Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1990, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1990, Blaðsíða 40
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Rltstjórn - Auglýsíngar - Ás íkrift - Dreifing: Simi 27022 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990. Hafskipsmálið: Mál fjögurra í Hæsfarétf „Eftir sýknudóm fjölskipaös saka- dóms minnir niðurstaða Páls A. Páls- sonar mig á gamalt kínverskt spak- mæli sem segir efnislega svo aö þegar fmgri er bent á túnið horfir flónið á fingurinn. Ég lít svo á að málinu hafi í raun lokið við sýknudóm saka- dóms í sumar, með fullri virðingu fyrir hæstarétti,“ sagði Ragnar Kjartansson, fyrrum stjórnarfor- maður Hafskips, við DV í morgun. Sérstakur saksóknari í Hafskips- málinu, Páll Arnór Pálsson, hefur áfrýjað dómi sakadóms gagnvart Ragnari, Björgúlfi Guðmundssyni, áður forstjóra Hafskips, Páli Braga Kristjónssyni, áður framkvæmda- stjóra ijármála- og rekstrarsviðs fé- lagsins, og Helga Magnússyni, áður löggiltum endurskoðanda Hafskips. Ragnar er sá eini fjórmenninganna sem fékk sýknudóm í sakadómi. Sýknudómum yfir hinum 13 sak- borningum í hafskipsmálinu hefur ekki verið áfrýjað. Talið er að verjendur ijórmenning- anna leggi fram frávísunarkröfu þar sem svo lengi hefur dregist að áfrýja. Jón Magnússon, verjandi Ragnars Kjartanssonar, sagði í morgun að allir möguleikar yrðu skoðaðir. -hlh Flug raskast Færð um land allt er víðast hvar í lagi þrátt fyrir éljagang og hálku um sunnanvert landið. Vetrarfæri er um landið en þó fært vel búnum bílum. Flug hefur þó raskast. Færð um vegi á Suðurlandi, þar sem úrkoman var mest í morgun, er í lagi þó hálka sé á vegum. Greiðfært er um Borgaríjörð og allt til Akur- eyrar en nokkur skafrenningur var á leiðinni til Sigluíjarðar og gæti færð spillst af þeim sökum. Fært er um allt Norðaustur- og Austurland. í morgun var verið að moka braut- ir á Reykjavíkurflugvelli. ÍS Óvissa um jólaveðrið: Fer að hlána „Það fer að hlána á morgun eða fimmtudaginn og því allt eins útlit fyrir að það verði auð jörð í vikulok- in. Um sjálft jólaveðrið vil ég sem minnst segja, það getur brugðið til beggja vona,“ sagði veðurfræðingur á Veðurstofunni við DV í morgun. Menn hafa haldið aö Azoreyjaveðr- ið væri liðin tíð þegar þeir vöknuðu í morgun en þá var jörð alhvít og reglulega jólalegt á suðvesturhorn- inu. Hvað verður um sjálf jólin er hins vegar 6víst. Verða þau hvít, rauð eða - græn? _hlh LOKI Eigum við ekki að semja um hvít litlujól og græn alvörujól? Kjartan Valgarðsson, formaður Birtingar: Sýnist allt sam starf vera búið - tel mig hafa komið því í gegn sem rætt var um, segir Svavar „Égfæekkibeturséð enaðfúnd- taka þátt í forvaiinu og það var ið á eftir næstu kosningar. En aðal- urinn í Aiþýðubandalagsfélaginu í samþykkt í gær. Ef menn eru í Birt- atriði málsins þykir mér þó vera Reykjavík í gærkveldi, um með ingu eruþeir sjálfkrafaí flokknum, að þarna er verið að takast á um hvaða hætti skuli staðið að forvali vegna þess að Birting er félag Al- einhver formsatrriði sem koma í Reykjavík, hafi endanlega drepið þýðubandalagsmanna. Ég tel mig kjördæminu hreint ekkert við, ailt hugsanlegt samstarf við Birt- hafa lagt allt undir á fundinum í Hinum almenna kjósenda flokks- ingu. Við höfðum átt fundi að und- gær og sigrað," sagði Svavar Gests- íns koma einhverjar heimiliserjur aníörnu með forsvarsmönnum son þingmaður flokksins í Reykja- ekkert við heldur málefnin,“ sagði þess og allt sem rætt var um þar vik. Guðrún Helgadóttir. var svikið á fundinum i gær,“ sagði Guðrún Helgadóttir, hinn þing- í dag