Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Side 23
MÁNUDAGUR 1S. APRÍL 1991/1'
23 fj
dv Fréttir
Saltfiskurinn:
Frjáls út-
f lutningur til
Ameríku
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra hefur gefið saltfiskút-
flutning til Bandaríkjanna og allra
landa Mið- og Suður-Ameríku frjáls-
an. Fram til þessa hefur Samband
íslenskra fiskframleiðenda haft
einkaleyfi á öllum saltfiskútflutn-
ingi. Sambandið heldur áfram einka-
leyfi sínu á saltfiskútflutningi til
Evrópulanda.
Jón Baldvin sagði á blaðamanna-
fundi að SÍF myndi halda einkaleyfi
sínu til Evrópu þar til samningar
hefðu tekist við Evrópubandalagið
um evrópska efnahagssvæðið. Þegar
þeir samningar væru í höfn yrði út-
flutningurinn til Evrópu líka gefinn
frjáls. Hann sagðist hafa greint forr-
áðamönnum SÍF frá því í október
síðastliðnum að þeir skyldu hta á
tímann fram að því sem aðlögunar-
tíma.
Varðandi saltfiskútflutning til Am-
eríkulanda má nefna það að allnokk-
uð var flutt þangað af saltfiski frá
íslandi fyrir mörgum árum. Nú hin
síðari ár hefur lítið sem ekkert verið
flutt til Suður-Ameríkulandanna.
Ástæðan er fyrst og fremst sú að
veröið er svo lágt
Nú er aftur á móti talið að í Banda-
ríkjunum sé að opnast markaður fyr-
ir saltfisk á góðu verði vegna þess
hve margir innflytjendur frá Mið- og
Suður-Ameríku hafa sest að í Banda-
ríkjunum.
Reglur þær sem útflytjendum salt-
fisks til Ameríkulanda eru settar eru
mjög strangar. Meðal annars er
heimilt að setja lágmarksmörk eig-
infjárstöðu útflytjenda og í upphafi
verður miðað við 25 prósent eigin-
ijárstöðu. Þá eru söluverð og sölu-
skilmálar háðir samþykki ráðuneyt-
isins. -S.dór
Búðahreppur:
Rekstrarafkom-
an mun betri
Ægir Kristmsson, DV, Fáskrúðsfirði:
Hreppsnefnd Búðahrepps sam-
þykkti nýlega flárhagsáætlun fyrir
árið 1991 á fundi sínum og auk þess
áætlun fyrir næstu þrjú árin. Heild-
artekjur sveitarfélagsins í ár eru
áætlaðar rúmlega 103 milljónir
króna og gjöld 77,5 milljónir.
í máh sveitarstjóra kom fram að
rekstrarafkoma Búðahrepps 1990
hefði verið mun betri en árin á und-
an. Búðahreppur hefur ekki fyrr
lækkað skuldastöðu sína frá 1984.
Helstu útgjaldahðir nú eru félags-
þjónusta 12 milljónir króna, yfir-
stjórn sveitarfélagsins 11 milljónir
og fræðslumál 11 milljónir. Áætlað
er að greiða niður skuldir um 12,4
milljónir og til fjárfestinga eru áætl-
aðar 18 milljónir.
Helstu framkvæmdir 1991 eru
gatnagerð 7,2 milljónir, endurbygg-
ing ráðhúss 7,2 milljónir og til ný-
byggingar íþróttahúss 3,1 milljón.
Opinn fundur á Seltjarnarnesi 15. apríl
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjaneskjördæmi heldur opinn fund
í Félagsheimili Seltjarnarness, mánudaginn 15. apríl kl. 20:30.
Frummælendur á fundinum verða þau María Ingvadóttir,
* /
Olafur G. Einarsson og Arni M. Mathiesen.
/
Skattar eru of háir á Islandi. Láttu hug þinn í ljós
oa komdu á fundinn.
Sjálfstæðisflokkurinn
- viá erum framtíáin
Skýr stefna
lægri skattar
CTnDi^noTi cn
FERÐAVINNINGUR NR. 1 DREGINN ÚT 19. APRÍL
VIÐ DRÖGUM EFTIR 4 DAGA!
ERT ÞÚ ÖRUGGLEGA ORÐINN ÁSKRIFANDI?
SÍMI27022 0G 99-6270 (GRÆNISÍMINN)