Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1990, Blaðsíða 45
LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1990.
57
Andlát
Þórólfur Baldvin Hilmarsson, Ár-
nesi, lést af slysfórum 16. maí.
Magnea Aldís Davíðsdóttir, Ljár-
skógum 26, andaðist í Landakotsspít-
ala 17. maí.
Leikhús
Borgarleikhúsið
sýnir Sigrúnu Ástrós á litla sviðinu
fóstudags-, laugardags- og sunnudags-
kvöld kl. 20.
Leikhópurinn Eldhestur sýnir Eldhestur
á ís á litia sviðinu á laugardagskvöld kl.
20.
Nemendaleikhúsið
sýnir Glataða snillinga í Lindarbæ í
kvöld kl. 20.
Messur
Árbæjarprestakall: Guðsþjónusta á
bænadegi þjóðkirkjunnar kl. 11 árdegis.
Organleikari Jón Mýrdal. Ath. breyttan
messutima. Sr. Guðmundur Þorsteins-
son.
Ásprestakall: Guðsþjónusta kl. 14. Átt-
hagafélag Sléttuhrepps kemur í heim-
sókn. Knstinn Gíslason kennari prédik-
ar. Kór Átthagafélagsins syngur. Organ-
isti Ingimar Guðmundsson. Sóknarprest-
ur þjónar fyrir altari. Ami Bergur Sigur-
bjömsson.
Breiðholtskirkja: Vegna safnaðarferðar
til Víkur í Mýrdal verður engin guðs-
þjónusta í Breiðholtskirkju sunnudaginn
20. maí. Þriðjudag kl. 18.30, bænaguðs-
þjónusta. Altarisganga. Sr. Gísli Jónas-
son.
Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 14.
Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Kaffi
Seyðfirðingafélagsins eftir messu. Sr.
Pálmi Matthíasson.
Digranesprestakall: Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Sr. Hjalti
Guðmundsson prédikar. Sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson þjónar fyrir altari. Dómkór-
inn syngur. Organleikari Marteinn Hun-
ger Friðriksson. Prestarnir. Miðvikudag
23. maí kl. 17.30. Bænastund. Prestamir.
Landakotsspítah: Messa kl. 13. Organ-
leikari Birgir Ás Guðmundsson. Sr. Hjalti
Guðmundsson.
Elliheimilið Grund: Messa kl. 14. Sr.
Fjaiar Sigutjónsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Félag fyrrverandi sóknar-
presta.
Fella- og Hólakirkja:
Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Organisti Guðný M. Magnús-
dóttir. Aðalsafnaðarfundur Fellasóknar
verður haldinn að lokinni guðsþjónustu.
Sóknarprestar.
Fríkirkjan í Reykjavik: Guðsþjónusta
kl. 14.00. Morgunandakt miðvikudag 23.
mai kl. 7.30. Orgelleikari Pavel Smid.
Cecil Haraldsson.
Garðakirkja: Guðsþjónusta kl. 14. Sigl-
ftrðingafélagið í Reykjavík og nágrenni
kemur í heimsókn. Sr. Vigfús Þór Árna-
son, prestur í Grafarvogssókn, prédikar.
Kirkjukór Grafarvogssóknar syngur.
Organisti Sigríður Jónsdóttir. Að lokinni
guðsþjónustu verða kaffiveitingar á veg-
um Sigffirðingafélagsins í safnaðarheim-
ilinu í Garðabæ, Kirkjuhvoli. Sr. Gunn-
laugur Garðarsson. .
Grafarvogsprestakall: Guðsþjónusta
sunnudagsins verður í Garðakirkju,
Garðabæ, kl. 14. Kirkjukórinn syngur
undir stjórn organistans Sigríðar Jóns-
dóttur. Fluttir verða hátíðasöngvar sr.
Bjama Þorsteinssonar. Kaffi á vegum
Siglfirðingafélagsins verður að Kirkju-
hvoli að lokinni guðsþjónustu. Sr. Vigfús
Þór Ámason.
Grensáskirkja: Messa kl. 11, altaris-
ganga (ath. breyttan messutima). Vorferð
bamastarfsins að Sólheimum, Gríms-
nesi. Lagt af stað kl. 9.30 frá kirkjunni.
Þriðjudagur kl. 14. Kirkjukaffi í Grens-
ási. Laugardagur kl. 10. Biblíulestur og
bænastund. Prestamir.
