Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Side 15
15
MÁNÚDAGUR 15. APRÍL 1991.
Málefni aldraðra:
H vað vilja sjálfstæðismenn gera?
Rikisstjórnin hefur staðið fyrir breytingu á lögum þannig að nú greiða
aldraðir sjúklingar einnig fyrir vist sina á stofnunum.
íslendingar lifa nú lengur en íbú-
ar flestra annarra landa og með ári
hveiju fjölgar ellilífeyrisþegum hér
á landi. Öll viljum við fá að njóta
öryggis og góðs atlætis á ævikvöldi
og þess vegna þarf að íhuga hvern-
ig það verður tryggt. Samtök og
félög eldri borgara hafa unnið mjög
gott starf í því að benda á hvar
þörfin sé mest á úrbótum í málefn-
um aldraðra.
Þjónusta við sjúka
Að mörgu þarf að huga en brýn-
ust virðist þó þörfin fyrir fleiri
hjúkrunarheimili ásamt eflingu
heimaþjónustu um land allt. Þótt
margt hafi verið vel gert fyrir þá
aldraða, sem heilbrigðir eru, þá
þarf að gera betur gagnvart þeim
sem sjúkir eru og þurfa á ýmissi
umönnun að halda.
Stjómvöld þurfa að raöa málum
í forgangsröð með tilliti til þessa
og beina fjármunum, sem eru til
ráðstöfunar, þangað sem þörfin er
brýnust.
Skilningsleysi stjórnvalda
Auðvitað þarf að gæta aðhalds
við þennan sameiginlega sjóð okk-
ar allra, ríkissjóð, en það hefur þó
komið fyrir að fjárframlög til þessa
málaflokks, sem snertir málefni
aldraðra, hafa alls ekki farið til
hans í raun. T.d. var lögum um
framkvæmdasjóð aldraðra breytt
núna í þinglok þannig að fjármagn
sjóðsins var skert, þar sem sjóðn-
um voru falin ný verkefni án þess
að tekjurnar væru auknar. - Sjálf-
stæðismenn voru á móti þessu
frumvarpi en stjórnaraðilar höfðu
sitt fram.
Svipuð áform koma fram í því að
teknar voru 370 milljónir í gegnum
Kjallariim
Sólveig Pétursdóttir
alþingismaður
og skipar 6. sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík
staðgreiðslukerfið, sem upphaflega
voru ætlaðar þessum sjóði, til al-
mennra þarfa ríkissjóðs. Þá hefur
ríkisstjórnin staðið fyrir breyting-
um á lögum um málefni aldraðra
þannig að nú greiða aldraðir sjúkl-
ingar einnig fyrir vist sína á stofn-
unum. Samkvæmt lögunum hefur
því sá hópur aldraðra, sem ætlað
er að greiða dvalarkostnað sinn á
stofnunum, stækkað talsvert.
Vandséð er hvaða rök geta rétt-
lætt þá ráðstöfun að fólk, sem hefur
tekjur umfram bætur frá Trygg-
ingastofnun ríkisins vegna sparn-
aðar, sem það hefur ástundað alla
sína starfsævi, skuli þurfa að sjá
eftir þeim sparnaði til ríkisins þeg-
ar það sest í helgan stein. Þess má
einnig geta að skattalögum hefur
ekki verið breytt vegna vistar
manna á stofnunum og skattfrels-
ismörk hafa þar að auki verið
lækkuð í tíð núverandi ríkisstjórn-
ar.
Tína mætti til fleiri dæmi til að
sýna skilningsleysi stjórnvalda á
málefnum aldraðra og á þar ekki
síst við aðild Framsóknarflokksins
að þessum málum, sem ber ábyrgð
á þeim og fer með heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið. Enn-
fremur er rétt að geta þess að Reyk-
víkingar hafa ekki setið við sama
borð og aðrir landsmenn hvað
þennan málaflokk varðar.
Þetta vilja sjálfstæðismenn
gera!
Sjálfstæðismenn hafa mótað
skýra stefnu í málefnum aldraöra
og í stuttri samantekt eru helstu
atriöi hennar eftirfarandi:
Efla þarf heimaþjónustu um land
allt, bæði heimilishjálp og heima-
hjúkrun. Áfram skal haldið upp-
byggingu húsnæðis fyrir aldraða,
bæði vist- og hjúkrunarheimila, og
beina flármunum til ráðstöfunar
þangað sem þörfin er brýnust.
Huga þarf sérstaklega að samvinnu
sveitarfélaga við uppbyggingu
öldrunarþjónustu.
