Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1992, Blaðsíða 44
56
LAUGARDAGUR 14. MARS 1992.
Afmæli
Valgeir Guðmundsson
Valgeir Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri, Jörundarholti 141,
Akranesi, er fertugur í dag.
Starfsferill
Valgeir fæddist á Auðbrekku í
Hörgárdal í Eyjafjarðarsýslu og ólst
þar upp. Hann lauk námi í blikk-
smíði frá Iðnskólanum í Reykjavík
1973.
Valgeir starfaði síðan við blikk-
smiði í Reykjavík til 1975 er hann
flutti á Akranes. Þar var hann verk-
stjóri við Blikksmiðju Þorgeirs og
Ellerts hf. til 1979 en 1976 hafði hann
tekið að sér störf við sorphreinsun
á Akranesi og veitir þeirri þjónustu
forstöðu ásamt sorphreinsun fyrir
sjö önnur sveitarfélög.
Valgeir starfaði með Björgunar-
sveitinni Hjálp á Akranesi um nokk-
urra ára skeiö. Hann var formaður
Félags ungra framsóknarmanna á
Akranesi 1978-80 og formaður
Framsóknarfélags Akraness
1985-91 auk þess sem hann hefur
gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
framsóknarfélögin. Hann hefur set-
ið í atvinnumálanefnd, stjórn at-
vinnuþróunarsjóðs, stjórn Kjör-
dæmasambands framsóknarfélag-
anna í Vesturlandskjördæmi, er í
stjórn Hitaveitu Akraness og Borg-
artjarðar, hefur verið kosninga-
stjóri flokksins á Akranesi og í Vest-
urlandskjördæmi. Valgeir hefur
verið virkur félagi í Lionsklúbbi
Akraness síðan 1985 og var m.a.
gjaldkeri klúbbsins 1988-89.
Fjölskylda
Valgeir kvæntist2.12.1972 Aðal-
björgu Sólrúnu Einarsdóttur, f. 19.9.
1953, húsmóður og skrifstofumanni.
Hún er dóttir Einars Jóns Kristins
Ámasonar frá Hólkoti á Reykja-
strönd, bátsmanns en hann lést
1962, og Bergþóm Ámadóttur frá
Flatey á Breiðafirði, húsmóður og
verkakonu, sem nú er til heimilis í
Sunnuhlíð í Kópavogi.
Börn Valgeirs og Aðalbjargar
Sólrúnar era Einar, f. 18.2.1974,
nemi; Guömundur, f. 26.5.1976;
Bergþóra, f. 18.6.1978; Valgerður, f.
6.2.1987; Aðalgeir, f. 5.9.1990, d.
18.10.1990.
Hálfsystkini Valgeirs, samfeðra,
em Steinunn, f. 3.5.1946, búsett í
Vestmannaeyjum og á hún fjögur
böm; Anna, f. 26.9.1948, húsfreyja
að Breiðabólstað í Suðursveit, gift
Steini Þórhallssyni, b. þar og eiga
þau sex börn; Kolbrún, f. 12.8.1950,
búsett á Akureyri, í sambýh með
Magnúsi Vilmundarsyni og á hún
tvö böm frá fyrri sambúð; Hilmar,
f. 1.11.1953, búsettur á Akureyri,
kvæntur Önnu Sigríði Antonsdótt-
ur og eiga þau tvö böm auk þess sem
Anna á tvö böm frá því áður; Þór-
ey, f. 5.6.1957, d. 16.7.1964; Hrefna,
f. 6.6.1958, húsfreyja að Kálfafelh í
Suðursveit, gift Bjarna Steinþórs-
syni b. þar og eiga þau þijár dætur;
Kristján, f. 1.11.1959, búsettur að
Valgeir Guðmundsson.
Skriðulandi í Eyjafjarðarsýslu,
kvæntur Halldóru Lísbet Friðriks-
dóttur og eiga þau fjögur börn;
Gunnar, f. 19.11.1960, var kvæntur
Huldu Sveinsdóttur og eiga þau einn
son.
Hálfbróðir Valgeirs, sammæðra,
er Eyþór, f. 1964, sambýhskona hans
er Sigríður Pálrún Stefánsdóttir á
Akureyri og eiga þau eina dóttur.
