Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1990, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990.
21
Iþróttir
iegn Vestur-Þjóðverjum. Hann rifbeinsbrotn-
vill með í kvöld þrátt fyrir það.
Atlierá
heimleið
- Atli Hilmarsson hættir að leika á
Spáni eftir keppnistímabilið
„Eg er orðinn dauðleiður
á því að leika handknatt-
leik erlendis og það er ör-
uggt mál að ég kem heim
til íslands eftir að yflrstandandi
keppnistímabili lýkur á Spáni,“ sagði
Atli Hilmarsson handknattleiksmað-
ur í samtali við DV í gær.
Atli er einn reyndasti atvinnumað-
ur okkar í handknattleik og er nú
að leika 8. árið erlendis. Áður var
hann hjá fjórum félögum í Vestur-
Þýskalandi, Hameln, Bergkamen,
Bayer Leverkusen og Dormagen. En
mega íslenskir handknattleiksunn-
endur eiga von á því að sjá Atla leika
með íslensku félagsliði á næsta
keppnistímabili?
„Eg veit það ekki. Það er alveg eins
inni í myndinni að hætta alveg. Ég
ætla að klára keppnistímabilið með
Granollers á Spáni og sjá svo til
hvernig skrokkurinn kemur út úr
þessu. Ég hef verið óheppinn með
meiðsli og er orðinn ansi leiður á
þessu,“ sagöi Atli Hilmarsson í gær.
-SK
Svo gæti farið að Frans Beckenbauer hætti störfum hjá franska
meistaraliðinu Marseille á næstu dögum eða vikum. Ágreiningur er
kominn upp á mílli hans og forseta félagsins i kjölfarið á slæmu gengi
liðsins í undanfórnum leikjum.
Beckenbauer er óánægður með afskiptasemi forsetans varðandi
þjálfun liðsins. „Keisarinn sagði í gærkvöldi: „Við munum tala saman
á næstu dögum eða vikum. Þetta gengur ekki lengur svona. Ef við
getum ekki leyst þessi vandamál okkar í milli hefur ráðning mín til
Marseille greinilega verið á misskihúngi byggð. Það er vissulega mögu-
leiki á því að ég sé á heimleið á ný til Þýskalands miög bráðlega."
-SK
irfa stuðning
á í handknattleik 1 Höllinni í kvöld kl. 20.00
kvöldi en leikur ef til vill með. Þá er
Jón Kristjánsson veikur en verið getur
að hann leiki. Einar Þorvarðarson að-
stoðarlandsliðsþjálfari sagði í samtali
við DV í gærkvöldi: „Við erum með
nýtt lið í höndunum og strákjarnir eiga
skilið að fá góðan stuðning frá áhorf-
endum. í liðinu núna eru framtíöar-
landsliðsmenn og þeir sem verða í
fremstu víglínu í heimsmeistarakeppn-
inni 1995. Ungu leikmennirnir, sem eru
að taka við, hafa sýnt góða leiki og stóðu
sig frábærlega á mótinu í Danmörku á
dögunum. Vonandi fá þeir nægilegan
stuðning til að leggja hið sterka lið Þjóð-
verja að velli í kvöld.“
-SK/-JKS
• Einar Þorvarðarson treystir á
stuðning áhorfenda.
í riðla fyrir íslandsmótið
1. deild karla 2. deild karla Kvennaflokkur
A-riðill:
Stjarnan, Fylkir, Þróttur R., Þór Ak.
B-riðill:
KR, Selfoss, Víðir, KA frá Akureyri.
C-riðill:
Fram, Keílavík, ÍK, Breiðablik.
D-riðill:
ÍR, Akranes, Vestmannaeyjar, Valur
A-riðill:
Leiftur, FH, Skallagrímur, Árvakur.
B-riðill:
Grótta, Leiknir, Einherji, Ármann.
C-riðill:
Víkingur R„ KS, HSÞ-b, Reynir Á.
D-riðill:
UMFG, Haukar, Bol.vík, Víkingur Ól.
