Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1990. Ofát og aukaJdló Hannbreytti aðferð- inni og þá féll Noregur Kaloríutal IV. hluti Heiti matvæla 100grömm Hitaeiningar kcal.: Kólesterol mg: Kolvetni g: Franskbrauð 233 2,0 49,1 Heilhveitibrauð 220 1,0 48,0 Heilhveitibr., gróft 216 0 41,8 Trefjabrauð 222 44,4 Rúgbrauö 181 1,0 47,0 Rúgbrauð, seytt 234 0 54,2 Normalbrauð 259 0 51,0 Hrökkbrauð 388 0 36,9 Tvíbökur 252 0 52,0 Laufabrauð 342 5,3 49,0 Flatkökur 215 1,0 44,0 Saltstengur 384 0 75,3 Talið er samiö upp úr næringarefnatöflu eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson í bókinni Næring og vinnsla sem Vaka/Helgafell gaf út. Oft er dramb falli næst. Það mátti hann vinur okkar reyna sem við sögðum frá hér í dálkunum á sínum tíma. Hann breytti um mataræði með góðum árangri og náði af sér átta kílóum á einum mánuði án áreynslu og leið vel. En eftir að við sögðum frá árangri hans hér í DV taldi hann sig vera orðinn einhver alþjóðleg fyrir- mynd í lifnaðarháttum og tók til sinna ráða. Hann byrjaði að breyta aðferðinni. Og þá féll Noregur. Breytti aðferðinni Hann létti sig um 9,3 kg á 46 dögum sem erá 210 grömm að meðaltali á dag og verður að teljast góður árang- ur. Þá fékk okkar maður sér sum- arfrí, fór í tíu daga ferð um landið og þyngdist um 300 grömm sem er þó nokkuð vel á málum haldið þrátt fyrir allt. Ferðalög eru mikil röskun á daglegum högum manna og nánast útilokað að halda sömu reglu og heima fyrir. En eftir þessa ferð þóttist okkar maður fær í flestan sjó og fór að breyta aðferðinni, taldi sig vera að laga hana að reynslu sinni en var í raun að laga aðferðina að sjúk- dómnum hömlulaust ofát. Þar með lá leiðin niður hjarnið. Við breytum nefnilega ekki því sem hefur reynst okkur vel og gefið góöan árangur. Alls ekki. Fjölgaði máltíðum En okkar maður fór að fjölga mál- tíðum úr þrem í íjórar á dag og breytti þar með reglunni 301 í 401. Hann sagðist vaka lengur á daginn yfir sumarið og þess vegna þyrfti hann að borða oftar. Svona teygði hann lopann og því fór sem fór. í dag vegur karlinn 84,1 kíló og hefur því þyngst um 3,3 kg síðan best lét. Þannig hefur hann aðeins lést um sex kíló aUs á þeim 73 dögum sem eru liðnir síðan hann breytti um mataræði og byijaði að léttast þann 29. maí sl. En það eru aðeins 80 grömm á dag og er það slakur árang- ur miðað við góða byrjun og 260 grömm á dag fyrstu 30 dagana. Sam- kvæmt eðlilegu framhaldi hefði hann átt aö hafa náð réttri líkamsþyngd í dag og hafa þá lagt að velli 15,6 kíló eða rúm 200 grömm á dag. AðbætaBiblíuna? Enda gefur reynsla eins manns í 46 daga tæplega ástæðu til að breyta aðferð sem þróast hefur í áratugi með óbærilegum sársauka hjá hundruðum þúsunda af þjáðu fólki. Nú má segja að öll manna verk séu ófullkomin en margt er þó svo vel gert að breytingar eru ekki alltaf til bóta. Eða dytti einhverjum guö- hræddum manni í hug að leiðrétta Biblíuna með rauðum penna? List- elskum manni að laga hendurnar á Venus frá Míló meoö múrskeið eða brosið á Mónu Lísu með kúlupenna? Við skulum láta okkur þessa reynslu vinarins að kenningu verða og látum hvert hliðarspor verða okk- ar reynsluspor en ekki lokaspor. Reynslan er gulls ígildi ef við berum gæfu til að læra af henni og hver hrösun getur þvi orðið okkur til góðs á götunni fram eftir veg. Mistökin kenna okkur að þyngja róðurinn og vítin eru til þess að varast þau. Erum við að taka börnunum okkar gröf fyrir aldur fram? Ofátið er sérstæður sjúkdómur og banvænn. Hann ber engin opin sár með sér og fyrstu einkenni hans eru hvorki hósti né stuna, rauðir ílekkir eða bólgnir kirtlar. Þess vegna gerir hann engin boð á undan sér. Hömlu- laust ofát hefur verið skilgreint á margan hátt: meðfæddur erfðagalli eða geðbilun eða áskapaður losti, svo eitthvað sé nefnt. Okkur má í raun- inni einu gilda hver niðurstaðan er á því málþingi á meðan við eigum fullt í fangi með ofátið. Þó er rétt að staldra við erfðagall- ann. Við getum ekki komiö í veg fyr- ir að börnin taki ofátið í arf frekar en aðra ættgenga sjúkdóma. Þá get- um við aðeins búið þau eins vel og kostur er undir að takast á við vand- ann. Við getum því miður ekki kom- ið í veg fyrir að mataræði okkar gangi í erfðir. Því miður. En þá er það áskapaður losti. Viö getum hins vegar foröaö börnunum frá því að taka matarvenjumar okk- ar í arf. Hvað ungur nemur, gamall temur. Við skulum því skoða strax í dag hvaða ósiði við berum sjálf á borð fyrir börnin í hverri máltíð. Erum við að búa til litlar ofætur við matarborðið? Erum við að leggja á börnin okkar gröf fyrir aldur fram? Lengi býr að fyrstu gerð. Börnin okkar líta upp til okkar og vilja oft líkjast okkur í uppvextinum. Það er hluti af ástinni. Þeirra vegna verðum við að ganga á undan með góðu for- dæmi. Þau eiga þaö skiliö. Minnkandi hreyfing átölvuöld Það standa mörg spjót á krökkun- um okkar í dag. Hin öra framþróun á tölvuöldinni bindur nú æ fleiri krakka framan við sjónvörp og myndbönd og tölvur og þess háttar búnað á heimilum okkar. Þar með minnkar stöðugt öll eðlileg útivist og hreyfmg. Þessum vanda verðum við foreldrar að mæta á réttan hátt og í tæka tíð. í fyrsta lagi með því að fræða krakkana betur um heObrigt líferni og hætturnar sem leynast við hvert fótmál á lífsleiðinni. í annan stað með því að hvetja börnin til að hreyfa sig meira, taka aukinn þátt í útivist og íþróttum og leikjum og annarri líkamsrækt. Við göngum að sjálfsögðu á undan með góðu fordæmi. í þriðja lagi með því að velja hollan og kaloríusnauðan mat handa krökkunum og hjálpa þeim til að temja sér strax reglulegt mataræði og matarvenjur í samræmi við boð- skapinn í þessari bók. Okkur kann aö þykja í lagi að fórna eigin heilsu og líkama á altari ofáts- ins en við höfum engan rétt til að þyngja og stytta æviskeið barnanna okkar með röngu mataræði og röng- um matarvenjum. Þess vegna sýnum viö strax gott fordæmi og beinum krökkunum inn á rétta braut.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.