Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1992, Side 5
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1992.
5
Fréttir
ísland óskar eftir fríverslunarsamstarfi við Bandaríkin:
Mjög jákvæðar og
gagnlegar viðræður
- sagði Jón Sigurðsson að loknum fundi með viðskiptaráðherra Bandaríkjanna
„í viðræðum mínum við viðskipta-
ráðherra Bandaríkjanna lagði ég á
það áherslu að dregið yrði úr viö-
skiptatálmum milli landanna. Þetta
voru mjög jákvæðar og gagnlegar
viðræður. Ég ítrekaði áhuga okkar á
einhvers konar fríverslunarsam-
starfi við Bandaríkin. Þetta mál er
nú komið til kasta ríkisstjóma land-
anna en á þeim vettvangi hefur það
ekki verið rætt í íjöldamörg ár. Ég
tel það mjög mikilsvert að við hugs-
um ekki síður til vesturs en austurs
í okkar langtíma viðskiptum. Það er
von mín að framhald verði á þessum
viðræðum," segir- Jón Sigurðsson
viðskiptaráðherra.
Jón er væntanlegur til íslands í dag
en undanfama daga hefur hann ver-
ið á fundum í Wasington. Á fimmtu-
daginn var átti hann viðræður við
Schnabel, viðskiptaráðherra Banda-
ríkjanna, um viðskipti landanna og
tollamál. Fyrr í vikunni sat hann
fund sem forseti Bandaríkjanna boð-
aði fulltrúa 47 ríkja á til að samræma
neyðaraðstoð við þau lýðveldi sem
áður mynduðu Sovétríkin.
Jón segir að í viðræðum sínum við
viðskiptaráðherra Bandaríkjanna
hafi hann farið yfir þróun viðskipta
landanna. Meðai annars hafi hann
bent á að verulega hafi dregið úr
útflutningi til Bandaríkjanna á und-
anfomum 10 til 15 árum.
„Ég lagði á það áherslu að við
myndum reyna að finna leiðir til að
draga úr viðskiptatálmum milli land-
anna en ennþá er hægt að benda á
tolia sem tefja fyrir viðskiptum.
Bandaríkjamenn sýna þessu bæði
áhuga og skilning en vilja hins vegar
láta reyna á niðurstöðiu' GATT-
viðræðnanna. Ég lagði hins vegar á
það áherslu að viðleitni til tollalækk-
ana yrði haldið lifandi.
Jón segir að á vettvangi GATT hafi
samstarf Bandaríkjanna og íslands
verið mjög jákvætt. Bseði hafi löndin
gert tillögur um lækkun tolla á sjáv-
ar- og ullarvörum ásamt búnaði fyrir
sjávarútveg. Þá hafi Bandaríkin sýnt
skilning á kröfu Islendinga um tolla-
lækkanir á sjávarafurðum þó að það
mál hafi enn ekki hreyfst nógu vel.
Að sögn Jóns kom hann j)eim skila-
boðum til Schnabers að Islendingar
hafi hug á að ræða þjónustuviðskipti
landanna í ljósi GATT-viðræðnanna.
í því sambandi vilji íslendingar eink-
um ræða gagnkvæm viðskipti með
siglingaþjónustu og auknar Banda-
ríkjasiglingar íslenskra skipafélaga.
-kaa
Nýir og fjölbreyttari möguleikar
fyrir þig í kaskótryggingum
✓
Nú bjóðast þér þrjár nýjar og mismunandi kaskótryggingar hjá VIS. Þarfir bifreiðaeigenda fyrir kaskótryggingar
eru mismunandi og loksins getur þú valið tryggingu sem hentar þér, bæði hvað varðar bótasvið og verð.
W JHi ^
AL-KASKO
Ný og víðtækari
kaskótrygging
Inn á bótasvið gömlu kaskó-
tryggingarinnar hefur verið bætt
eftirfarandi áhættuþáttum:
• Skemmdarverk
• Björgunarkostnaður
• Akstur erlendis
• Víðtækari akstursheimildir
• Nýjar reglur um útborgun bíla
• Bætur vegna flóða
Bónusflokkum hefur verið fjölgað
og eru þeir nú fjórir: 10%, 20%, 30%
og 40%. Góðir ökumenn falla nú minna
í bónus við tjón. Þessa nýju kaskó-
tryggingu býður VIS á óbreyttu iðgjaldi.
UIVIFERÐAR
K A S K O
Ný trygging sem
er sniðin að umferð
í þéttbýli
Umferðartrygging bætir tjón sem verða
vegna árekstra og áaksturs. Bónus er
ávallt sá sami og í ábyrgðartryggingu
bifreiða og getur orðið allt að 70%.
Þessi trygging er mun ódýrari en
venjuleg kaskótrygging. Eigináhætta í
þessari tryggingu er föst, nú kr. 48.800.
Dæmi um iðgjald fyrir Umferðarkaskó
miðað við 70% bónus.
Lítill bíll Meðalbíll Stór bíll
8.900 11.532 12.493
K A S K O
Nýjung fyrir þá sem
aka aðallega á
þjóðvegum landsins
Vegakaskó er nýjung fyrir þá sem aka
aðallega á þjóðvegum landsins en lítið
í þéttbýli. Tryggingin bætir tjón vegna
veltu, bruna, foks, hruns og hraps.
Vegakaskó er nýr og ódýr valkostur
fyrir bifreiðaeigendur.
Iðgjald er óháð bónus. Eigináhætta í
þessari tryggingu er föst, nú kr. 48.800.
Dæmi um iðgjald fyrir Vegakaskó:
Lítill bíll Meðalbíll Stór bíll
8.688 11.256 12.195
Já takk, ég óska eftir nánari upplýsingum
um nýju kaskótryggingarnar
Klipptu þennan miða út og sendu Vátryggingafélagi íslands hf. Þá færð þú upplýsingabækling
um nýju kaskótryggingamar sendan um hæl.
Wr
Nafn
Kennitala
Heimilisfang
Sveitarfélag _
Sími
VATRYGGINGAFELAGISIANDS HF
-þar sem tryggingar snúast um fólk
ÁRMÚLI3, REYKJAVÍK, PÓSTHÓLF 8400, SÍMI60 50 60