Hallgrímskirkjá: Messa kl. 11. Sr. Ragn-
ar Fjalar Lámsson. Aðalsafnaðarfundur
mánudag kl. 20.30 í safnaðarheimilinu.
Þriöjudagur: Fyrirbænaguðsþjónusta kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Bragi
Skúlason.
Háteigskirkja: Messa kl. 11. Sr. Tómas
Sveinsson. Áðalsafnaðarfundur Háteigs-
sóknar veröur í kirkjunni sunnudag kl.
20.30. Kvöldbænir og fyrirbænir em í
kirkjunni á miðvikudögum kl. 18. Prest-
arnir.
Hjallaprestakall: Messusalur Hjalla-
sóknar, Digranesskóla. Sameiginleg
guðsþjónusta Hjallasóknar og KFUM og
KFUK kl. 11. Þórarinn Björnsson, cand.
theol., prédikar, sóknarprestur þjónar
fyrir altari, altarisganga. Kór Hjallasókn-
ar syngur. Organisti David Knowles. Sr.
Kristján Einar Þorvarðarson.
Kársnesprestakall: Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Árni Pálsson.
Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands
biskups. Guðsþjónusta kl. 11 (Ath. breytt-
an messutíma). Hestamenn koma í heim-
sókn og ríða í hópreið til kirkju. Lista-
menn úr þeirra röðum annast lestra og
söng. Gunnar Eyjólfsson leikari og skáta-
höfðingi prédikar. Fermdur verður Þor-
geir Karlsson, Goðheimum 15. Altaris-
ganga. Sr. Þórhallur Heimisson.
Laugarneskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Bænadagur þjóðkirkjunnar. Heitt á
könnunni eftir guðsþjónustuna. Kyrrðar-
stund í hádeginu á funmtudögum, orgel-
leikur, fyrirbænir, altarisganga. Sóknar-
pestur.
Neskirkja: Guösþjónusta kl. 11. Sr.
Frank M. Halldórsson. Organisti Reynir
Jónasson. Miðvikudagur 23. maí fyrir-
bænamessa kl. 18.20. Sr. Frank M. Hall-
dórsson.
Seljakirkja: Guðsþjónusta kl. 14. í guðs-
þjónustunni verður flutt messa í G-dúr
eftir Franz Schubert fyrir kór og hljóm-
sveit. Kór undir stjórn Margrétar Pálma-
dóttur syngur ásamt félögum úr kirkju-
kórnum. Einsöngvarar Ester Helga Guð-
mundsdóttir og Þorsteinn Kristinsson.
Organisti Kjartan Siguijónsson. Að lok-
irtni guðsþjónustu er kökubasar og flóa-
markaður kvenfélagsins. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja: Messa M. 11. Org-
anisti Sighvatur Jónasson. Prestur sr.
Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Afmælisgangan Reykjavík Hvítárnes
3. ferð.
Leiðin yfir Mosfellsheiði.
a. kl. 10.30 Gengið frá Krókatjöm (ofan
Miðdals) um gamla þjóðveginn (til Þing-
valla) aö Vilborgarkeldu. Um 19 km leiö.
b. kl. 13 Hópurinn sameinast morgun-
göngunni. Gengið af nýja Þingvallavegin-
um að Sæluhústótt, síðan um Þrívörðu-
hrygg að Vilborgarkeldu. Aðeins 7-8 km
leið. Verð 800 kr., frítt f. börn m. fullorðn-
um. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Afmæhsgangan er í tilefni
60 ára afmæhs Hvítámesskála, elsta
sæluhúss Ferðafélagsins og verður geng-
ið þaðan í 12 áfóngum. Þátttakendur fram
að þessu era 227. Ferðagetraun í hverri
ferð og happdrætti. Spuming Ferðaget-
raunar 3. ferðar er: Hvað heitir hæsti
hluti MosfeUsheiðar? (svarseðiU í ferð-
inni). Kvöldganga á þriðjudagskvöldiö kl.
20. Nánar auglýst síðar. Göngudagur F.í.
verður sunnudaginn 27. mai kl. 13 í Heið-
mörk.
Útivist um helgina
Krísuvíkurberg
Sunnudagur 20. maí kl. 13:
Gengið upp frá Eldborgunum, yfir að
Skriöunni og til baka að rústum gamla
Krísuvíkurbæjarins undir Bæjarfelli. í
Krísuvikurbergi er mikið fuglalíf og lit-
afegurð í náttúranni. ATH: vegna bleytu
og ófærðar var óhjákvæmilegt að fresta
göngu á Skeggja og göngu í Marardal og
Sporhelludal sem auglýstar era í ferðaá-
ætlun Útivistar fyrir 1990. Ferðir þessar
verða settar inn síðar á árinu ef færi
gefst.
