Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1991, Blaðsíða 33
LÁÚ GÁRD AGUR '2ÍUÁPRÍL! 'tóðl.
45
Keilutiiboð
I' ' vyy?
100 kr. leikurinn
mánudaga til föstudaga
kl. 12.00-17.00.
Keilusalurinn
Öskjuhlíö
Sími 621599.
Helgarpopp
Loksins, loksins
Bemard Sumner og Johnny Marr
opinbera þriggja ára hugarsmíð
Sá er þetta ritar hefur flutt lesend-
um poppsíðunnar reglulegar fréttir
af því í tvö ár að væntanleg væri
hljómplata með nokkrum jöfrum
breskrar popptónlistar. Eftirvænt-
ingin var mikil er fregnir bárust
af þvi árið 1988 að Bemard Sumner
úr New Order, rythmagítarleikar-
inn Johnny Marr og Neil Tennant
úr Pet Shop Boys hefðu ruglað
saman reytum. Árið 1989 voru
aðdáendur þríeykisins orðnir
óþreyjufullir í bið sinni eftir ávöxt-
um af þessu merkilega samlífi og
þegar árið 1990 var komið vel á veg
hlógu gárungarnir upp á þriðja
jaxl, fulhr efasemda þegar minnst
var á væntanlega (hugsanlega)
plötu téðrar popp-elítu. Nýr áratug-
ur gekk í garð, þorri og góa voru
þreytt án þess að hósti eða stuna
heyrðist frá þeim Sumner, Marr
og Tennant. Eftirvænting og
óþreyja voru komnar í mslatunn-
una þegar skyndilega, nú á útmán-
uðum, smiðjudyrnar lukust upp og
út komu Manchesterbúamir
Sumner og Marr með handfylli af
fullbúnu efni. Forsmekkurinn,
smáskífan Get the Message, hefur
þegar verið opinberuð almenningi
og ekki seinna en á sumarsólstöð-
um mun stóra platan útgefin. Nú
er það okkar sem biðum í þijú ár
að hlæja upp á efsta jaxl. Goðsögn-
in um Electronic er orðin að veru-
leika.
Tengdustvinar-
böndum ælandi
inni á klósetti
Electronic sem upphaflega átti að
heita tríó reyndist eftir ailt vera
hugarsmíð tveggja manna, þeirra
Bernard Sumners og Johnny Marr.
Neil Tennant kemur reyndar líti-
lega við sögu á væntanlegri plötu
ásamt hinum helmingi Pet Shop
Boys dúettsins, Chris Lowe, en þó
ekki þannig að þeir geti tahst hluti
af Electronic.
Það var árið 1983 að leiðir Sumn-‘
ers og Marr lágu saman í fyrsta
sinn er sá fyrrnefndi útsetti plötu
óþekktra spámanna í Manchester
og fékk Marr til að slá á gítar-
strengi í einu laga þeirra. Það var
ekki fyrr en nokkrum ámm síðar
þegar félagarnir þeyttust um heim-
inn þveran og endilangan með
hljómsveitunum New Order og
Smiths að þeir kynntust persónu-
lega. Á tónleikaferðunum hittust
hljómsveitirnar nokkmm sinnum
og eins og títt er um menn í þess-
ari starfsgrein þá lofuðu þeir dag
að kveldi með miklum teitum.
Sumner og Marr teiguðu hornið af
áfergju og enduðu gjarnan saman
inni á klósetti bograndi yfir postul-
íninu. Grænir í framann tengdust
þeir vinarböndum sem nú hefur
skhað af sér hljómplötu.
Bernard Sumner.
Uimsjón
Snorri Már Skúlason
Það var árið 1985 að hugmyndir
vöknuðu hjá Sumner að gera sóló-
plötu, plötu þar sem hann gæti
framkvæmt hugmyndir sem rúm-
uðust iha innan veggja New Order
og þar sem hann þyrfti ekki að
beygja sig undir leikreglur hóp-
vinnunar.
Eftir að Smiths lagði upp laupa
haustið 1987 vafraði Marr á milli
hljóðvera og sphaði lag og lag með
listamönnum á borð við Bryan
Ferry, Bihy Bragg og Pretenders.
Hæfileikaríkur sem hann er á sviði
lagasmíða, þá var sorglegt aö sjá
Marr þjást af andlegu harðlífi. Frá
honum kom ekkert frumsamið efni
svo misserum skipti. Sjálfur segist
Marr hafa verið búin að fá upp í
kok af hljómsveitarvinnu og þeirri
kvöð að þurfa stanslaust að vera
fijór og tilbúin með ný lög. Hann
vhdi komast undan ábyrgðinni sem
fylgdi því að vera lagasmiður í
hljómsveit. Það var ekki fyrr en
Matt Johnson bauð honum að
ganga í The The að hjóhn fóru að
snúast á ný hjá Johnny Marr.