A-riðill:
Breiðablik, Sindri, Stokkseyri, KS.
B-riðill:
KR, Haukar, Afturelding, Höttur.
C-riðill:
ÍA, Þróttur N., Þór Ak„ Stjarnan.
D-riðill:
Valur KA og Austri frá Eskifirði.
-GH/VS
handknattleik:
tpsætið
í Mosfellsbæ, 22-23. Staðan i 2. deild er
þannig:
Þór Ak 11 10 1 0 268-220 21
HK. 12 10 1 1 316-205 21
UBK ........ 11 8 1 2 256-193 17
Njarövík 13 7 2 4 288-265 16
Keflavík 13 5 2 6 275-288 12
Völsungur.. 13 4 2 7 267-283 10
Aftureld ,...,...13 4 0 9 243-296 8
Ármann 13 3 2 8 248-276 8
ÍH 14 3 2 9 282-315 8
ÍS 1 1 10 193-305 3
• Gunnar Gunnarsson.
Ystad tapaði
Gunnar Gunnarsson var markahæsti leik-
maður Ystad þegar liðið tapaði, 17-16, fyrir
Söder í Stokkhólmi á sunnudaginn í Sænsku
úrvalsdeildinni í handknattleik.
„Við misstum niður unninn leik, vorum yfir,
12-15, þegar stutt var eftir, og síðan fengu þeir
gefms vítakast þremur sekúndum fyrir leikslok
sem þeir skoruðu úr sigurmark sitt,“ sagði
Gunnar í samtali við DV í gær.
Fyrsta hluta keppninnar um sænska meist-
aratitilinn er nú lokið. Átta efstu liðin fara í
sérstaka „elítudeild" og leika þar tvöfalda um-
ferð en keppni hefst 6. janúar. Þangað fara lið-
in með öll stig úr forkeppninni og staðan er
nú þessi: Drott 27 stig, Lugi 21, Skövde 21, Irsta
20, Sávehof 19, Ystad 18, Redbergslid 18 og Söd-
er 13 stig. Hefði Söder ekki nýtt vítakastið í
lokin gegn Ystad hefði liöið ekki komist í úrslit-
in, heldur Kristianstad. -VS
Sport-
stúfar
Júlíus Jónasson, DV, Frakklandi:
| \ • Leikur Bordeaux og
I ji\ I Caenífrönskul.deild-
I /r # I inni í knattspyrnu um
' ' helgina, sém endaði
1-1, þótti frekar slakur og fengu
allir leikmenn lágar einkunnir í
blöðunum í gær. Hjá Bordeaux
fengu allir fjóra til sex af tíu
mögulegum, Arnór Guðjohnsen
fékk íjóra en honum var skipt út
af á 55. mínútu.
Bordeaux er í 11. sæti deildar-
innar en liðið á í miklum erfið-
leikum vegna meiðsla. Gegn Caen
vantaöi ijóra snjalla leikmenn,
þá Battiston, Ferrari, Durand og
Deschamps, sem allir eru meidd-
ir.
Drott byggir
á reynslunni
Gunnar Gunnaisson, DV, Sviþjóð:
• Drott, sem er með
sex stiga forystu í
sænsku úrvalsdeild-
inni í handknattleik,
byggir svo sannarlega á reynsl-
unni. Með liðinu leika nú þrír
leikjahæstu leikmenn úrvals-
deildarinnar frá upphafi, þeir
Thomas Gustafsson markvörður,
sem er 38 ára gamall, Jörgen
Abrahamsson línumaður og Gör-
an Bengtsson hornamaður sem
báðir eru 37 ára. Þessir þrír hafa
leikið samanlagt á annað þúsund
deildaleiki á ferlinum og yfir 300
landsleiki alls. Gustafsson, sem
áður lék með Lugi og Warta, hef-
ur aðeins misst úr einn leik síð-
ustu 16 keppnistímabilin sem er
ótrúlegur árangur.