Ólafsdalur Gilsfjörður á Skerplu
24.-27. maí.
Gist verður í sal Menntaskólans við Sund
í Ólafsdal. Gengið verður að Kleifum og
Gullfoss skoðaður. Þá verður farið í
Bjarkarlund og gengið á hin sérkennilegu
Vaðalfjöll. Upplýsingar og miðar á skrif-
stofu Útivistar, Grófinni 1, simi/símsvari:
14606.
Námskeið
Gronn allt lífið
á Hvolsvelli
Á vegum Gronn eru haldin helgarnám-
skeið fyrir ofætur (bæði karla og konur)
sem vilja hætta ofáti en það getur falist
í því að borða of mikið, of lítið eða bara
of óreglulega. Þessi námskeið eru byggð
á reynslu tugþúsunda karla og kvenna
um allan heim sem hafa nýtt sér þessa
leið til varanlegs heilbrigðis og hamingju.
Kynningarfyrirlestur verður fimmtu-
dagskvöldiö 24. maí kl. 21 í þjónustumið-
stöðinni Hlíðarenda. Ræðumaður Axel
Guðmundsson. Aðgangur ókeypis og öll-
um heimill. Helgarnámskeið verður
haldið helgina 26.-17. maí á sama staö.
Laugard. og sunnud. kl. 9-17 báða dag-
ana. Leiðbeinandi Axel Guðmundsson.
Verð kr. 6.000. Skráning á námskeiðið fer
fram á fyrirlestrinum og nauðsynlegt er
að væntanlegir þátttakendur námskeiðs-
ins mæti á fyrirlesturinn til að fá fulla
nýtingu út úr námskeiöinu.
Fyrirlestrar
Hlustað á gervitungl
er fyrirlestur sem haldinn verður á ensku
af Geoff Perry, MBE, í húsi verkfræði-
deildar Háskóla íslands, VR-II, við Hjarð-
arhaga, stofu 157, í kvöld, 18. maí, kl. 20.
Geof Perry var skólastjóri og eðlisfræði-
kennari í Kettering Boy School á Eng-
landi. í fjölda ára myndaði hann hóp
nemenda sem hlustaði á gervitungl og
náði undraverðum árangri með einfóld-
um aðferðum við að ákvarða brautir
gervitungla, hvaðan þeim var skotið og
margt fl. Þegar opinberir aðilar vissu
ekkert hvað Rússamir vora að aðhafast
gátu Geoff Perry og nemendur hans sagt
fjölmiðlum allt um málið. Allir era vel-
komnir á fyrirlesturinn.
Tónleikar
Skólaslit og loka-
tónleikar Söngskólans
Sautjánda starfsári Söngskólans í
Reykjavík er nú að ljúka og hafa um 160
nemendur stundað nám við skólann í
vetur, 120 fullt nám í dagskóla og um 40
á kvöldnámskeiöum. 95 nemendur luku
stigprófum í söng og/eða pianóleik. Inn-
ritun fyrir næsta vetur stendur nú yfir
og verða inntökupróf miðvikudaginn 23.
maí. 30 kennarar, þ.e. sönkennarar,
píanóleikarar og kjarnagreinakennarar,
era starfandi við skólann, þar af 10 í fullu
starfi. Yfirkennari er Þuríður Pálsdóttir
og skólastjóri Garðar Cortes. Skólinn út-
skrifar að þessu sinni einn söngkennara,
Hannes Birgi Hannesson, og mun hann,
ásamt Svövu K. Ingólfsdóttur, sem lauk
prófi úr almennri deild, syngja á tónleik-
unum í tónleikasal skólans 19. maí kl. 16.
Sjö nemendur luku prófi úr almennri
deild. Skólaslit og almennir lokatónleikar
Söngskólans verða í íslensku óperunni
sunnudaginn 20. maí. Hefjast skólaslitin
kl. 15 og tónleikarnir kl. 16. Þar korna
fram 14 af nemendum skólans ásamt
píanóleikurum. Að tónleikunum loknum
er öllum tónleikagestum boðið til kaffi-
veitinga í Söngskólanum í Reykjavík að
Hverfisgötu 45.
