Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Page 29
___________Stjómmál Framboðslistar við alþingis- kosningarnarí Vesturlands- kjördæmi A-listi Alþýöuflokks - Jafn- aöarmannaflokks íslands: 1. EiöurGuönason alþingismaður 2. Gísli S. Einarsson verkstjóri 3. Sveinn ÞórElinbergsson kennari 4. Guðrún Konný Pálmadóttir oddvnti 5. Ingibjörg J. Ingólfsdóttir bankamaöur B-listi Framsóknarflokks: 1. IngibjörgPálmadóttir hjúkrunarfræöingur 2. Sigurður Þórólfsson bóndi 3. RagnarÞorgeirsson iðnreksti’arfræðingur 4. Stefán Jóhann Sigurðsson svæðisstjóri 5. GerðurK. Guðnadóttir húsmóðir D-listi Sjálfstæðisflokks: 1. Stm'la Böðvarsson bæjarstjóri 2. Guðjón Guðmundsson skrifstofústjóri 3. ElinbjörgMagnúsdóttir fiskvinnslukona 4. Sigurður Rúnar Friðjónsson mjólkurbusstjóri 5. SigrúnSímonardóttir tryggingafulltrúi F-listi Frjálslyndra: 1. Arnór Pétursson fulltx'úi 2. HelgaM. Kristjánsdóttir sölumaöur/afgreiöslustúlka 3. RíkharðurRíkharðsson verkamaður 4. Una Jóhannesdóttir kennari/húsmóðir 5. DíanaDröfnÓlafsdóttir húsmóðir G-listi Alþýöubandalags: 1. JóhannÁrsælsson skipasmiður 2. Ragnar Elbergsson oddviti 3. Bergþóra Gísladóttir sérkennslufulltrúi 4. ÁmiE. Albertsson skrii'stofumaður 5. Ríkharð Btynjólfsson kennari H-listi Heima- stjórnarsamtakanna: 1. Þórir Jónsson oddviti 2. Birgir Karlsson skólastjóri 3. Sveinn Gestsson bóndi 4. Ólafur Jennasonbifvélavirki 5. Helgi Lcifssonfiskmatsmaöúr V-listi Samtaka umkvennalista: 1. DanfríðurKristín Skarphéðinsdóttir þingkona 2. SnjólaugGuðmundsdóttir húsmóðir 3. Inira Kristin Magnúsdóttir bóndi 4. Sigrún Jóhannesdóttir kennari 5. HelgaGunnarsdóttir ; félagsráðgjafi Þ-listi Þjóðarflokks - Ffokks mannsins: 1. Iielga Gísladóttir kennari 2. Sigrún Halliwell Jónsdóttir húsmóðir 3. ÞorgrímurE. Guðbjartsson :; búfræðingur■ 4. Þóra Gmmarsdóttir húsmóðir 5. Svcinn Víkingm- Þórarinsson kcnnari MÁNUDAGUR 15. APRÍL 1991. mörgum mikilvægum málum í gegn á undanfórnum árum. „Viö höfum aukið nýtingu orkuvera, aukið at- hafnafrelsi og tekið þátt í gerð tíma- bærrar þjóðarsáttar. Auk þess höf- um við starfað með samstarfsþjóðum okkar í EFTA að undirbúningi samn- inga um markaði fyrir íslenskar af- urðir í hinu evrópska efnahags- svæði.“ Sveinn Þór sagði að homsteinar í landsstjóm næstu fjögurra ára væru þeir að standa vörð um þann árangur sem náðst hefur í efnahagsmálum og atvinnulífi. Veita þurfi atvinnulíf- inu framrás með eflingu nýrra þjón- ustugreina, nýtingu fallvatna tU efl- ingar stóriðju og stuðla þurfi að nýrri umgjörð launastefnu næstu ára. Þjóðarsátt verði að halda áfram og sérstakt tillit verði tekið til þeirra fóma sem launafólk hefur tekið á sig. Breyta þurfi skattkerfinu til jöfn- unar lífskjara og kaupmáttaraukn- ingar. Samræma þurfi lífeyrissjóða- kerfi landsmanna. Bæta þurfi sam- göngur til að efla byggðakjarna. Sveinn Þór sagði að jöfnun hús- hitunarkostnaðar væri mjög mikil- vægt mál. „Tillögur Alþýðuflokksins um þetta mál voru stöðvaðar á síð- ustu dögum þingsins og það er mjög brýnt að slíkur jöfnuður komist á.