Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1990, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1990.
43
Iþróttir unglinga
Þátttökugjöldin hækka mikið:
Erum við komnir út
fyrir velsæmismörkin?
Tommamótið dýrast, en gefur mest - FH með dýrasta innanhússmótið
Aö undanfórnu hefur færst mjög í
aukana að félög á höfuðborgarsvæð-
inu haldi knattspyrnumót fyrir yngri
flokka, innanhúss, og fylgir mikill
kostnaður oftast þátttöku.
Allir vita að þau störf sem til falla
við þessi mót eru unnin af félags-
mönnum í sjálíboðavinnu. Sömu
sögu er að segja af dómgæslu, sem
dómarar viðkomandi félaga og í sum-
um tilfellum leikmenn annast. Verð-
launagripir eru beinn kostnaður, en
þeir hljóta að fást með magnafslætti.
Það er ljóst að gróði félaga vegna
þessara móta getur orðið talsverður.
Enginn heldur því fram að félögin
eigi að tapa á þessu mótshaldi - held-
ur hitt að reynt að stilla kostnaði
meir í hóf. Það ætti að vera metnaður
félaganna.
FH dýrastir
Hér fara á eftir þær upphæðir sem
heyrst hafa um þátttökugjöld í minni
háttar innanhússmótum nýliðins
vetrar á Reykjavíkursvæðinu. í þessi
mót er litlu meiru kostað til nema
verðlaunagripum.
Gróttumótið í des. sl.: Þar kostaði
samtals kr. 11.000 fyrir A- og B-lið,
sem verður að teljast mjög dýrt.
Jólamót Kópavogs, sem ÍK og
Breiðablik halda til skiptis. Þar kost-
aði kr. 3.500 á hvert lið, sem er í dýr-
ari kantinum.
Legó-mót Aftureldingar: Samtals
kr. 11.000 fyrir A- og B-lið, sem er
með því dýrasta. Rétt er að komi
fram aö hvert lið lék aðeins 4 leiki í
mótinu.
ÍK-mótið á skírdag: Kr. 1.500 á hð.
Skylt var aö mæta með A- og B-lið,
sem þýðir kr. 3.000 á hvern flokk, sem
er frekar skaplegt verð.
FH-mótið á skírdag: 2„ 3. og 4. fl.
kr. 7.000 á lið. Fyrir 5., 6., 7. fl. og
stúlknaflokka kostaði kr. 4.000 á lið.
Þetta var dýrasta mót sl. vetrar.
Nýársmót Stjörnunnar: - Ekkert
þátttökugjald. Á þetta mót buðu
Stjörnumenn liðum sem ekki tóku
þátt í jólamóti Kópavogs. Spilað var
í 2., 3., 4., 5. og 6. fl. karla og 3. og 4.
fl. kvenna. Sex liö léku í hverjum
flokki og verðlaun fyrir 1. sæti. Mein-
ingin er að þetta verði árvisst mót.
Greinilegt er af framantöldu að
sum félaganna hafa farið vel út yfir
velsæmismörkin hvað þátttökugjöld
varðar.
Við skulum líta á verðlag á þeim
stærri mótum sem framundan eru í
sumar.
Stjarnan ódýrust
í Garðabæ verður Stjarnan með
hnokkamótið, aö venju, í 7. flokki,
A- og B-liða, í ágúst. Mótið stendur í
2 daga. Þátttökugjaldið verður kr.
1.300 fyrir einstaklinginn. Innifalið
er fullt fæði, gisting, sundlaugaferðir
og viðurkenningarskjöl fyrir alla
þátttakendur. Verðlaunapeningar
fyrir 1., 2. og 3. sæti og bikarar. Þetta
er ódýrasta sumarmótið.
Gull- og silfurmótið mun
dýrara en í fyrra
Breiðablik verður að vanda með
Guh- og silfurmótið í sumar. í fyrra
kostaði kr. 6.000 fyrir hvert lið, en
verður kr. 3.000 fyrir hvern einstakl-
ing í ár. Hér er því um verulega
hækkun að ræða milli ára. Keppt er
Umsjón:
Halldór Halldórsson
í 2., 3. og 4. flokki kvenna. Þátttöku-
gjaldið verður því samtals kr. 72.000
á A- og B-lið, skipuö 12 leikmönnum
hvort. Ef við reiknum síðan með
ferðakostnaði fyrir þá sem koma
langt að er ekki fráleitt að talan fari
vel yfir 100.000 krónur. Innifalið er
svefnpokapláss, morgunmatur og
kvöldverður í 3 daga og auk þess
hressing á keppnisstað. Sl. sumar
voru þátttakendur í Gull- og silfur-
mótinu um 700 talsins. Kannski var
dæmið verulega vanreiknað hjá
Breiðabliksmönnum í fyrra? Rétt er
að komi fram að Kópavogsbær studdi
vel við bakiö á Breiðabliki vegna
mótshaldsins sl. ár.