Karlakór Reykjavíkur á
ferð um Vesturland
Karlakór Reykjavíkur heldur tónleika í
hinni nýju og glæsilegu kirkju í Stykkis-
hólmi laugardaginn 19. maí nk. kl. 14 og
í Bíóhöllinni Akranesi kl. 20.30 um kvöld-
ið. Stjómandi er Páll Pampichler Páls-
son. Undirleik á píanó annast Catherine
Williams og Oddur Björnsson á básúnu.
Einsöngvarar verða þau Inga J. Backman
sópran og Friðrik S. Kristinsson tenór.
Efnisskráin verður fjölþætt, íslensk og
erlend lög, m.a. eftir Pál Pampichler Páls-
son, Karl Ó. Runólfsson, Edvard Grieg
og syrpa eftir Stephan C. Foster.
Tilkyimingar
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
verður með spilakvöld þriðjudaginn 22.
maí kl. 20.30 í Félagsheimilinu, Baldurs-
götu 9.
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, á morg-
un, sunnudag, kl. 14, frjálst spil og tafl,
kl. 20 dansað.
Húnvetningafélagið
Félagsvist á laugardag, 19. maí, kl. 14 í,
Húnabúð, Skeifunni 17. Þetta er síðasta
félagsvist á laugardegi. Næst verður spil-
að á miðvikudag 23. maí kl. 20.30. Para-
keppni. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara
Göngu-Hrólfar hittast á morgun, laugar-
dag, kl. 11 að Nóatúni 17.
Tveir styrkir á leiklistar-
hátíðina í Avignon
Franska sendiráðið býður tveimur
frönskumælandi íslendingum á aldrin-
um 18-25 ára styrk til að sækja leiklistar-
hátíðina i Avignon dagana 10.-19. júlí
1990 og 21.-30. júlí 1990. Leiklistarhátíöin
í Avignon, sem er þekktasta leiklistar-
hátíö í Frakklandi, býður ungum leik-
listarannendum frá hinum ýmsu löndum
að dvelja í 10 daga í Avignon og kynnast
starfi leikara, leikstjóra og hinna ýmsu
leikhópa. Uppihald er þátttakendum að
kostnaðarlausu en ferðakostnaö greiða
þeir sjálfir. Nánari upplýsingar fást í
Menningardeild Franska sendiráðsins,
Túngötu 22, Reykjavík.
Sýning á sænskum ballett
Sunnudaginn 20. maí kl. 14 verður sýning
af myndbandi í Norræna húsinu á sænsk-
um ballett sem saminn var fyrir sjón-
varp. Efniviðurinn er sóttur í skáldsögu
Vilhelms Mobergs: Brundamas kálla.
Tónlistina samdi sænska tónskáldiö
Lars-Áke Franke-Blom og mun hann
kynna verkið.
Flóamarkaður
Uppeldis- og meðfefðarheimilið Sólheim-
um 7, Reykjavík, er heimili fyrir unglinga
á aldrinum 12-16 ára sem þurfa á aðstoð
aö halda. Heimilið, sem er ein deild innan
Unglingaheimilis ríkisins, tók til starfa
1. september 1985 og geta 7 unglingar
búið þar á hverjum tíma. Á heimilinu er
lögð áhersla á tómstundastarf og skipa
ferðalög stóran sess í því starfi. í sumar
er fyrirhugað ferðalag hér innanlands og
er nú unnið að fjáröflun til þeirrar ferð-
ar. Einn þáttur í fjáröfluninni er hinn
árlegi flóamarkaður sem verður haldinn
á morgun, sunnudag, þann 20. maí kl. 15
í safnaðarheimili Langholtskirkju. Þar
verða til sölu mjög ódýr fót, búsáhöld og
skrautmunir. Uppboð verður á húsgögn-
um og góðum munum kl. 15.30. Einnig
verður tombóla, grænmetis- og blóma-
markaður.
Kvenfélag Seljasóknar
Kökubasar og flóamarkaður eftir messu
á sunnudag í Kirkjumiöstöðinni. Tekið á
móti munum í dag, laugardag, kl. 10-19.
Hafnarfjarðarkirkja
Sunnudagaskóli kl. 11. Munið skólabíl-
inn. Messa kl. 14, altarisganga. 50 og 60
ára fermingarböm heimsækja kirkjuna.
Organisti Helgi Bragason.
Gunnþór Ingason.