Endurskoða þarf menntunar- og
launamál heilþrigðisstétta og ann-
arra, sem í öldrunarþjónustu
starfa, til að auðvelda mönnun við
heimaþjÓQUstu og á öldrunarstofn-
unum. Gefa skal einstaklingum,
fyrirtækjum og félagasamtökum
kost á því að annast þjónustu við
aldraöa með það fyrir augum að
þjónustan verði betri, skilvirkari
og ódýrari.
Tryggja þarf stööugt framboð á
íbúðum fyrir aldraða og að íbúðum,
sem seldar eru sem sérhannaðar
íbúðir fyrir aldraða, fylgi aðgangur
að þjónustuhúsnæöi.
Nauðsynlegt er að endurskoða
lífeyrisréttindi einstaklinga, sem
og hjóna, og þá sérstaklega tengsl
lífeyrissjóða, almannatrygginga og
skattlagningar. Leiðrétta þarf
ýmiss konar mismun, sem nú við-
gengst, sérstaklega þarf að létta
skattbyrði aldraöra vegna eigna-
skatta og fasteignaskatta.
Nauðsynlegt er aö skipa nefndir
í öllum bæjar- og sveitarfélögum
er hafa málefni eldri borgara að
verkefni. Við skipulag íbúðar-
svæða verði tekið fullt tillit til þarfa
aldraðra og fræðsla um réttindi
þeirra verði aukin.
Með þetta að leiðarljósi vilja sjálf-
stæðismenn mæta þörfum þeirra
sem lokið hafa löngu dagsverki og
stuðla markvisst að því að þeir
megi njóta áhyggjulauss ævi-
kvölds.
Sólveig Pétursdóttir
„Nauðsynlegt er að endurskoða lífeyr-
isréttindi einstaklinga, sem og hjóna,
og þá sérstaklega tengsl lífeyrissjóða,
almannatrygginga og skattlagningar.“
Kosningar - og hvað svo?
Rikisstjórn Steingrims Hermannssonar. - Steingrímur viröist aðeins
þurta að skipta pólitísku þrotabúi forystumanna Borgaraflokksins til að
halda áfram sem forsætisráðherra í þeirri ríkisstjórn sem mynduð var
á haustdögum 1988, segir hér m.a.
Lesandi góður. Það er nú ljóst að
Borgaraflokkurinn, sigurvegarinn
í síðustu alþingiskosningum, náði
ekki að bjóða fram undir eigin
nafni eða listabókstaf. Eftirspurnin
eftir pólitískum vinnubrögðum for-
ystumanna þess flokks er svo lítil
að ekki var einu sinni hægt aö fá
hörðustu stuðningsmenn til að
leggja nafn sitt við þau.
Þá var brugðið á þaö ráð að fá
ævintýramenn utan flokksins,
mest þekkta vinstrimenn, í fram-
boð með flokksforustunni undir
nýjum listabókstaf, nýju flokks-
heiti og án stefnuskrár. Til ráðstöf-
unar eru á milli 30 og 40 milljónir
króna af almannafé til að auglýsa
þaö ævintýri. En það verða fimm
stjómmálaöfl sem ráða rúmlega 60
þingsætum, líklegast öllum 63 að
loknum kosningum. - Það eru Al-
þýðuflokkur, Framsóknarflokkur,
Sjálfstæðisflokkur, Alþýðubanda-
lag og Kvennalisti.
Kratar og Framsókn
Alþýðuflokkurinn hefur á und-
anfómum 20 árum fengið um 10%
atkvæða þegar illa gengur. Þannig
fór 1971, 1974 og 1983. Flokkurinn
fær um 20% atkvæða þegar vel
gengur eins og fór í kosningunum
1978 og 1979. I kosningunum 1987
fékk flokkurinn um 15% atkvæða.
Uppgangur Borgaraflokksins í
þeim kosningum varð til þess að
hann náði ekki 20% þá. í dag eru
bestu hugsanlegu aðstæður fyrir
Alþýðuflokkinn að vinna sigur,
aðrar en þær að flokkurinn er í
ríkisstjóm. Vinni Alþýðuflokkur-
inn ekki töluvert góðan sigur, og
fái um 20% atkvæða þá er það póli-
tískt slys hjá flokknum. - Alþýðu-
flokkurinn verður pólitísk rusla-
tunna í komandi kosningum fyrir
ótrúlega marga.
Kjallariim
Brynjólfur Jónsson
hagfræöingur
Framsóknarflokkurinn hefur á
síðustu 20 árum fengið milli 15 og
20% atkvæða þegar illa gengur.
