Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Síða 41
MÁNUDAGUR 15. APRÍL 1991.
57
„Sem dæmi um þá skattaáþján sem á borgarbúa er lögð þá hækkaði
fasteignamat um 12% á síðasta ári.“
Hvernig forystu
vilt þú að af lokn-
um kosningum?
Þegar gengið er að kjörborðinu
er margt sem þarf að íhuga. Æ al-
gengara er að fólk taki afstöðu til
manna en ekki flokka og ekki heyr-
um við ósjaldan stjómmálamenn-
ina tala um að það eigi að láta verk-
in tala, dæma menn af framlagi
þeirra til þjóðmálanna. En þar með
hljótum við að íhuga hvert raun-
verulegt framlag stjómmálamanna
og flokka er til þjóðfélagsins. Við
hljótum líka að íhuga hvaða úrræði
stjórnmálamenn og flokkar hafa
fram að færa.
Við höfum reynslu af forystu
Sjálfstæðisflokks í borginni. Ef við
spyijum okkur sjálf í einlægni
hvort við séum ánægð með þá
stjóm þá hljóta margir hópar aö
svara því neitandi. Við hljótum að
líta til þeirra félagslegu úrræða
sem okkur er boðið upp á. Er til
dæmis einhver ánægður með stöð-
una í dagvistarmálum hér í borg-
inni? Ekki get ég svarað þeirri
KjaUarinn
L
Anna Margrét
Valgeirsdóttir
nemi í félagsfræði i HÍ.
Er í 5. sæti á lista Framsóknar
flokksins í Reykjavík
„Á síðustu þremur árum hefur fast-
eignamat hækkað um 69,2%, á sama
tíma hefur framfærsluvísitalan hækk-
að um 36,1%.“
spumingu játandi. Er einhver
ánægður með hvemig staðið er að
umönnun aldraðra hér í borg? Því
get ég ekki heldur svarað játandi.
Eru menn ánægöir með aö reist eru
steinsteypuminnismerki hér um
alla borg? Enn er svar mitt nei.
Aðstöðujöfnun í
gegnum skattakerfið
Lítum þá til þeirrar forystu sem
við höfum haft undanfarin þijú ár
í ríkisstjóm. Undir forystu Fram-
sóknarflokksins með Steingrím
Hermannsson í fararbroddi hefur
náðst undraverður árangur. Fyrir
þremur árum, þegar Steingrímur
tók við embætti forsætisráðherra,
stefndu útflutningsatvinnuvegirn-
ir í gjaldþrot. Með markvissum
aðgerðum tókst að afstýra þjóðar-
gjaldþroti. í dag búum við við verð-
bólgu sem er aðeins eins stafs tala.
Nokkuö sem ég hef aldrei áður séð
og foreldrar mínir ekki heldur.
Þrátt fyrir að verðbólgan hafi náðst
niður þá hefur tekist að koma í veg
fyrir mikið atvinnuleysi.
Margir utanaðkomandi þættir
hafa áhrif á að slíkur árangur ná-
ist. Það ber ekki síst að þakka laun-
þegum þessa lands því án þeirrar
þjóðarsáttar sem náðist hefðum við
aldrei náð slíkum árangri. Með
stórkostlegri samvinnu við verka-
lýöshreyfmguna var unnt að ná
fram þessum árangri. Nú þegar
tekist hefur að afstýra þjóðargjald-
þroti og undirstöðurnar undir at-
■vinnuvegi okkar hafa verið styrkt-
ar er næsta mál á dagskrá að bæta
kjör þeirra sem minnst mega sín.
Því miður hefur það ekki gengið
sem skyldi með beinum launa-
hækkunum því að þær fara í gegn-
um allan stigann. Önnur leið er fær
en það er með aðstöðujöfnun í
gegnum skattakerfið. Þetta eru mál
sem menn geta snúið sér að nú
þegar verðbólgudraugurinn hefur
verið kveðinn niður.
Framlag borgarstjóra
Hæstvirtur borgarstjóri hreykir
sér jafnan af því að borgin sé vel
rekin og margur horfir til þess að
ríkissjóður verði „eins vel rekinn“
í framtíðinni. Þetta skulum við
hins vegar setja í rétt samhengi.
Tekjustofnar borgarinnar eru gíf-
urlegir. Aðstöðugjöld, sem eru lögð
á fyrirtæki, eru dijúg tekjulind en
það er skattur sem löngu er tíma-
bært að leggja niður. Sem dæmi
um þá skattaáþján sem á borg-
arbúa er lögð þá hækkaði fast-
eignamat um 12% á síðasta ári
Fasteignagjöld miðast að sjálf-
sögðu við fasteignamatið og á tím-
um þjóðarsáttar datt hæstvirtum
borgarstjóra ekki í hug að lækka
fasteignagjaldsprósentuna. Á síð-
ustu þremur árum hefur fasteigna-
mat hækkað um 69,2%, á sama
tíma hefur framfærsluvísitalan
hækkað um 36,1%. Þetta er framlag
borgarstjóra til þjóðarsáttarinnar.
Því hljómar undarlega kór sjálf-
stæðismanna um skattpíningu nú-
verandi ríkisstjómar. En væntan-
lega veitir borgarsjóði ekki af
auknum aurum í sjóði sína til aö
fjármagna steinsteypuminnis-
merki sín.
