Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Síða 45
MÁNUDAGUR 15. APRÍL 1991.
61
>v Stjónunál
Glapræði að hafa bara
einkabanka í rekstri
- sagði Júlíus Sólnes, Frjálslyndum, á beinni línu DV á fóstudagskvöld
Júlíus Sólnes, Frjálslyndum, Hann leggur til að leitaö verði eftir banka í rekstri. þjóðlífs og stjórnmála. Páll Ásgeirsson, Óttar Sveinsson,
sagði á beinni línu á föstudags- samstarfi við erlenda aðila um lítil Júlíus Sólnes fékk langflestar Við beinu línuna unnu blaða- Jóhanna Jóhannsdóttir, Haukur
kvöld að draga ætti úr miðstýringu framleiðslufyrirtæki og telur glap- hringingar á beinu línuimi eða um mennimir ísak Sigurðsson, Gísli Lárus Hauksson og Hanna Sigurð-
með virkum héraðsstjómum. ræði að vera einungjs með einka- tuttugu. Þær fjölluðu um ýmis svið Kristjánsson, Jón G. Hauksson, ardóttirljósmjmdari. -hlh
Fatlaðir
vanræktur hópur
Halldór Sveinsson, Reykjavík:
Eru Frjálslyndir tilbúnir til þess
að beita sér fyrir því að gerð verði
úttekt á öllu opinberu húsnæði og
að unnin verði framkvæmdaáætlun
hvernig megi breyta því með tilliti
til aðgengis fyrir fatlaða?
- Égheldaðþettaséalvegsjálfsögð
krafa því fatlaðir eru hópur i þjóð-
félaginu sem hefur verið vanræktur.
Það er alveg orðin brýn nauðsyn að
taka fast á þessum málum.
Það er nú svo hlálegt að umhverfis-
ráðuneytið er nú til húsa á fjórðu
hæð í gamla Sambandshúsinu. Þang-
að kemst enginn fatlaður. Það er
náttúrulega til háborinnar skammar
að ríkisvaldið skuli leyfa sér það að
vera með eitt ráðuneyti þar sem fatl-
aðir komast ekki að. Sjálft alþingis-
húsið er með þeim hætti að fatlaðir
komast ekkert um það hús. Ég býð
ekki í það ef fatlaður maöur yrði
kjörinnáþing.
Hversvegna nýtt
nafnáflokkinn?
Jóna Gísladóttir, Dalasýslu:
Af hverju skipti Borgaraflokkur-
inn um nafn, halda menn þar á bæ
að það skipti máh hvað flokkurinn
heitir?
- Borgaraflokkurinnvildieinfald-
lega bjóða nýjum hópum til liðs við
sig. Því ákváðum við að bjóða fram
með stórum ogfjölmennumhópum
viðs vegar að sem vilja ganga til liðs
við hugmyndafræði okkar undir
merkjum frjálslyndra.
EB mun líklega
liðastísundur
Aðalsteinn Björnsson, Dalvík:
Hver er afstaða Frjálslyndra til
inngöngu í Evrópubandalagið?
- Viðhöfummarkaðmjögskýraaf-
stöðu til þess máls. Við teljum að ís-
lendingar geti ekki gengið inn í Evr-
ópubandalagið meðan sú harðn-
eskjulega flskveiðistefna, sem EB
hefur, erviðlýði.
Við höfum hins vegar tekið undir
hugmyndir um Evrópskt efnahags-
svæði og teljum reyndar að það muni
verða þróunin í framtíðinni miklu
fremur en að Evrópubandalagið
stækki. Ég hef reyndar sjálfur þá
skoðun aö Evrópubandalagið muni
liöast í sundur. Hins vegar eru allar
líkur á því að Evrópskt efnahags-
svæði verði myndað með þátttöku
allra Evrópuríkjanna.
Ég tel sjálfsagt og eðlilegt að íslend-
ingar freisti þess að vera með í þessu
samstarfi.
Umhverfisvernd
baraíborginni?
Albert Gunnlaugsson, Dalvík:
Júlíus, þú er umhverfisráðherra
og byggðir það ráðuneyti upp. Hvers
vegna byggðir þú starfsemina ekki
upp úti um allt landið heldur bara í
Reykjavík?
- Þaðerhverginærribúiöaðljúka
þeirri uppbyggingu umhverflsráðu-
neytis, sem er fyrirhuguð, og þetta
sem þú spyrð um er einmitt eitt af
því sem enn á eftir af festa. Það er
eftir að ákveöa hvernig starfsemi
umhverfisráðuneytis verður háttað
úti um allt land og eftirliti með um-
hverflsvörnum.
