Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1992, Page 22
22
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1992.
Sérstæð sakamál
Morð í myrkri
Honum brá fyrir sem skugga í
dimmum garðinum en hvít augun
voru eins og stjömur í afrísku
kvöldmyrkrinu. Dauf birtan frá
götuljósinu nægði til að það glamp-
aði á langa veiðihnífmn þegar hon-
um var brugðið á loft.
Þetta var að kvöldi 20. júh árið
1982. Það var vetur í Jóhannesar-
borg í Suður-Afríku en það var þó
ekki kuldinn sem fékk svertingi-
ann með hnífinn til að skjálfa held-
ur ótti. Eftir augnablik myndi hann
fremja alvarlegasta glæp sem
svartur maður gat framið í Suður-
Afríku, morð á hvítiun manni.
í einbýlishúsinu, nokkra metra
frá þeim stað þar sem morðið yrði
framið, sat íjölskyida mannsins
sem myrða átti og beið óþolinmóð
eftir því að hann yrði stunginn til
bana.
Ljósin slokkna
Klukkan var um sjö. Fjórar
manneskjur höfðu tekið sér sæti í
glæsilega búinni setustofunni. Þær
sátu með hanastélsglös fyrir fram-
an sig, eins og venja var fyrir
kvöldverðinn.
Þetta fólk var húsmóðirin,
Maureen Smith, átján ára dóttir
hennar, Karen, unnusti Karenar,
Lee Sparrow, og frænka Maureen,
Daisy Mullocks. Hún hafði komið
frá London í vikunni á undan í
leyfi.
Frammi í eldhúsinu var svört
matselja, Assie Dekobe, að búa sig
undir að bera kvöldverðinn á borð.
Nokkrum mínutum síðar kom
bíll húsbóndans, Rogers Smith, að
húsinu. Bfistjórinn, Ramogale,
lagði bflnum og gekk inn í eldhús-
ið. Roger Smith gekk rakleitt inn
um aðaldymar og síðan inn í stof-
una þar sem hann fékk sér hana-
stél.
Nokkram augnablikum eftir að
hann hafði sest gekk Maureen,
kona hans, fram í eldhús til þess,
að sögn, að segja Assie að hún
mætti bera á borð eftir nokkrar
mínútur. Augnabliki síðar slokkn-
uðu öll ljós 1 einbýlishúsinu.
Morðið
Roger Smith gekk út úr húsinu
tfi þess að kanna ástand vartappa
í sérstökum kassa utan á því. Rétt
á eftir kviknuðu öll ljós í húsinu á
ný en Roger var varla kominn inn
í stofuna þegar þau slokknuðu aft-
ur. Ergilegur á svip gekk hann aft-
ur út í garðinn. Skömmu síðar
kviknuðu ljósin enn á ný en Roger
sneri ekki til baka inn í húsið.
Maureen sat með hendur fyrir
eyrum meðan maður hennar var
utandyra. Hún heyrði því ekki óp-
ið, stutt og skerandi, sem barst að
eyrum hinna í húsinu brot úr sek-
úndu. Á þeirri stundu var Karen
dóttir hennar inni í baðherberginu
þar sem hún hafði læst að sér. Lee
Sparrow og Daisy frænka sátu hins
vegar í stofunni og horfðu upp í
loftið.
Nágrannamir heyrðu neyðaróp-
ið. Þeir hringdu á lögregluna sem
kom skömmu síðar að Roger Smith
látnum undir húsveggnum. Hann
hafði verið stunginn í bakið mörg-
um sinnum.
Fyrsta hugmynd lögreglunnar
var sú aö Roger Smith hefði komið
innbrotsþjóf að óvörum. Að morð-
inginn hafði beitt hníf benti til þess
að hann væri svertingi. Það geröi
sömuleiðis shtin hálsfesti sem
fannst í garðinum.
Rannsóknarlögreglumönnunum
fannst ekki líklegt að létt yrði að
hafa uppi á morðingjanum. Þeir
vora margir svertingjamir í fá-
Assie Dekobe.
Maureen Smith á leið í fangelsi eftir dómsuppkvaðningu.
Roger Smith.
Bíll morðingjans.
tækrahverfum Jóhannesarborgar
sem ætla mátti að hefðu áhuga á
því að bæta fjárhag sinn á kostnað
hvítu borgarbúanna.
Vísbendingar
í fyrstu miðaði rannsókn málsins
Utið áfram. En svo fann lögreglan
yfirgefinn bíl við vegarbrún
nokkra kílómetra frá heimfii
Smithsfiölskyldunnar. í bílnum
fannst blóðugur hnífur og þegar
sýni hafði verið tekið og rannsakað
og niðurstaðan borin saman við
rannsókn blóðs úr Roger Smith
kom í ljós að hnífurinn var morð-
vopnið.
Brátt kom í ljós að bílUnn var í
eigu svertingja og bflaviðgerðar-
manns að nafni David Mguni.
Hann var tekinn tfi yfirheyrslu en
neitaði því að hafa framið morðiö
eða vita nokkuð um það. Þá var
gerð leit á heimfii hans og fundust
buxur með blóðblettum í. Þeir
reyndust vera af sama blóöflokki
og Roger Smith hafði verið í. Þá
staðfesti eiginkona Mgunis að
sUtna hálsbandið sem fannst í garð-
inum væri manns hennar. Þegar
hér var komið varð Mguni ljóst að
ekki þýddi lengur að þræta fyrir
morðið og sagði hann nú sögu sem
kom mjög á óvart og átti eftir að
valda hvítu rannsóknarlögreglu-
mönnunum miklu hugarangri.
