Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1990, Blaðsíða 13
2
LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1990.'
Uppáhaldsmatur
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjumaður er ekki síðurfær i eldhúsinu en í garðinum.
DV-mynd Hanna
Grænir fingnr
í eldhúsinu
- Hafsteinn Hafliðason býður sprotakálsböku
„Ég er nokkuð liðtækur í matar-
gerðinni en eiginkonan og dæturn-
ar sjá um uppvaskið. Eiginkonan
sér einnig um veislutertur sem hún
er sérfræðingur í,“ sagði Hafsteinn
Hafliðason garðyrkjumaður er
helgarblaðið leitaði eftir uppskrift
frá honum. Hafsteinn er þó þekkt-
ari fyrir garðyrkjustörfm og sjón-
varpsþætti sína, Græna fingur.
Þeir þættir eru unnir jöfnum hönd-
um og eru áætlaðir á dagskrá fram
eftir hausti. Hafsteinn sagði að
hann reyndi að vera ekki of fræði-
legur í þættinum, blandaði frekar
saman ráðleggingum og viðtölum
við fólk í görðunum sínum. Þáttun-
um hefur verið vel tekið og Haf-
steinn fær venjulega mikil við-
brögð frá áhorfendum. Ekki segist
hann þó vera duglegur nema í ann-
arra manna görðum. En þá er það
uppskrift garðyrkjumannsins sem
að sjálfsögðu er komin úr garðin-
um.
Sprotakálsbaka
300 g hveiti eða fínmalað heilhveiti
150 g saxað eða brætt smjörlíki
1-1 Zi dl matarolía
2 egg
1 tsk. borðsalt eða hollustusalt
1 tsk. kardimommuduft
Vi dl kalt vatn
Blandið saman hveiti, olíu og
smjörlíki og hnoðið vel saman
ásamt saltinu og kardimommu-
duftinu. Bætið eggjunum í og hnoð-
ið vel saman. Deigið er jafnað með
örlitlu af vatni. Búið til kúlu og
geymið í hálfa klukkustund áður
en deigið er flatt út. Deigið er síðan
flatt út á mjöluðu borði þar til það
verður ca fimm millímetra þykkt
og fjörutíu sinnum fjörtíu cm á
lengd og breidd. Takið frá bita í lok
á pæið.
Hægt er að nota alls kyns löguð
form, hringlaga, ferköntuð, pæ-
laga, ilöng eða bara bökunarplöt-
una og þá er bakan bökuð eins og
pitsa.
Fylling
4-500 g af sprotakáli (broccoli)
1 Vi dl soðin hrísgrjón
Eitt bréf beikon, ca 150-170 g (meira
ef vill)
1 stór matlaukur (á stærð við sítr-
ónu), saxaður
Byrjið á að sjóða sprotakálið i
hálfum lítra af vatni. Bragðbætið
með grænmetisteningi og smjör-
klípu ellegar salti. Sjóðið í þrjár
mínútur. Beikon og laukur látin
malla á pönnu við vægan hita.
Sprotakáhð tekið upp úr pottinum
en helmingnum af soðinu er hellt
yfir laukinn og beikonið. Jafnað
saman með sósujafnara og pipar
malaður yfir.
Loks er sprotakálinu raðað í
formið yfir deigið, hrísgrjónin sett
með matskeið hér og þar yfir, þá
beikon og laukblandan. Að síðustu
er lokið sett yfir bökuna. Hafsteinn
gaf gott húsráð: Gott er að væta
barmana á lokinu með vatni og
pressa á með gafíli. Með þessu
verður lokið mun þéttara á bök-
unni. Forminu stungið í ofn í 30-35
mínútur v’ð 220 gráða hita.
Borið heitt á borð með soðnum
hrísgrjónum, Worchestersósu eða
Hoi-Sin sósu og jafnvel hrásalati.
Með þessu er drukkið vatn, epla-
safi eða pilsner. Þar sem börn eru
er gott að taka hinn helminginn af
sprotakálssoðinu, aðra hvora
sterku sósuna og jafna upp með
sósujafnara. Þannig fæst þunn góð
sósa sem börnum líkar kannski
betur en Worchester- eða Hoi-Sin.
í eftirrétt mælir Hafsteinn með
hnausþykku mokkakaffi og Moz-
artkúlum og börnin fá aö sjálfsögðu
ís. -ELA
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á jörðinni Þóreyjarnúpi, Kirkjuhvammshreppi, eign þrota-
bús Halldórs Gísla Guðnasonar, kt. 061048-3679, fer fram á eigninni sjálfri
þriðjudaginn 22. mai 1990 kl. 18.00.
Sýslumaður Hunavatnssýslu.
AÐALFUNDUR
félagasamtakanna Verndar
verður haldinn mánudaginn 28. maí 1990 í Ing-
ólfsstræti 5, 6. hæð, (gamla Sjóváhúsið).
Hefst stundvíslega kl. 18.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Útboð
Efnisvinnsla á Vestfjörðum 1990
Vegagerð rikisins óskar eftir tilboðum i vinnslu
á efni í 10 námum í ísafjarðar- og Barðastrandar-
sýslum nánar tiltekið á svæöinu frá Skutulsfirði
til Kollafjarðar. Áætlað magn 50.000 rúmmetrar.
Verkskil skulu vera þannig: 12.500 m3 fyrir 15.
júli 1990,13.000 m3 fyrir 1. nóvember 1990,10.500
m3 fyrir 10. júlí 1991 og 14.000 m3 fyrir 1. septem-
ber 1991.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rikisins
á ísafirði og i Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 21. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum
fyrir kl. 14.00 þann 28. maí 1990.
Vegamálastjóri
SAGA 27 AC CLASSIC
„Sumar á sjó með Saga Boat"
Stórglæsilegur skemmtibátur frá Noregi
til sýnis og sölu í smábátahöfn Snarfara.
Goddi hf.,
Smiðjuvegi 5
sími 641344, 985-31069
QodH
Mandeville
Hártoppar fyrir
karlmenn og konur
Verið velkomin að sjá nýjustu gerðina.
Hártopparnir eru sniðnir ofan í hárlausa blettinn svo ekki
þarf að raka burtu meira og minna af eigin hári eins og
stóru standardhártopparnir krefjast.
Notað er hár af Evrópumönnum i öllum toppunum frá
Mandeville of London.
Upplýsingar á staðnum
Sérfræðingur frá Mandevillg of London - John Clifton
Mánud.-miðvikud.
föstud.
Rakarastofan
Klapparstíg
Fimmtudaga
Klippótek
Keflavík
Þriðjudaga
Hársnyrting
Reynis
Strandgötu 6
Akureyri