Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1992, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1992, Page 31
43 LAUGARDAGUR 14. MARS 1992. „Ég hef á liðnum vikum stöku sinnum veitt þvi eftirtekt þegar ég þurrka mér á salerni að blóð hefur komið í salernispappirinn," sagði Guðjón lögmaður hátíðlega. Gyllinæð er æðahnútur i endaþarminum. Talið er að helmingur fólks yfir fimmtugt hafi gyllinæð á einhverju stigi. DV-mynd Lögmaður með gyllinæð Sumir sjúkdómar eru taldir hafa breytt gangi mannkynssögunnar. Napoleon Bonaparte var sagður hafa þj áðst af vondri gyllinæð. Hann dró á langinn að hefja orr- ustuna viö Waterloo með þeim hra- pallegu afleiðingum að andstæð- ingum hans tókst að skipuleggja liðsafla sinn og aumingja Naflajón laut í lægra haldi. Hann átti erfitt með að sitja hest vegna sársauka frá gyllinæðinni sinni og lét það tefja aðgerðir. Eftir sátu Frakkar meö ennið sárt en Englendingar og Prússar fógnuðu sigri og saga Evr- ópubreyttist. Gyllinæð er æðahnútur í enda- þarminum. Bláæðar frá þessu svæði liggja undir slímhimnum. Við endurtekinn rembing og áreynslu þenjast þessar æðar út, bólgna og bila og þá myndast við- kvæmir æðapokar í endaþarmi sem geta brostið. Tahð er að helm- ingur fólks yfir fimmtugt hafi gyll- inæð á einhverju stigi. Innri gylhnæð er fyrir innan endaþarmsopið en ytri gylhnæð er utan þess. Flestir hafa þó hvort tveggja. Stundum gúlpast æða- hnútur út þegar fólk hægir sér, skreppur síðan inn aftur eða ýta verður honum inn fyrir. Stöku sinnum myndast stífla í gyhi- næðinni með verkjum. Gylhnæð myndast sérstaklega hjá þeim sem þjást af harðlífi, hún er algengari hjá feitu fólki en grönnu og kemur oft upp hjá þunguðum konum. Einkenni Þessar staðreyndir um gylhnæð rifjuðust upp fyrir mér einn daginn þegar Guðjón Ó. lögmaður kom til mín á stofu. Hann var miðaldra maður á uppleið, rak líflega lög- fræðistofu með mikh innheimtu- umsvif á öllum sviðum. Guðjón þótti harður í hom að taka í skhn- aðarmálum og flækti allt með málalengingum og útúrsnúning- um. En þrátt fyrir harða lífsbaráttu og ágjöf í ólgusjó rukkana, forræð- isdehna og málþófs hafði Guöjóni tekist að viöhalda drengjalegu út- hti og brosmildi unghngsins. Flest- um þótti hann leiöinlegur en ótrú- lega þæghegur í viðmóti. „Hvað get ég gert fyrir þig?“ sagði ég þegar við vomm sestir. Guðjón var klæddur, að hætti ungra lögmanna, í líflegan jakka frá Sævari Karli, bláa skyrtu og litlaust polyestershpsi sem eigin- konan hafði keypt í síðustu Glasgowferð. „Ég hef á hðnum vikum stöku Á læknavaktiimi sinnum veitt því eftirtekt þegar ég þurrka mér á salemi að blóð hefur komið í salernispappírinn," sagði Guðjón, hátíðlega. Hann talaði eins og hann væri að flytja mái fyrir Hæstarétti og hélt síðan áfram að lýsa einkennum sínum á gleði- snauðan hátt. Blóð var í hægðum, verkir þegar hann hafði hægðir og kláði. Einu sinni hafði gúh komið út sem Guð- j ón hafði ýtt inn aftur. „Þetta byrjaði í fyrra þegar ég lá á Landspítalanum vegna fótbrots." „Þú ert sennilega með gylhnæð," sagðiég. „Mér datt það í hug,“ sagði Guð- jón. „Ég las um þann sjúkdóm í málskjölum um daginn." Ég nennti ekki að spyrja hann nánar út í þá sögu en bað hann að leggjast upp á bekkinn th skoðun- ar. Hann fór úr og dró niður nær- buxur sem voru kirfilega merktar Lsp eða Landspítahnn. „Ég tók nokkrar svona með mér heim þegar ég fór af spítalanum," sagði Guðjón, afsakandi. Þreifing í endaþarm Við þreifingu upp í endaþarminn kom í ljós að Guðjón var með au- man æðagúl. Blóð var á hanskan- um svo að greinhegt var að gylli- næðin var orsök þeirra vandamála sem Guðjón kvartaði undan. „Það þarf ekki frekari vitnanna við, svo að notað sé orðtak úr heimi lög- manna,“ sagöiég. Guðjóni stökk ekki bros. „Ég ætla samt að senda þig í endaþarmsspeglun svo að ekkert fariámilh mála.“ „Af hverju er þetta ástand kallað gyllinæð?