Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Side 11
ieei JÍÍHA ?J HIJOAQUMAM
MÁNUDAGUR 15. APRÍL 1991.
Oí
11
Utlönd
DrmPcTÍcc:
Mikhail Gorbatsjov er í miklum vanda í heimsókn sinni til Japans. Hann
gæti þurft að kaupa efnahagsaðstoð með landi. Teikning Lurie
Nixon segir að
Gorbatsjov
haf i gert mistök
Richard M. Nixon, fyrrum forseti
Bandaríkjanna, sagði í viðtali eftir
tveggja vikna dvöl í Sovétríkjunun-
um að Mikhail Gorbatsjov forseti
hefði gert mörg og mikil mistök við
stjórn landins og eigi ekki lengur
möguleika á að breyta nokkru sem
skiptir máli.
í viðtali við bandaríska sjónvarps-
stöð í gær sagði Nixon að sér virtist
sem Sovétforsetinn væri valtur í
þessi og skorti styrk til að stjóma
landinu.
„Heimamenn sögðu að Gorbatsjov
væri ekki nógu ákveðinn. Þeir sögðu
að hann væri meira fyrir að tala en
framkvæma," sagði Nixon í viðtal-
inu.
í Bandaríkjunum er htið á Nixon
sem sérfræðing í málefnum Sovét-
ríkjanna. Hann hefur oft farið þang-
að og gjörþekkti utanríkisstefnuna á
árunum áður en Gorbatsjov komst
til valda.
Nixon sagði að Gorbatsjov hefði
gert grundvallarmistök þegar hann
sneri sér til harðlínumanna um
stuðning þegar halla tók undan fæti.
Nixon lýsti Boris Jeltsín, forseta
Rússlands, sem kröftugum stjórn-
málamaiini og miklum persónuleika.
„Jeltsín sendur nærri fólkinu
vegna þess að hann dáir fólkið og
hrærist með því,“ sagði Nixon. Hann
tók einnig fram að Jeltsín væri ör-
ugglega helsti keppinautur Gor-
batsjovs um völdin í Sovétríkjunum.
Nixon er nú 78 ára gamall. Hann
er samt vel ern og hefur notið vax-
andi virðingar í Bandaríkjunum síð-
ari ár eftir að hann hrökklaðist frá
völdum árið 1974. Hann er oft kallað-
ur til að gefa áht sitt á alþjóðamálum
og hefur skrifað bækur um þau.
Reuter
Opinber heimsókn Gorbatsjovs Sovétforseta til Japans:
Gæti þurft að láta
land fyrir fjármagn
„Þetta er ferð sem á að borga sig.
Allir vona að Japanir taki ákvörðun
um að fjárfesta í Sovétríkjunum,“ er
haft eftir einum nánasta samstarfs-
manni Mikhails Gorbatsjov Sovét-
forseta. Hann kemur til Japans á
morgun í fyrstu opinberu heimsókn
leiðtoga Sovétríkjanna þangað.
Töluverð spenna ríkir vegna heim-
sóknarinnar því Gorbatsjov er mikið
í mun að rétta við fallandi gengi sitt
bæði heima og erlendis. Það hefur
lengi verið draumur hans að fá Jap-
ani til að íjárfesta í Sovétríkjunum
til að stöðva samdráttinn í efna-
hagslífinu.
Astandið er orðið slíkt að Gor-
batsjov gæti falhð úr embætti á
næstu mánuðum vegna vaxandi ólgu
heima fyrir. Honum er því mikið í
mun að ná góðum samningum í Jap-
an þar sem fjármagn er mikið og
tækniþekking á háu stigi.
Til að þetta megi takast getur Gor-
batsjov þurft að færa fórnir. Einkum
hafa Japanir hug á að fá aftur fjórar
smáeyjar í Kúrileyjaklasanum. Þær
hafa verið þrætuepli ríkjanna allt frá
stríðslokum og hafa Sovétmenn ekki
ljáð máls á að skila þeim og raunar
neitað að ræða málið þar til nú'í síð-
ustu viku að þeir viðurkenndu að
ástæða væri th að ræða það.