Esso-mót KA
Á Akureyri fer að venju fram svo-
kallað Esso-mót í 5. flokki, A, B og
C-lið drengja dagana 5.-7. júlí. KA
heldur þetta mót. Þátttökugjaldið á
hvern einstakling í ár er kr. 5.600.
Fyrir 3 lið yrði kostnaður því kr.
168.000. Innifaliö í þessari upphæð
er þó ferð þjálfara og liðsstjóra fyrir
liverja 10 leikmenn. Einnig er með í
dæminu morgunmatur og kvöld-
verður og frítt í sundlaugina. Þetta
er með því dýrasta og að öllum lík-
indum er verðið svipað og á mót
Þórara í Vestmannaeyjum.
Tommamótið langdýrast
með kr. 9.900
Tommamótið Týs í 6. flokki er lang-
dýrast, en taka verður samt inn í
dæmið hvað krakkarnir fá fyrir pen-
inginn og það er einnig lengsta mót-
ið, stendur í 5 daga. Tommamótið
hefur átt miklum vinsældum að
fagna undanfarin ár og hafa þátttak-
endur verið um 700 talsins hverju
sinni, fyrir utan fararstjóra og þjálf-
Faxaflóa- og
Reykjavíkumiótið
Úrslit verða kunn í öllum yngri
flokkum í Faxaflóamótinu þessa
helgi. Leikið verður um sæti á hinum
ýmsu stöðum. Hér koma þó úrslit
nokkurra leikja.
4. flokkur:
Stj arnan- Keflavík 3-0
Mörk Stjörnunnar: Hörður Gíslason,
Kristján Kristjánsson og mundsson. Kari Guð-
FH-Grótta 2 1
Breiðablik-Selfoss 14-0
Ketlavík-Haukar 3-1
3. flokkur:
A-riðill:
FH-Grótta 17-1
B-riðill:
Stjarnan-Ketlavík 1-1
FH Haukar 2-0
4. flokkur, B-riðill:
FH-Grótta...........................2-1
Til úrslita leika FH-Breiðablik.
5. flokkur:
B-riðill:
Keflavík-Stjarnan............a 3-0 b 2-3
FH (a) vann í B-riðU.
Grótta (b) sigraði í B-riðli.
Afturelding (b) sigraði í A-riðli.
6. flokkur:
Stjarnan (a) búin að vinna í A-riðli.
B-riðiU:
Keflavík-Stjarnan............a 2-3 b 1-0
Reykjavíkurmótið
3. flokkur:
Valur-ÍR...............a 0-4 b 13-0
ara. Sl. sumar kostaði kr. 8.300 fyrir
hvern einstakhng, en í ár mun gjald-
ið vera komið upp í kr. 9.900, sem
þýðir kr. 237.000 fyrir A- og B-lið, séu
þau skipuð 12 leikmönnum hvort.
Vissulega er hér um háa upphæð að
ræða og brýnt.að Týrarar reyni að
flnna leið til lækkunar.
Innifalið er fullt fæði alla dagana,
ferðir. fram og tilbaka með Herjólfi,
sundlaugarferðir, skoðun sædýra-
safnsins, auk siglinga um Eyjarnar
(skoðunarferð), kennsla í sprangi,
ásamt fleiru.
Þórarar einnig dýrir
Þórarar í Vestmannaeyjum vilja ekki
vera eftirbátar Týrara, því nýlega
sendu þeir frá sér bækling sem inni-
hélt dagskrá um peyjamót, fyrir 5.
flokk og pæjumót fyrir 2., 3. og 4.
flokk kvenna. Ráðgert er að þetta
mót fari fram um miðjan júní og
standi í 3 daga. Þórarar eru með þeim
dýrustu, því kostnaður á hvern þátt-
takanda er 4.500 krónur fyrir dreng,
en 3.500 fyrir stúlku. Tekið er og fram
að hvert félag skuli koma með A- og
B-liö. Innifalið er svefnpokapláss,
grillveisla, aðgangur að fiskasafni,
sundlaugarferð og lokahóf. Ef við
gefum okkur að hvert lið sé skipað
12 leikmönnum, eins og regl'ur segja
um, er þátttökukostnaðurinn á A- og
B-lið, í hverjum flokki, kr. 108.000
fyrir strákana, en fyrir stúlkurnar j
kr. 84.000. Eftir er að reikna inn í
dæmið ferðakostnaðinn, til og frá
Eyjum sem hækkar töluna talsvert.
