Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Síða 12
12
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1990.
Fréttir
Nýja skipiö hjá Slippstööinni á Akureyri:
Skipið f ullbúið en kaup
endur án fyrirgreiðslu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
í einu húsa Slippstöövarinnar á
Akureyri stendur nær fullbúið 250
tonna togskip sem verið hefur í smíð-
um hjá stöðinni undanfarin ár. Svo
virðist sem skipið muni verða þarna
áfram því þótt kaupendur hafl í tví-
gang fengist að skipinu og samningar
náðst við þá hefur „kerfið“ neitað
fyrirgreiðslu sem þykir þó eðlileg í
viöskiptum sem þessum. Þar er fyrst
og fremst átt við Fiskveiðasjóð sem
hefur tvívegis neitað fyrirgreiðslu til
kaupenda skipsins eftir að samning-
ar höfðu náðst. Við þriðju afgreiðslu
samþykkti sjóðurinn þó lánveitingu
sem nam 40% af kaupverði skipsins.
Sú tala er lægri en venjan er þegar
sjóðurinn lánar til kaupa á nýjum
skipum og að auki krafðist sjóðurinn
20% af afla skipsins sem einnig er í
hæsta lagi þegar um slíkt er að ræða.
Það var snemma árs 1987 sem
Slippstöðin fékk heimild til að ráðast
í smíði tveggja skipa af þessari stærð.
Undirbúningur smíði annars skips-
ins hófst strax og viðskiptaráðuneyt-
ið veitti heimild til aö stöðin gæti
tekið erlend bráðabirgöalán til fjár-
mögnunar smíðinnar. Greiöa átti
þessi lán þegar kaupandi að skipinu
væri fenginn og eölileg fyrirgreiðsla.
Hélt stöðinni gangandi
Smíði skipsins hófst í árslok 1987
og var aðalverkefni stöðvarinnar
veturinn 1987-1988 enda mjög lítið
um önnur verkefni. Veturinn 1988-
1989 var aftur tekið tii viö smíöi
skipsins og Sigurður G. Ringsted,
forstjóri Slippstöðvarinnar, segir að
þessa tvo vetur hafi smíðin haldið
stöðinni gangandi og ekki sé hægt
að sjá hvernig stöðinni hefði reitt af
ef þetta verkefni heföi ekki verið fyr-
ir hendi.
Sigurður G. Ringsted á skrifstofu sinni. Athafnasvæði stöðvarinnar sést út
að litast, ekkert skip við bryggju.
Skipið er 36,4 metra langt, 8,6 metra
breitt og um 250 rúmlestir að stærð.
Það er lítill skuttogari og möguleiki
á að útbúa það fyrir aðrar tegundir
veiðarfæra.
Siguröur Ringsted segir að frá því
um sumarið 1988 og fram til dagsins
í dag hafi verið unnið mikið að því
að reyna að selja skipið. Fjöldi manns
hafi sýnt skipinu áhuga og spurst
fyrir um það og tvívegis hafi verið
gerðir samningar um sölu á skipinu.
Tveir sölusamningar
Sá fyrri var við Ingvar Gunnars-
son, útgerðarmann á Eskifirði, en
samningur við hann var gerður i maí
1989. Þessi samningur fékk neikvæða
afgreiðslu hjá Fiskveiðasjóöi nokkr-
um mánuðum síðar. Fljótlega upp
DCX 59
IIIIL
w
1
SAMSTÆÐAN
VERÐ:
58,500 stgr.
VERÐ:
án geislaspilara
41,800
• 16 aðgerða þráðlaus fjar-
stýring
• Magnari: 2x60W með 5
banda tónjafnara
• Útvarp: FM/AM/LW, 24
stöðva minni og sjálfvirkur
stöðvaleitari
• Segulband: tvöfalt með
hraðupptöku, Dolby B og
samtengdri spilun
• Plötuspilari: reimdrifinn,
hálfsjálfvirkur
• Geislaspilari: með tvö-
faldri „digital/analog“ yfir-
færslu, 16 minni, lagaleit
ofl.
• Heyrnartæki
• Hátalarar: 70W þrískiptir
JAPÖNSK
GÆÐI
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 • Sími 680780
um giuggann en þar var tómlegt um
DV-mynd gk
úr því hófust viðræður við Meleyri
hf. á Hvammstanga og samningur
við það fyrirtæki um kaup á skipinu
var undirritaður í nóvember á síð-
asta ári.
Nú má segja aö „sjóðagangan" hafi
hafist fyrir alvöru og er skemmst frá
þvi að segja að sú ganga hefur verið
torfær. Fiskveiðasjóður hafnaði sem
fyrr að lána til kaupanna en Byggða-
stofnun var fús að lána 40% og mun
hafa veriö haft í huga að Lands-
bankinn kæmi inn með jafnháa upp-
hæð og þessi lán yrðu bæöi á 1. veð-
rétti. Landsbankinn reyndist hins
vegar ekki fús til að taka þátt í þessu.