mun formaður kjörnefndar Kjartan Valgarðsson, formaður maður flokksins í borginni, komst íReykjavíkboðafulltrúaBirtingar, Birtingar, í samtali við DV í morg- ekki á fundinn í gær þar eð hún Æskulýðsfylkingarinnar og starfs- un. _ stýrði fundi á Alþingi fram á nótt. háttanefnd flokksins til fundar. Þá „Ég tel að það hafl verið staðið „Ég hef hins vegar frétt hvað mun Birting óska eftir fundi með við það sem við höfum verið að geröist og mér þykja ekki hafa ver- þingflokki Alþýðubandalagsins um ræða um við Birtingarmenn að ið stigin stór skref til sátta. Og ná- niðurstöðu félagsfundarins í gær- undanförnu. Þar var samið um að ist ekki sættír verður það ekki stór kveldi. allt alþýðubandalagsfólk fái að þingflokkur sem Alþýðubandalag- -S.dór Mikil örtröð var á pósthúsum í gær, enda hver að verða síðastur að senda jólapóstinn ef hann á að komast til skila fyrir jólin. Mynd þessi er tekin á pósthúsinu við Rauðarárstíg þar sem myndast hafði löng biðröð fólks, hlaðið pökkum og bréfum sem afgreitt verður fyrir jól. DV-mynd GVA Veðriðámorgun: Minnkandi frost Á morgun verður noröaustan- átt, gola eða kaldi og smáél við norðausturströndina en vaxandi austanátt og fer að snjóa við suð- vesturströndina. Frost um allt land en dregur úr frostinu er líð- ur á daginn, fyrst suðvestan- lands. Slysið 1 Njarðvík: Ekki viss um hvernig við komumst út úr bílnum Tveir piltar úr Keflavík björguðust á undraverðan hátt við Austurgarð í Njarðvíkurhöfn eftir að bifreið þeirra, 3ja dyra Lada Samara, hafði runnið fram af bryggjunni og út í sjó á tólfta tímanum í gærkvöldi. Það varð piltunum sennilega til lífs að þeir voru ekki í bílbeltum. Enginn sjónarvottur var að óhappinu. Ingi Þór Ólafsson, 18 ára sjómaður, var ökumaður og bjargaði hann Sigur- jóni Hannessýni, 17 ára félaga sínum, út þegar bíllinn var sokkinn nánast niður á botn í höfninni: „Þetta var ekki góð tilfmning. Ég var að snúa bílnum á bryggjunni þegar afturendinn rann fram af bryggjunni. Bíllinn lenti á skottlok- inu og toppnum og sökk. Hann fyllt- ist strax af sjó. Ég er ekki viss um hvernig við náðum að komast út,“ sagði Ingi Þór við DV í morgun. „Sáum ekki neitt“ „Ég held að afturhlerinn hafi brotnað eða opnast. Bíllinn fór á botninn og við sáum ekki neitt. Þegar ég var að komast út þreifaði ég fyrir mér. Ég fann svo að ég var laus. Akkúrat þá fann ég Sigurjón með annarri hendinni, reif mig út og tog- aði hann með mér. Ég held að það hafl verið út um afturhlerann. Það eina sem við sáum voru ljósin á bíln- um þegar við vorum að synda upp á yfirborðið. Við vorum alveg búnir en náðum að synda að grjótgarðinum, um 10 metra og komumst upp á við bryggjuna og hlupum í næsta hús,“ sagði Ingi Þór Ólafsson. Piltarnir komust helkaldir í snjó- byl að Sjávargötu 26, sem er næsta íbúðarhúsið frá bryggjunni í nokkur hundruð metra íjarlægö. Hélt að hann væri að deyja Það var Teitur Örlygsson, lands- liðsmaður í körfuknattleik, sem tók á móti þeim: „Það var hamast á dyrabjöllunni klukkan rúmlega ellefu. Þegar ég opnaði gátu strákarnir varla talað - þeir voru svo blautir og kaldir. Þeir gátu naumast sagt mér hvað gerðist. Síðan horfði annar í augun á mér og sagðist hafa haldið að hann hefði verið aö deyja - hann hafði greinilega orðið svo hræddur. Hann sagði mér að hann hefði ekki séð neitt og ekki fundiö dyrnar en síðan fundið þegar félagi hans dró hann út úr bílnum,“ sagði Teitur Örlygsson. Piltarnir voru drifnir í sturtu. Bróðir Teits, sem er í stýrimannaskólanum, hlúði síðan að piltunum. Þeir hafa báðir náð sér. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.