Sagan
Frásögn Mgunis var í fyrstu hald-
ið leyndri, eða þar til rætt hafði
verið við marga af kunningjum og
vinum Smithsfjölskyldunnar. Þá
kom ýmislegt í ljós og smám saman
varð ljós sú saga sem fer hér á eftir.
Maureen Smith kynntist manni
sínum á skemmtiferðaskipi árið
1975. Eftir sumarleyfið giftust þau
og fluttust til Suður-Afríku með
dóttur Maureen, Karen, frá fyrra
hjónabandi.
Á þessum tíma höfðu margir
hvitir menn það mjög gott í Suður-
Afríku og var algengt að fólk væri
viö ströndina um helgar og byði til
sín gestum. í fyrstu sinnti Maureen
hlutverki sínu vel en þar kom að
hún fór að þreytast á því að vera
stöðugt á heimilinu og geta ekki
starfað utan þess. Ekki varð þaö til
að bæta ástandið að maður hennar
sýndi henni stöðugt minni áhuga
og þar kom að hann fór að sýna
öðrum konum meiri áhuga en
henni.
í fyrstu vissi Maureen ekki
hvemig hún áti að bregðast við
vandanum en loks fannst henni
aðeins eitt koma tfi greina, skilnað-
ur.
Nýrvandi
Þegar Maureen hafði gert manni
sínum grein fyrir því að hún teldi
hjónabandið hafa misheppnast og
vildi fá skilnað neitaði Roger Smith
að fallast á þá lausn. Maureen var
miklu efnaðri en hann og hann
hafði ekki í huga að verða af þeim
þægindum sem hann gat leyft sér
vegna þess hve efnuð kona hans
var.
Maureen lét mann sinn skfija á
sér að henni væri mikfi alvara með
skflnaðinn en hann brást þá við
með því að hóta henni að upplýsa
yfirvöldin um að fé, sem hún hafði
fengið sent frá Englandi, hefði ver-
ið svikið undan skatti. Setti hann
henni þannig stólinn fyrir dyrnar
og taldi hag sig tryggðan.
En Maureen var ekki á því að
láta Roger komast upp með slíkt
framferði og niðurstaða hennar
varð sú að hún léti ryðja honum
úr vegi.
Vorið 1982 spurði Maureen ellefu
manns hvort þeir vildu taka að sér
að myrða Roger. Meðal þessa fólks
vora ættingjar hennar. Það urðu
hins vegar þjónustustúikan De-
kobe og bflstjórinnr Ramogale,
svertingjar, sem kynntu fyrir
Maureen David Mguni, en hann
var tilbúinn að myrða Roger Smith
fyrir tíu þúsund rand.
Dauðadómurinn
Samningur Maureen Smith og
Davids Mgirni var þannig að að
kvöldi 20. júlí skyldi Mguni bíða
fómardýrsins í garði hússins nærri
vartappakassanum.
Þegar Maureen Smith gekk fram
í eldhúsið tfi þess, að eigin sögn í
stofunni, að fá Assie til að bera
kvöldverðinn á borð var hún í raun
að fara til Ramogabe bfistjóra en
hlutverk hans var að ganga út fyr-
ir og ijúfa rafstrauminn. Það gerði
hann en þegar Roger Smith kom
út í garðinn í fyrra sinnið missti
Mguni móðinn og þorði ekki að
fremja morðið.
Ramogabe fór þá út öðra sinni
og rauf strauminn. Þegar Smith
kom svo út í annað sinn tók Mguni
í sig kjark og lagði til hans. Smith
mun ekki hafa misst mátt strax og
tókst að grípa í hálsfesti Mguni sem
hélt þá áfram að stinga hann með
hnífnum uns hann var allur.
Hneyksli og
réttarhöld
Fréttin um að hvít kona hefði
myrt mann sinn eftir að hafa feng-
ið í hð með sér svart þjónustufólk
olli hneykslan í Suður-Afríku.
Fékk máhð mikla umfjöllun í blöð-
um og við réttarhöldin síðar á ár-
inu játuðu Karen, dóttir Maureen,
og unnusti hennar, Lee, að þau
hefðu vitað um morðáætlunina.
Engum hafði þó komið til hugar
að aðvara Roger og fram kom að
Karen hafði farið í bankann til að
sækja féð sem Mguni var greitt
með.
Réttarhöldin vöktu geysimikla
athygh og þeim lauk með því að
kveðinn var upp dauðadómur yfir
Maureen Smith. Féh hún þá saman
en hvit kona hafði síðast verið líf-
látin í Suður-Afríku tuttugu og
fimm árum áður.
Aht árið 1983 sat Maureen í klefa
á gangi dauðadæmdra. Hún hafði
sótt um að dómurinn yfir henni
yrði mildaður og varð að ósk sinni
því honum var breytt í tuttugu og
fimm ára fangelsi.
Bflstjórinn, Ramogale, slapp
einnig við að verða líflátinn efíir
að hafa búist við lífláti mánuðum
saman. Hann fékk fimmtán ára
fangelsisdóm fyrir meðsekt.
Mguni, sá sem framdi morðið,
fékk þyngsta dóminn. Hann var
dæmdur tfi dauða og líflátinn.