“ spurði Guðjón. „Jón Steffensen prófessor sagði að fólk hefði haft miklar þrautir frá þessu en síöan hefði gúllinn aht í einu sprungið. Þá létti sjúklingnum mjög. Honum fannst hann hafa fengið gull í greipar sér og dregur ástandið nafn af þeim huglæga gullfundi. Meðferðin er fólgin í bólgueyð- andi og deyfandi kremi (Scheriproct, Ultraproct) sem þú setur upp í rassinn. Þá minnkar ertingurinn frá þessu en á sama tíma er brýnt að mýkja hægðirnar með trefjaríku fæði til að koma í veg fyrir að þetta ástand endurtaki sig. Ef það dugar ekki verður að grípa til annarra úrræöa. Stundum er hægt að setja gúmmíband á innri gyhinæö. Innan viku dettur gyllin- æð af vegna blóðleysis. Stöku sinn- um þarf að grípa til hnífsins og framkvæma skurðaðgerð. Þá eru þessir æðahnútar fj arlægöir í einu lagi.“ Guðjón hysjaöi upp um sig bux- urnar. „Þetta verður örugglega aht í lagi,“ sagði ég. „Vonandi," sagði Guðjón, „þetta er farið að há mér í starfi. Það er svo óþæghegt að sitja th lengdar í bh eða fyrir rétti. Nú verður maður að halda vel á spöðunum við að rukka. Þegar þjóöfélagið er í kreppu rétta lögmenn úr kútnum og fitna eins og púkinn á fjósbitan- ,, _ « um. Hann brosti afsakandi, tók við lyfseðh og beiðni um endaþarms- speglun, renndi fingrum gegnum stutt háriö og hvarf á braut. Ungur maöur á uppleið í lyftunni sem stefnir hraðbyri th tindsins fyrir ofanþokuna. NÝJUNG * AUKIÐ ÖRYGGI * SAMA VERÐ Ný örþunn verja. „PARTN- SR“ húðuð með „Non-9" sæðisdrepandi kremi sem 24 stk. kr. 750.00. 48 stk. kr. 1.400.00 96 stk. kr. 2.400.00 íf um getnaði, eyðni og kyn- sjúkdómum. Viðurkennd af heilbrigðis- yfirvöldum. □ Meðfylgjandi greiðsla n Póstkrafa + burðargjald □ Visa □ Euro □ Samkort Undirskrift Sendist til: „Partner-umboðið”. Pósthólf 27, 172 Seltjarnarnes. Fax: 611170 Nauðungaruppboð 19. mars. 1992. Þriðja og síðasta nauðungaruppboð á fasteigninni Brekku- stíg 1, Bíldudal, þingl. eign Ástvaldar H. Jónssonar, fer fram eftir kröfu Lífeyrissjóðs Vestfirðinga og Húsnæðisstofnunar ríkisins fimmtudaginn 19. mars 1992 kl. 14.00 á eigninni sjálfri. SÝSLUMAÐUR BARÐASTRANDARSÝSLU Norrænir starfsmenntunarstyrkir Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finnlands og Noregs veita á námsárinu 1992-93 nokkra styrki handa íslendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnskólapróf eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í iðnskólum eða framhaldsnáms iðnskólakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á íslandi. Fjárhæð styrks í Danmörku er 17.000 d. kr., í Finn- landi 27.000 mörk, og í Noregi 22.800 n. kr. miðað við styrk til heils skólaárs. Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 15. apríl nk„ og fylgi staðfest afrit prófskírteina, ásamt meðmæl- um. Sérstök eyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 12. mars 1992. Vinnuskóli Reykjavíkur Vinnuskóli Reykjavíkur auglýsir eftir leiðbeinendum til starfa við Vinnuskólann sumarið 1992. Starfs- tíminn er frá 1. júní til 31. júlí. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynsiu í verkstjórn við ýmis verkleg störf og/eða vinnu með unglingum. Vinnuflokkar skólans starfa að þrifum, gróðurum- hirðu og léttu viðhaldi, t.d. á skólalóðum eða leikvöll- um. Einnig er óskað eftir leiðbeinendum fyrir hóp fatlaðra ungmenna sem þurfa mikinn stuðning í starfi. Umsóknareyðublöð fást í Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar, Borgartúni 3, simi 622648. Þar eru einnig veittar upplýsingar um starfið. Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk. Vinnuskóli Reykjavíkur ------------------------------\ Utboð Vegmerking 1992 - mössun Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum i vegmerk- ingu - mössun í Reykjanesumdæmi. Helstu magntölur: Akreinalínur 1.877,4 ferm, markalínur 38,0 ferm og stakar merkingar 645,41 ferm. Verkinu skal lokið þann 18. ágúst 1992. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins, Borgartúni 5, Reykjavík, (aðalgjaldkera) frá og með 17. þ.m. Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00 þann 30. mars 1992. Vegamálastjóri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.