Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1990, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1990, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1990. SJÚKRAHÚSIÐ í HÚSAVÍK SF. HJUKRUNARFRÆÐINGAR - SJÚKRALIÐAR Óskum aö ráða hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða til starfa nú þegar og til sumarafleysinga. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 96-41333. FELAGSMALASTJORI Ólafsfjarðarbær auglýsir laust til umsóknar starf fé- lagsmálastjóra. Laun eru samkvæmt launakerfi bæj- arstarfsmanna. Í starfi félagsmálastjóra felst umsjón með þeim mála- flokkum sem heyra undir félagsmálaráð, þ.e. dagvist- un, vímu- og áfengismál, félagshjálp, öldrunarmál o.fl. Þá á félagsmálastjóri að gegna starfi æskulýðs- og íþróttafulltrúa. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu í félags- málastörfum svo og uppeldis- og íþróttamálum, einnig að umsækjendur hafi einhverja menntun á þessum sviðum. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf sendist undirrituðum fyrir 20. apríl 1990. Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður. Ólafsfirði, 27. mars 1990. Bæjarstjórinn í Ólafsfirði, Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði sími 96-621 51. Þúsundir stuöningsmanna Moskvustjórnarinnar í Litháen komu saman til fjöldafundar í Vilníus í gær. Simamynd Reuter vopnunarmál sem og fyrirhugaður leiðtogafundur stórveldanna yrði helsta umræðuefnið. Bæði þessi mál- efni bar á góma þó að Litháen hafi skyggt á þær umræöur. Gorbatsjov varar Eistiand við Spennan jókst enn á ný í ríkjunum við Eystrasalt í gær þegar Mikhail Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, varaði ráðamenn í Eistlandi við því að sovésk stjórnvöld myndu bregðast á sama hátt við sjálfstæðiskröfum Eistlendinga og þau brugöust við sjálfstæðiskröfum Litháa. Að því er Igor Gryazin, einn fulltrúa á þingi Eistlands, sagði fordæmdi Sovétfor- seti þingsályktun Eistlendinga þar sem kveðið er á um að tengsl við Sovétríkin verði slitin í áfóngum. Ráðamenn Eistlands og Litháen hafa lýst því yfir að þeir muni hvergi hvika í sjálfstæðisbaráttu sinni nú. Gryazin sagði í gær að fyrr eða síðar myndi Gorbastsjov neyðast til aö hefja samningaviðræður. Öll Eystrasaltsríkin þrjú - Litháen, Eistland og Lettland - segja aö inn- limun þeirra í Sovétrikin árið 1940 hafi verið ólögleg. Eistland og Lithá- en hafa krafist sjálfstæðis. Eistlend- ingar fara sér þó hægar því þeir vilja sjálfstæði í áfóngum. Litháar lýstu því yfir 11. mars að þeir hefðu endur- heimt sjálfstæði það er þeir nutu á millistríðsárunum. Viðræður í Lettlandi Gorbatsjov ræddi í gær við fulltrúa kommúnistaflokksins í Lettlandi og er taliö að með því hafi forsetinn verið að reyna að koma í veg fyrir óróa í þriðja Eystrasaltsríkinu. Ekki er ljóst hver var niðurstaða þessara viðræðna. Hópur innan kommúnistatlokks Lettlands vill að gengið verði til at- kvæða um sjálfstæði frá móður- flokknum í Moskvuá þingi flokksins um helgina. Verði slíkt samþykkt hafa Lettar tekið sömu ávörðun og kommúnistar i Litháen og Eistlandi. Tilslökun Litháa? Þing Litháen sakaði Moskvustjórn- ina i gær um valdaránstilraun. í ályktun þingsins sagði að með því að senda sovéska herinn á vettvang væru sovésk stjórnvöld að reyna að koma aftur á því pólitíska stjórn- kerfi sem ríkt hefði í Litháen áður en hin nýja stjórn tók þar við í febrú- ar síðastliönum. Rauöi herinn var sendur til Litháen fljótlega eftir full- veldisyfirlýsinguna og hefur nú á sínu valdi nokkrar opinberar bygg- ingar í eigu kommúnistaflokks lýð- veldisins. Litháar hafa lýst yfir vilja til við- ræðna við sovésk stjórnvöld og gætt hefur meiri sáttatóns í ummælum þeirra síðustu daga. í gær gaf tals- maður ráöamanna í Litháen í skyn að lýðveldið væri reiðubúið að gefa eftir i kröfum sinum ef það mætti verða til þess að koma í veg fyrir frekari ágreining. Algimantas Ceku- olis sagði að forysta Litháens væri reiðubúin að fallast á áframhaldandi efnahagsleg tengsl við Sovétríkin og jafnvel veru sovéskra hermanna í lýðveldinu í kjölfar sjálfstæðis. Hann gaf í skyn að Lithár gætu jafnvel fre- stað tímabundið frekari sjálfstæðis- framkvæmd eftir að Moskvustjórn hefði fallist á fullveldisyfirlýsinguna. Cekuolis ítrekaði enn og aftur þá af- stöðu Litháa að þeir myndu aldrei falla frá sjálfstæðisyfirlýsingu sinni. Óformlegar viðræður milli fulltrúa deiluaðila hafa enn ekki leitt til lausna. Reuter Utlönd ajun9aaK. Eystrasalt: Eistlendingar varaðir við SCOUTLUX + 25° C — -e 8° C Þyngd 1.900 gr. Verö kr. 6.590,- - tilslökun af hendi Litháa? Eduard Sévardnadze, sovéski utan- ríkisráðherrann, fullvissaði í gær hinn bandaríska kollega sinn um að „réttlát" lausn fyndist i deilu sov- éskra yfirvalda og ráðamanna í Lit- háen en þeir síðarnefndu hafa sagt sig úr ríkjasambandi Sovétríkjanna. „Eg er þess fullviss að lausn finnst... réttlát lausn sem þjónar bæði hagsmunum Sovétríkjanna og Litháen," sagði Sévardnadze að lokn- um þriggja klukkustunda fundi sín- um með James Baker, bandaríska utanríkisráðherranum, í Washing- ton í gær. Baker sagði að Sévardnad- ze hefði fullvissaö bandarísk stjóm- völd um að vopnavaldi yrði ekki beitt í deilunum við Eystrasalt. Bandarískir embættismenn segja að málefni Litháa hafi verið efst á baugi í umræðum ráöherranna í gær. Upprunalega var áætlað að af- FEMUND + 25° C — -h10° C Þyngd 1.900 gr. Verö kr. 9.980,- IGLOO + 25° C — - 18° Þyngd 2.000 gr. Verö kr. 11.980,- SWRAK FKAMUR Snorrabraut 60 Slmar: 12045 — 624145 TRAIL 50 50 lítrar Þyngd 900 gr. Verð kr. 5.490,- PANTHER 65 lltrar Þyngd 1.800 gr. Verð kr. 9.990,- LYNX4 60 lltrar Þyngd 1.100 gr. Verð kr. 5.990,- Raðgreiðslur. Póstsendum samdægurs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.