Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1992, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1992.
Fréttir dv
Aðstoð við fyrrum ríki Sovétríkjanna rædd í Washington:
Víðtæk samstaða
um neyðaraðstoð
- segir Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
„Fundurinn var mjög gagnlegur
og þáttakan almenn. Það er mjög
brýnt að aðstoða þessi ríki sem nú
eru að brjótast til frelsis og lýðræðis.
Ég tel að á fundinum hafi náðst víö-
tæk samstaða um neyðaraðstoð til
þessara lýðvelda sem áður mynduðu
Sovétríkin," segir Jón Sigurðsson
viðskiptaráðherra.
Jón sat í vikunni fund í Washing-
ton sem forseti Bandaríkjanna boð-
aði til. Alls var Mltrúum 60 ríkja og
alþjóðastofnana boðið að sitja fund-
inn. Tilgangur hans var aö samræma
aðstoð við lýðveldin sem áður töldust
til Sovétríkjanna og draga þar með
úr hættunni á félagslegu og efna-
hagslegu öngþveiti. A fundinum var
einkum rætt um matvæla-, lyfja-,
húsnæðis- og tækniaðstoð ásamt að-
stoð á sviði orkumála.
Að sögn Jóns mættu til fundarins
fjölmörg ríki sem hingað til hafa sýnt
litinn áhuga á að hjálpa þessum ríkj-
um og hafi þaö aukið gildi ráðstefn-
unnar verulega. Til dæmis hafi olíu-
ríkin við Persaflóa lofað að veita
mikla íjármuni í neyðarhjálpina. Þá
skipti það miklu aö með fundinum
hafi Bandaríkin tekið ákveðið frum-
kvæði sem óhjákvæmilega fylgi
miklar skuldbindingar. Fram til
þessa hafi Bandaríkin hins vegar
verið mikhr eftirbátar ríkja Evrópu
í þessu máli.
Þó fundurinn hafi einkum snúist
um aðstoð við þau 12 lýðveldi sem
nú mynda Samveldi frjálsra ríkja
kom vandi Eystrasaltsríkjanna einn-
ig til umræðu. í ræðu sem Jón flutti
kom til dæmis skýrt fram að ekki
mætti undanskilja aðstoð við þau
enda væri vandi þeirra mikill.
Jón segir ríkisstjórn íslands þegar
hafa ákveðið að veita 15 milljónir í
tækniaðstoö til þessara ríkja. Þess
sé að auki vænst að stofnanir og fyr-
irtæki taki þátt í hjálparstarfmu. Nú
þegar taki til dæmis Orkustofnun og
Iðntæknistofnun þátt í því með miðl-
un þekkingar á virkjun jarðhita. Að
auki segir hann stjómvöld nú vera
að leita lausna á matvælaviðskiptum
landanna.
-kaa
Forræöisdeila:
Sex ára dreng-
urfalinn
„Harrn grét þegar þeir komu að
sækja hann en við vísuðum þeim
burt og drengurinn fór með glöðu
geði þangað sem við ætlum að fela
hann,“ segir móöir tæplega sjö ára
drengs sem fulltrúar Bamavemd-
amefhdar Hafnarijarðar hugðust
koma í vistun í gærdag.
Aðdragandi heimsóknar nefnd-
armanna er löng forræðisdeila
milh fyrrverandi sambýhsmanns
konunnar og hennar. Konan er
gift aftur og á tvær dætur með
núverandi manni sínum. Fjöl-
skyldan er nýilutt til Hverageröis
ogá lögheimih þar. Forræðisdeil-
an hefur veriö th umfjöllunar i
langan tima hjá dómsmálaráðu-
neytinu en ekki komið til af-
greiðslu ennþá.
Starfsmenn Bamavemdar-
nefndar HafnarQarðar sögðu
móðurinni og manni hennar að
þeir hygöust sækja bamið með
lögreglu- og fógetavaldi ef þess
þyrfti. „Miöað viö þann ham sem
þeir vora í á ég aht eins von á
þeim á hverri stundu en þeir
munu grípa í tómt,“ sagði móðir-
inígær. -VD
Hreindýrin í Húsdýragarðinum i Laugardal tóku lífinu með ró i gær. Veðrið var enda gott og fáir i mannheimum
að kíkja á þau. Áhortendum fjölgar væntanlega í dag og á morgun eins og venjulega um helgar.