Þetta er fyrst og fremst tilfinninga-
mál fyrir Japani. Stjórn landsins
hefur sagt að ekki komi til greina að
ræða um fjárfestingar í Sovétríkjun-
um meðan Sovétmenn ráði eyjunum.
Því er ekki ólíklegt að Gorbatsjov
ákveði að skha eyjunum til að ávinna
sér vinsældir í Japan og fá að launum
fjármagn til uppbyggingar heima.
Gorbatsjov er ahs ekki vinsæll í
Japan. Þar hafa fjölmargir hópar
hægrisinna haft í hótunum um að
láta til sín taka við heimsóknina.
Lögreglan hefur því mikinn við-
búnað og er tahð að skipulagning á
heimsókn erlends þjóðhöfðingja hafi
aldrei verið hóknari né kostað svo
mikið.
Heima í Sovétríkjunum leggja
harðlínumenn mikla áherslu á að
Gorbatsjov láti ekki sovéskt land af
hendi við Japani. Þeir líta á eftirgjöf
í þessum efnum sem enn eina niður-
læginguna í utanríkismálum því
Sovétmenn hafi allan rétt til eyjanna.
Þeir segja að eyjarnar séu sovéskar
og hafi verið teknar af þegar herveldi
Japana var brotið á bak aftur í stríðs-
lok. Reuter
f anga í Sovét-
ríkjunum
Bandaríkjamenn hafa beðið
Sovétmenn að grennslast fyrir
um hvort nokkrir bandarískir
stríðsfangar séu þar í landi. Hér
er átt við fanga sem ef til vill
hafa Ient í höndum Sovétmanna
í síöariheimsstyrjöldinni, Kóreu-
stríðinu eða Víetnamstríðinu.
Bandaríkjamenn segjast ekki
vita hvort einhverjir stríðsfangar
séu í Sovétríkjunum. Það eru
einkum hermenn úr Víetnam-
stríðinu sem gætu verið í Sovét-
ríkjunum.
Reuter
FRAMBJOÐENDURIREYKJAVIK
SITJA FYRIR SVÖRUM
virka daga frá kl. 16.30-18.00 að Laugavegi
17, 2. hæð, sími 622908 - 620277
Allir velkomnir
FERMIIMGARTILBOD
œ
I ^fl
/ Ijfll jjjw•'
ISíl llfflhlm l, .l.J 1 fkVJl;.:L.h„,ll f- I j li.vl ÍÍBiÍSÍÍiá
xWHSéMb^ XEáíi&S
Fermingargjöf - með Iramtíðina í huga
FERMINGARTILBOÐ Verð er miðað við
Allir vilja gefa góða fermingargjöf, en
það er enginn leikur að hitfa á einu
réttu gjöfina. Það er hins vegar auðvelt
að finna gjöf sem sameinar ótrúlegt
notagildi, þroskar einstaklinginn og hef-
ur jákvæð áhrif á nám og starf um alla
framtíð. Og það sem meira er- ótrúlega
mörg fermingarbörn langar einmitt að fá
slíka gjöf!
VICT0R VPCIIc 30 VGA kr.
VICT0R V86p 20 MB ferðatölva kr.
VICT0R V286M 40 VGA kr.
Mannesmann Tally MT 81 prentari kr.
TA100 Gabriele skólaritvél kr.
LetterPerfect ritvinnsluforrit kr.
DrawPerfect teikniforrit kr.
Microsoft Entertainment Pack kr.
Windows 3.0 uppfærsla kr.
staðgreiðslu.
109.000,-
129.000,-
169.000,-
16.900,-
19.800, -
16.900, -
29.900, -
4.900,-
9.800, -
Victor VPC tölva - Mannesmann Tally prentari - TA Gabriel 100 skólaritvél.
Vandaður búnaður frá viðurkenndum framleiðendum. Gjafir sem fylgja fermingar-
barninu langt, langt inn í framtíðina.
Fermingartilboð sem vert er að kynna sér!
EinarJ. Skúlasonhf.
Grensásvegi 10, sími 686933