefur gjört
heyrinkunnugt ástarsamband sitt við Martin nokkum Rab-
batt. Sambúð þeirra hefur varað nú
í heil tólf ár.
„Ég hef fengið nóg af þessum felu-
leik og kem nú fram opinberlega í
fylgd elskhuga míns. Við erum að
láta reisa hús sem verður okkar
framtíðarheimili, ‘ ‘ sagði leikarinn
meðal annars í samtah við franska
kvennablaðið Nous Deux.
Chamberlain kveðst hafa lifað í
skugga eyðnisjúkdómsins í mörg ár
og segist hafa kvalist af ótta við þenn-
an vágest. Góður vinur Chamber-
lains, John Allison, lést úr eyðni
1986. Chamberlain hefur síðan látið
10% tekna sinna renna til rannsókna
á sjúkdómnum.
Leikkonan Elizabeth Taylor, sem
lagt hefur baráttunni gegn eyðni
mikið lið, sagði að Chamberlain væri
á réttri leið og kvaðst vænta þess að
fleiri stjörnur í Hollywood fylgdu í
fótspor hans og viðurkenndu kyn-
hneigðir sínar opinberlega.
Richard Chamberlain er hommi og lætur 10% tekna sinna renna til rann-
sókna á eyðni.
RYMINGARSALA - ALLT AÐ 50% AFSLATTUR
Straumbreytar úr 220 V í 12 V
Rafstöðvar
VHF bílaloftnet
Höfuðnuddtæki
SENDUM í PÓSTKRÖFU
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
LÁGMÚLA 7, 108 REYKJAVIK, SIMI 91-84077
TimT iif
(áður Benco)