Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Page 14
14 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1990. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SIMI (91J27022- FAX: (91)27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð í lausasölu virka daga 95 kr. - Hélgarblað 115 kr. Munaður hins fátæka Sigurfór vestrænna mannréttinda í Austur-Evrópu er þegar byrjuð að hafa áhrif í þriðja heiminum. Harð- stjórar hans sæta nú vaxandi þrýstingi heima fyrir og geta ekki lengur hlaupið í skjól heimsveldanna til að komast upp með ófyrirgefanleg brot á mannréttindum. Til skamms tíma kepptu heimsveldin tvö og her- gagnaframleiðsluríki Evrópu um hylli Saddams Huss- eins í Bagdad. Valdamenn lokuðu augunum fyrir grimmdarlegum stjórnarháttum hans heima fyrir, notk- un efnavopna gegn Kúrdum og innrás hans í Persíu. Nú þarf enginn að hafa áhyggjur af, að harðstjórar heimsins hlaupi í faðm Sovétríkjanna. Þau vilja ekki lengur hafa með útlenda dólga að gera. Þau eru í þann veginn að þvo hendur sínar af Castro á Kúbu. Þau eru að losa sig úr erlendum hernaðarskuldbindingum. Endurnýjuð aðild Austur-Evrópu að hugmyndaheimi Vesturlanda hefur meira að segja gefið hugsjónum lýð- ræðis og mannréttinda aukið innihald. Vaclav Havel, hinn nýi forseti Tékkóslóvakíu, er viðurkenndur í Vest- ur-Evrópu sem bezti talsmaður hugsjóna Vesturlanda. Lýðræði og mannréttindi þýða frjálsar kosningar, frjálsa myndun félaga, frjálsa útgáfu fjölmiðla, frjáls skrif. Lýðræði og mannréttindi þýða, að vestrænar hug- myndir endurspeglast í lagabálkum, sem eru æðri geð- þótta valdhafa. Nema kannski í ráðherraveldi íslands. í þriðja heiminum þýða lýðræði og mannréttindi, að fólk þarf ekki að óttast ofsóknir lögreglu og hers. Það getur hfað lífi sínu í friði og tekið þátt í þjóðmálaumræð- unni, ef því þóknast. Þetta er undirstaða þess, að þriðji heimurinn geti orðið vel stæður og vestrænn. Smám saman er að renna upp fyrir þriðja heims fólki, að leiðin til farsældar er um hugsjónir Vestur- landa. Hitt var bara risastór lygi, að ekki væri rúm fyr- ir lýðræði í þriðja heiminum, að hver þjóð yrði að sam- eina krafta sína undir öruggri stjórn harðstjórans. Eins manns kerfið er hrunið um allan heim. Daniel Arap Moi í Kenýa fær nú að heyra á Vesturlöndum, að hann er einfaldlega glæpamaður. Menn eru hættir að tala af virðingu um Julius Nyerere, sem eyðilagði efna- hag Tanzaníu með hjálp norrænna þróunarsérfræðinga. Sannleikurinn er beizkur harðstjórum hinna ný- frjálsu ríkja. Augljóst er, að alþýða manna hefur aldrei átt eins góða daga og hún átti í skjóli lagahefðar og annarra formsatriða lýðræðis á tímum nýlenduveld- anna. Eftir sjálfstæði hefur allt sigið á ógæfuhliðina. Augljóst er orðið, að eins flokks kerfi og ofanstýrt atvinnulíf gekk ekki 1 Sovétríkjunum og leppríkjum þeirra. Enn frekar er orðið ljóst, að eins flokks kerfi og ofanstýrt atvinnulíf hefur sett mestalla Afríku á höfuð- ið og valdið íbúum álfunnar óbærilegum þjáningum. Nú dugar harðstjórum heimsins ekki að nota komma- grýluna og kanagrýluna. Doe í Líberíu og Mobutu í Zaire eru Bandaríkjunum einskis virði. Castro á Kúbu og Najib 1 Afganistan eru Sovétríkjunum einskis virði. Þróunaraðstoð verður ekki framvegis sólundað í sama mæh og áður. Þeir, sem aðstoð veita, munu í aukn- um mæh gera kröfur um viðunandi stjórnarhætti í þró- unarlöndum. Með viðunandi stjórnarháttum er ekki átt við neina þriðju leið, heldur vestrænt