DV-mynd Brynjar Gauti
Landlæknisembættið:
Halcion ekki bannað
- en verði gefið 1 minni skömmtum
Landlæknisembættið hyggst að
svo stöddu ekki leggja tU að svefn-
lyfið halcion, sem fuhyrt er að hafi
slæmar sálrænar aukaverkanir,
veröi bannað. Embættiö hefur hins
vegar í dreifibréfi til lækna ráðlagt
að það verði gefið í minni skömmt-
um en hingað til hefur veriö gert.
Halcion, sem þegar hefur verið
bannað í Finnlandi, Noregi, Bret-
landi og á Bermúda, hefur verið
algengasta svefhlyfiö á íslandi und-
anfarin ár. Tahð er að framleiöand-
inn, Upjohn í Bandaríkjunum, hafi
legið á vitneskju um aukaverkanir
lyfsins í tvo áratugi. Geröar vora
tílraunir með halcion á föngum í
Bandaríkjunum 1972 og Ihiddu þær
í Ijós að hluti fanganna truflaðist á
geði.
Landlæknisembættið fjaUaði um
halcion, sem til er í tveimur styrk-
leikum á íslandi, fyrir tveimur
mánuðum og var ákveðið að ráð-
leggja notkun lægri styrkleikans.
„Aukaverkanimar munu hafa
komið fram í þeim tílvikum sem
gefnir vora stærri skammtar en
hér eru almennt notaöir. Maður
þekkir engar svona aukaverkanir
hér á landi,“ segir Matthías HaU-
dórsson aðstoöarlandlæknir. Hann
viðurkennir þó að þær hafi ekki
beinlínis veriö kannaðar hér en
bendir á að þær myndu spyrjast.
„Það þykir ólíklegt að í þehn
skömmtum sem lyfið er gefið á ís-
landi hafi þaö slikar aukaverkanir
frekar en önnur lyf. Við leggjumst
gegn því yfirhöfuö aö lyf úr þessum
flokki séu mikiö notuð. Þetta er
róandi lyf og almennar ráölegging-
ar um róandi lyf era þær að þau
beri að nota helst í skamman tíma
og í smáum skömmtum. í dreifi-
bréfinu sem við sendum læknum
var einnig ráölagt að halcion yrði
ekki gefið sjúklingum með geðtruf-
lanir.“
Yfirlyfjafræðingur Ingólfsapó-
teks, Páll Guðmundsson, segir
lækna enn ávísa áberandi meira á
hærri styrkleikann af halcion. Lyf-
seðlum upp á lægri styrkleikann
hafi þó fjölgað að undanfómu. í
Reykjavíkurapóteki fengust þær
upplýsingar að yfirleitt væri ávísað
á sterkari skammtinn. í Lyfjabúð-
inni Iðunni var tahð að læknar
skrifuðu nokkum veginn jafnt upp
á lægri og hærri styrkleikann.
Erlendis hefur fólk, sem tekiö
hefur halcion um nokkum tíma,
kvartað undan þunglyndi, ofsjón-
um og ofsóknaræði. Bandarísk
kona, sem notaði svefnlyfið áram
saman, myrti aldraða móður sína
í æðiskasti. Vilja lögmenn hennar
rekja morðiö tíl aukaverkana lyfs-
ins.
-IBS
Bjöm Tryggvason aöstoðarseðlabankastjóri:
Ekki um sfldarsölu að
ræða að þessu sinni
- erumaðleggjadrögaðsíldarkaupumRússa
„Segja má að þessu miði hægt og
bítandi. Það eru nokkur veigamikh
atriði eftir og ég á varla von á því
að samningum Ijúki fyrr en um miðja
næstu viku. Ég vU nota tækifærið og
leiörétta þann misskUning, sem mér
skUst að hafi komist í fréttir heima,
að við séum að semja um einhver
jöfh skipti við Rússa á ohu og sfld.
