Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Qupperneq 4
4 1 'LÁlÍGÍítíÓÁtíURÍ’ 'ÖkWfiÉR 1991. Fréttir Vigdís skoöar hinn forna keltneska kross við Monasterboice. DV-simamynd Brynjar Gauti Forseti írlands, frú Mary Robinson: Forsetarnir eiga margt sameiginlegt - heimsókn Vigdísar Finnbogadóttur til írlands lokiö Heimsókn Vigdísar Finnbogadótt- ur, forseta íslands, til írlands, sem lauk í gær, þótti takast í alla staði mjög vel. Forseti írlands, frú Mary Robinson, sagði að hún og Vigdís ættu margt sameiginlegt og heföu þær rætt saman um mörg áhugaverð málefni. Vigdís fór með þyrlu að Boyne-dal í gærmorgun þar sem ýmsir staðir voru skoðaðir. Fyrst var haldið að fimm þúsund ára grafhýsi við New- grange. Þar var heldur kalt og hvasst en skyggni gott og landslagið mjög fagurt yflr að líta. Þvi næst var ekið að grafhýsi við Knowth þar sem fom- leifauppgröftur var skoðaður. Þaðan var ekið a8 kirkjugarði frá víkinga- öld í Monasterboice. Þar gat meðal annars aö líta forpan og mjög áhuga- verðan keltneskan kross. í hádeginu í gær bauð Vigdís for- seti til málsverðar til heiöurs írsku forsetahjónunum í Berkeley Court Hotel. Síðdegis var bókasafnið Marsh’s Library skoðað en þar eru meðal annars fomar íslenskar bæk- ur. Við svo búiö var haldið að forseta- bústaönum í Dyflinni. Þar lauk þess- ari þriggja daga forsetaheimsókn formlega með hersýningu. Flogið var heim til íslands undir kvöld í gær. -OTT/BG Þaö voru ekki margir sem bjuggust viö þvi fyrir keppnina aö íslenska landsliðlö kæmist i átta liða úrslit og þvi síður aö þaö yrði efst i sinum riðli. DV-mynd GVA íslendingamir sem bíöa fangelsisvistar í Bangkok: Við fölsuðum marga tékka - reyndu milljóna skuldabréfasvik áöur en þeir fóru úr landi Útlit er fyrir að ákvörðun verði tekin í dag um þaö hvort íslending- arnir þrír sem eru enn á hóteli í Bangkok verði framseldir til tæ- lensku lcgreglunnar og settir í fangelsi vegna 120 þúsund króna hótelreiknings sem þeir eiga ekki fyrir. SAS hefur ógilt farmiða mannanna til íslands þar sem hann var svikinn út með falsaðri ávísun úr stolnu tékkhefti. Þremenningamir voru búnir aö svíkja mikinn fjölda fólks á íslandi áður en þeir skrifuðu út falska 246 þúsund króna ávísun fyrir farinu til Tælands. Heftinu stálu þeir af konu á Akureyri. Þeir heita Kristj- án Pálsson, 47 ára, Siguröur Þórð- arson, 34 ára, og Sigurður Einars- son, 53 ára. Þeir eru allir af Norður- landi. Fölsuðu skuldabréf upp á 2 milljónir Mennimir fólsuðu einnig skulda- bréf upp á tvær milljónir króna skömmu áður en þeir héldu til Tælands. Ætluöu þeir að kaupa jörð af bónda á Norðurlandi. Menn- irnir fölsuðu nöfn á tvö skuldabréf upp á 500 þúsund og aíhentu bónd- anum upp í kaupin. Seljandinn krafðist þess hins vegar að fá einn- ig greitt í reiðufé. Var þá tekiö til bragös að reyna að selja tvö 500 þúsund króna bréf í banka með fölsuðum nöfnum. Þessi svik kom- ust upp i tæka tíð og ekkert varð af kaupunum. Með ávísun úr stolna tékkhéftinu frá kónunni á Akureyri tókst þre- menningunum einnig að svíkja út myndbandstökuvél