Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Page 47
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1991.
59
Fyrirmyndarfaðir:
Frænka
Claire
flytur
inntil
Huxtable
Þegar þáttarööin um Fyrirmynd-
arfóður hefst aö nýju á næstunni
hjá sjónvarpinu hefur nýr fjöl-
skyldumeölimur bæst í hópinn.
Þaö er Pam, frænka Claire, sem
leikin er af Eriku Alexander. Hlut-
verk hennar var búið til þar sem
Vanessa veröur við háskólanám og
kemur aðeins stöku sinnum við
sögu í þáttunum. Pam, sem kemur
úr fremur fátæklegu umhverfi,
flytur til Huxtablefjölskyldunnar
þegar amma hennar í Kalifomíu
veikist og móðir hennar fer þangað
til að hjúkra henni. Koma Pam
verður til þess að Huxtablefjöl-
skyldan sér ýmislegt í nýju ljósi.
Auk þessarar breytingar á þátt-
unum um Fyrirmyndarföður hefur
nýjum handritahöfundum verið
bætt í hópinn, þremur konum. Bill
Cosby kveðst þeirrar skoðunar að
með því að láta konur skrifa hand-
rit muni ýmis atriði taka mið af
sjónarmiðum kvenna og þættirnir
um leið verða betri.
Huxtablefjölskyldan mun eins og
áöur takast á við ýmis hversdagleg
vandamál eins og til dæmis það að
Rrdy, yngsta dóttirin, hafði búist
við að fá herbergi Vanessu þegar
hún væri farin í háskóla þar sem
þaö er stærra en hennar eigið. Van-
essa, sem líkir Pam við Lizu Doo-
little í My fair Lady, bendir Rudy
hins vegar á nauðsyn þess að vera
góð við Pam.
Erika Alexander, sem leikið hafði
í nokkrum sjónvarpsmyndum þeg-
ar henni bauðst hlutverk í Fyrir-
myndarfóður, segist hafa fengið
ýmis góð ráð hjá Cosby. Pam ætti
aö vera opin, heiöarleg og klár.
Pam þykir Huxtablefjölskyldan
eiga fullt af ónauðsynlegum hlut-
um og reynir að verða ekki háð
umhverfinu því hún veit ekki
hversu lengi hún muni dveljast hjá
frænku sinni og fjölskyldu hennar.
Erika segist hins vegar vera komin
á fimm ára samning svo að það
hljómar ekki eins og hún sé á fór-
um.
Afmæli
Jens Elías Jóensen
Jens Elias Jóensen netagerðarmað-
ur, Eyjahrauni 37, Þorlákshöfn,
verður áttatíu ára á morgun.
Starfsferill
Jens fæddist í Viðareiði í Færeyj-
um og ólst þar upp. Hann lauk prófi
frá stýrimannaskólanum í Þórshöfn
og stundaði síðan sjómennsku í
þrjátíuogsexár.
Þegar hann hætti sjómennsku tók
hann próf í netaiðn og vann sem
netagerðarmaður í þrjátíu ár.
Fjölskylda
Jens kvæntist 11.12.1939 Hönnu
Jóensen, f. 20.1.1915, húsmóður.
Þau eiga fjögur böm. Þau eru:
Anna Friðbjörg, f. 6.9.1940, kennari
búsett í Þorlákshöfn, gift Boga Leifi
Sigurðssyni og eiga þau þrjú böm;
Jenný, £3.11.1943, sjúkraliði í Nor-
egi, gift Óla Áma Vilhjálmssyni og
eiga þau þrjú börn; Daníel, f. 5.1.
1947, sjúkraþjálfari í Noregi, kvænt-
Jens Elías Jóensen.
ur Evu Jóensen og eiga þau þrjú
börn; og Ruth Dyresen, f. 25.9.1951,
sjúkraþjálfari og kennari í Noregi,
gift Arve Dyresen og eiga þau þrjú
börn.
Jens verður að heiman á afmælis-
daginn.
í nýrri þáttaröð um Fyrirmyndarföður flytur Pam, frænka Claire, til Huxtablefjölskyldunnar.
Áskriftar-
sími
62-60-10
Kr. 425
Skop......................................... 2
Uppáhaldsfuglinn .......................... 3
AfbrÝöisemí ............................■••• 8
Baristviðbanvænan faraldur .................. 13
Friðmælstvið indiána......................... 19
Hvað gerir karlinn kynþokkafulian? ......... 25
Sigrast á minnimáttarkcnndinní ............. 31
Afhverju roðnar maður? .................... 36
Hóndin leiðir flest i Ijós ................. 39
Hugsun i orðum ............................. 44
Minnisverðasta manneskjan................... 46
Geturðu stiíit skap þítt? .................. 51
Fangi þagnarínnar .......................... 55
Einbirní.................................... 89
VerndarengiilWhitworths..................... 67
Fokið niður afMcKinieYQaili ................ 73
Ennvexhróðuraspíríns ....................... 79
Hjálpað tii að standast þrýstingjafnaidranna. 84
Hindurvitni um hnerra ...................... 89
Morðánummerkja ............................. 91
15 ráð tíí að sýnast rikur..................105
FramsýnínábakviðPatriot ....................108
Torfi á Klúkum og Sveinn faðir hans ........114
Æðahnútar ..................................122
Ég sé kraft guðs......................... 128
Fiórens - borg fortíðarinnar i nútimanum ...131
Breytist fólk víð hjónaband? ............. 137
Haftð auga með nýja bíistjóranum ...........143
Lausn á krosstölugátu ......................150
Hvi þurfa þeir að þjást? ...................151
Krosstöiugátan..............................156
Ertu þjófheldur ferðamaður? ................157
5. HEFTI - 50. ÁR - SEPTEMBER - OKTÓBER