Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1992, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1992, Side 9
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1992. 9 Óvinur óvinarins heitir sænskur njósnamyndaflokkur í átta þáttum sem hefur göngu sína hjá Sjónvarp- inu á þriðjudag. Þetta er nýr þáttur sem byggður er á bók eftir Jan Guillou um sænsku njósnahetjuna Gustaf Giibert Hamilton greifa. Sögusviðið spannar allt frá Moskvu, Agadir, London til Stokkhólms. Söguþráðurinn er umvafinn skemmtilegum plottum og hugljúfri rómantík. Svíar voru afar hrifnir af mynda- flokki þessum og líktu honum við bestu njósnaþætti annarra landa. Björn Fremer segir til dæmis í Kvöld- póstinum: „Óvinur óvinarins lítur út fyrir aö vera besti spennufram- haldsmyndaflokkur sem Svíar hafa gert.“ Bjöm segir að leikarinn Peter Haber fari einstaklega vel með hlut- verk sitt sem Hamilton greifi. Peter Haber var nær óþekktur leik- ari í heimalandi sínu. Hann er fædd- ur árið 1952 í Södertalje í Svíþjóð. Hann nam leiklist við Leiklistarhá- skólann í Stokkhólmi og útskrifaöist þaðan 1973. í fyrstu starfaði Peter með leikhúsum á landsbyggðinni, fyrst í Landskrona. Peter starfaði einnig um tíma fyrir ópemna í Stokkhólmi en þaðan lá leiðin í leik- húsin í höfuðborginni. Stærsta hlut- verk Peters er í sjónvarpsmynda- flokknum Óvinir óvinarins. í einu dagblaða Svíþjóðar er sagt að þættir þessir byggist mikið á róm- antík og spennu. Með eitt aðalkven- hlutverkið í þáttunum fer ung leik- kona, Maria Grip, sem er 25 ára. Hún fer með hlutverk lögreglukonunnar Evu Britt sem Hamilton greifi feliir ástarhug til. Hann á þó í vandræðum með að gera upp við sig hvort hann vilji heldur hina rússnesku Irenu sem er píanóleikari af gyðingaætt- um. Leikkonan Maria Grip er fædd í Stokkhólmi og ólst upp rétt utan við Uppsaii. í dag býr hún í Örebro ásamt eiginmanni sínum. Eftir að Maria lauk leiklistarnámi hefur hún bæði leikið á sviði og í bíómyndum. Hún þykir mjög hæfileikarík og er orðin vel þekkt leikkona í Svíþjóð. Sænsku landsbyggðarblöðin gáfu myndaflokknum jafngóða dóma og stóru blöðin í Stokkhólmi. í dagblað- inu í Eskilstuna sagði gagnrýnandi að enginn mætti missa af þessum frábæru þáttum. Óvinur óvinarins var frmnsýnd í Svíþjóð í desember 1990 á TV 4 og þótti mikill viðburður hjá stöðinni enda var sett áhorfendamet. Talið var að um 510 þúsund manns hefðu fylgst með þættinum. En mikil sam- keppni er meðal sjónvarpsrása í Sví- þjóð og hefur hún harðnað mjög eftir miklar byltingar sem þar hafa verið gerðar. Expressen, eitt stærsta dagblað Svíþjóðar, hrósaöi Peter Haber mjög í hlutverki Hamilton. Þar sem þetta ▼ LÍFEYRISSJÓÐUR VERZLUNARMANNA Bestu þættir sem Svíar hafa gert sögðu gagnrýnendur sænsku blaðanna þegar Óvinur óvinarins var frumsýndur þar i landi í lok árs 1990 og hvöttu alla til að horfa á þá. Sænskur spennumyndaflokkur í Sjónvarpinu: Skemmtileg plott og hug- ljúf rómantík Peter Haber var nær óþekktur leik- ari í Svíþjóð er hann fékk hlutverk i njósnaþáttunum Óvinur óvinarins og fékk afbragðs dóma fyrir leik sinn. var fyrsta hlutverk Peters í sjón- varpsþætti þótti hann óvenju sann- færandi og líkti blaðið honum við sænskan James Bond. Sagt var að TV 4 í Svíþjóð hefði unnið sig upp í áliti með sýningu á Óvini óvinarins og styrkst í barátt- unni við aðrar stöðvar. „Þessi stöð býður upp á gæðamyndir," sagði einn gagnrýnandinn. íslendingar hafa í gegnum tíðina ekki haft mikið álit á sænskum myndum enda hafa þær venjuiega flokkast sem vandamálamyndir. Það verður því gaman að fylgjast með þessum framhaldsþætti sem virðist með öðru sniði en aðrar myndir frá Svíaríki. -ELA KYNNINGARFUNDUR UM STARFSEMI LÍFEYRISSJÓÐS VERZLUNARMANNA í tilefni af 100 ára afmæli Verzlunarmannafélags Reykjavíkur veröur haldinn sameiginlegur kynningarfundur VRog LV á starfsemi Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Kynningarfundurinn verður haldinn sunnudaginn 26. janúar 1992 kl. 14 í súlnasal Hótel Sögu. Fundurinn verður öllum opinn. Fundarstjóri, Magnús L. Sveinsson, formaður VR. Magnús L. Sveinsson Guðmunndur H. Garðarsson Þorgeir Eyjólfsson Hallgrímur Snorrason Þórarinn V. Þórarinsson Dagskrá: 1. Setningarávarp. Guðmundur H. Garðarsson, stjórnarformaður LV. 2. Starfsemi Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri LV. 3. Lífeyrissjóðir - fortíð og framtíð. Hallgrímur Snorrason, Hagstofustjóri. 4. Lífeyrissjóðir og atvinnulífið. Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands íslands. 5. Fyrirspurnir til framsögumanna. 6. Fundarslit. EINN BÍLLÁMÁNUÐI ÁSKRIFTAR- GETRAUN skSz/ÍhJwA Á FULLRI FERO! ERT ÞÚ ÖRUGGLEGA ÁSKRIFANDI . . . OG SÍMINN ER 63 27 00 50% Alltað lafsláttur á notuðum bílum! Um helgina verða seldir yfir 30 bílar á verði sem mun koma flestum á óvart. Hagstæð greiðslukjör til allt að 24 mánaða og lág útborgun. 0 P1Ð: Laugardag KL. 10.00-19.00 S'unnudag KL. 13.00-17.00 BRAIIT HF. Borgartúni 26-105 Reykjavík - Símar 681502 & 681510

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.