úr verslun, að andviröi 150 þúsund krónur - auk drykkjarfanga og fleiri hluta, aðal- lega á bömm í Reykjavík. Eins og fram hefur komið í DV ákváðu ís- lensk stjórnvöld í vikunni að greiða hvorki fyrir farmiða mannanna til íslands aftur né heldur fyrir hótel- reikning þeirra. í Bangkok. DV tók símaviðtal við tvo af mönnunum í gær þegar þeir vom að bíða þess hver örlög þeirra yrðu á hótelinu í Bangkok. Fangelsisvist í vægast sagt óvistlegu tælensku fangelsi var yfirvofandi. Vitum ekki hvernig við fengum ávísanaheftið! "Það var Kristján Pálsson sem kom í símann fyrst. Hann sagðist telja að félagi sinn, Sigurður Þórö- arson, hefði átt umrætt ávísana- hefti. - En nú er heftið frá konu á Akur- eyri? „Ég held að drengurinn hafi -átt þetta ávísanahefti. Það má annars vel vera að konan hafi átt það. Ég hef nú alveg nóg með mitt vanda- mál þó ég fari ekki aö athuga með meira.“ - Fóruð þið ekki allir saman til aö kaupa farmiöana? „Jú, en ég ætlaði að fá lán í bank- anum en tókst það ekki. Svo sagð- ist hann vera búinn að kaupa mið- ana til Tælands svo ég ákvað að skella mér bara með,“ sagði Kristj- án. - Ræðismaðurinn segir ykkur hafa orðið peningalausa á þriðja degi? „íýej, það voru nú flmm dagar." - Hve lengi ætluðuð þið að vera í Tælandi? „Við ætluðum að vera í mánuð.“ - Hvernig ætluðuð þið að vera í einn mánuö svona peningalitlir? „Maður athugar ekki alltaf hvað maður eyðir miklu á dag þó það sé ódýrt að lifa hérna. Ég var náttúr- lega ekki búinn að spyrjast fyrir um hvað hinir voru með mikið með sér.“ - Hvaðan er ávísanaheftið sem fölsku tékkarnir voru úr? „Ja, nú veit ég ekki." Þetta voru margir tékkar, maður Þegar þarna var komiö í samtal- inu kallaði Kristján á Sigurö Þórð- arson. Sigurður var spuröur hvort það hefði verið hann sem útfyllti falska tékkann fyrir farmiðunum: „Hvaða tékka? Ja, þeir voru nú margir, maður. Þetta var allt rugl.“ - Þetta er stolið hefti frá konu á Akureyri? „Ja, nú veit ég ekki.“ - Þið hljótið að vita hvernig þið fenguð heftið? „Eg fékk það bara í Reykjavík. Ég bara man ekki hvernig." - Hver hringdi í starfsmann ferða- skrifstofunnar og bað hann um að taka miðana til fyrir ykkur rétt fyrir lokun á föstudegi? „Það var Sigurður Einarsson." - Hvernig lítið þið á þetta ástand þegar fangelsisvist er yflrvofandi. „Ástandið er slæmt. Við fáum ekki að hringja heim til að athuga hvort við náum peningum út.“ - Eigið þið einhverja peninga? „Nei, ekki krónu. Það er helst að athuga hvort örorkubæturnar hans Kristjáns eru komnar. Svo átti ég að fá peninga fyrir rafsuðu- vél sem ég seldi.“ - Hvernig liður ykkur gagnvart þeim sem átti stolna ávísanaheftið? „Manni líður ekkert ofsalega vel núna. Ég hef ekki hugmynd um hver þessi kona er.“ - Hver veit það þá? „Ég hef ekki hugmynd um þaö.