Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1992, Page 10
10
LAUGARDAGUR 14. MARS 1992.
Myndbönd
kcmrvr frœt
lihrmr
ævintj#£m cg
FJÖRKÁLFAK
City Slíckers- 1000 h©stBfl?» mynd
í ævintýraleit
FJÖRKÁLFAR (CITY SLICKERS)
Útgefandi: Skifan.
Leikstjóri: Ron Underwood.
Aðalhlutverk: Billy Crystal, Daniel
Stern, Bruno Kirby og Jack Palance.
Bandarisk, 1991 -sýningartimi 110 min.
Leyfð öllum aldurshópum.
Fjörkálfarnir eru þrír borgarbú-
ar sem einu sinni á ári láta eftir sér
aö gefa ævintýraþránni lausan
tauminn. Nú er þaö villta vestriö
sem heillar þá og ákveða þeir að
gerast kúrekar í smátíma og fara
með nautgripalest langa vegalengd.
Fyrst veröa félagarnir að læra að
sitja á hestbaki og gengur það ekki
þrautalaust fyrir sig. Haldið er á
stað undir forustu gamals kúreka
sem endilega þarf að deyja þegar
hæst lætur. Félagamir ákveða
samt að halda áfram með hjörðina.
Fjörkálfar (City SUckers) eru hin
sæmiiegasta afþreying. Billy Cryst-
al er fyndinn leikari sem á þó til
að endurtaka sig nokkuð oft.
Stjarna myndarinnar er Jack Pal-
ance í hlutverki gamla kúrekans,
enda hefur hann að verðleikum
verið tilnefndur til óskarsverð-
launa fyrir hlutverk sitt í Fjörkálf-
um.
Hræðsla
FEAR
Útgefandi: Bíómyndir.
Leikstjóri: Rockne S. O’Bannion.
Aðalhlutverk: Ally Sheedy, Lauren Hutt-
on og Michael O'Keefe.
Bandarisk, 1990 - sýningartími 91 min.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
í Fear leikur Ally Sheedy
skyggna konu, Gayce Bridges, sem
hjálpar lögreglunni að komast á
spor hættulegra morðingja. Hún er
að koma úr sjónvarpsviðtali þegar
hún skynjar að morð hefur verið
framið. Hún býður strax aðstoð
sína en rekur sig fljótt á vegg og
uppgötvar síðar að morðinginn er
einnig skyggn og veit ávallt hvaö
tilvonandi fórnarlamb hræðist
mest og nýtir sér það til morðanna.
Morðinginn tekur einnig eftir því
að Gayce veit um hann og snýr
dæminu við, nú er það hann sem
fylgir henni eftir í huganum.
Kvikmyndagerðarmönnum tekst
yfirleitt illa upp þegar reynt er aö
fllma það yfirnáttúrlega og er þessi
mynd engin undantekning. Sum
atriðin yrðu hlægileg stæðu þau ein
sér en hraði og spenna er fyrir
hendi í Fear og með slíkum hraða
er hægt að breiða yfir það sem illa
er gert.
★★V2
Morð á tilraunastofu
KRONVITTNETT
Útgefandi: Háskólabió.
Leikstjóri: Jon Lindström.
Aöalhlutverk: Gösta Ekman, Emma
Norbeck, Marika Lagercrantz og Per
Mattson.
Sænsk, 1989 - sýningartimi 95 mín.
Bönnuó börnum innan 16 ára.
Undanfarnar vikur hefur sjón-
varpið sýnt ágætan sænskan
spennumyndaflokk sem er mjög
ólíkur því sem við eigum að venj-
ast frá Svíum og sýnir að þegar
þeir vilja geta þeir framleitt gott
afþreyingarefni.
Kronvittnett er einnig sænsk
sakamálamynd sem á meira sam-
eiginlegt með breskum kvikmynd-
um líkrar gerðar en sænskum
kvikmyndum sem eiga það til að
vera þunglamalegar. Söguþráður-
inn er flókin flétta dularfullra at-
burða og er myndin ávallt að koma
áhorfandanum á óvart.
Aðalpersónan er vísindamaður-
inn Thomas sem grunaður er um
að hafa myrt unga stúlku sem hann
sást með síðastur manna. Og ekki
er annað hægt að segja en aö hann
sé líklegur morðingi. Thomas sást
fara með stúlkunni inn á tilrauna-
stofuna, þar sem hann og aðrir gera
tilraunir á dýrum, og koma einn
út aftur. Stúlkan sést ekki meira
og milljónavirði af eiturlyfjum er
horfið.
Þegar lögreglan yfirheyrir Thom-
as neitar hann að segja nokkuð.
Ýmislegt finnst sem bendir til að
hann sé morðinginn og er hann
handtekinn en eins og í góöum
sakamálamyndum er ekki allt sem
sýnist...
Gösta Ekman leikur lögregluforingjann Lambert sem tengist morðmálinu
á óvæntan hátt. Hann er hér ásamt Mariku Lagercrantz sem leikur eigin-
konu þess grunaða.
