Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Qupperneq 8
f
l
9______
Útlönd
- 4
MÁNUDAGUR 15. APRÍL 1991.
tnof f'KfCT A -t q T T'A /■ f JTTTt A T A
I>V
Hörmungar Kurda:
Aukin aðstoð undirbúin
Vopnaður ty rkneskur hermaður gætir Kúrda sem bíða eftir læknishjálp.
Símamynd F
Fyrstu bandarísku hermennirnir
lögðu af stað í gær til flóttamanna-
búða Kúrda á landamærunum milli
Tyrklands og íraks. Hlutverk þeirra
er að ákveða hvaða aðgerða sé þörf
í búðunum þar sem um hundrað
flóttamenn látast á hverjum degi
vegna næringarskorts og smitsjúk-
dóma.
Bandarísk yflrvöld, sem sæta nú
vaxandi gagnrýni fyrir afskiptaleysi
sitt gagnvart Kúrdum, sem þau
hvöttu til uppreisnar, hafa lýst því
yfir að þau ætli aö setja upp bráða-
birgðabúðir fyrir flóttamenn í norð-
urhluta íraks og á landamærunum
til að létta á tyrkneskum yfirvöldum.
Sjálf ætla tyrknesk yfirvöld, sem
hafa reynt að halda flóttamönnunum
frá landamærunum, að hefja flutning
í dag á hluta þeirra úr fjöllunum til
búða þangað sem auðveldara verður
að senda hjálpargögn. Flóttamenn
hafa greint frá því aö tyrkneskir her-
menn hafi krafist greiðslu fyrir að
leyfa fólki að fara yfir landamærin
auk þess sem þeir hafl stolið matvæl-
um sem varpað hefur verið úr lofti.
Að sögn kúrdísks flóttamanns eru
það aðeins þeir sterkustu sem munu
lifa af hörmungarnar. Og fréttamað-
ur, sem segist hafa séð hungraða
flóttamenn slást um brauð sem út-
hlutað hefur verið í flóttamannabúð-
um, tekur undir það. Menn eru einn-
ig sagðir hafa stungið aðra til bana
til að komast yfir brauðbita.
Vegna skipulagsleysis var í gær
ekki hægt að flytja þrjátíu þúsund
flöskur með vatni til flóttamannanna
sem ísraelskur friðarsinni hafði gef-
ið. Hann kvaðst ekki hafa getað feng-
ið tvo bíla til að flytja vatnið síðustu
þrjá kílómetrana upp hæðina til
flóttamannanna.
Hörmulegt ástand ríkir einnig
meðal kúrdisku flóttamannanna sem
eru á leiðinni til landamæra írans.
Að sögn fréttamanna, sem verið hafa
þar á ferð, komast sumar mæður
með börn aðeins um fjóra kílómetra
á dag. Fréttamenn segja að ekkert
geti bjargað lífl þeirra nema hjálpar-
sendingar úr lofti.
Bandarískar hersveitir, sem verið
hafa í eyðimörkinni í suðurhluta ír-
aks frá stríðslokum, lögðu af stað í
gær suður á bóginn til landamær-
anna við Kúvæt. Munu hermennirn-
ir hafast við á svæði sem nær tíu
kílómetra inn í írak þar til eftirlits-
sveitir frá Sameinuðu þjóðunum
takavið.
Reuter
Shamir, forsætisráðherra ísra-
els. Símamynd Reuter
Blendin
skilaboð til
ísraelskir leiðtogar buðu í gær
Palestínumönnum takmarkaða
sjálfstjórn á herteknu svæðunum
en hétu því jafnframt að fjölga
ísraelskum landnemum þar.
Yitzhak Shamir, forsætisráð-
herra ísraels, sagði við frétta-
menn i gær að Palestínumenn
gætu stjórnað öllum málum sín-
um nema utanríkis- og varnar-
málum eins og kveðið var á um
í Camp David friðarsamningnum
milli Israels og Egyptalands frá
1978. Palestínumenn á herteknu
svæðunum hafna þessum samn-
ingi og krefjast sjálfstæðs ríkis,
David Levy, utanríkisráöherra
ísraels, hvatti í gær sfjómina til
að fjölga bústöðum fyrir gyðinga
á hcrtcknu svæðunum þrátt fyrir
andstööu Bandaríkjanna, helsta
bandamanns ísraels, og helstu
leiðtoga araba sem þátt myndu
taka í friðarviðræðum.
Palestínumenn, sem hittu Jam-
es Baker, utanríkisráðherra
Bandarikjanna, að máli í ísrael í
siöustu viku hvöttu hann til að
beita sér fyrir því að landnám
gyðinga á herteknu svæðunum
yrði stöövaö. Um hundrað þús-
und gyðingar eru nú búsettir þar
en fjöldi Palestínumanna er nær
tvær milljónir.
Shamir ilaug til London í gær
þar sem hann mun ræða við Val-
entin Pavlov, forsætisráðherra
Sovétríkjanna. Shamir ætlar að
hvetja til fulls stjórnmálasam-
bands ísraels og Sovétríkjanna til
þess að Sovétríkin geti tekið þátt
í viðræðum um friö í Miðaustur-
löndum.