Þá var ákveðið að sækja að nýju um
fyrirgreiðslu til Fiskveiðasjóös og þá
fullt lán en afgreiðsla sjóðsins hljóð-
aði samt sem áður upp á 40% af kaup-
verði og með óaðgengilegum skilyrð-
um varðandi aflahlut.
Skil þetta ekki
Sigurður G. Ringsted segist ekki
vita dæmi þess að Fiskveiðasjóður
hafi áður samþykkt slíka lánveit-
ingu, sjóðurinn hafi annaðhvort lán-
að fullt lán, sem er 65% af kaup-
verði, eða ekkert. Þá sé sú ákvörðun
sjóðsins aö taka 20% af afla hámari
þess sem tíðkast hefur hvað þai
varðar og enn furðulegra í ljósi þess
að ekki hafl verið um fullt lán aö
ræða. „Ég túlka þessa afgreiðslu ekki
neitt, ég skil hana einfaldlega ekki
og hef ekki heyrt nein rök fyrir
henni,“ segir Sigurður.
Samningur Slippstöðvarinnar og
Meleyrar hljóðaði upp á 360 milljónir
króna. Stöðin ætlaði að taka upp í
gamalt skip sem metið var á 116 millj-
ónir króna og mismunurinn var því
244 milljónir. Slippstöðin hefur tekið
erlend bráðabirgðalán að upphæð
um 220 milljónir króna vegna smíði
skipsins en að öðru leyti fjármagnað
smíðina úr rekstri fyrirtækisins.
Þetta eru skammtímalán sem fram-
lengja þarf reglulega og fokdýr, aö
sögn Sigurðar. Þannig var vaxta-
kostnaöur þessara lána á síðasta ári
um 25 milljónir og við það bætast
síðan gengisbreytingar.
Sigurður er ekki á því að byrðin
vegna þessara lána geti riðið stöðinni
að fullu, það muni takast aö selja
skipið fyrr eða síðar. Vaxtakostnað-
ur á mánuði sé þó á bilinu 2,0-2,5
milljónir króna og það sé ekki hægt
að bera þann kostnað lengi. „Skipiö
selst aö lokum en biðin er dýr,“ segir
Siguröur.
Tilboða leitað?
Þannig er staða málsins í dag. Skip-
ið nær fullbúið í stöðinni en þeir sem
hafa áhuga á að kaupa fá ekki fyrir-
greiðslu sem þó virðist ekki standa á
þegar sambærileg skip eru smíðuð
erlendis. En eru hafnar viðræður við
einhverja aðila um kaup á skipinu?
„Nei, það er ekki. Þaö gæti farið
svo að við leituðum eftir tilboðum í
skipið til að sjá hvað kæmi út úr
því. Héðan af ljúkum við smíði skips-
ins ekki fyrir sumarið eins og ætlun-
in var og það kemur til með að standa
einhverja mánuði til viðbótar inni í
húsi. Það er hugsanlega verið að tala
enn á ný um biðtíma í allt aö hálft
ár a.m.k.,“ segir Sigurður.
Þegar samningurinn við Meleyri
var gerður var fyrirhugað að vinna
við smíði skipsins frá sl. áramótum
og fram á vor, á tíma sem er árvisst
nánast „dauður" hjá Slippstööinni.
Það tókst sem sagt ekki en stöðin
hefur bjargað sér með tilfallandi
verkefnum, s.s. viðgerð á strand-
ferðaskipinu Heklu og á togaranum
Hjalteyrinni. Nú eru þau skip farin
og ekkert komið í staöinn. Þegar DV
var á ferð í Slippstöðinni sl. fimmtu-
dag var ekkert skip hjá Shppstöðinni
til viðgerðar og eina skipið á svæðinu
nýja skipið sem er nær fullbúið en
ekki hægt að selja og ljúka við.
Ástandið er því ekki glæsilegt en því
miður er það ekki neitt nýtt að þess-
um iðnaði sé sýnt tómlæti og skiln-
ingsleysi.
3 milljarða króna
þota til Flugleiða
Flugleiðir fengu afhenta í vikunni
sína fyrstu Boeing 757 þotu en þessar
þotur eiga að taka við af DC8-63 flug-
vélunum. Það var Siguröur Helgason
forstjóri sem tók við þotunni úti í
Seattle en þotan kemur til landsins
á morgun og verður henni þá gefið
nafnið Hafdís. Kaupveröið er tæp-
lega 50 milljónir dollara eða um 3
milljarðar króna.
Þessi vél er ein þriggja véla sem
Flugleiðir hafa átt í smíðum í Boeing
verksmiðjunum í vetur. Önnur 757
flugvél og ein 737-400 vél koma til
landsins á næstu vikum. Þá verða 5
nýjar þotur í eigu Flugleiða en félag-
ið fékk tvær 737-400 vélar í fyrra. Þá
hafa Flugleiðir undirritaö samning
um kaup á tveim nýjum Boeing þot-
um til viðbótar, einni af hvorri gerð.
Veröa þær afgreiddar næsta vor.
Eftir þessa endurnýjun eiga Flug-
leiðir yngsta millilandaflugflota í
Evrópu. -SMJ