Þannig fór 1978,1983 og 1987. Þegar
vel gengur hefur Framsókn fengið
um 25% atkvæða. Þannig fór 1971
og 1979. Framsóknarflokkurinn fer
ekki illa út úr þessum kosningum,
það er ljóst, fær trúlegast um 20%
atkvæða og gæti jafnvel unnið
nokkur á frá síðustu kosningum.
Sjálfstæðisflokkurinn
Sjálfstæðisflokkurinn hefur á
síðustu 20 árum fengið á milli 30
Og 40% fylgis með tveim undan-
tekningum. Flokkurinn fékk um
27% í síðustu kosningum, vegna
framboðs Borgaraflokksins, og
hann fékk 43% fylgi í alþingiskosn-
ingunum 1974. Sjálfstæðisflokkur-
inn kemur til með að auka fylgi
sitt mest allra flokka í komandi
kosningum. Fylgi Sjálfstæðis-
flokksins hefur sveiflast mikið í
skoöanakönnunum á þessu kjör-
tímabili og staðfestir það þá miklu
ólgu sem er undir yfirborðinu í ís-
lenskum stjprnmálum í dag.
Það er ekkert óeðlilegt þótt Sjálf-
stæðisflokkurinn fái um 40% fylgi
í komandi kosningum, og bætti við
sig um 7 þingmönnum, í ljósi þess
aö Borgaraflokkurinn er ekki með.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur þó
undantekningarlaust ofmetið
stöðu sína og styrk fyrir alþingis-
kosningar en verður samt stærsti
sigurvegari kosninganna.
Alþýðubandalag og
Kvennalisti
Alþýðubandalagið var flokkur
sem hafði um eða tæplega 20% fylgi
í alþingiskosningunum 1971, 1974,
19787*1979 og 1983. í kosningunum
1987 fékk flokkurinn um 13% fylgi
sem er langversta útkoma flokks-
ins. íslendingum er að verða það
ljóst að hamar og sigð eru áhöld
sem ekki passa okkar framtíð. Al-
þýðubandalagið vinnur ekki á í
kosningunum, og tapar heldur ekki
miklu.
Fylgi Kvennalistans hefur sveifl-
ast mikið í skoðanakönnunum á
þessu kjörtímabili. Flokkurinn
fékk um 5% atkvæða í kosningun-
um 1983 sem voru hanns fyrstu
kosningar. í síðustu kosningum
fékk hann hins vegar um 10% fylgi.
Líklegast er að Kvennalistinn tapi
nokkru í þessum kosningum. Skoð-
anakannanir benda mjög eindregið
til þess. Trúlegt er að flokkurinn
fái um 5% fylgi og missi um helm-
ing þingsæta sinna.
Óbreytt ríkisstjórn
Það verð'ur mikið af auðum at-
kvæðaseðlum í kjörkössunum
þrátt fyrir öll framboðin og það
verður mörg atkvæði sem falla
dauð og ómerk á hina margvíslegu
smáflokka. Jafnframt má gera ráð
fyrir slakri kjörsókn. Það er afleið-
ing þess að það hefur ekki verið
nein pólitísk stemning fyrir þessar
kosningar, kosningabaráttan stutt,
og mjög margir óákveðnir. Gangi
þetta eftir í stórum dráttum færast
um 11 þingsæti milli flokka. Borg-
araflokkur tapar sjö, Kvennalisti
um þrem og Samtök um jafnrétti
og félagshyggju einu.
Framsóknarflokkur, Alþýðu-
flokkur og Alþýðubandalag mynda
núverandi ríkisstjórn, ásamt
stjórnmálaafli sem býður ekki
fram. Ríkisstjórnarflokkarnir
þurfa ekki að vinna nema eitt af
þessum 11 þingsætum til að fá
hreinan meirihluta á Alþingi. Það
verðu að teljast afar líklegt. Fari
svo, þá á Steingrímur Hermanns-
son leik. Hann er þá sitjandi for-
sætisráðherra í ríkisstjórn sem
nýtur meirihlutastuðnings á Al-
þingi!
Lesandi góður. Steingrímur Her-
mannsson virðist aðeins þurfa aö
skipta pólitísku þrotabúi forystu-
manna Borgaraflokksins að lokn-
um kosningum til að halda áfram
sem forstætisráðherra í þeirri rík-
isstjórn sem hann myndaði á
haustdögum 1988.
Brynjólfur Jónsson
„Það verður mikið af auðum atkvæða-
seðlum í kjörkössunum þrátt fyrir öll
framboðin og það verða mörg atkvæði
sem falla dauð og ómerk á hina marg-
víslegu smáflokka.“