“ Lágmarkslaun aldrei undir skattleysismörkum Af hálfu Þ-lista, Þjóðarflokks - Flokks mannsins, talaði Helga Gísla- dóttir. Hún sagði að aðaláherslumál Þ-listans tengdust lífsgæðum, frelsi og þátttöku einstaklingsins, sjálf- stæði þjóðarinnar og ábyrgð stjóm- málamanna. „Það er grundvallaratriði að skatt- leysismörk verði hækkuð' og lág- markslaun verði aldrei undir þeim mörkum. Til að ná niður vöruverði verði virðisaukaskattur afnuminn af matvörum og öðrum nauðsynjavör- um. Til að lækka vexti og halda niðri verðbóglunni viljum við tafarlaust stöðva erlendar og innlendar lántök- ur ríkissjóðs.“ Helga sagði að stofna ætti sérstakar stjómsýslueiningar landshluta sem hefðu ákvörðunarvald um sameigin- legar framkvæmdir og þjónustu. Lög þurfi að setja til að fyrirbyggja hringamyndanir og með þeirri þróun sem er í dag sé að myndast greið leið fyrir erlend stórfyrirtæki að kaupa landið eins og það leggur sig. Helga sagði að þjóðin þurfi nýja stjórnar- skrá. „Hún má ekki vera eitthvert nítjándu aldar danskt tylhdagaplagg eins og hún er í dag, heldur tákn um vilja og von þjóðarinnar komandi kynslóðum til handa.“ Stjómmálamenn þurfi að hætta öllu bruðh til að almenningur geti borið virðingu fyrir þeim. „Þeir þurfa að hætta utanlandsferðaóráðs- íu og dagpeningasukki og fara að haga sér eins og fulltrúar fólksins.“ Ótakmarkaðar veiðiheimildir báta undir 5 tonnum Þórir Jónsson, 1. maður á lista Heimastjórnarsamtakanna, H-list- ans, talaði fyrir hönd þess lista. Hann sagði að koma verði í veg fyrir að hægt sé að selja lífæð byggðarlaga sem er þeir kvótar sem skipin hafa. „Aðgangur að auðlind þjóðarinnar gengur nú kaupum og sölu og það getur kippt stoðum undan byggðar- lögum.“ Þórir sagði að það væri réttlætan- legt að bátar undir 5 tonnum fái ótak- markaðar veiðiheimildir og það mætti ekki láta ofstjórn í fiskveiðum drepa niðpr sjálfskaparviðleitni sjó- manna. „Við viljum byggðakvóta til að tryggja byggðum aðgang að haf- inu til að aldrei verði um það að ræða að byggðir leggist í auðn vegna þess að aðgangur að hafinu hefur verið seldur.“ Þórir sagði að H-listinn væri á móti miðstýringu og stefndi að auknu lýðræði og heimastjórn byggðanna. „Fjórflokkurinn hefur komist að samkomulagi um hvernig stólar embættismannakerfisins eiga að skiptast. Þess vegna vilja þeir ekki breyta neinu því þá missa þeir völd.“ Þórir sagði að H-hstinn vildi taka til endurskoðunar bæði landbúnað- armál og sjávarútvegsmál en skapa þurfi ný atvinnutækifæri. Stjórn- sýsla flytjist til byggðarlaganna og þróa eigi landshlutasamtök sem geymi eigið aflafé en það fari ekki til Reykjavíkur. Ennfremur sagði hann að H-listinn væri á móti álveri og að það væri ekki lausn á atvinnuvanda þjóðarinnar. Fyrirspurnir Fyrirspumir voru nokkrar og þá svöruðu efstu menn listanna. Fyrst svaraði Ingibjörg Pálmadótt- ir fyrir Framsóknarflokk fyrirspurn um hvort afstaða Framsóknar til EB sé „kosningatrix". Ingibjörg spurði hvort menn hefðu ekkert fylgst með og bað menn að muna að EB er á dagskrá og að það verði kosið um það. Um fyrirspurn varðandi jöfnun orkukostnaðar sagði Ingibjörg að hún skildi ekki hvernig þingið gat lokið störfum án þess að afgreiöa það mál. Fyrirspurn kom um hvers virði störf fiskvinnslufólks væru fyrir þjóðarbúið. Ingibjörg sagði að þau væra ómetanleg. „En þau eru ekki metin að verðleikum, það er ábyggi- legt.