Laugardagskaffi Kvennalist-
ans
verður á morgun, laugardag, kl. 11-13 að
Laugavegi 17. Opið hús með frambjóð-
endum listans og rætt verður um sér-
stöðu Kvennalistans í alþjóðlegu og sögu-
legu samhengi. Kvennasamkoma verður
í Hlaðvarpanum á vegum Kvennalistans
á laugardag kl. 14-16. Allar konur vel-
komnar.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú i
Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað
írá Digranesvegi 12 kl. 10. Markmið
göngunnar er: Samvera, súrefni og hreyf-
ing. Gerið góða helgi betri í bæjarröltinu.
Nýlagað molakaffi og skemmtilegur fé-
lagsskapur.
Fundir
Þjónusta bókasafna við les-
fatlaða
Nk. mánudag og þriðjudag, 21. og 22.
maí, heldur Blindrabókasafn íslands nor-
rænan fund um þjónustu bókasafna við
lesfatlaöa. Fundirnir era haldnir á veg-
um Norrænu menningarmálanefndar-
innar og hann sitja samstarfsmenn bóka-
safna, blindrafélaga og fulltrúar mennta-
málaráðuneyta á Norðurlöndum. Fund-
urinn hér á Islandi er sá fimmti í röðinni
sem haldinn er um þetta málefni. Til-
gangurinn með norrænum fundum um
þjónustu bókasafna við lesfatlaða er að
vinna sameiginlega að tæknilegum
lausnum við framleiðslu lesefnis á
blindraletri, hljóðsnældum, myndbönd-
um og með stækkuðu letri, að finna leið-
ir til að auðvelda lesfótluöum aðgang að
bókmenntúm og að tiltölulega fámennir
einangraðir hópar sérfræðinga hver í
sínu landi geti skipts á hugmyndum og
skoðunum um leiðir til að bæta hag les-
fatlaðra. Fundirnir eru haldnir að
Hamrahlíð 17, 5. hæð, og standa frá kl.
9-16 báða dagana.
Aðalfundur Fornbilaklúbbs
íslands
1990 verður haldinn sunnudaginn 20. maí
nk. að Holiday Inn og hefst hann kl. 14.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2.
Önnur mál. Félagar eru hvattir til að
koma til fundarins akandi á fombílum
sínum, sér og öðram til ánægju.
Athugasemd frá
borgawerkfræðingi
Guömundur Oddsson forseti bæj-
arstjórnar Kópavogs skrifaði grein-
arkorn í DV þ. 9. maí. Fyrirsögnin
var; „Mesti velferðarbær á landinu“.
Ég vil gera athugasemd við setn-
ingu sem hljóðar svo; „Viö erum
búnir að hreinsa vogana - þó svo aö
þangað renni enn skolp frá Reykja-
vík og Garöabæ.“
Við þessi orð hef ég eftirfarandi að
athuga; Kópavogsbær er ekki búinn
að hreinsa vogana, hvorki Fossvog,
Kópavog né Arnarnesvog. Útrásir frá
Kópavogi liggja út í Fossvog vestan
til á norðanverðu Kársnesinu.
Reykjavíkurborg er hinsvegar löngu
búin að hreinsa Fossvoginn með gerð
Fossvogsræsis á árunum 1963-1965.
Reykjavíkurborg vinnur nú að því
að koma öllu skólpi úr Skeijafirðin-
um. Framkvæmdir viö skolplagnir
við Ægissíðu sem nú standa yfir eru
liður í þeirri lausn. Viðræður standa
nú yfir um tengingu allra holræsa
Kópavogs og Garðabæjar við þetta
mannvirki. Hlutur Kópavogsbæjar í
því yrði um 250 milljónir króna og
að því loknu veröa vogarnir hreinir.
Mér er alveg sama hvaða málflutn-
ing menn hafa í öðrum bæjarfélög-
um, svo lengi sem menn halda sig á
heimavelli. Hér er hins vegar hallað
réttu máli gagnvart Reykjavíkurborg
og er óhjákvæmilegt að leiðrétta
slíkt.
Þórður Þ. Þorbjarnarson, borgar-
verkfr. í Reykjavík
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og sludning við fráfall og útför
Bergþóru Friðþjófsdóttur
Ásgötu 13, Raufarhöfn
sem lést 11. marss.l. á Brompton sjúkrahúsinu i
London. Sérstakar þakkir til þeirra íslendinga sem
dvöldu á sama sjúkrahúsi fyrir ómetanlega aðstoö
Sara Jenkens Friðþjófur Þorsteinsson
og systkini