Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1990, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1990, Síða 15
ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990. 15 Er sprengiefni víða á glámbekk? Oft heyrist um að sprengiefni hafi horfið úr geymslu. - Frá sprengiefna- fundi í Örfirisey. Alltaf öðru hvoru kemur fram af fréttum að sprengiefni hafi horf- ið úr vörslu þeirra sem við spreng- ingar fást. Sjaldnast kemur það fram af seinni fréttum, minnsta kosti svo að áberandi sé, hvort sprengiefnið hafi fundist aftur og verið komið til skila eða hvort nokkuð hafi vitnast um það hver eða hverjir hafi staðið að hvarf- inu. Oft er getum að því að leitt að þar hafi ungmenni eða börn verið á ferðinni án þess að nokkuð frekar sé um það vitað. Nú þarf það ekki að vefjast fyrir neinum hver voði er á ferðum þeg- ar óvitar, börn, unglingar eða aðr- ir, sem ekki gera sér neina grein fyrir því hvað þau eru með á milli handanna, eru að handleika dína- mít og stórhættulega sprengivaka, sem hvellhnettur eru, svo að ekki sé talað um þegar þetta tvennt ligg- ur saman. En það eru ekki aðeins börn og unglingar sem hlut eiga að máli. Það er ekki langt síðan sprengjur sprungu á fleiri stöðum á götum úti í Reykjavík og mildi að ekki hlutust stórslys af en þá voru notuð efni sem atvinnumenn einir eiga að hafa aðgang að og þarna voru vafalaust fullorðnir menn að verki. Þetta kemur nú upp í huga mér þegar líður að áramótum og kvöldi þrettánda dags jóla, þessara tíma- móta sem minnst er með flugeldum og öðrum mismeinmiklum spreng- ingum. KjáUarinn Benedikt Gunnarsson framkvæmdastjóri Lög um skotvopn, sprengi- efni og skotelda Það þarf sérstakt leyfi lögreglu- yfirvalda til þess að mega hafa sprengiefni undir höndum, á sama hátt og leyfi til að eiga og fara með skotvopn, enda ná sömu lög yfir þetta hvort tveggja, eða lög nr. 46 frá 1977 um skotvopn, sprengiefni og skotelda. Það er til viðamikil, sundurliðuð og nákvæm reglugerð um skotvopn og skotfæri en um sprengiefni hef- ur reglugerð enn ekki séð dagsins ljós, enda eftirlit með meðferð þeirra í skötulíki. Sprengiefni eru að staðaldri í notkun víða um land. Stóru verk- takarnir eru með kunnáttumenn í meðferð þeirra og á vinnustöðun- um eru þá sérbúnar geymslur. En við minni háttar framkvæmdir, þar sem sprenginga er þörf, eins og hjá flestum sveitarfélögum og litlum vinnuflokkum úti um land er að- staðan til geymslu í alla staði verri og ekki um sérhæfða sprengimeist- ara að ræða. Forvarnir Rafmagnsveitna ríkisins. Þannig var ástandið hjá Rarik á árunum eftir 1954 þegar vinnu- flokkar voru dreifðir úti um allt land við að rafvæða dreifðar byggð- ir. Þá þurfti alltaf öðru hvoru að sprengja klappir fyrir stauraholum og því nauðsynlegt að vera með þessi efni í vinnubúðunum og til að byrja með enginn sem með þau kunni að fara. Hyggjuvitið réð en í þessu tilfelli var það hættulegur lærimeistari þótt sjaldan hlytist stórslys af. Því var það að Rarik lét taka sam- an leiðbeiningarbækling sem dreift var milli vinnuflokkanna og verk- stjórarnir ásamt flokksstjórum kallaðir saman á námskeið þar sem grundvallaratriðin voru yfirfarin og þá að sjálfsögðu lögð meginá- herslan á öryggismálin. Þetta var að vísu af vanefnum gert en hafði afar jákvæð áhrif á viðhorf línu- mannanna til vandamálsins. Síðar var bæklingurinn endurskoðaður og endurútgefinn ög þá í samvinnu fleiri