Electronic
erekkertplat
Báðir eru þeir félagar ennþá með-
limir í sínum hljómsveitum, New
Order og The The, en þeir segja það
af og frá að Electronic sé eitthvert
hobbí sem þeir grípi í þegar tími
gefst th. Það sé einmitt ástæða
þeirra miklu tafa sem hafa orðið á
frumburði Electronic, að þeir hafi
verið að vinna á öðrum vígstöðum.
Þegar tími hafi gefist hjá báðum
háfi þeir unnið hörðum höndum.
„Við erum báðir „perfektistar",
segir Sumner. „Það er ein ástæða
þessa langa vinnslutíma. Platan á
að sýna okkur eins og við erum
bestir." Marr bætir við að þeir hafi
ahan tímann verið vel meðvitaðir
um að nauðsynlegt væri að halda
fast um tauminn. „Mönnum í okk-
ar aðstöðu, sem hafa eins mikinn
tíma í hljóðveri og þeim sýnist,
hættir til að festast í alls kyns 'tittl-
ingaskít og standa svo uppi með
niðursoðna plötu sem er geril-
sneydd öhu hfi. Ég held að okkur
hafi tekist að forðast þá gryf]u.“
Tvímenningarnir sögðust hafa
prófað nokkur lög á áheyrendum í
Bandaríkjunum síðastliðið sumar
er þeir fengu að hita upp fyrir
Depeche Mode á tvennum tónleik-
um í Los Angeles. Þar voru saman-
komnir 80 þúsund áheyrendur á
hvorum tónleikum og gekk prufan
ágætlega þó að aðstæðurnar hefðu
verið erfiðar.
En hvernig plata er frumburður
Electronic?
Það eru engar vöflur á tvíeykinu
er þeir segja tónlistina vera hrein-
ræktaö popp. Það hafi reyndar
hvarflað að þeim að fara ótroðnar
slóðir, reyna einhvers konar fram-
úrstefnu en það hafi orðið ofan á
að hafa fyrstu plötuna í aðgengi-
legri kantinum. Auk þess hefðu
góðir hlutir verið að gerast í popp-
inu á síðustu árum og vaxtarbrodd-
urinn væri einkum í þeim geira
tónhstarinnar en ekki lengur í
„indie“-rokkinum eins og verið
Kreppa?
Æghegt sem orðið kreppa er, er
það góðu hehh ekki oft á nefnt á
síðu þessari. Nú virðist hins vegar
sem kreppa skeki breskt tónhstar-
líf. Tónlistartímaritið Sounds sem
hefur flutt fréttir af tónlistarlífi
tjallans 1 21. ár hefur nú hætt út-
gáfu og er ástæðunar að leita í fjár-
hagsvandræðum blaðsins. Útgáfu-
fyrirtækið Rough Trade sem hefur
risið hæst af óháðu útgáfufyrir-
tækjunum í Bretlandi og gaf til að
mynda út allar plötur Smiths, hef-
ur verið tekið til gjaldþrotaskipta
að ósk fyrirtækja sem hafa átt við-
skipti viö Rough Trade en ekki
fengið aurinn sinn. Verður sannar-
legur sjónarsviptir að þessu fyrir-
tæki sem var duglegt við að rækta
garðinn og veitti viðkvæmri flóru
tónhstarlífsins þau vaxtarskhyrði
sem hún þarfnaðist. „Ekki þýðir
Johnny Marr.
hefði. „Ætli það sé ekki eins með
þetta afkvæmi og önnur. Það erfir
sterk persónueinkenni frá foreldr-
unum. Þannig má segja að Elec-
tronic sameini að vissu leyti það
besta frá okkar gömlu hljómsveit-
um, synthesizerana frá New Order
og gítarleikinn frá Smiths."
F YLLIN G AREFNI
Höfum fyrirliggjandi grús á hagstæöu veröi.
Gott efni, lítil rýmun, frostþoliö og þjappast
Ennfremur höfum við fyrirliggjandi
sand og möl af ýmsum grófleika.
Sævarhöfða 13 - sími 681833
að gráta Björn bónda heldur safna
liði“ og enskir virðast ætla að gera
þá fleygu setningu úr íslenskri
sögu að sinni því fróðir menn telja
að með haröfylgi megi jafnvel
bjarga Rough Trade frá hruni. Von-
ar poppsíðan að það takist og geym-
ir frekar grafskrift þangað til mál
skýrast frekar.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Framboðsfrestur
Ákveðiö hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur um kjör
fulltrúa á 18. þing. Landssamband íslenskra verslun-
armanna. Kjörnir verða 74 fulltrúar og jafnmargir til
vara.
Listar þurfa að hafa borist kjörstjórn á skrifstofu Verzí-
unarmannafélags Reykjavíkur, Húsi verslunarinnar,
fyrir kl. 12.00 þriðjudaginn 30. apríl nk.
KjÖrstjórnin
.