Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Blaðsíða 43
MÁNUDAGUR 15. APRÍL 1991.
59
Enn nýjan skatt á sjávarútveg
Tveir frambjóðendur, Guðjón A.
Kristjánsson (Sj., VF.) og Jóhann
Ársælsson (Abl., VL.), rita grein í
Morgunblaðið á skírdag. Þeir kalla
hana „Leið til sátta um stjórn fisk-
veiða“. Daginn áður hafði birst
skoðanakönnun sem sýndi að mik-
ill meirihluti þeirra íslendinga,
sem á annað borð hafa skoðun á
málinu, er fylgiandi núverandi
kvótakerfi sem skástu leiðar til að
stjórna flskveiðum íslendinga.
Frambjóðendur, sem menn hefðu
haldið að óreyndu að væru sinn á
hvorum kanti stjórnmálanna, sam-
einast um það að vilja leggja nýjan
skatt á sjávarútveginn. Þar með er
fyrst og fremst landsbyggðin skatt-
lögð, því að þar eru langflest út-
gerðarfyrirtækin sem borga eiga
skattinn og fiskvinnslan hlýtur að
verða að greiða hærra fiskverð
vegna skattsins.
„Aflagjald“ skal þessi
auðlindaskattur heita
Aflagjald frambjóðendanna er
ekki mjög skýrt skilgreint. Ekki er
það þó veiðileyfagjald heldur lagt á
við löndun. Það skal vera mjög lágt
eða hátt, þó ekki of hátt, en samt
nógu hátt til að mynda nýjan sjóð
undir stjórn Alþingis. Svo skal vera
hátt gjald á suma fiska, einkum ef
þeir eru smáir og lélegir. Það skal
KjaUarinn
Björn Dagbjartsson
formaður sjávarútvegsnefndar
Sjálfstæðisflokksins
lækka þegar skipum fækkar og út-
gerðir fara væntanlega að græöa. -
Skilur nokkur upp né niður í þess-
ari rökfræði?
Með aflagjaldinu'á svo að kaupa
upp og úrelda skip sem valin eru
m.a. með tilliti til atvinnusjónar-
•miða! Sérstök stjórn, sem alþingis-
menn kjósa, á að velja skip til úr-
eldingar og ákveða aflagjaldið eftir
fisktegundum eftir stærð og gæð-
um.
„Bannskrapdagakerfi“
Frambjóðendurnir vilja taka upp
eins konar afbrigði af gamla skrap-
dagakerfmu, sem geflst var upp við
1983, og kalla það banndagakerfi.
Þar verður kapphlaupið í algleym-
ingi og kostnaðurinn sem því fylg-
ir. Menn verða að kaupa stærri,
Svo koma banndagar og enginn
vinna í sjávarplássum. Þingkosna
stjórnin áðurnefnda á svo að
ákveða hvenær og hve lengi á að
skella á banndögum. Þetta halda
frambjóðendurnir að verði leið til
sátta og einfoldunar!
Skattatrú
Nýir skattar á sjávarútveg eru
sérstaklega vinsælir meðal „há-
skólakrata" og margra sem sjá auð
í annars garði. Flestir þeirra vilja
þó innheimta gjald áður en farið
er á sjó. Frambjóðendurnir vilja
nýjan skatt á hvert kíló landaðs
fisks. Vera má að alþýðubandalags-
mönnum á Vesturlandi hugnist sú
tegund byggðaskatts betur.
Hvorugur þessara hópa kenni-
manna treysta „skattmönnum"
ríkissfjórnarinnar til að innheimta
skatta af hagnaði eða með þeim
fjölmörgu leiðum sem fyrir hendi
eru.
Landsfundur Sjálfstæðisflokks-
ins hefur tvisvar í röð hafnað nýrri
skattlagningu á sjávarútveg sem
leið til að stjórna fiskveiðum. Því
verður ekki trúað að vestfirskir
sjálfstæðismenn, fremur en aðrir
sjálfstæðismenn, kjósi skattaleið-
ina.
Björn Dagbjartsson
. r •1 •!