Foreldrar Valgeirs: Guðmundur
Árni Valgeirsson, f. 11.11.1923, d.
17.4.1976, bifvélavirki að Auð-
brekku í Hörgárdal, og Jóna Ingi-
björgPedersen, f. 11.4.1928, frá Dun-
haga í Amarneshreppi, húsmóðir
og verkakona, nú búsett á Akra-
nesi. Seinni maður Jónu Ingibjargar
er Haukur Jónsson.
Valgeir tekur á móti gestum á
heimili sínu eftir klukkan 20 á af-
mælisdaginn.
Halldor Steinar Benjamínsson
Hahdór Steinar Benjamínsson, bif-
reiðastjóri hjá SBS, til heimihs að
Flókalundi á Laugarvatni, verður
fertugur á morgun.
Starfsferill
Hahdór fæddist að Laugarvatni og
ólst þar upp. Eftir skyldunám hóf
hann iðnnám og útskrifaðist frá Iðn-
skólanum á Selfossi 1972 en er húsa-
smíðameistari frá 1977. Hánn vann
við smíðar í Laugarvatnshreppi til
1987 en hefur síðan starfað hjá SBS.
Fjölskylda
Halldór Steinar kvæntist 21.4.1973
Sigríði Jónu Mikaelsdóttur, f. 4.12.
1946, húsmóður og starfsmanni
Búnaðarbankans. Hún er dóttir
Mikaels Þorsteinssonar og Sabínu
Sigurðardóttur á Patreksfirði.
Böm Hahdórs Steinars og Sigríðar
Jónu em Guðný Þorbjörg Olafsdótt-
ir, f. 28.4.1966, launagjaldkeri hjá
Hagkaupi, búsett í Reykjavík, gift
Ólafi Þór Haukssyni lögfræðingi;
Mikael Þór, f. 6.2.1973, nemi við
ML; Sabína Steinunn, f. 6.4.1978,
nemi við Gmnnskóla Laugarvatns;
Benjamín Berg, f. 28.3.1983, nemi
við Gmnnskóla Laugarvatns.
Halldór á einn albróður. Sá er
Böðvar Ingi, f. 12.9.1954, sölumaður
hjá Globus, kvæntur Sólveigu Frið-
geirsdóttur og eiga þau íjögur böm.
Hálfsystir Hahdórs er Bergljót
Magnadóttir, f. 23.8.1943, náttúru-
fræðingur, gift Georg R. Douglas og
eigaþautvöböm.
Foreldrar Halldórs: Benjamín
Hahdórsson, f. 27.6.1923, húsvörður
við ML, og Anna Bergljót Böðvars-
dóttir, f. 19.6.1917, d. 2.12.1989,
stöðvarstjóri Pósts og síma á Laug-
arvatni.
Foreldrar Benjamíns voru Hahdór
Halldór Steinar Benjamínsson.
Benjamínsson og Steinunn Jónsdót-
ir í Skaftholti í Gnúpverjahreppi.
Foreldrar Önnu voru Böðvar
Magnússonar og Ingunn Eyjólfs-
dóttir á Laugarvatni.
Hahdór tekur á móti gestum á
heimili sínu 14.3. eftir klukkan 20.
Andlát
Óli Sverrir Þorvaldsson blaðasah,
Bogahlíð 17, lést aðfaranótt fóstu-
dagsins 13. mars. Hann var fæddur
í Reykjavík 3. mars 1923. Óh starfaði
lengst af við blaðasölu og seldi hann
DV um áratuga skeið.
Sólveig S. Magnúsdóttir, Hjahatúni,
Vík í Mýrdal, andaðist 12. mars.
Pálina Geirlaug Pálsdóttir frá Lög-
bergi, Vestmannabraut 56A, Vest-
mannaeyjum, lést í sjúkrahúsi Vest-
mannaeyja miðvikudaginn 11. mars.
Sigurður Bergsson, Hátúni 40, lést í
Borgarspítalanum 12. mars.
Helga Jónsdóttir frá Mosum andaðist
12. mars á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhhð í Kópavogi.
Jarðarfarir
Kristín Sólveig Sveinbjörnsdóttir,
Lálandi 23, Reykjavík, sem lést 8.
mars sl., verður jarðsungin frá Bú-
staðakirkju mánudaginn 16. mars kl.