ríkisstofnana. Síðar eöa árið 1980 hafði Rarik forgöngu um það að fá hingað norska sprengisérfræðinga til þess að kenna sprengitækni og meðferð sprengiefna á nokkurra daga nám- skeiði fyrir starfsmenn sína. Regiugerðar er þörf Til að byrja með voru lög um meðferð sprengiefna ómerkileg og í raun ekkert hægt við þau að styðj- ast. Voru því norskar og sænskar reglur notaðar til halds og trausts, m.a. við samantekt á fyrrnefndum leiðbeiningarbæklingi. Nú-skora eg á hæstvirtan dóms- málaráðherra, í mikilli vinsemd og með fullri virðingu, að setja nú þegar ítarlega reglugerð um þann þátt laga nr. 46/1977 sem varðar meðferð sprengiefna sérstaklega. Þessi reglugerð þarf að vera stutt- orð og gagnorð og vera þannig að með sanngirni sé hægt að fram- fylgja henni. Til þessa verks þarf að fá þá fær- ustu menn sem völ er á. Þetta má ekki dragast lengur. Benedikt Gunnarsson „Þaö þarf sérstakt leyfi lögregluyfir- valda til þess að mega hafa sprengiefni undir höndum, á sama hátt og leyfi til að eiga og fara með skotvopn.“ Umhverfisvika í grunnskóla Fjöruna ber að vernda því að lífriki svæðis og jafnvel landsins tapast ef fjörunni er spillt, segir greinarhöfundur. Fyrsta vika októbermánaðar var helguð umhverfisfræðslu í Grunn-' skólanum á ísafirði. Yfirskriftin var umhverfisvika og var kennslan að hluta til utandyra. Markmið með umhverfis- mennt er að vekja athygli nemenda á umhverfi sínu og þeim vandamál- um sem þar bíða úrlausnar. Hvetja nemendur að bera ábyrgð gagnvart umhverfi og efla þannig vilja til náttúruverndar. í aðalnámskrá grunnskóla er skýrt tekið fram að umhverfismennt eigi bæði að fara fram í einstökum námsgreinum og verkefnum sem ekki eru bundin við einstaka námsgrein. Undirbúningur umhverfisvik- unnar fól m.a. í sér öflun fræðslu- efnis. Námsgagnastofnun úthlutar námsbókum til skóla en mér fannst við þurfa frekara námsefni. í því skyni skrifaði undirrituð bréf til nokkurra opinberra stofnana og félagasamtaka og bað um upplýs- ingar sem gætu komið að gagni við verkefnagerð nemenda. Hér með kem ég á framfæri kæru þakklæti fyrir aðsent efni því að alUr aðilar tóku vel í þessa bón. Skipulag og verkefni Skipulagning umhverfisvikunn- ar var meö þeim hætti að við ák- váðum í upphafi að víkja sem minnst frá stundaskrá nemenda. Það er ekki hægt að komast hjá smáröskun á stundaskrá þegar vinnan er háð sjávarfóllum þannig að vinnutími nemenda lengdist í 2 daga af 5. Kennslan fór fram að hluta til utandyra, allir nemendur skoðuðu íjöru og tóku þátt í ratleik. • Hugmyndabanki var stofnaöur til að allir fengju verkefni við hæfi. Fagkennarar kenndu sín fög en tengdu vinnuna með einhverjum hætti umhverfisfræðslu og sóttu verkefni í hugmyndabankann. Ýmsar kannanir voru gerðar og framkvæmdar af nemendum. Má nefna skil á gömlum rafhlöðum og KjaUariiui Helga Frlðriksdóttir kennari við Grunnskólann á ísafirði dósaskil til endurvinnslu. Einnig kynntu nemendur sér sorpeyðingu og úrgangslosun hjá skipaflotan- um. Yngri nemendurnir sóttu efni- við í náttúruna og föndruðu með laufblöð og skeljar. Kennarar 8 ára nemenda vinna með bekkjum sin- um að gerð fjörulíkans. Klappir, sandur og tilheyrandi þang og þari klæða fjöruna. Síðan er ætlunin að merkja fjörumörkin inn á líkanið. Fjöruskoðun Hentugt þótti að taka þátt í fjöru- skoðun Evrópu þar sem sú skoðun fer fram á þessum tíma og við hér fyrir vestan með fjöruna í nálægð. Samband íslenskra