Við náðum að leggja fyrir Alþingi
rétt fyrir þinglok í vor frumvarp til
laga um umhverflsvernd og um-
hverfisverndarstofnun. í því var ein-
mitt gert ráð fyrir öflugu eftirliti og
starfsemi úti um allt land. Ráðuneyt-
ið í Reykjavík kemur aldrei til með
að vera annað en sá aðili sem hefur
samræmingu og yfirstjórn með
höndum.
Ég vil sænska
húsbréfakerfið
Gunnar Gunnarsson, Reykjavík:
Mér er tjáð að þú sért lúyntur svo-
nefndum húsbréfabanka?
- Viöeignumokkurnúhugtakið
húsbréf því að fyrsta veturiri'n okkar
á þingi lögðum við fram mjög viða-
mikið frumvarp um sérstakar hús-
næðislánastofnanir sem myndu fjár-
magna útlánastarfsemi sína með
húsbréfum. Nú, krötunum leist vel á
þessa hugmynd og voru svolítið hug-
myndasnauðir í þessum málum fyrir
þannig að þeir settu á laggirnar
nefnd sem kynnti sér þessar hug-
myndir okkar og úr því fæddist svo
þetta húsbréfakerfi sem við búum
núvið.
Ég tel því miður að á þvi séu mjög
veigamiklir gallar þó það sé kannski
skref í rétta átt. Ég heföi talið að það
húsbréfafrumvarp, sem við lögðum
fram þegar haustið 1987, hefði gefið
betriraun.
í reyndinni tel ég að það sé heppi-
legra fyrir okkur að huga meira að
því kerfi sem er í Svíþjóð þar sem
húshréfin eru gefin út og seld af við-
komandi húsnæðislánastofnunum
áöur en farið er að lána út.
Virkarhéraðs-
stjórnir
Ingibjörg Jónsdóttir, Reykjavík
Fækkun þingmanna?
- Viðhöfumsettþaðframíokkar
stefnuskrá að við viljum draga úr
þeirri miðstýringu sem hrjáir ís-
lenskt þjóðfélag.
Við höfum lagt fram mjög ákveðn-
ar tillögur um það hvernig við getum
komið þessu í framkvæmd á sem ein-
faldastan og fljótvirkastan hátt. Við
viljum að teknar verði upp virkar
héraðsstjórnir í sjálfstæðum lands-
hlutum. Þær verði settar á laggimar
með tiltölulega einfóldu sniði, geti til
dæmis verið kjömar úr hópi sveitar-
stjórnarmanna. Það á að vera hægt
að gera þetta á mjög einfaldan hátt.
Við höfum landshlutasamtök sveit-
arfélaga sem fyrirmynd að samstarfi
þeirra þannig að mínum dómi er það
mjög auðvelt. Hæfilegur fjöldi al-
þingismanna er á bilinu 49-51. Um
leið dregur úr valdi og verkefnum
ráðuneytanna.
Þilplötu-
verksmiðjan
Már Ingólfsson, Selfossi:
Verður Þilplötuverksmiðjan reist á
Suðurlandi eða fer hún til Reykjavík-
ur eins og öll önnur ný atvinnufyrir-
tæki?
- Þettaereinmittspurninginum
atvinnuvandamál landsbyggðarinn-
ar. Það er mjög brýnt á næstu árum
að treysta atvinnu hvar sem er á
landinu og treysta atvinnuöryggi
fólks hvar sem það býr. Við höfum
talið að kerfisbundið mætti leita uppi
lítil framleiðslufyrirtæki sem myndu
henta til rekstrar hvar sem er á
landinu og efna til samstarfs við er-
Júlíus Sólnes, Frjálslyndum.
lenda aðila um slík fyrirtæki ef slíkur
kostur gefst. Þflplötuverksmiðjan er
gottdæmium slíkt.
Égvilekki
lágmarkslaun
Sigrún Ólafsdóttir, Reykjavík:
Eru Frjálslyndir tilbúnir að sam-
þykkja lög um lágmarkslaun?
- Ég er ekki tilbúinn til þess. Ég held
að það verði launþegum ekki til hags-
bóta. Það gæti orðið til þess að þessi
lögfestu lágmarkslaun drægju niður
laun í landinu. Það er hins vegar
betra að leiðrétta hag launþega með
ýmsum öðrum hætti og gefa þá laun-
þegum færi á að semja um hærri laun
í einstökum fyrirtækjum.