Það er alger misskUningur. Viö eram
að ganga frá svoköUuðum jöfnunar-
samningi með greiðslusamningi við
nýjan banka Rússneska lýðveldisins.
Þar í er gagnkvæmur yfirdráttur hjá
bönkum í viöskiptum landanna,"
sagði Bjöm Tryggvason, aöstoðar-
bankastjóri Seölabankans, í samtah
við DV en hann er nú staddur austur
í Moskvu.
Björn sagði aö ekki væri verið að
ræða um sölu á þessum 150 þúsund
tunnum sem rætt var um í desember
og Landsbankinn hafnaði að lána
Rússum fyrir. Nú væri svo hðið á
sfldarvertíð að um þær væri ekki
lengur að ræða. Menn væru að opna
leiðina fyrir kaup Rússa á sUd frá
íslandi á næsta hausti.
Hann benti einnig á að menn yrðu
að horfa á fleira en sUdarkaup Rússa
í þessu sambandi. Löndin hefðu ný-
verið gert meö sér nýjan viðskipta-
samning. íslendingar kaupa olíu, bif-
reiðar og timbur af Rússum, svo eitt-
hvað sé nefnt og þeir kaupa af okkur
lagmeti auk sUdarinnar.
Bjöm Tryggvason sagðist ekki geta
farið ítarlega út í þá samninga sem
hann væri að gera þar sem of mörg-
um áríðandi þáttum væri enn ólokið
og ekki séð á þessari stundu hvernig
ljúkamundi. -S.dór
Til hjálparstarfs á Filippseyjum
„Eg hefhugsað um að gera eitthvað
þessu líkt í mörg ár en það var ekki
fyrr en í vikunni að tækifærið kom,“
segir Geröur Rósa Gunnarsdóttir, 22
ára gömul stúlka, sem nú safnar fé
til að komast til ManUu á Fihppseyj-
um og taka þar þátt í barnahjálpar-
starfi.
Gerður fer út á vegum ABC-hjálp-
arstarfsins sem er rekið á vegum
kristUegra samtaka og er aðih að
samnorrænu starfi á Fihppseyjum.
Enda þótt undirbúningur hennar sé
ekki mikUl ætti hún ekki að vera
óvön að taka til hendinni því th þessa
hefur hún verið til sjós sem háseti
og netamaður.
Gerður segist hvergi óttast þaö sem
kanna bíða hennar í fátækrahverf-
um ManUuborgar enda þótt hún hafi
séð mikla neyð á myndbandsupptök-
um frá ABC.
„Ég vU fyrst og fremst vera þar sem
þörfin og neyðin er mikh. Mörg börn
þurfa að halda tU á götunum og með-
al þess sem ég mun gera er aö koma
þeim til aðstoðar," segir Gerður.
Gerður Rósa Gunnarsdóttir.
DV-mynd Brynjar
Hún fer út þann 12. febrúar og
þangað tU ætiar hún að safna fé til
fararinnar með ýmsum hætti. í dag,
laugardag, ætiar hún að vera í Kola-
portinu og bjóða til sölu ýmsar vör-
ur. Sölulaunin fara í að borga ferðina
og ágóöi umfram þau fer til hjálpar-
starfsins. -VD
Tefflt við tölvur
Nemendur úr Skákskóla íslands
og valdir keppendur úr Taflfélagi
Reykjavíkur tefla í dag við tölvu í
húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur
í Faxafeni 12 kl. 14. Um er aö ræða
MChess forritið og Chessmaster 3000.
Fyrirtækið Kjami hf. leggur tU for-
ritin og tækjabúnaö. Teflt verður á
30 borðum.
Á staðnum verða 10 tölvur sem
gestir geta teflt viö. Aðgangur er
ókeypis.
Keppnin er haldin í tilefni af 20 ára
afmæh „einvígis aldarinnar" milh
Bobby Fischer og Boris Spasskí.
-IBS