“ Fyrirspurn kom til Fijálslyndra um hvort F-listinn væri hægra fram- boð eins og Júlíus Sólnes heíði sagt. Arnór Pétursson svaraði því neit- andi. „Fannst fyrirspyrjanda hér í kvöld að þetta væri hægra framboð? Telji Júlíus Sólnes þetta vera hægra framboð verð ég að efast um lestrar- kunnáttu hans eða þá að hann hefur ekki lesið stefnuskrána nógu vel.“ Varðandi fyrirspum um störf fisk- vinnslufólks sagði Arnór að þau störf væru aðalhornsteinn þjóðfélagsins og stefna yrði að því að hætt verði að flytja út hálfunnar vörur. Sturla Böðvarsson svaraði fyrir- spum fyrir Sjálfstæðisflokkinn varð- andi jöfnun orkuverðs þannig að það hefði valdiö miklum vonbrigðum að það mál hefði ekki náðst í gegn fyrir þinglok. Sjálfstæðisflokkurinn vildi jafna orkuverð með því að Lands- virkjun lækki raforkuverð til hús- hitunar þannig að greiðslur sem fara beint í ríkissjóð yrðu notaðar til nið- urgreiðslu húshitunarkostnaðar. Sturla svaraði fyrirspurn um hvers virði störf fiskvinnslufólks væru á þann veg, aö það að flokkurinn hefði fiskvinnslukonu í þriðja sæti sýndi hversu mikil áhersla væri lögð á mikilvægi þeirra starfa. Fyrirspurn kom um aldamótaskýrslu Sjálfstæð- isflpkksins og hvort stefnan væri sú að ísland væri gengið í EB árið 2000. „Ég held að þessi maður hafi ekki lesið skýrsluna því þetta stendur hvergi. Sjálfstæðisflokkurinn sættir sig ekki við að ganga í EB og sættir sig ekki við Rómarsáttmálann." Ragnar Elbergsson svaraði fyrir- spurn um mikilvægi starfa fisk- vinnslufólks fyrir Alþýðubandalag- ið. „Svar Sturlu Böðvarssonar er bill- egt. Ég gæti svarað þannig að ég er fiskvinnslumaður og ég er í öðru sæti!“ Danfríður Skarphéðinsdóttir ságði að fiskvinnslan væri borin uppi af konum og því væru þau störf afar mikilvæg. Eiður Guðnason svaraði fyrir- spum um EB þannig að það væri ódrengilegt af Steingrími Hermanns- syni að segja núna að kosið yrði um EB. „En Framsóknarflokkurinn er svona, hann er eins og kameljón og skiptir litum eftir því með hverjum hann er í stjórn. Ef hann er með Al- þýðuflokknum er hann pínulítið rauður, ef hann er með íhaldinu er hann pínulítið blár. En ef ljósinu er beint að honum þá er enginn litur! Guðmundur Bjarnason sagði í út- varpinu að frambjóðendur Fram- sóknarflokksins hefðu farið í lit- greiningu. Ég get svarið það að ég trúði ekki mínum eigin eyrum! Svo voru þeim gefin einhver nöfn, sum- ardúlla eða eitthvað svoleiðis. En sjálfsagt kom enginn litur út úr þess- ari litgreiningu!“. Þessi lokaorð Eiðs vöku mikla hrifningu og hlátur í salnum og létti aðeins yfir mönnum. Danfríður Skarphéðinsdóttir, Kvennalista. Það var fjölmenni á sameiginlegum framboðsfundi í Ólafsvík. Fundurinn var þó tiltölulega rólegur en nokkur hiti var í mönnum. DV-myndir GVA Sturla Böðvarsson, Sjálfstæðis- flokki. Eiður Guðnason, Alþýðuflokki. Þórir Jónsson, Heimastjórnarsam- tökum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.