Lögumíslenska
fararstjóra
Halldór Halldórsson, Reykjavík:
Er ekki orðið tímabært að setja
ákvæði um íslenska fararstjórn meö
erlendum ferðamannahópum hér-
lendis?
- Égeralvegsammálaþvíaðþað
verði gert. Við höfum bent á þá hættu
sem er því samfara að ferðamanna-
straumur vaxi hér stjórnlaust. Um-
hverfismálastofnun Sameinuðu
þjóðanna hefur bent á að of mikill
ferðamannastraumur er einhver
mesti umhverflsógnvaldur sem
þekkist í heiminum. Þannig gæti
mikill ferðamannastraumur hingað
verið miklu hættulegri náttúru
landsins en nokkur álver. Eitt af því
sem þarf að gera er að hafa strangt
eftirlit með viðkvæmum stöðum og
ýmsum perlum í náttúru íslands. Það
nær ekki nokkurri átt að láta erlenda
hópa vaða hér yfir stjórnlaust. Það
nær þó ekki til einstaklinga, það
væri brot á mannréttindum. Það
mætti fjölga landvörðum og auka
þannigeftirlit.
Breytilegur
persónuafsláttur
Jóhann Reynisson, Reykjavík:
Rýrnar tekjuskattsstofn ríkisins
við hugmyndir ykkar í skattamál1-
um?
- Viðhöfumlagtmiklavinnuíað
reikna út hvernig hægt væri að
breyta staðgreiðslukerfi skatta og
skattbyrði einstaklinga þannig aö
hún yrði réttlátari og færð af þeim
sem hafa lægri tekj ur yfir á þá sem
hafa hærri tekjurnar. Það er ekki
sama hvernig þetta yrði gert.
Við eru mjög mótfallnir því að það
séu mismunandi þrep í skattstigan-
um því að þá byrjar darraðardansinn
að svindla sig niður fyrir þrepið.
Þess vegna höfum við látið reikna
út nýtt staðgreiðslukerfi sem byggist
á hugtakinu breytilegur persónuaf-
sláttur. Við miðum við að persónuaf-
slátturinn verði við 150 þúsund krón-
ur á mánuði hinn sami og er í núver-
andi kerfl.
Síðan gerist það að fyrir hverjar
10 þúsund krónur, sem tekjurnar
lækka frá 150 þúsundum, hækkar
persónuafslátturinn um tvö þúsund
krónur. Við 90 þúsund krónur á
mánuði er launþeginn orðinn skatt-
laus. Að sama skapi kemur að því
að menn tapa öllum persónuafslætti
þegar tekjurnar hækka og getur
hann reyndar orðið neikvæður. Með
þessu heldur ríkið sama hlut en
skattbyrðin færist yfir á breiðari
bökin.
Tekjumskiptog
síðantaliðfram
Haukur Hauksson, Reykjavík:
Hver er þín afstaða til þess að sam-
býlisfólk getur ekki notað persónuaf-
sláttaðfullu?
- Viðerummeðþaðístefnuskrá
okkar að ónotaður persónuafsláttur
maka yfirfærist 100 prósent til hins
makans. Þegar gengið var frá staö-
gr eiðslulögunum og tekj uskatts-
breytingum 1987 fluttum við breyt-
ingartillögu um að ónotaður per-
sónuafsláttur mætti yfirfærast 100
prósent. Mér þótti þá sérkennilegt
að allur Sjálfstæðisflokkurinn lagð-
ist gegn því - hann var þá með for-
ystu ríkisstjórnar sem kom breyting-
unum á. En þegar sjálfstæðismenn
fóru í stjórnarandstöðu gerðu þeir
málið að sínu.
Öðru hef ég velt fyrir mér til að
rétta við hag heimilanna. Það er að
makar geti skipt tekjum jafnt á milli
beggja og talið þannig fram til skatts.
Fangelsismál
vanrækt
Óttar Sveinsson, Reykjavík:
Margir telja fangelsismál í lama-
sessi - þau séu skammarleg og að
stjórnvöld hafi brugðist í þeim efnum
í áratugi. Hver er ykkar stefna í þess-
um efnum?
- Égersammálaþvíaðmálaflokkur-
inn hefur verið vanræktur. Dóms-
málaráðuneytið hefur verið afgangs-
stærð í sambandi við stjórnarmynd-
un. Ég tel að núverandi dómsmála-
ráðherra hafl lyft grettistaki í að taka
til hendinni og koma þessum málum
á hreyfingu.