lýðræði. Nú hafa Vesturlönd byr til að fylgja fast eftir þeirri staðreynd, að lýðræði og mannréttindi eru ekki munað- ur ríkra þjóða, heldur forsenda framfara fátækra þjóða. Jónas Kristjánsson Bandarikjaforseti á fundi með yfirherráðinu i Pentagon, byggingu landvarnaráðuneytisins. F.v.: Schwarz- kopf, yfirmaður herafla i löndum fyrir Miðjarðarhafsbotni, Cheney landvarnaráðherra, Bush forseti og Pow- ell, forseti yfirherráðsins. Símamynd Reuter Hungurvofan og CIA sett til höfuðs Saddam Hussein Hernaðaráætlun Bandaríkja- stjórnar gagnvart írak er nú að verða ljós. Hún er að forðast vopna- viðskipti í lengstu lög en leitast við af fremsta megni að hrekja Saddam Hussein frá völdum í Bagdad. Að því er einkum stefnt með tvennum hætti. Annars vegar að setja íraka í svelti. Hins vegar að beita úrræð- um og samböndum leyniþjón- ustunnar CIA til að grafa undan íraksforseta og steypa honum af stóli. George Bush Bandaríkjaforseti er fyrrverandi yfirmaður CIA. Bandarísk blöð skýrðu frá því að eitt fyrsta verk hans eftir hertöku íraka á Kúvæt hefði verið að gefa CLA sérstök fyrirmæli um aö beina nú öllum tiltækum kröftum að því að koma í kring leiðtogaskiptum í írak. Síðan hafa öðru hvoru birst fregnir um sérstaka fundi forsetans með yfirmönnum leyniþjón- ustunnar um áform í þessu skyni. Tiltölulega auðvelt er fyrir CIA að koma njósnurum eða flugu- mönnum inn í írak. Bandaríska leyniþjónustan hefur um langan aldur haft öfluga aðstöðu í Tyrk- landi, ríki í NATO með löng landa- mæri að írak, að mestu í fjalllendi, þar sem gæsla getur aldrei orðið þétt. Vestur af þeirri landamæra- línu taka svo við landamæri íraks að Sýrlandi. Þar situr við völd erkióvinur Saddams Husseins, Hafez Assad og fer hvor fyrir sinni fylkingu í Baath sósíalistaflokkn- um sem stofnaður var til að veröa stjómmálahreyfing arabiskrar ein- ingar. Til skamms tíma var Bandaríkja- stjóm hliðhollari Hussein en Assad sem var eini bandamaður írönsku klerkastjómarinnar meðal araba- ríkja í stríðinu við írak. Sýrland er til að mynda enn á skrá Banda- ríkjastjórnar um ríki sem styðja hryðjuverkastarfsemi og því úti- lokað frá eðlilegum viðskiptum við bandaríska aðila. En ein ráðstöfun Bush eftir að írak réðst inn í Kúvæt var að senda til Damaskus John H. Kelly, aðstoðarutanríkisráð- herra sem fer með málefni land- anna fyrir Miðjarðarhafsbotni, til skrafs og ráðagerða við sýrlenska ráðamenn. Samband við Sýrland hefur eins og nú er komið sérstaka þýðingu fyrir CIA því Assad hefur lengi haft á sínum snærum íraka and- stæöa Hussein og stutt þá til neðan- jarðarstarfsemi gegn honum innan íraks. Hæfir þama skel kjafti því Assad er síst minni grimmdarsegg- ur en Hussein, lét til að mynda stór- skotalið sitt skjóta í rúst gamla borgarhverfið í Homs með tug- þúsunda mannfalli þegar strang- trúarmenn þar gerðu uppreisn. Búa á svo í haginn fyrir undirróð- ursstarfsemi utan og innan frá gegn Saddam Hussein með því að sjá svo um að sem mest sverfi að írökskum almenningi. Talið er að írak hafi flutt inn sjö tíundu hluta matvæla sem neytt er í landinu á síðustu ámm. í samþykkt Öryggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna eru mat- væli og lyf „af mannúðarástæð- um“ undanþegin viðskiptabanni. Bandaríkjaforseti hefur síðan Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson einhliða lýst þeim skilningi á mál- inu að mannúðarástæður til mat- vælaaðdrátta liggi þá fyrst fyrir þegar sýnt hafi verið fram á