“ - Fór heftiö þá baraeinhvern veg- inn upp í hendurnar á ykkur? „Það hefur sennilega verið á bar. Ég veit ekki hve marga tékka við skrifuðum út en það var hér og þar á börum í Reykjavík." - Þið skuldið að minnsta kosti um hálfa milljón króna. Hvernig ætlið þið að borga þaö? „Við verðum að vinna fyrir því. Það er ekki lengi gert fyrir þrjá menn,“ sagði Sigurður. Enginn af þremenningunum sækir vinnu á íslandi. Sigurður Þórðarson sagði að þremenning- arnir hefðu „flækst um“ í Reykja- vík áður en þeir fóru til Tælands. Þeir hafa því ekkert fast húsnæði. Mennirnir hafa allir aíbrotaferil að baki og hafa svikiö og stolið frá tugum manna. -ÓTT HM í bridge í Y okohama: Island var greinilega óskaland Pólverians Fyrri hlúta heimsmeistaramótsins í Yokohama í Japan er nú lokið. Riðlakeppninni lauk á föstudag og við tekur útsláttarkeppni átta þjóða. íslenska sveitin náði þeim glæsilega árangri að vinna sinn riðil með ör- yggi en Evrópumeistarar Breta urðu að láta sér lynda annað sæti riðilsins. ísland skoraði 254 % stig í riðlinum sem gerir 18,16 stig í leik aö meðal- tali. Lokastaðan í riðlinum varð þannig að ísland fékk 254 '/., Bret- land 241, Argentína 217 '/«, Bandarík- in 213 '/>, Ástralía 194 '/«, Venesúela 189, Egyptaland 175 og gestgjafamir Japanir ráku lestina með 171 stig. Heimsmeistarar Brasilíumanna unnu nauman sigur í hinum riöli keppninnar. Lokastaðan varð þannig að Brasilía fékk 254, Svíþjóð 253, Pól- land 244, Bandaríkin II 223, Hong Kong 210, Kanada 185, Pakistan 160 2A og Surinam endaði í neðsta sæti riðilsins með 119 stig. Fjórar efstu sveitimar í hvomm riðli tryggðu sér rétt til spilamennsku í útsláttarkeppninni. Efsta sveitin úr öðmm riölinum mætir sveitinni í fjóröa sæti úr hin- um riðlinum, sveit númer tvö mætir númer þrjú í hinum og svo framveg- is. í átta sveita úrslitum mætast því ísland og Bandaríkin II, Bretland og Pólland, Argentína og Sviþjóð og Brasilíumenn og Bandaríkin I. Spil- aðir eru 96 spila leikir í átta liða úr- slitum og sömuleiðis í undanúrslit- um. Það tekur einn og hálfan dag að spila 96 spil. Leikirnir í átta sveita úrslitum heíjast í dag og lýkur um miðjan dag á morgun, sunnudag, að japönskum tíma. Það vakti hneyksli margra í síðustu umferð riðlakeppninnar aö einn pólsku spílaranna (Zymanowski) reyndi hvað hann gat að tapa leikn- um gegn liöi Bandarikjanna n. Hann óskaöi greinilega eftir því að verða númer 4 í sínum riðli og spila við íslendinga en ekki Breta í fyrsta leik útsláttarkeppninnar. Pólland vann samt sem áöur sigur í leiknum, 21-9. og Pólveijar lenda því á móti Bret- um. íslenska liðið hefur sýnt mikinn stöðugleika í spilamennskunni. Stærsta tap íslands í riðlakeppninni var 10-20 gegn Bretum. Islenska landsliðið tapaði einum öörum leik, 11-19, gegn Egyptum, gerði þrjú jafn- tefli en vann níu leiki. Sá árangur sýnir mikinn stöðugleika og gefur góðai vonir um framhaldið. Miðað við úrslit riðlakeppninnar er íslenska liðið sigurstranglegra en það bandaríska í leik liðanna en fyr- ir upphaf keppninnar hefðu Banda- ríkjamennirnir verið taldir eiga meiri möguleika. Það er í raun ómögulegt að spá í úrslit keppninnar því allar þjóðirnar, sem komust áfram, gætu orðið heimsmeistarar, svo sterkar eru þær á pappírunum- Hið óvænta er að ísland skuli vera þarámeöal. -ÍS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.