Strangar
mengunarvarnir
Guðmundur Smári, Akranesi:
Hver er munurinn á kerjunum í
álverinu í Straumsvík og nýja álver-
inu?
- Þaðeransimikillmunurþará,
nánast eins og svart og hvítt. Álverið
í Straumsvík er barn síns tíma og
byggist á úteltri tækni sem ekki er
notuð í nýjum álverum. í nýtísku
álverum er miklu fullkomnari
hreinsitækni við höfð og í nýjustu
álverunum er reyndar búið að ná það
langt að flúormengun og önnur
mengun er komin niður fyrir ásætt-
anlegmörk.
Stjórnarand-
staðanfelldi
réttarbótina
Guðfinna Hannesdóttir, Reykjavík:
Dómsmálaráðherra lagði fram
frumvörp um réttarstöðu almenn-
ings og samfélagsþjónustu í stað
fangavistar. Af hverju náðu þessi
mál ekki fram að ganga?
- í allan vetur voru þessi tvö mál á
dagskrá og gekk fremur stirt að fá
þau tekin til meðferðar. Þó var fyrra
málið um opinbera réttaraðstoð nán-
ast komið á lokastig. Það hefði því í
sjálfu sér verið hægt að afgreiða það
mál á einum til tveimur klukku-
stundum ef um það hefði náðst sam-
komulag. Það voru fyrst og fremst
þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem
lögðust gegn því að þetta mál yrði
afgreitt.
Alþýðuflokkurinn
varsammála
Sigmundur Ámundason, Selfossi:
Það hefur verið deilt á það að skatt-
leysismörk í hugmyndum ykkar séu
of há. Munt þú beita þér fyrir því að
þetta mark náist verðir þú áfram við
völd?
- Þaðerauövitaðspurningumþað
hvort við höfum til þess pólitískt afl
að breyta skattkerfinu í samræmi við
það sem við höfum lagt til. Þegar við
komum fyrst fram með þessar hug-
myndir í haust tók Alþýðuflokkur-
inn undir þetta með okkur og var
tilbúinn að skoða hugtakið breytileg-
ur persónuafsláttur sem veldur því
að skattleysismörkin breytast veru-
lega. Þó náist ekki samkomulag um
að fara út í þessar breytingar.
Salaríkis-
fyrirtækja
Haukur Hauksson:
Hver er afstaða Frjálslyndra til sölu
ríkisfyrirtækja?
- Þau ríkisfyrirtæki, sem betur
eiga heima í höndum almennings, á
að sjálfsögðu áð selja. Sem dæmi
nefni ég Síldarverksmiðjur ríkisins,
Sementsverksmiðjuna og fleiri slík.
Hins vegar eru önnur fyrirtæki sem
ég tel eðlilegt að séu í eigu og umsjón
ríkisins. Þó við styðjum eindregið
frjálsa fjölmiðlun tel ég mjög brýnt
að starfrækja hér öflugt ríkisútvarp
vegna öryggishagsmuna. Þess vegna
fundust mér tillögur Sjálfstæðis-
flokks um sölu á rás 2 fáránlegar.
Ég er einnig hlynntur því að hér sé
starfræktur að minnsta kosti einn
öflugur ríkisbanki. Vegna fámennis
þjóðarinnar og þeirrar hættu að til-
tölulega fáir einstaklingar geti náð
undir sig öllum fjármunum landsins
væri það hreint glapræði að vera ein-
ungis með einkabanka í rekstri.
Heppilegast væri að ríkið losaði sig
út úr rekstri eiginlegra framleiðslu-
fyrirtækja.
Gæðingar
áríkisjötu
Vilhjálmur Ólafsson, Ólafsfirði:
Hvað viijið þið gera til að koma í
veg fyrir að ríkistjórnarflokkar geti
raðað ættingjum sínum og gæðing-
umáríkisjötuna?
- Þaðhefurtíðkasthérumáratuga-
skeið að hinir pólitísku flokkar hafa
raðað sínum mönnum til embætta.
Ég er alveg sammála því að draga
verði úr þessu, og það verulega. Gott
dæmi um þessi vinnubrögð er hvern-
ig bankastjóraembætti eru veitt þar
sem flokkarnir hafa tilnefnt sína
menn. Viö höfðum uppi tillögu um
að auglýsa ætti þessar stööur í
Stjórnartíðindum og láta dómnefnd
meta síðan hæfni umsækjanda. Ég
held að rétt sé að feta sig úr þessu
kerfi smám saman.