X U •1
fólk
fyrir fólk
KOSNING A
SKRIFSTOFUR
■ Skeifunni 7 91-82115
Reykjavík
Eyrarvegi 9 98-22219
Selfossi
Háholti 28 93-12903
Akranesi
Glerárgötu 26 96-27787
Akureyri
Nýbýlavegi 26 91-45878
Kópavogi
FRJÁLSLYNDIR
„Frambjóðendurnir vilja taka upp eins
konar afbrigði af gamla skrapdagakerf-
inu, sem gefist var upp við 1983, og
kalla það banndagakerfi.“
líka vera hátt meðan skip eru of
mörg og útgerð óhagkvæm, en
öflugri og dýrari skip og „keyra“ á
fullu þá daga sem leyft er að veiða.
L
________________________________Menning
Bíóhöllin - Rándýrið 2: ★★
Rándýrið gengur
laust í Los Angeles
Það hlaut að koma að því að rándýrið, sem eltist við Schwarzenegger
í frumskógum Mið-Ameríku fyrir réttum 4 árum, sneri aftur. Nú er árið
1997 og gríðarleg hitabylgja lamar Los Angeles, utan þau borgarhverfi
er loga í orrustum milli eiturlyflasala og lögreglunnar. Þetta eru flnar
veiðilendur fyrir rándýrið og það blandar sér óspart í illdeilurna’r, slátr-
andi glæponum á báða vegu uns það lendir upp á kant við lögregluna,
með Danny Glover í fararbroddi.
Það er fátt sem kemur á óvart í
þessari stórframleiðslu. Þrátt fyrir
mikinn íburð og mikla tæknilega
færni er eins og það vanti fyllingu
í myndina. Bræðurnir John og Jim
skrifa aftur handritið og sækja
hugmyndir í teiknimyndasögurnar
sem komu í kjölfar fyrstu myndar-
innar en nú er umhverfið orðið svo
umfangsmikið að einföld hug-
myndin hálfkæfist. Myndin er í
raun aðeins ein önnur ofuroibeld-
islöggumyndin með geimveru í
hlutverki andstæðingsins.
Flest spennuatriöin eru vel út
færð og þónokkur betur en það en
heildin er sundurlaus, án nægilegr-
ar uppbyggingar. Lögguliðið býður
ekki upp á neitt nýtt á og þegar það tekur að týna tölunni er lítil eftirsjá
í því. Eitt slíkra atriða er geysigóður bardagi í myrkvaðri neðanjarðarlest
á fullri ferð. Umgjörðin er með því betra sem sést enda hlaut leiktjalda-
smiðurinn frægð fyrir vinnu sína í Blade Runner. Tæknileg atriði eins
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
og kvikmyndataka, klipping og áhættuatriði eru öll yfir meðallagi. Hljóð-
blöndunin var aftur á móti með því ýktasta sem ég hef heyrt. Hljóðbrell-
ur fylgdu nær öllum athöfnum, meira að segja rennandi vökva.
Sem skammtíma afþreying heldur myndin athyglinni allan tímann, en
gæti tekið á taugar þeirra sem eru orðnir langþreyttir á auknu kvik-
myndaoíbeldi (ekki ég). Þeir sem geta harkað af sér munu skemmta sér
bærilega en búist ekki við neinu sambærilegu við fyrstu myndina.
Óþarft trivia: Leiðinlegi fréttamaðurinn sem löggan er alltaf að berja á
er í raun og veru Morton Downey Jr„ óþolandi sjónvarpsspyrill, sem er
alræmdur fyrir hneykslanlega framkomu.
Predator 2 (Band-1990) 108 min.
Handrit: Jim og John Thomas (Predator).
Leikstjóri: Stephen Hopkins (A Dangerous Game, Nightmare 5).
Tónlist: Alan Silvestri (BTTF 1-3,Cocoon).
Leikarar: Danny Glover (Color Purple), Ga;y Busey (Silver Bullet), Ruben Blades,
Maria Conchita Alonso (Touch and Go), Bill Paxton (Aliens), Kevin Peter Hall,
Robert Davi (Licence to Kill), Adam Baldwin (Full Metal Jacket).
Intel 8086/10MHz örgjörvi * 640 KB minni
3,5" drif 720 KB * Stýrikerfi MS-Dos 4,01
VGA skjákort * PC Tools V. 6.0
Prentkapall, stýripinnatengi, hlið- og
raðtengi o.fl.
Aukahlutir:
40 MB harður diskur
kr. 28.225
VGN litskjár
kr. 31.680
aukadrif 5
kr. 8.900
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suöurlandsbraut 16 • Sími 680780
fl//LASER PCtölva
fyrir lærdóm, leik og störf