Kronvittnett er dálítið hrotta-
fengin sakamálamynd með flókn-
um söguþræði og áhugaverðum
persónum. Einhvem þéttleika
vantar samt í atburðarásina sem
gerir það að verkum að atriði em
misgóð. Þá eru tengsl lögreglufor-
ingjans við aðila morðmálsins ekki
nógu sannfærandi en í heild er
Kronvittnett góð skemmtun.
-HK
DV-myndbandalístinn
1(1) TheHardWay
2(2) NewJackCity
1 i 'í ^1%' ^PHl ' 3(3) Shattered
4 (5) Hudson Hawk
5(4) Naked Gun 2Vi
6 (6) Kiss before Dying
"W - \ ItiMl h. JEBi 7 (■) Fjörkálfar
8 (8) State of Grace
9 (7) Siience of the Lambs
10(9) Murder 101
11 (12) Once around
12 (13) ’TiI I Kissed Ya’ 13 (10) Hrói höttur, prlns þjófanna 14 (11) The Russia House 15 (15) Otto III
Aðeins ein ný mynd kemur inn á listann þessa víkuna. Er það gaman- myndin Fjörkálfar. Á myndinni má sjá Bruno Kirby, Billy Crystal og Dániel Stem sem lelka borgarbúa sem gerast kúrekar. Ásamt þelm á myndinnl er kálfurinn Norman sem kemur mikið við sögu.
★★!4
í leit að sjálfum sér
SHATTERED
Úfgefandi: Myndform.
Leikstjóri: Wolfgang Petersen.
Aðalhlutverk: Tom Berenger, Bob Hosk-
ins, Greta Scacchi og Joanne Whalley-
Kllmer.
Bandarísk, 1991 - sýningartími 92 mín.
í byrjun myndarinnar fylgjumst
við með þegar bíll á fullri ferð fer
fram af klettabrún. í bílnum em
hjónin Dan Merrick (Tom Beren-
ger) og Judith Merrick (Greta
Scacchi). Sleppur hún ósködduð en
hann slasast alvarlega og þarf að
dveljast lengi á spítala og missir
auk þess minnið. Þegar út kemur
fer Merrick að reyna aö leita að
sjálfum sér en rekst alls staðar á
vegg. Smám saman verða nokkrir
atburðir til þess að harin fer að ef-
ast um hver hann er og fær til liðs
við sig einkalöggu til að grafast
fyrir um það? Hver er maðurinn á
myndum með eiginkonu hans í
rúmimu? Og hvað geröist áður en
slysiö varð?
Andi Hitchcocks svífur yfir
myndinni og leikstjóranum, Wolf-
gang Petersen, tekst stundum
ágætlega að feta í fótspor meistar-
ans. Það er ávallt eitthvað sem
kemur áhorfandanum á óvart.
Frítt lið leikara leikur í myndinni
með Tom Berenger í broddi fylk-
ingar en hann leikur Merrick. End-
irinn kemur kannski ekki mjög
mikið á óvart vegna þess að ef vel
er tekið eftir þá er ýmislegt í mynd-
inni sem athugull áhorfandi getur
ráðið í og þar með séð hvað koma
skal.
-HK
' Ihe best American movie ö»9 yeart
Funsrty, toucMng and vHan"
LONGTI M E
COMPAHION
Movinig astd full of ímpííctl
Vinir 1 raun
LONGTIME COMPANION
Útgefandi: Bíómyndir.
Leikstjóri: Norman René.
Aðalhlutverk: Bruce Davison, Brian
Cousins og Campell Scott.
Bandarisk, 1990 - sýningartími 96 mín.
Leyfö öllum aldurshópum.
Eyðni hefur sett svip sinn á
mannlífið í heiminum allt frá því
sjúkdómurinn var fyrst greindur á
Vesturlöndum. Eins og flestum er
kunnugt heijar sjúkdómurinn
mest á homma og eiturlyfjaneyt-
endur. Longtime Companion er
fyrsta leikna kvikmyndin sem tek-
ur af fullri alvöru á þessu vanda-
máli án þess þó að koma með nein-
ar lausnir. Og þótt söguþráðurinn
sé dapurlegur hefur leikstjóranum,
Norman René, og handritshöfund-
inum, Craig Lucas, tekist að gæða
myndina mannlegri hlýju og gam-
ansemin er aldrei langt undan.
Aðalpersónurnar eru hópur fé-
laga sem allir eru hommar. Við
fylgjumst með hópnum í heilan
áratug, allt frá 1980 þegar sumir
þeirra lesa grein í New York Times
þar sem greint er frá nýjum og
hættulegum sjúkdómi sem herji
aðallega á homma. Áhyggjur félag-
anna eru ekki miklar í byrjun en
strax þegar sá fyrsti þeirra fær
sjúkdóminn og deyr verður líf
þeirra aldrei það sama og áður. í
lok myndarinnar eru þrír félag-
anna látnir.
Longtime Companion er ekki að-
eins góð kvikmynd heldur eykst
skilningur áhorfandans á þessum
sjúkdómi sem hrætt hefur hinn sið-
menntaða heim í rúman áratug.
Myndin er að öllu leyti vel gerð og
leikur allur til fyrirmyndar.
-HK