Verðum að halda verði niðri
Ljóst er af framantöldu að í sumum
tilvikum erum við komnir út í hrein-
ar öfgar og á ég þá sérstaklega við
innanhússmótin á Reykjavikur-
svæðinu í vetur sem leið. í þeirri
verðstöðvun sem á að vera í gangi
hafa þátttökugjöldin í fyrrnefnd mót
hækkað geigvænlega frá því í fyrra.
-Hson
Hér kemur siðbúin mynd, þvi þetta eru Reykjavíkurmeistarar KR i 4. flokki 1990 i innanhússknattspyrnu. Strákarn-
ir eru þrælgóðir og þvi visir til alls á nýbyrjuðu leiktímabili. Liðið er þannig skipað: Ágúst Jóhannsson, Eiríkur
Gestsson, Nökkvi Gunnarsson, Andri Sigþórsson, Bjarni Jónsson, Bjarni Þorsteinsson, Óli B. Jónsson, Vilhjálmur
Vilhjálmsson og Óskar Sigurgeirsson. Þjálfari þeirra er Sigurður Helgason og liðsstjóri Gunnar Hansson.
DV-mynd Hson
Þjálfarar - verið jákvæðir
Nú fer í hönd enn eitt keppnis-
tímabilið í knattspyrnu og hugsa
áreiðanlega margir unglingaþjálf-
arar gott til glóðarinnar um árang-
ur og er ekkert nema gott eitt um
það að segja. Aftur á móti er ekki
alveg sama hvernig unglingaþjálf-
ari starfar. Sem betur fer eigum við
í dag stóran hóp góðra þjálfara sem
vinna sín verk vel.
Það eru margar leiðir til að ná
settu marki og því óhugsandi að
ætla sér þá goögá að allir þjálfarar
eigi að starfa eins. Það eru samt
ákveðin grundvallarlögmál sem
allir verða að vinna eftir. Til að
mynda er mikilvægt að algert jafn-
rétti ríki innan hópsins þótt geta
sé mismunandi og að þjálfarinn sé
ávallt jákvæður, sama hverju á
gengur.
En auðvitað tekst mönnum mis-
vel að framfylgja þessum grund-
vallaratriðum - þrátt fyrir góðan
ásetning.
„Lélegur" á að
vera bannorð
Hversu oft heyrir maður ekki þjálf-
ara segja við leikmann að hann
hafi verið „lélegur“ í leik eða á
æfingu. Þetta orðalag er ósköp
hvimleitt.
Framkoma þjálfarans skiptir afar
miklu máli upp á framhaldiö. Það
ÞJÁLFARINN
„Ég veit ekki betur en að ég
sé alltaf jákvæður ...“!
er skylda hans sem leiðbeinanda
aö reyna ávallt aö fá unglingana til
að hugsa „stórt“. Þess vegna eiga
orð eins og „lélegur" að vera algert
bannorð.
Það er enginn lélegur, lieldúr eru
drengirnir einfaldlega misgóðir.
Þetta atriði er afar mikilvægt við
uppbyggingu á sjálfstrausti hinna
ungu leikmanna - en án þess verð-
ur litlu áorkað. Höfum einnig hug-
fast að unglingar þurfa mislangan
aðlögunartíma.
Að vera jákvæður
Ef þjálfari setur sér það markmið
aö vera jákvæður strax í upphafi
verður það vanabindandi. Því fylg-
ir góður kostur þvi það er með ólík-
indum hvað börn geta bætt sig í
knattspyrnu ef þau fá jákvæða
hvatningu.
t Þjálfurum finnst sjálfum hólið
%ott og mæta því léttari og með
meira starfsþrek á næstu æfingu.
Sama gildir um unglinginn sem fær
mun meir út úr æfingunum fyrir
vikiö.
Unglingasíðan óskar unglinga-
þjálfurum um allt land velfamaðar
í starfi í sumar og vonandi tekst
þeim að laða fram skemmtilega
knattspymu. -Hson