Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Page 10
10
LAUGARDAGUR 18, ÁGÚST 1990.
Ágúst Hallvarðsson eróbikkkennari heldur utan til Sovétrikjanna á næstu dögum í tengslum við opnun nýrrar
World Class-líkamsræktarstöðvar þar. Hann á að kenna Rússunum að tileinka sér vestræna heiísuræktarmenn-
ingu, eróbikk. DV-mynd JAK
Kennir
eróbikk
í Sovét
- tekur þátt í að setja heimsmet
„Mér býðst að fara þarna út til að
kenna eróbikk, bæði væntanlegum
kennurum og nemendum,“ sagði
Ágúst Hallvarðsson í spjalli við DV.
Ágúst heldur síðar í mánuðinum
til Sovétríkjanna, nánar tiltekið til
Leníngrad, þar sem World Class lík-
amsræktarfyrirtækið mun opna enn
eina likamsræktarstöðina. En World
Class-fyrirtækið er sænskt að upp-
runa og eru starfræktar líkamsrækt-
arstöðvar undir því nafni víðs vegar
um heiminn.
Ágúst hefur síðast hðin fimm ár
kennt eróbikk í World Class-stúdíó-
inu í Reykjavík. Honum hefur að
undanfórnu gefist kostur á að ferðast
um heiminn á vegum World Class-
fyrirtækisins til að kenna eróbikk og
halda leiðbeinendanámskeið og hef-
ur meðal annars farið til Möltu, Nor-
egs, Svíþjóðar og Danmerkur í þeim
tilgangi.
- En hvernig líst honum á að halda
til Sovétríkjanna til að kenna eró-
bikk?
„Þetta er mjög spennandi fyrir mig.
Þarna eru allar aðstæður svo ólíkar
því sem maður hefur átt að venjast
og kynnst hingað til. Ég verð þarna
í þetta skiptið í einn mánuð og mér
skilst að það sé nógu langur tími í
einu. Annars geri ég mér ekki alveg
grein fyrir því hvað bíður mín. Inn-
fæddir eru ekki komnir langt í eró-
bikki eöa annarri heilsurækt og eru
heilsuræktarstöðvarnar víst mjög
frumstæðar, Þar er notast við spýtur
og alls kyns dót í stað lóðanna. Þessi
líkamsræktarstöð verður því algjör
bylting og reyndar meiriháttar við-
burður þegar hún verður opnuð. í
tengslum við opnunina er ráðgert að
setja heimsmet í eróbikk. Það stend-
ur til að fá 20.000 manns út á ein-
hvern leikvang í eróbikk. Við leið-
beinendurnir verðum á háum stalli
fyrir framan og leiðum leikinn. Ef
þetta tekst verður um fjölmennasta
hóperóbikk í veröldinni að ræða.“
Verkefni Ágústs verður eins og
áður segir að kenna væntanlegum
leiðbeinendum og nemum og felst
starfið ekki síst í því að leita uppi
góða kennara. Auglýst verður eftir
fólki og svo þarf hann að vera vel
vakandi fyrir efnilegu fólki sem kem-
ur í tímana og getur hugsanlega
kennt eróbikk.
Ágúst tók til við kennslu fljótlega
eftir að hann byrjaði sjálfur í eró-
bikk. Hann kennir nú um 6 tíma á
viku og segir það alveg nóg samhhða
annarri vinnu.
„Eróbikkið gefur mér svakalega
mikið. Brennslan er gífurleg og verð
ég að passa að borða mjög kolvetna-
ríka fæðu. Mér finnst mjög gaman
aö dansa og reyni ég að blanda dansi
í eróbikk sem ég kenni.“
Svo er bara að sjá hvernig fólki í
Sovétríkjunum tekst viö vestræna
heilsurækt, eróbikk.
-RóG.
Vorum að opna nýja myndbandaleigu að
Réttarho I ts veg i 1 - sími 84388
Þar bjóðum við upp á allar nýjustu myndirnar og gott úrval af eldra efni
Opnunartilboð:
Þú greiðir fyrir eina mynd en færð tvær.
Tilboðið gildir aðeins til 1. sept.
Verið velkomin - Opið frá 14-23.30.
Við viljum ennfremur minna á hinar leigurnar okkar:
Háaleitisbraut Lóuhólar 2-6 Eddufell 4 Rangársel 8 Hringbraut
58-60 (Hólagarði) sími sími 119
sími 33460 Lottó sími 74480 Lottó 71366 71191 sími 17620
Traustar leigur í takt við tímann
MYNDVER H/F