náttúruvernd- arfélaga (SÍN) standa að fjöruskoð- uninni hér á landi og senda gögn til skóla og bókasafna. Nú hafa verið hönnuð eyðublöð fyrir börn sem koma að góðu gagni í verk- efnavinnu með fjöru í umhverfls- fræðslu. Yngstu nemendur skoð- uðu fjöruna án þess að hafa slík eyðublöð, enda ekki hægt að koma því viö hjá ólæsum börnum en skoðunin sjálf og skynjun á lykt og fuglahljóðum gaf góða reynslu. Margir foreldrar tóku þátt í fjöru- skoðun yngri barnanna og hjálp- uðu þánnig til. Til gamans má nefna að Norð- menn hafa mikla samvinnu milli skóla í fjöruskoðun sem spannar alla strandle'ngju Noregs. I fyrra tóku 245 norskir skólar þátt í fjöru- skoðun og eru það skólar af öllum skólastigum. Við í skólunum eigum að styrkja SÍN með myndarlegri þátttöku í fjöruskoðun á strand- lengju íslands. Til frekari áherslu er rétt að hafa í huga að fjöruna ber að vernda vegna þess að sumar tegundir eru bundnar við fjöru og tapast því úr lífríki svæðis, jafnvel landsins, ef flörunni er spillt. Einn- ig er flaran ákjósanlegt útivistar- svæði, bæði til náttúruskoðunar og kennslu. Ratleikir Ég vil lítillega víkja að ratleik sem kennslutæki. Nemendur hafa landakort og flnna stöðvar sem merktar eru inn á kortið. Á stöðv- unum eru ýmis fyrirmæli sem nemendur eiga að sinna og eru fyr- irmælin tengd umhverfiskönnun af einhveiju tagi. Hér kemur inn í ömefnakynning sem er mikilvæg. Nemendur eiga að fara frá einni stöð á aðra þar til hringurinn lok- ast, nemendur tóku þeirri ný- breytni vel að fá súkkulaöibita og svaladrykk á endastöð. Aldurs- hóparnir kalla á verkefni við hæfi, því þurftu kennarar að setja upp þrenns konar ratleiki þar sem fyr- irmælin voru frá því að vera skrif- uð og upp í að vera túlkuð af prúð- búnum lögregluþjóni. Skoðanakönnun í Hnífsdal Barnaskóli er starfræktur í Hnífsdal sem útibú frá Grunnskól- anum á ísafirði. Varðandi um- hverfisvikuna hafði hann svolitla sérstöðu þar sem hann vann að ákveðnu verkefni. í Hnífsdal fór fram ítarleg skoðanakönnun meðal íbúa hverfisins og laut könnunin aö ýmsum umhverfismálum. Spurt var m.a. um sorpeyðingarmál, bíla- notkun og ýmis neytendamál. Hér má nefna að sorpeyðingarstöð er staðsett á Skarfaskeri í næsta ná- grenni við byggðina í Hnífsdal og eru menn mjög ósáttir við mengun af hennar völdum. Alls tóku 65% íbúa þátt í könnuninni og sýnir hún hvað fámennir skólar geta unnið að verkefnum sem koma að gagni. Grunnskólinn á ísafirði ér flöl- mennur skóli, hefur rúmlega 600 nemendur, þannig að mörgu þurfti að hyggja til að umhverfisvikan gengi sem best. Tímasetning vik- unnar var hentug því fyrstu snjóar komu ekki fyrr en viku seinna. Plöntuskoðun þarf t.d. að fara fram strax í skólabyrjun á þessu lands- horni. Freistandi er að reyna að meta árangur þessarar umhverfisviku en það er afar erfitt eins og með alla aöra kennslu. En markmiðin eru ljós og ef við höfum öll hugfast að við eigum að skila umhverfinu til næstu kynslóðar ekki í verra ástandi en við fengum frá þeirri síðustu þá erum við á réttri leið. í lok þessarar greinar vil ég þakka öllum samveruna og þá miklu vinnu sem kennarar lögðu á sig til að umhverfisvikan gengi upp. Helga Friðriksdóttir „Markmið með umhverfismennt er að vekja athygli nemenda á umhverfi sínu og þeim vandamálum sem þar bíða úrlausnar. Hvetja nemendur til að bera ábyrgð gagnvart umhverfi.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.