Kristján aðeins
með gegn Svíum
• Kristján Arason
leikur aðeins einn
landsleik með íslenska
landsliðinu í þeim
verkefnum sem framundan eru á
næstunni. Kristján verður með
gegn heimsmeisturum Svía í vin-
áttulandsleik í Laugardalshöll-
inni 27. desember. Daginn eftir
hefst 4 landa mót með þátttöku
íslands, Svíþjóöar, Noregs og
Japans. Ástæðan fyrir því að
Kristján leikur aðeins einn leik
er að hann verður að keppa með
Teka á móti í Þýskalandi yflr
hátíðirnar.
Mats Olson, markvörður Svía
og félagi Kristjáns hjá Teka, kem-
ur ekki með Svíum til íslands
vegna sömu ástæðna.
Valdimar ekki
til Þýskalands
• Hornamaðurinn snjalli, Valdi-
mar Grímsson úr Val, kemst ekki
með íslenska landsliðinu til
Þýskalands en þjóðirnar eigast
við tvívegis um næstu helgi. Sig-
urður Sveinsson úr KR liefur
hins vegár verið kallaður í lands-
liðshópinn. Sigurður verður með
í verkefnum landsliðsins á næst-
unni, enda hefur hann staðið sig
vel með KR-ingum í vetur.
• Valdimar Grimsson fer ekki
með landsliðinu til Þýskalands.
• Þorvaldur Jónsson ver mark
Breiðabliks næsta sumar.
Þorvaldur
í mark UBK
Helgi Jónsson, DV, Ólafefiröi:
Þorvaldur Jónsson, markvörð-
ur og fyrírliði meistaraflokks
Leifturs i knattspymu, mun leika
með Breiðabliki í 1. deildinni á
næsta keppnistímabili. Gengið
var frá félagaskiptum um helg-
ina. Þorvaldur mun ljúka við
nám sitt í Reykjavík næsta sumar
og af þeim sökum sá harui sér
ekki fært að leika áfram með sín-
um gömlu félögum.
Þorvaldur hefur verið mark-
vörður Leifturs síðan 1986 og lék
með liðinu í öllum deildunum
þremur, þ.á m í 1. deild sumarið
1988. Þar áður hafði hann leikið
með KA tvö sumar í 1. deildinni.
Þorvaldur sagði í samtali við
DV að Breiðablik hefði orðið fyrir
•valinu þvi að honum litist vel á
félagið, það væri að gera góða
hluti og hann hefði mikla trú á
því. Gamall félagi hans úr Leiftri,
Gústaf Ómarsson, leikur einnig
meö UBK.
Um tíma var talið að Þorvaldur
myndi leika með 2. dcildarliði ÍR
á næsta tímabili. ÍR-ingar standa
þvi uppi markmannslausir því að
Þorsteinn Magnússon, sem varið
hefur mai'k liðsins undahfarin ár,
hefur tilkynnt félagaskipti yfir í
Fylki.
-JKS
framkvæmda-
stjóri HSÍ
Hand-
knatt-
leikssam-
band ís-
lands hef-
ur ráðið
Einar Örn
Stefáns-
son í starf
fram-
• Einar öm Stefáns- kvæmda-
son, Iramkvæmda- stjóra.
stjóri hsí. Einar Örn
erfyrrver-
andi fréttamaður á RÚV og fram-
kvæmdastjóri islenskra banka-
maima. Hann hóf störf hjá HSÍ
15. desember.
Framkvæmdastjórinn mun
annast daglegan rekstur HSÍ, er-
lend samskipti og þjónustu við
starfsnefhdir og aðildarfélög HSÍ.
Á verksviði hans eru m.a. fjáröfl-
unarverkefni og umsjón með
fjármálum í samvinnu við gjald-
kera HSÍ. Samstarfssamningar
við stuðningsfyrirtæki HSÍ,
skipulagningu landsleikja í sam-
vinnu við starfsnefndir og stjórn
HSÍ og þátttaka í undirbúningi
og skipulagningu heimsmeistara-
keppninnar á Islandi 1995. Einar
Örn er 41 árs og kvæntur Ástu
R. Jóhannesdóttur.
-JKS