13.30.
Valgeir Hörður Guðmundsson, Hafn-
arbraut 23, Kópavogi, verður jarð-
settur frá Akureyrarkirkju þriðju-
daginn 17. mars kl. 13.30.
Tilkynningar
Félag eldri borgara
Opið hús í Risinu í dag kl. 13-17, frjáls
spilamennska.
Krísuvíkursamtökin
verða með flóamarkað í Undralandi við
Grensásveg í dag, laugardag, kl. 12-18. Á
boðstólum verður allt mögulegt, t.d.
keramik, matvara, bækur, púsluspil og
ails konar fatnaður. Stórkostlegt úrval.
Opið hús í Fisk-
vinnsluskólanum
í dag, laugardag, kl. 13-17 verður opið
hús í Fiskvinnsluskólanum, Hvaleyrar-
braut 13 í Hafnarfirði. Sýnd verður fryst-
ing, söltun, flökun og fl. í tengslum við
verklega kennslu. Kynntar verða mat-
vörur frá íslenskum matvælum og
drykkir frá Sól hf. Leiðsögn verður um
skólann undir handleiðslu nemenda.
íslandsmeistarakeppni í
Freestyle
Hin árlega íslandsmeistarakeppni í Free-
style verður haldin í dag, 14. mars, kl. 14
í Tónabæ. Öll börn búsett á landinu á
aldrinum 10-12 ára hafa rétt til þátttöku.
Keppt verður í tveimur flokkum, ein-
staklings- og hópdansi.
Silfurlínan
sími 616262. Símaþjóhusta við eldri borg-
ara frá kl. 16-18 alla virka daga. Smávið-
hald, verslað og fleira.
Félag eldri borgara
Félagsvist spiluð á sunnudag kl. 14 í Ris-
inu. Dansað í Goðheimum kl. 20.
Kvenfélagið Freyja
Kópavogi
verður með félagsvist sunnudaginn 15.
mars kl. 15 að Digranesvegi 12. Góðar
veitingar og spilaverðlaun.
Myndgáta
eyp0R—
Myndgátan hér að ofan
lýsir nafnorði í ft.
Lausn gátu nr. 279:
Hafnargarður
Kolaportið - Skeljanes
Komið, skoðið og prúttið. Félag einstæðra
foreldra verður í Kolaportinu alla næstu
sunnudaga í mars og í SkeljaheUi, Skelja-
nesi. Opið kl. 14-17. Til sölu fatnaður,
skótau, bækur, blöð og geisladiskar og
margt fleira.
Grjótaþorpið
Gijótaþorpið, Vesturgötu 7, mun ekki
vera opið næstu helgar vegna nauðsyn-
legra breytinga á rekstrarhúsnæði
Gijótaþorpsins. Gert er ráð fyrir að opn-
að verði að nýju í maímánuði. Er þeim
aðilum sem voru með söluaðstöðu og
óska eftir slíkri bent á að hafa samband
við skrifstofu Grjótaþorpsins að Suöur-
landsbraut 12 eða í síma 812581.
Jazz verður á sunnudegi
Veitingahúsið Jazz, Armúla 7, hefur sem
kunnugt er bryddað upp á þeirri
skemmtilegu nýjung að efna til svokall-
aöra djassverða á sunnudögum. Þeir eru
með þeim hætti að gestum er ekki aðeins
boðið upp á málsverð á sunnudögum
heldur fylgir réttunum safarík djass-
veisla. Sunnudaginn 15. mars verður
þriðji djassverðurinn og að þessu sinni
verður það djasstríó Ómars Einarssonar
sem leikur fyrir matargesti. Tnóið skipa
þeir Ómar Einarsson á gítar, Úlfar Har-
aldsson á bassa og Jón Björgvinsson á
trommur. Húsið verður opnað kl. 12 á
hádegi.
Flóamarkaður Félags
einstæðra foreldra
í Skeljahelli, Skeljanesi 6, alla sunnudaga
í mars. Úrval af fatnaði og ýmsu dóti á
aldamótaverði. Opið frá kl. 14-17. Stræt-
isvagn nr. 5 gengur að húsinu. Ef þið
þurfið að losa ykkur við dót taka „flæm-
ar“ glaðlega á móti þvi.