Anna Margrét Valgeirsdóttir
Hef ðbundin ósannindi í pólitík
Sú almenna hefð virðist ríkja
meðal margra íslenskra stjóm-
málamanna að finna ávallt öllum
andstæðingum sínum allt til for-
áttu, a.m.k. þegar dregur til kosn-
inga. Orð og athafnir stjómarliða
fá fyrirfram ákveðna pakkaaf-
greiðslu meðal andstæðinganna.
Sönginn þekkja allir. Fráfarandi
stjórn er álitin yfirgefa hripleka
þjóðarskútuna og allt er í voða í
kjölfari endalausra meintra mis-
taka. Svartnættið eitt framundan.
Ekki velja stjórnarliðar andstæð-
ingunum betri einkunn. Málefnin
eru látin víkja fyrir flokkaríg. Efn-
isleg rök skipta htlu. Það sem and-
stæðingurinn gerir eða vill gera er
alrangt, jafnvel fyrir það eitt að
hefðin segir svo.
Virðingarleysi
Allir þekkja umtalið um pólitísk-
ar lygar, svik og pretti. Allir þekkja
einnig umræðuna um virðingar-
leysi almennings í garö Alþingis,
þingmanna og annarra pólitíkusa.
En hvað vitum við um viðhorf þess-
ara manna til hins almenna kjó-
sanda?
Ég hef aldrei orðið var við opin-
bera umsögn þeirra í garð kjósenda
á slíkum nótum. En þegar dóm-
greind kjósenda er misboöið með
þeim löngu úreltu leikreglum, sem
áður var lýst, er það ekki dæmi um
botnlaust virðingarleysi? Pólitík-
usar eiga ekki að geta tekið meira
út af virðingarreikningi sínum en
innstæða leyfir. Þeir hafa hins veg-
ar oft tekiö sér yfirdráttarheimild.
Kjósendanna er að stöðva slíkt. Það
er mál að linni.
Dæmi
Föstudaginn 5. apríl sl. birti DV
grein eftir heimilislækninn og
varaborgarfulltrúann Ólaf F.
Magnússon. í greininni kemur m.a.
Kjallariim
Gunnar Ingi Gunnarsson
yfiriæknir á heilsugæslu-
stöðinni í Árbæ
sú efnislega fullyrðing Ólafs fram
að framsóknarmenn hafi stuðlað
að aukinni miðstýringu heilsu-
gæslunnar undir forystu Guð-
mundar Bjarnasonar ráðherra. Að
mínu viti eru hér á ferðinni helber
ósannindi. Þótt ég sé á framboðs-
lista Alþýðuflokksins í Reykjavík
fyrir komandi Alþingiskosningar
og andvígur ýmsu því sem fram-
sóknarmenn hafa gert og vilja gera
þá get ég engan veginn fengið mig
til annars en að mótmæla fölskum
fullyrðingum Ólafs F. Magnússon-
ar.
Staðreyndin er nefnilega sú að í
tíð Guðmundar Bjarnasonar hefur
átt sér stað veruleg valddreifmg við
stjórnun heilsugæslunnar í
Reykjavík. Áður stjórnuðu sjálf-
stæðismenn allri heilsugæslunni á
svæðinu í gegnum eitt apparat,
eina stjóm, án stjórnarsetu starfs-
manna en nú er borginni skipt í
fjögur stjórnsvæði og starfsfólk
hefur fengið fulltrúa í allar stjórn-
irnar. Starfsfólkið í Árbæjarstöð-
inni hefur þegar orðið vitni að
verulegum hagsbótum við þessa
breytingu.
í dæminu hér að ofan er Ólafur
F. Magnússon að skrökva að les-
endum DV. Viö verðum nefnilega
aö álykta að hann skrifi þetta gegn
betri vitund. Ekki viljum við trúa
því að það sé vitundin sem sé ekki
betri. Því þá væri tilfellið enn al-
varlegra.
Menn verða að finna aðrar og
betri leiðir. Ekki verður við það
unað að pólitíkusar haldi við hefð-
inni að bjóða kjósendum ósannindi
í baráttuskyni. Þeim ber að virða
réttmæti þess sem andstæðingur-
inn gerir rétt og vel. Þannig, og
aðeins þannig, geta kjósendur gert
sér raunverulega grein fyrir mis-
munandi útlínum hinna ýmsu
stefnumála, bæöi flokka og manna.
Hver veit nema virðingin komi síð-
ar?
Gunnar Ingi Gunnarsson
„Pólitíkusar eiga ekki aö geta tekið
meira út af virðingarreikningi sínum
en innstæða leyfir. Þeir hafa hins vegar
oft tekið sér yfirdráttarheimild.“
TILBOÐ ÁRSINS
jmJ
-: $ T:\
j
X ■
■
' 1ji ■'
VEGNA HAGSTÆÐRAINNKAUPA
GETUM VIÐ BOÐIÐ
UM 47.000,- KR. VERÐLÆKKUN
Rubin ljós eik, 160 x 200 cm, með náttborðum og dýnum
(spring- eða latexdýnur).
Verð kr. 102.457,- stgr. og lánaverð kr. 109.457,-
Áður kr. 146.355,- stgr. og lánaverð kr. 156.529,-
Dæmi um greiðslumáta:
1) Visa/Euro raðgreiðslur í 2) Munalán í 30 mánuði.
11 mánuði, ca 10.888,- Útborgun 27.364,-, afborgun
hvern mánuð. á mánuði ca 3.500,-
'/zœva,
yr Æ Ji
Grensásvegi 3 0 sími 681144
Umboðsmenn: Austurland: Hólmar hf., Reyðarfirði.
Norðurland: Vörubær, Akureyri. Vestfirðir: Húsgagnaloftið, ísafirði.