að bein hungursneyð sverfi að. Við- skiptabanninu verði svo framfylgt af hálfu Bandaríkjaflota með bein- um aðgerðum herskipa gegn kaup- skipum. Bretlandsstjórn hefur tek- ið í sama streng. Hér er að sjálfsögðu um hafnbann að ræða þótt forðast sé að nota það orð. Hafnbann er hernaðaraðgerð og til þess þarf sérstaka samþykkt Öryggisráðsins samkvæmt þeim kafla stofnskrárinnar sem ályktun- in um viðskiptabann er byggð á. Því hefur komið upp kurr meðal ríkja í ráðinu yflr að Bandaríkja- stjórn hafi í frammi sjálftekt í heimildarleysi. Fundir um málið hafa verið lokaðir en vitað er að fulltrúar Sovétríkjanna, Frakk- lands, Kanada og Malajsíu hafa haldið uppi mótmælum. Svo hafa Sovétríkin lagt til að fjölþjóðaflot- inn á Persaflóa verði að minnsta kosti að einhveiju leyti settur und- ir sameiginlega stjórn á vegum SÞ til að samræmi verði í aðgerðum. Því hefur Bush forseti hafnað og gerir sig nú líklegan til að færa hafnbannið út að geðþótta sínum til einu hafnarborgar Jórdans. í Persaflóastríðinu fóru aðdrættir íraks frá umheiminum mestan part fram um höfnina Aquaba við botn samnefnds flóa inn úr Rauða hafi. Um leið varö atvinnulíf í Jórdaníu yfirgnæfandi háð viðskiptum við írak og svo er enn. Þegar þetta er ritað er Hussein Jórdaníukonungur í Bandaríkjun- um og bíður eftir viðtali við Bush. Meðan hann var á leiðinni lét Bandaríkjaforseti hafa eftir sér aö Jórdanía yrði að taka fullan þátt í framkvæmd viðskiptabanns á írak, ella áskildu Bandaríkin sér rétt til að láta hafnbannið ná til Aquaba. Ekki fylgdi með hvemig sjóliðar Bandaríkjaflota ættu að aðgreina vaming ætlaðan Jórdaníu annars vegar og írak hins vegar í farmi skipa. En austan að írak liggur íran með miklu meiri möguleika til að ónýta viðskiptabannið en Jórdaníu. Nú hefur Saddam Hussein lagt drög aö því að þau landamæri opnist með því að ganga til fulls að skil- málum íransstjórnar fyrir friðar- gerð eftir Persaflóastríðiö. Eftir er að sjá hver áhrif sú eftirgjöf hefur á afstöðu til hans í hernum, sem fómaði hálfri milljón mannslífa við að beijast fyrir því sem nú er látið af hendi við íran. Nú sést haft eftir bandarísku her- stjóminni að áætlanir hennar geri ráð fyrir að liðsflutningar til Saudi-Arabíu geti við tilteknar að- stæður numið 200.000 manns. Ekki nægði það samt til að hrekja álíka fjölmennan her íraks frá Kúvæt, í slíkri sókn er gert ráð fyrir að yfir- burðir þurfi að vera þrír á móti einum eigi hún að heppnast. Bandaríkjamenn eru gjarnir til að vilja reka hernað úr ijarlægð með flugvélum og eldflaugum til að njóta tækniyflrburða sinna. Ekki bar grimmilegur lofthernaður samt árangur í Víetnam. Við bætist að við Persaflóa hafa írakar líka eldflaugar sem ekki draga bara til herflugvallanna, sem Bandaríkja- menn þurfa að nota heldur einnig helstu olíulindasvæðanna. Hernaður á þessum slóðum er því líklegur til að gera auðugasta olíu- lindasvæði heims ónothæft um árabil. Afleiðingin yrði heims- kreppa. Það er meginástæðan til að Bush vill komast hjá vopnaviðskiptum en koma þó Saddam Hussein frá völdum. Beittasta vopnið til þess telur hann hungurvofuna með stuðningi af undirróðri. Annað mál er hvernig úrvals- sveitir Bandaríkjahers verða til reika eftir máske missera dvöl í um 49 stiga lofthita um hádegisbil í eyðimörk í landi þar sem hýðing liggur við áfengisneyslu jafnt út- lendra sem innlendra en ekki er amast við hassi. Magnús T. Ólafsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.