Sameiginleg guðsþjónusta
Grafarvogs- og Seljasóknar
verður í Seljakirkju sunnudaginn 15.
mars ki. 14. Undanfama mánuði hafa
kirkjukórar Seljasóknar og Grafarvogs-
sóknar æft saman vegna tónleika sem
kóramir munu standa að 1 Seljakirkju
og Háteigskirkju. Á sunnudaginn verða
ákveðin tónverk flutt. Safnaðarfólki í
báðum söfnuðum er boðið til guðsþjón-
ustunnar. Séra Valgeir Ástráðsson og
Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjóna fyrir altari
og séra Vigfús Þór Ámason prédikar.
Iðnskóladagurinn -
opið hús
Árlegur Iðnskóladagur verður haldinn
sunnudag 15. mars kl. 13-17. Almenningi
er boðið að koma og skoða skólann og
kynna sér þá starfsemi sem þar fer fram.
Sýnd verður vinna nemenda og býður
skólafélagið upp á skemmtiatriði fyrir
yngri kynslóðina. Iðnskóladagurinn er
fyrir alla fjölskylduna en þó ekki síst fyr-
ir unga fólkið sem er að kveðja grunn-
skólann og leitar að áhugaverðum náms-
leiðum fyrir framtíðina.
Sýriingar
Sýning í ÁTVR
Kringlunni
í anddyri ÁTVR Kringlunni, Reykjavik,
stendur yfir sýning á oliumálverkum eft-
ir Elías Hjörleifsson. Elias er fæddur í
Hafnarfirði 1944, en flutti til Danmerkur
1962 og kom ekki aftur til íslands fyrr en
1989. Elías var með sýningu sl. haust í
Hafnarborg. Hann tók líka þátt í samsýn-
ingu á Hellu á vegum M-hátíðar á Suður-
landi 1991. Verk Eliasar, sem sýnd em
þjá ÁTVR, em landslagsmyndir undir
áhrifum frá íslenskri náttúm. Sýningin
stendur til 15. apríl.
Sýning í Menningarstofnun
Bandaríkjanna
Guðbergur Auðunsson oþnar málverka-
sýningu í Menningarstofnun Bandaríkj-
anna í dag, 14. mars. Þetta er 14. einka-
sýning Guðbergs og sýnir hann m.a.
myndir sem hann vann í Bellingham, í
Washingtonfylki, er hann dvaldi þar um
skeið árið 1990 og sýndi í Allied Arts
Galleiy. Sýningin stendur til 5. april og
er opin um helgar kl. 14-17 og alla virka
daga kl. 11.30-17.45.
Tónleikar
Einn fremsti píanóleikari
Hollands í Borgarleikhúsinu
í tílefhi fjölþættrar Hollandskynningar,
sem Aðalræðisskrifstofa Hollands gengst
fyrir í Reykjavík dagana 18.-28. mars
nk., kemur píanóleikarinn Rian de Waal
til lands og heldur tónleika í Borgarleik-
húsinu á setningarhátíð Hollandskynn-
ingarinnar miðvikudaginn 18. mars kl.
18. Rian dr Waal er einn fremstí píanó-
leikari Hollands af yngri kynslóðinni. Á
tónleikunum leikur hann m.a. verk eftír
hollenska tónskáldið Theo Loevendie (f.
1930), Franz Liszt og Frederic Chopin.
Veggsport flytur
sig um set
Skvass og veggtennisstaðurinn Vegg-
sport, sem áður var til húsa að Seljavegi
2, er nú fluttur að Stórhöfða 17, við Gull-
inbrú. Eigendur staðarins, þeir Hilmar
Gunnarsson og Hafsteinn Danielsson
iþróttakennarar, hafa opnað þar 5
skvass-sali og 1 veggtennis-sal. Þetta em
allt steyptir salir með glerbakveggjum.
Allir sem spila í Veggjasporti fá aðgang
að lyföngartæKjum og gufuböðum. Starf-
rækt er verslun á staðnum þar sem hægt
er að kaupa léttar veitingar og íþróttavör-
ur. Einnig er viðgerðarþjónusta fyrir þá
sem slíta strengi i spöðunum sínum.
Opið er alla daga vikunnar.