ísraelsk og bandarísk yflrvöld
hafa náð samkomulagi um svæð-
isbundna ráðstcfnu. Palestínu-
menn og arabaríki hafa farið
fram á alþjóölega ráöstefnu.
Reutei
Uppbygging A-Evrópu:
Skipting
kostnað-
ardeilu-
Fjármálaráðherrar helstu iðn-
ríkja heims eru nú í London vegna
vígslu Evrópska uppbyggingar- og
þróunarbankans. Munu þeir ræða
aðstoð við Austur-Evrópu og upp-
byggingu í Miðausturlöndum.
Hvernig skipta á kostnaðinum er
hins vegar orðiö hitamál.
Bandarisk yfirvöld hafa greini-
lega lýst yfir óánægju sinni með
framlag japanskra stjórnvalda
vegna Persaflóastríðsins og segja
að þau hafi ekki staðið við skuld-
bindingar sínar. Japönsk yfirvöld
halda því hins vegar fram að þau
hafi reitt af hendi allt það fé sem
þau lofuðu. Þýsk yfirvöld hafa
greitt allt sem þau gáfu fyrirheit
um. Þau hafa hins vegar varað
við þvi aö það séu takmarkanir
fyrir því hversu mikiö þau geti
lagt fram til annarra mála vegna
uppbyggingarinnar í þeim hluta
Þyskalands sem áöur var Aust-
ur-Þýskaland. Rcuter
EIGUM TÖLUVERT
ÚRVAL AF BÍLUM Á
CA 200-600 ÞÚS.
Á GÓÐUM KJÖRUM,
JAFNVEL ENGIN
ÚTBORGUN!!!
BILA
HÚSIÐ
SÆVARHÖFÐA 2 674848 í húsi Ingvars Helgasonar
YFIR 100
BÍLAR Á
STAÐNUM
OG 1200
Á SKRÁ!
Nissan Sunny 1500 SLX '88, ek.
aðeins 37 þ. km, sjálfsk., vökvasl.,
útvarp o.fl. Ath. skipti á ódýrari.
Verð 700 þús. Eigum allar árgerðir
af Sunny!
Nissan Pathfinder 3,0 SE, '90, ek.
20 þ. km, sjálfsk., krómf. o.fl. Ath.
skipti ódýrari, verð 2150 þús. Eigum
einnig árg. '87, '88 og '89.
MMC Colt 1500 GLX '89, ek. 40 þ.
km, 5 gíra, vökvast., aukadekk o.fl.
Ath. skipti á ódýrari, verð 800 þús.
Cherokee Laredo 4,0 L '88, ek. 62
þ. km, sjálfsk., upphækkaður, spil,
álfelgur o.fi. Ath. skipti á ódýrari,
verð 2150 þús. Eigum einnig árg.
'87 og '89.
MMC Pajero 3,0 '89, ek. 28 þ. km,
5 gira, stærri dekk o.fl. Aðeins bein
sala, verð 1650 þús.
Volvo 440 GLT '89, ek. 29 þ. km, 5
gíra, álfelgur, bein innspýting, raf-
rúður o.fl. Ath. skipti á ódýrari, verð
1100 þús.
Nissan Maxima 3,0 L '90, ek. aö-
eins 3 þ. km, sjálfsk., ABS brems-
ur, leðuráklæði, rafm. í öllu o.m.fl.
Ath. skipti á ódýrari, verð 2200 þús.
Subaru Legacy 1800 st. '90, ek. 11
þ. km, 5 gíra, vökvast., samlæsing
o.fl. Ath. skipti á ódýrari, verð 1380
þús.
Nissan king cab 4x4 '90, ek. aðeins
8 þ. km, 5 gíra, vökvast., veltigrind
o.fl. Ath. skipti á ódýrari, verð 1390
þús.
Nissan Patrol turbo disil '87, ek. 134
þ. km, 5 g., spil, 7 manna, brettak.,
o.fl. Björgunarsveitarútgáfa, ath.
skipti á ódýrari, verð 1900 þús.
Subaru Justy J-12 4x4 '89, ek. 26
þ. km, 5 gíra, útvarp o.fl. Ath. skipti
á ódýrari, verð 750 þús. Eigum
einnig árg. 1990.
MMC Lancer 1800 GLX st. 4x4 '88,
ek. 45 þ. km, 5 gira, útvarp, auka-
dekk o.fl. Ath. skipti á ódýrari, verð
950 þús. Eigum einnig árg. 1987.
Subaru 1800 st. 4x4 '89, ek. 23 þ.
km, 5 gíra, útvarp, samlæsing o.fl.
Ath. sklpti á ódýrari, verð 1180 þús.
Eigum allar árgerðir af Subaru á
skrá.
MMC L-300 minibus 4x4 '88, ek. 64
þ. km, 5 gfra, vökvast. o.fl. Ath.
skipti á ódýrari, verð 1300 þús.
Toyota Corolla st. 4x4 '89, ek. 41
þ. km, 5 gira, vökvast., útvarp. Ath.
skipti á ódýrari, verð 1100 þús.
Nissan Patrol 4,2 disil '89, ek. 55
þ. km, 5 gíra, upphækkaður, 31"
dekk, 6 cyl, útvarp o.fl. Ath. skipti
á ódýrari, verð 2450 þús.
S